Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.2000, Blaðsíða 19
h
¦
.
Tíbrártónleikar
íSalnum
HULDA
BJÖRK OG
SIGRÍÐUR
SYNGJ-
ASTÁ
DÚETTAR verða í fyrirrúmi á söngttín-
leikum Tíbrár, Við slaghörpuna, í Salnum
í Tónlistarhúsi Kópavogs, annað kvöld,
sunnudagskvöld, kl. 20.
Það eru tvær ungar söngkonur, sem nú
þegar hafa vakið athygli erlendis, þær
Hulda Björk Garðarsdóttir sópran og Sig-
ríður Aðalsteinsdóttir mezzósópran, sem í
fylgd slaghörpuleikarans Jónasar Ingi-
mundarsonar hefja upp raust sína og flytja
songlög, ljóð og aríur eftir Purcell,
Brahms, Schumann, Rossini, Fauré og
Saint-SSens, en einnig blaða þau í söng-
bókinni sígildu Ljóðakorn eftir Atla Heimi
Sveinsson. Sigvaldi Kaldalóns fær einnig
sinn sess; Þú eina hjartans yndið mitt,
Betlikerlingin, Ég lít í anda liðna tíð o.fl.
Suðurnesjamenn eiga þess einnig kost að
heyra í þeim á tónleikum í Ytri-Njarðvík-
urkirkju í dag kl. 17.
Dúettaformið skemmtileg
tilbreyting
Að sögn Huldu Bjarkar byggist efnis-
skráin að stærstum hluta upp á dúettum.
Einsöngslög Kaldalóns munu þær Sigríður
þó syngja hvor í sínu lagi og í Ljóðakorn-
um Atla Heimis syngjast þær á. Þær stöll-
ur hafa áður komið fram saman á ein-
söngstónleikum en Hulda segir
dúettaformið vera skemmtilega tilbreyt-
ingu.
Framundan hjá Huldu Björk er norræna
tdnleikaferð um ísland, Svíþjóð og Noreg í
október. Þá mun hún syngja hlutverk
Evridísar í tónleikauppfærslu Kammerkórs
Kópavogs á óperunni Orfeus og Evridís í
Salnum í nóvember nk. I vetur mun hún
syngja hlutverk Serviliu í La Clemenza di
Tito eftir W.A. Mozart í Malaga á Spáni,
og hlutverk Michaelu í Carmen eftir Bizet
í tónleikauppfærslu Sinfóníuhljómsveitar
Islands.
Sigríður hefur verið ráðin að Þjóðar-
óperunni í Vín á næsta leikári og syngur
þar m.a. hlutverk Mercedes í Carmen og
Fjodor í Boris Goudonov.
Jónas Ingimundarson píanóleikari hefur
listræna umsjón með Tíbrár-tónleikunum í
Salnum.
Morgunblaoio/Kristinn
Einar Jóhannesson á æfingu með Peter Máté og Gunnari Kvaran .
TRÍÓ OG KLARINETT
(HAFNARBORG
TONLEIKARÖÐ Tríós Reykjavíkur og
Hafnarborgar menningar- og listastofnunar
Hafnarfjarðar hefst annað kvöld, sunnu-
dagskvöld, kl. 20.
Þetta verður afmælisár tónleika-
raðarinnar því tíu ár eru liðin frá því hún
hóf göngu sína.
Á tónleikunum verða flutt þrjú verk fyrir
klarinett, selló og píanó. Það eru tríó eftir
Beethoven, Þorkel Sigurbjörnsson og
Brahms. Gestur tríósins að þessu sinni verð-
ur Einar Jóhannesson klarinettuleikari.
Hann hefur hlotið mörg verðlaun á ferli sín-
um og leikið inn á margar hljómplötur. Ein-
ar hefur komið fram víða um heim. Tríó
Reykjavíkur skipa þau Guðný Guðmunds-
dóttir fiðluleikari, Peter Máté píanóleikari
og Gunnar Kvaran sellóleikari.
Miðasala og sala áskriftarkorta er í Hafn-
arborg í síma 555-0080. Einnig er hægt að
kaupa áskriftarkort og aðgöngumiða við
innganginn.
MENNING-
ARMINJA-
DAGUR
UM NÆSTU
HELGI
MENNINGARMINJADAGUR Evrópu verð-
ur haldinn á íslandi um næstu helgi; 30. sept-
ember-1. október nk.
Þjóðminjasafn íslands stendur fyrir opin-
berri dagskrá á Menningarminjadegi Evrópu í
öllum landsfjórðungum í samvinnu við heima-
menn á hverjum stað. Slíkur dagur er haldinn
árlega í öllum aðildarfélögum EvrópuráðsinsaC,
og Evrópusambandsins, og að þessu sinni er
yfirskriftin ákveðin: Merkir fornleifastaðir á
Islandi. Dagskráin tengist þjóðargjöfinni sem
samþykkt var á Alþingi á Þingvöllum 2. ágúst
sl. og er henni ætlað að styrkja fornleifarann-
sóknir á merkustu minjastöðum í landinu. í til-
efni af því er efnt til skoðunarferða á helstu
staðina.
Eítt minjasvæði í hverjum
landsfjórðungi
Valdir hafa verið fjórir staðir, einn í hverjum
landsfjórðungi eða minjasvæði, til skoðunar og
umræðu á þessum menningarminjadegi. Stað-
irnir eru Reykholt í Borgarfirði, Hólar í
Hjaltadal, Skriðuklaustur á Héraði og Þing-
vellir, og munu minjaverðir og fræðimenn frá
Þjóðminjasafninu ásamt heimamönnum og
staðarhöldurum á hverjum stað miðla af þekk- ' •
ingu og ræða framtíðarrannsóknir.
MorgunblaSio/Golli
Söngkonurnar Hulda Björk Gardarsdóttir og Sigríður Aoalsteinsdóttir ásamt píanóleikaranum Jónasi Ingimundarsyni.
BEETHOVEN LEIKINN I
STYKKISHÓLMSKIRKJU
DANÍEL Þorsteinsson píanóleikari og Sig-
urður Halldórsson sellóleikari halda tónleika
í Stykkishólmskirkju í dag, laugardag, kl. 17.
A efnisskránni eru 3 sónötur fyrir píanó og
selló eftir Beethoven: í g moll op 5 nr. 2, í A
dúr op. 69 og í D dúr op. 102 nr. 2.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferð
þeirra félaga, en þeir eru nýkomnir frá Fær-
eyjum þar sem þeir fluttu allar 5 sónötur
Beethovens á einum tónleikum í Norður-
landahúsinu í Þórshöfn og Kaupmannahöfn
þar sem þeir léku þrjár af sónötunum í Sí-
vala turninum. Þar á undan léku þeir í Skrið-
uklaustri í Fljótsdal og í Neskaupstað.
Laugardaginn 30. september munu þeir
ljúka tónleikaferðinni með því að flytja allar
5 sónöturnar á Tíbrártónleikum í Salnum í
Kópavogi kl. 15.
Samstarf þeirra Sigurðar Halldórssonar
og Daníels Þorsteinssonar hófst á Myrkum
músíkdögum 1983, þar sem þeir, ásamt
Hildigunni Halldórsdóttur fiðluleikara, tóku
þátt í flutningi á píanótríói eftir John
Speight. Næstu 5 árin störfuðu þeir saman í
spunahljómsveitinni Vormönnum íslands,
sem síðar hét Loftfélag íslands.
Hlutu báðir
starfslaun
I janúar 1988 héldu þeir sína fyrstu hefð-
bundnu dúett tónleika. Þeir hafa síðan leikið
víða um land, en einnig bæði austan hal's og
vestan, annað hvort tveir samítn eða með
Caput-hópnum, sem þeir hafa Ijjáðir starfað
með frá upphafi. Þeir hafa átaðiilfyrir tveim-
ur tónlístarháííðum, tileinkuðunr annars veg-
ar Hindemith og Fauré árið 1995 og hins
vegar Schubert og Brahms árið 1997. Arið
1995 kom út geisladiskur þar sem þeir leika
íslensk og erlend tónverk frá 20. öld og árið
1997 fluttu þeir öll verk Beethovens fyrir
píanó og selló á tvennum tónleikum á vegum
Gerðubergs. Þeir hafa einnig heimsótt
grunnskóla og haldið tónleika á vegum Tón-
listar fyrir alla.
Á þessu ári hlutu þeir báðir starfslaun
listamanna, hvor í sínu bæjarfélagi. Daníel á
Akureyri og Sigurður í Reykjavík.
SÖNGTONLEIKARA
KIRKJUBÆJARKLAUSTRI
SIGURÐUR Bragason baríton og Ólafur
Elíasson píanóleikari halda tónleika í fé-
lagsheimilinu á Kirkjubæjarklaustri á
morgun, sunnudag, kl. 16.
Á efnisskránni eru íslensk og erlend
sönglög.
Þeir Sigurður og Ólafur eru nýkomnir
úr tónleikaferð til Englands og eru á leið
til Bandaríkjanna í október þar sem þeir
flytja þessa sömu efnisskráT einleikssal
Carnegie Hall í New York.
Sigurður Bragason hefur hlotið af-
bragðsdóma gagnrýnenda jafnt heima
sem erlendis fyrir túlkun sína á sönglög-
um og ljóðaflokkum eftir Mussorgsky,
Liszt, Chopin, Rachmaninoff og Tschai-
kowsky. Hann hefur sungið inn á hljómp-
lötur og geisladiska og var nýjasti geisla-
diskur hans, Mozart forleikir og aríur þar
sem hann syngur ásamt Baltnesku fílharm-
óníunni undir stjórn Guðmundar Emilsson-
ar, tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaun-
anna árið 2000.
Ólafur Elíasson hefur haldið tónleika hér
Sigurður Bragason
Olafur Elíasson
heima og í Bretlandi. Hann hefur leikið inn á *
geisladiska bæði einleiksverk og svo einnig
píanókonserta eftir Mozart með London
Chamber Group sem fengu afbragðsdóma
gagnrýnenda.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 23. SEPTEMBER 2000 I 9 5*