Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.2000, Síða 13
IGARÐ-
SKAGAFJÖRU
EFTIR GYLFA GUÐMUNDSSON
Ég tók upp legginn sem ég hélt vera og skoðaði.
En þó fann ég að eitthvað var öðruvísi í fjörunni, eitt-
hvað hafði breytzt. Ég leit upp! F jaran var full af fólki,
karlmönnum. Þeir stóðu þarna a lltí kringum mig, tug-
ir manna í sjóstökkum. Þeir horfðu á mig og ég fann
að þeir áttu eitthvert erindi við mig.
TIL skýringar á frásögn þeirri sem
hér fylgir er rétt að taka þetta
fram: Eg ólst upp í Garðinum frá
fjögurra ára aldri. Ég bjó í Gerða-
skóla hjá afa mínum og ömmu,
Sveini Halldórssyni skólastjóra
og Guðrúnu Pálmadóttur. Ég ólst
upp hjá þeim hjónum og átti
heima í Gerðaskóla þar til ég var þrettán ára.
Atburðir þeir er hér er frá sagt gerðust er ég
var á 11. ári þegar ég átti heima í Gerðaskóla.
Vetrarnótt í október
Ég veit ekki hvað vakti mig dimma vetrar-
nótt í október en hitt er víst að ég fór á fætur í
myrkrinu, klæddi mig, gekk út og skundaði út
Garðveginn áleiðis út að Garðskaga. Nóttin var
dimm, tungl óð í skýjum, stillur, frostharka en
snjólaust. Ég flýtti for, hvers vegna veit ég
ekki. Ég veit í rauninni ekki heldur hvers vegna
ég var allt í einu kominn af stað út að Garð-
skaga - en ég flýtti mér eins og áður sagði.
Eg gekk út eftir, út skagann, þar til ég var
kominn að fjörunni. Ég gekk um fjörukambinn
í ljósi af mána sem hafði lýst mér alla leiðina út
veginn frá skólanum í Garði.
Ég fór niður í fjöruna og gekk þar um hvítan
sandinn. í annarlegri birtu frá skini tunglsins
mátti sjá skipsflök og tanka sem lágu fyrir utan
flösina enda hafa mörg skip farizt á Garðskaga-
flös.
Ég veit ekki enn hvað leiddi mig en ég gekk
einhvern veginn í leiðslu út með ströndinni til
vesturs í átt að Sandgerði. Sjórinn vætlaði við
skóinn minn.
Skyndilega var eins og eitthvað innra með
mér segði: Hér skaltu stanza, kallinn minn. Og
ég, lítill snáðinn, stanzaði og fór að líta í kring-
um mig. Og þá gerðist það: Ég sá bein sem
skolaðist upp að ströndinni, upp á hvítan sand-
inn í Garðskagafjöru, nánast við fætur mér.
Leggur úr lambi
Þetta var lærleggur og ég hélt í fyrstu að
þetta væri lærleggur úr lambi. En við nánari
skoðun sá ég að það gat ekki verið vegna þess
að leggurinn var nokkru lengri en svo. Ég tók
upp legginn sem ég hélt vera og skoðaði.
En þá fann ég að eitthvað var öðruvísi í fjör-
unni, eitthvað hafði breytzt. Ég leit upp! Fjaran
var full af fólki, karlmönnum. Þeir stóðu þarna
allt í kringum mig, tugir manna í sjóstökkum.
Þeir horfðu á mig og ég fann að þeir áttu eitt-
hvert erindi við mig.
Ég hélt á leggnum og horfði á þá undrandi en
óhræddur. Einn þeirra tók sig út úr hópnum,
horfði á mig og sagði: „Merci, mon petit gargon
- þakka þér fyrir piltur minn.“ Og ég fann
hvernig þessi maður horfði á mig með svolítið
vonarblik í auga.
Ég horfði á legginn sem ég hélt á milli hand-
anna. Og ég horfði einnig til karlanna í fjörunni
og þó alveg sérstaklega á þennan mann sem
talaði til mín á frönsku. Ég skildi í rauninni ekki
nokkurn skapaðan hlut í hvað hann var að
segja. Þó vissi ég einhvern veginn að hann var
að þakka mér fyrir eitthvað.
Útskólakirkja
Ég gekk aftur af stað upp fjöruna, upp hvítan
sandinn, yfir svolítinn malarkamb sem var efst
og yfir hann og síðan af stað til baka. En í þetta
skiptið fór ég ekki heim til mín ískólann í Garð-
inum, heldur hélt ég áleiðis aðdorkjunni minni,
Utskálakirkju. Ég gekk fram hjá Presthúsum
eins og þau hétu og heita víst enn. Ég gekk nið-
ur veginn að Utskálakirkju.
Ég gekk að prestssetrinu og bankaði á dyr
hjá séra Eiríki, prestinum mínum. Hann kom
strax til dyra þótt hánótt væri. Hann horfði á
mig svolitla stund og sagði svo: „Vinur minn, ég
var að búast við þér. Þess vegna er ég full-
klæddur. Ertu með legginn?" „Já,“ sagði ég.
Hann kom út og sagði: „Vertu ekki hræddur,
vinur minn. Komdu með mér út í kirkjugarð
hérna austan við kirkjuna.“ Hann tók í höndina
á mér og leiddi mig þennan stutta spöl niður í
kirkjugarð. Við opnuðum hliðið. Það ískraði
svolítið í því. Tungl óð í skýjum.
Ég hélt á leggnum eins og verðmæti við
brjóst mér. Við gengum inn um garðshliðið að
kirkjunni og meðfram henni en beygðum síðan
svolítið frá tvo þrjá metra niður í kirkjugarð-
inn. Presturinn minn sagði:
„Þessi leggur þarf að komast í vígða mold.“
„Já,“ sagði ég. „Eg veit það,“ og um leið og ég
sagði þetta gerði ég mér grein fyrir að ég hafði
ekki hugmynd um hvað átt var við þegar talað
var um vígða mold.
Engill í marmara
Við gengum þarna um í skini af mána. í miðj-
um kirkjugarðinum var hvítur engill sem hélt á
litlu barni. Við gengum fram hjá englinum þar
sem hann stóð í hvítum marmara. Presturinn
leiddi mig í vesturhluta garðsins, bak við
kirkjuna. Þar stansaði hann við gamla gröf.
Á steininum stendur: „Margrjet Pálína Jóns-
dóttir, móðir fjögurra barna, fædd 19. mars
1803, dáin 17. október 1840“
Presturinn sagði: „Komdu með legginn."
Presturinn benti mér á að grafa með hendinni
svolitla leið niður í þessa gömlu gröf svo ég
kæmi leggnum niður. Að því loknu settum við
mold yfir og presturinn sagði: „Megi blessun
hvfla yfir greftrun þinni. Megi sú sem hér hvflir
taka þig í sátt í grafreitnum. Guðs blessun fylgi
þér á nýjum vegum, franski vinur. Amen.“
Vinur frá öðrum heimi
Presturinn minn stóð upp og tók í höndina á
mér. Og það var einmitt þá sem það gerðist: Við
litum upp. Fyrir framan okkur stóð maðurinn
sem ég hafði hitt í Garðskagafjöru. Hann horfði
á mig og sagði: „Merci“ - og augun ljómuðu.
Ég fann að ég hafði eignast vin úr öðrum
heimi. Að því loknu hvarf þessi vinur, hann
hvarf úr okkar heimi.
Við gengum saman, ég og presturinn, til
baka sömu leið. Þegar kom að prestssetrinu
sagði hann við mig: „Þú varst sendiboði í nótt.
Það eru fáir sem fá að njóta þess sem þú fékkst
að njóta þessa dimmu vetramótt.
Farðu nú heim, vinur minn, og leggstu í rúm-
ið þitt. Farðu með bænimar þínar og segðu við
þann sem alltaf hlustar þegar þú ferð með bæn-
ina þína, já, segðu þá við hann: „Þakka þér íyrir
og ég hefi vissu um að þú hefur tekið vel á móti
fransmanninum, vini mínum.“
„Þetta skal ég gera,“ sagði ég við prestinn og
við kvöddumst innilega. Að þessu sögðu hvarf
presturinn. Og loks þá áttaði ég mig á að prest-
urinn var alls ekki séra Eiríkur IJtskálajirest-
ur. Þessi prestur var af öðmm heimi. Eg leit
upp að prestssetrinu. Þar var ekkert ljós í
glugga. Þar var enga hreyfingu að sjá.
Ég fékk styrk
Ég gekk svo til baka að skólanum mínum í
Garðinum. Einhvem veginn hafði ég það á til
finningunni allan tímann að ég væri ekki einn á
ferð. Það var eins og ég fengi styrk frá ein-
hverjum sem gekk með mér alla leið. Ég var
aldrei hræddur, reyndar þvert á móti. Ég var
ánægður og glaður.
Ég fór heim. Amma mín og afi vöknuðu ekki.
Þau vissu aldrei af þessu atviki. Ég sofnaði
vært eftir að hafa farið með bænimar mínar og
vaknaði daginn eftir hress og kátur.
Á hverju einasta ári í október um svipað leyti
og þetta gerðist í æsku minni, vakna ég gjarn-
an, læðist út, fer út í bílinn minn og ek að Út-
skálakirkju og fer að leiðinu. Þið getið fundið
þennan stað í grafreit í vesturhluta kirkju-
garðsins við Útskálakirkju. Þar sjáið þið líklega
við leiði gamla rós frá mér. Hún verður gjarnan
ársgömul. Ég kem þarna einu sinni á ári.
Frá þeirri stundu sem ég hitti þennan
franska vin er ég aldrei einn á ferð. Hann fylgir
mér hverja stund. Hann kemur með mér í hús,
nokkrum mínútum á undan mér og gerir þá
stundum vart við sig. Ég finn fyrir návist hans
og það líkar mér vel því ég veit að hann gengur'
með mér lífsbrautina á enda. Hann er vemdari
minn.
Höfundur er búsettur í Keflavík og er slcólastjóri
Njarðvíkurskóla.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 23. SEPTEMBER 2000 1 3