Lesbók Morgunblaðsins - 02.12.2000, Side 2
Laufabrauðsútskurður í Árbæjarsafni.
JÓLASÝNING í ÁRBÆJARSAFNI
ÁRLEG jólasýning Árbæjarsafns verður opin
mnnudagana 3. og 10. desember næstkom-
andi kl. 13-17. Þá gefst gestum tækifæri til að
fylgjast með undirbúningi jólanna eins og
hann var í gamla daga, flest hús safnsins
verða opin og mikið um að vera.
I Árbænum sitja fullorðnir og börn með
vasahnífa að skera út laufabrauð. Síðan er
það steikt í eldhúsinu og gestum boðið að
bragða á. Einnig verða steypt kerti f skemm-
unni bæði úr tólg og vaxi. Uppi á baðstofulofti
verður spunnið, pijónað og saumaðir roð-
skór. Þar verða einnig krakkar að velja jóla-
tré lyngi og jólasögur verða lesnar. I Hábæ
verður hangikjötið komið í pottinn og leik-
fangasýningin í Komhúsi hefur fengið jóla-
svip, þar verður einnig sýnt jólafondur og
gestir fá að föndra. f Líkn verður sýning á
jólaskrauti í eigu safnsins og Dillonshús býð-
ur upp á Ijúffengar veitingar. Nýja sýningin
um sögu Reykjavíkur verður einnig opin.
Dagskráin hefst klukkan 13 en klukkan 14
verður messa í safnkirkjunni og klukkan 15
hefst jólatrésskemmtun. Sunnudaginn 3. des-
ember syngja skólabörn úr Ártúnsskóla jóla-
lög en sunnudaginn 10. desember kemur
barnakór Árbæjarkirkju og syngur undir
stjóm Margrétar Dannheim. Síðan verður
dansað í kringum jólatréð og eru gestir hvatt-
ir til að vera með. Jólasveinar, þessir gömlu
íslensku, verða á vappi um safnsvæðið kl. 14-
16.30, hrekkjóttir og stríðnir að vanda, og
taka þeir þátt í dansinum kringum jólatréð.
GUÐSPJÖLLIN
í NORRÆNA
HÚSINU
DANSKI presturinn og rithöfundurinn Jo-
hannes Mollehave fjallar um guðspjöllin og
vonina í fundarsal Norræna hússins á morg-
un, sunnudag, kl. 16.
Johannes Mollehave er prestlærður, lauk
kandídatsprófi í guðfræði árið 1963 og starf-
aði sem prestur til ársins 1991. Hann hefur
getið sér gott orð í Danmörku sem sóknar-
prestur með umdeilanlegar skoðanir og gott
kopskyn en hann er ekki síður þekktur
: em rithöfundur og greinahöfundur.
Höfundarverk hans er jafnt minningar,
skáldsögur, bókmenntasaga sem og bækur
til huggunar, gleði og gamans. Þá hefur
hann samið fyrir útvarp og sjónvarp og ver-
ið með í að semja þekkta sjónvarpsþætti.
Einnig hefur hann skrifað gagnrýni í blöð
og hin síðari ár verið eftirsóttur fyrirlesari í
Danmörku. Johannes Mollehave vakti fyrst
athygli sem rithöfundur með endurminn-
ingabókinni „Pá myrens fodsti“, sem kom út
1973.
Á næstu árum gaf hann út m.a. predikan-
ir sínar og fyrsta skáldsaga hans, „En fri
mand“, var gefin út 1982. Ónnur skáldsaga
hans, „Kan den, som kan lægge to og to
sammen", kom út 1990 og árið eftir kom
skáldsagan „Retur til Waterloo".
Johannes Mpllehave hefur einnig þýtt
ýmsa texta og má nefna rokkóperuna Jesus
Christ Superstar 1973.
Aðgangur er ókeypis.
SÝNING á verkum Kristínar Gunnlaugsdótt-
ur verður opnuð í Hallgrímskirkju eftir messu
á morgun, sunnudag, kl. 12.15.
Kristín sýnir fjögur olíumálverk sem öll eru
unnin á þessu ári. Verkin eru fígúratív og
byggð á vangaveltum um stóru spurningarnar
í lífinu, einsemd mannsins og þörf hans fyrir
Guð.
Kristín er fædd á Akureyri árið 1963. Hún
lauk námi úr Myndlistar- og handíðaskólanum
1987, dvaldi í klaustri í Róm 1987-88 og nam
íkonagerð. Þá fór hún til Flórens og stundaði
nám í Ríkisakademíunni frá 1988-1993.
Þetta er sjötta einkasýning Kristínar á Is-
landi, en hún hefur tekið þátt í fjölda samsýn-
inga heima og erlendis.
Kristín Gunnlaugsdóttir við eitt verka sinna.
Morgunblaðið/Ásdís
FJÖGUR OLlUMÁLVERK
FERNIR TÓNLEIKAR UM HÁTÍÐARNAR
OG DAGSKRÁIHVERJUM MÁNUÐI
NÍTJÁNDA starfsár Listvinafélags Hallgríms-
kirkju hefst sunnudaginn 3. desember, fyrsta
sunnudag í aðventu.
Félagið býður upp á fjölbreytta dagskrá,
fema tónleika um jól og áramót og að jafnaði
eina dagskrá í hverjum mánuði, auk fjölda dag-
skrárliða á Kirkjulistahátíð 2001 um hvítasunnu
og Sumarkvölda við orgelið með 27 orgeltón-
leikum í júlí og ágúst. Félagið stendur að fjór-
um myndlistarsýningum á árinu undir forystu-
Listasafns Hallgrímskirkju. Á upphafsdegi nýs
starfsárs verður hátíðarmessa klukkan 11, þar
sem Karl Sigurbjömsson biskup prédjkar og
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. í mess-
unni verður tekið á móti gjöfum til Hjálpar-
starfs kirkjunnai-, en á þessum degi hefst jóla-
söfnun hjálparstarfsins. Að lokinni messu
verður opnuð sýning Kristínar Gunnlaugsdótt-
ur á fjórum olíumálverkum í forkirkjunni.
Klukkan 17 heldur Bama- og unglingakór Hall-
grímskirkju jólatónleika undir stjórn Bjarneyj-
ar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur. Á tónleikun-
um syngja kórarnir jólalög úr ýmsum áttum, en
einn af hápunktunum verður framflutningur á
jólalagi eftir Hildigunni Rúnarsdóttur.
Listvinafélag Hallgrímskirkju hefur frá
stofnun árið 1982 haft það að markmiði að efla
listalíf við kirkjuna. Félagsþátttaka í Listvina-
félaginu er ekki bundin við sóknarmörk, en
gegn vægu árgjaldi fá félagar aðgang að öllum
dagskráratriðum á vegum félagsins og Sumar-
kvölda og afslátt á aðgöngumiðum að dag-
skráratriðum Kirkjulistahátíðar.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur.
Árnastofnun, Árnagarði: Handritasýning.
Til 15. maí.
Bókasafn SeKjarnarness: Jón Axel Egils-
son. Til 2. des.
Edinborgarhúsið, ísafirði: Nína Ivanova.
Til 3. des.
Félagsheimilið Aratunga: Gunnar Ingi-
bergur Guðjónsson. Til 24. des.
Galleri@hlemmur.is: Samsýning20 lista-
manna. Til 3. des.
Gallerí Fold: Garðar Pétursson. Til 10. des.
Gallerí Nema hvað: Rósa. Til 6. des.
Gallerí Reykjavík: Reynir Katrínarson. Til
2. des. Ki-istín Þorkelsdóttir. Til 3. des.
Ebba Júlíana Lárusdóttir. Til 8. des.
Gerðarsafn: Fullveldi. Til 30. des.
Grófarhúsið: Móðirin í íslenski-i ljósmynd-
un. Til 3. des.
Hafnarborg: Sýning 6-10 ára barna úr
Litla myndHstarskólanum í Hafnarfirði. Til
7. jan.
Hallgrímskirkja: Kristín Gunnlaugsdóttir.
Til 19. feb.
Hestamiðstöð íslands: Bjarni Þór. Til 24.
des.
Ingvar Helgason hf.: Ljóðmyndasýning.
TillO.jan.
Listagrip: Sjö listakonur.
Listasafn Akureyrar: „Heimskautslöndin
unaðslegu". Til 17. des.
Listasafn ASI: Ljósasögur. Til 3. des.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla
daga, nema mánudaga, kl. 14-17. Högg-
myndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn íslands: Verk Þórarins B. Þor-
lákssonar. Til 3. des.
Listasafn Rvk. - Ásmundarsafn: Undir
bárujárnsboga. Til 31. des. Verk í eigu
safnsins.
Listasafn Rvk. - Kjarvalsstaðir: Jóhannes
S. Kjarval.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: H ærra til
þín. Til 4. jan.
Listaselið: Harpa María Gunnlaugsdóttir
og Þóra Einarsdóttir. Til 9. des.
Listasetrið Kirkjuhvoli Akranesi: Þor-
björg Höskuldsdóttir. Til 3. des.
Listhúsið Laugardal: Sigurrós Stefáns-
dóttir. Til 27. des.
Ljósaklif, Hafnarfirði: Susanne Christen-
sen og Einar Már Guðvarðarson. Til 20.
des.
Norræna húsið: Jyrki Parantainen. Til 17.
des. Brita Been og Barbro Hernes. Til 31.
des.
Norska húsið, Stykkishólmi: Nytjalist úr
náttúrunni. Til 3. des.
Nýlistasafnið: SjónþingVísiakademíunn-
ar. Til 12. des.
Pakkhúsið Höfn í Hornafirði: Þorgerður
Sigurðardóttir. Til 17. des.
Sjóminjasafnið á Eyrarbakka: Linda Ás-
dísardóttir. Til 28. des.
Skaftfell, Seyðisfirði: Jón Óskar. Til 15.
jan.
Sparisjóður Hlj., Garðatorgi: Bubbi og Jó-
hann G. Jóhannsson. Til 21. des.
TÓNLIST
Laugardagur Fnlíirkjan í Reykjavík:
Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari, Richard
Talkowsky sellóleikari og Ki-ystyna Cortes
píanóleikari. Kl. 20.
Langholtskirkja: Tónleikar á vegum Tón-
skóla Sigursveins og koma um 100 nem-
endur fram. Kl. 14.
Reykholtskirkja, Borgarfirði: Kammer-
kór Vesturlands, ásamt einsöngvurum og
hljóðfæraleikurum. Kl. 16.
Sunnudagur/þriðjudagur
Hallgrímskirkja: Kvennakór Reykjavíkur.
Kl. 20.30.
Miðvikudagur
Norræna húsið: Kvintettinn Fagotterí. Kl.
12.30.
LEIKLIST
Iðnó: Sýnd veiði, lau. 2., fös. 8. des. Leik-
hópurinn Perlan, sun. 3. des. Medea, sun.
3. des.
Þjóðleikhúsið: Draumur á Jónsmessunótt,
lau. 2. des. Horfðu reiður um öxl, sun. 3.
des. Kirsuberjagarðurinn, fös. 8. des.
Smíðaverkstæðið: Ástkonur Picassos, fös.
8. des.
Borgarleikhúsið: Abigail heldur partí, lau.
2. des. Auðun og ísbjöminn, lau. 2., sun. 3.
des., Kysstu mig Kata, lau. 2. des. Litla
sviðið: Abigail heldur partí, lau. 2. des.
Skáldanótt, fös. 8. des.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Litla stúlkan með
eldspýturnar, lau. 2., sun. 3. des. Vitleys-
ingamir, lau. 2.,_sun. 3., fös. 8. des.
Loftkastalinn: Á sama tíma að ári, lau. 2.,
fös. 8. des. Bangsímon, sun. 3. des.
Kafflleikhúsið: Eva, sun. 3. des., fös. 8. des.
Háaloft, þri. 5. des.
Möguleikhúsið: Hvar er Stekkjarstaur?,
sun. 3., fim. 7. des. Jónas týnir jólunum,
sun. 3., fim. 7., fös. 8. des. Tjamarbíó: Góð-
ar hægðir, lau. 2., fós. 8. des. Prinsessan í
hörpunni, lau. 2. des.
Smiðjan - Nemendaleikhúsið: Ofviðrið,
lau. 2., mið. 6., fim. 7., fós. 8. des.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 2. DESEMBER 2000