Lesbók Morgunblaðsins - 02.12.2000, Side 20
ASTARSORG
OG ÁSTARSÆLA
Tónleikar í tilefni af aldar-
afmæli Karls O. Runólfs-
sonar verða haldnir í
Salnum í Kópavogi í dag,
v laugardag. SÚSANNA
SVAVARSDÓTTIR ræddi
við Þórunni Guðmunds-
dóttur, skipuleggjanda
tónleikanna, sem segir
Karl hafa spannað
allan tilfinningaskalann
íverkum sínum.
TÓNLEIKARNIR eru liður í Tíbrá
- tónleikaröð Salarins og verða
flutt fjölmörg sönglög eftir Karl
sem mörg eru vel þekkt en önnur
síður. Flytjendur eni Þórunn
Guðmundsdóttir sópran, Ingunn
Hildur Hauksdóttir píanóleikari
og Hjalti Rögnvaldsson leikari.
Það er Þórunn sem hefur haft veg og vanda
af skipulagi tónleikanna og segist hún hafa
fengið hugmyndina að þeim þegar hún áttaði
sig á því að Karl 0. Runólfsson hefði orðið
Sfcundrað ára á þessu ári. „Enda á hann skilda
eina tónleika, ef ekki fleiri, vegna þess að verk-
in hans eru svo skemmtileg og vel skrifuð,"
segir Þórunn.
Karl 0. Runólfsson fæddist í Reykjavík 24.
október 1900 og andaðist 29. nóvember 1970.
Karl nam prentiðn og starfaði sem prentari til
1925, en þá ákvað hann að helga sig tónlistinni.
Hann fékk snemma áhuga á tónlist og greip
hvert tækifæri til að læra og iðka hana. Hann
stundaði nám í Kaupmannahöfn um tveggja
ára skeið og einnig við Tónlistarskólann í
Reykjavík. Hann starfaði síðan sem trompet-
leikari, kennari og stjómandi og er nafn hans
nátengt sögu lúðrasveita á íslandi.
„Framlag hans sem tónskálds mun halda
nafni hans lengi á lofti,“ segir Þórunn, „en eftir
hann liggja um 65 ópusar og nokkur verk án
ópusnúmers. Öll verk hans bera vott um mikla
Morgunblaðið/Þorkell
Þórunn Guðmundsdóttir sópran og Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari.
Hjaltl Rögnvaldsson
vandvirkni og er hvergi neinn viðvaningsbrag-
ur á þeim. Hann hafði áhuga á þjóðlögum og
þau höfðu áhrif á tónsmíðastíl hans. Verk hans
eni fjölbreytt og meðal þeirra eru kórverk,
hljómsveitarverk, kammertónlist, lúðrasveit-
artónlist og kirkjutónlist. Ástsælustu verk
hans munu þó vera sönglögin og nægir þar að
nefna „í fjarlægð", „Viltu fá minn vin að sjá“
og „Síðasti dans“.
Mörg sönglaga Karls hafa liðið fyrir að þau
hafa ekki verið fáanleg nema í ljósrit-
um af handritum. í tilefni af hundrað
ára afmæli Karls hefur íslensk tón-
verkamiðstöð látið setja sum af þess-
um lögum og eins nokkrar þjóðlagaút-
setningar hans og vonandi verður
framhald á þessu.“
Sönglög og framsögur
Hvaða verk ætlið þið að flytja á tón-
leikunum?
„Fyrst og fremst sönglögin. Karl
samdi um sextíu sönglög en við náum
að sjálfsögðu ekki að gera þeim öllum
skil. Við verðum líka með framsögur -
sem eru ljóð lesin við píanóundirleik.
Framsögurnar eru tvær þulur eftir
Theódóru Thoroddsen og Únglíngur-
inn í skóginum eftir Halldór Laxness.
Það er Hjalti Rögnvaldsson sem flyt-
ur þær við píanóundirleik Ingunnar.
Ég hef lítið fylgst með því hvað þau
eru að gera en mér skilst á þeim að
þetta sé ákaflega skemmtilegt."
Hvað áttu við með framsögur?
„Karl samdi fimm framsögur en framsaga er
Ijóðalestur við píanóundirleik eða jafnvel
hljómsveitarundirleik. Eitthvað af þeim fram-
sögum sem við flytjum er líka til í hljómsveit-
arbúningi. Tónskáldið ákveður hvar í verkinu
ljóðlínumar eru sagðar og litar ljóðin með tón-
listinni og magnar þannig upp hughrif og
stemmningar og dregnir eru fram ákveðnir
Karl O. Runólfsson
þættir. Þetta er því eitthvert millistig milli
söngs og ljóðalesturs."
Hvernig völduð þið sönglögin?
„Við fengum flest sönglaga Karls og fórum í
gegnum megnið af þeim. Sum þeirra em skrif-
uð fyrir karlrödd svo þau voru sjálfkrafa úti-
lokuð en nóg er eftir samt og við völdum bæði
þessi þekktustu, eins og „í fjarlægð" og „Viltu
fá vin minn að sjá“ og fleiri sem em I allra eyr-
um, sem og þau sem óþekkt em en mörg laga
Karls hafa aldrei verið sett upp eða prentuð og
hafa því verið fráhrindandi fyrir flytjendur að
því leyti. En það er vel þess virði að skoða þessi
lög, þótt þau hafi lítið verið flutt af þessari
ástæðu."
Glettni og tregi
„Eitt af því sem er forvitnilegt við verk
Karls - og kemur glöggt fram á þessum tón-
leikum - er að hann spannar allan tilfinninga-
skalann. Þarna er Æri-Tobbi í sínum fárán-
leika, ástarljóð, bæði ástarsorg og ástarsæla,
náttúmlýsingar og frásögur. Mér finnast þau
Ijóð sem hann valdi að semja við yfirleitt ákaf-
lega góð og falleg, til dæmis lög sem hann
samdi við ljóð Jóhanns Sigurjónssonar, Jónas-
ar Hallgrímssonar og Tómasar Guðmundsson-
ar.“ Þegar Karl semur lög við þessi ljóð er það
oft þannig að tveir plús tveir verða ekkert fjór-
ir, heldur sex eða sjö, vegna þess að útkoman
verður svo miklu meiri en ef Ijóðið eða lagið
stendur eitt. Hann ræður við allan skalann, allt
frá því að vera glettinn - sem fá íslensk tón-
skáld hafa leyft sér - en hann snertir ekki síður
tregastrenginn í brjóstinu."
Era einhver lög á tónleikunum sem hafa
aldrei áður verið flutt?
„Það er erfitt að segja vegna þess að það era
svo lélegar skrár yfir það sem hefur verið flutt.
Sum hafa oft verið flutt og em löngu orðin að
þjóðareign, en önnur em sjaldheyrð, ekki síst
þjóðlagaútsetningarnar." Þess má geta að fyr-
ir fimm ámm gaf Þórann út disk með lögum
eftir Jón Leifs og Karl 0. Runólfsson og þar
vom sum laganna hljóðrituð í fyrsta sinn. Víst
er að einhver af þeim munu hljóma á tónleik-
unum í dag sem hefjast klukkan 17.
RÚSSNESKT TRÍÓ
ÁTÓNLEIKUMÍMÍR
Lelkhópurinn Perlan á góðrl stundu.
PERLUR PERLUNNAR
FYRIR forgöngu sendiherra Rússlands á
Islandi, Anatólís Zaitsev, og með tilstyrk
nokkurra íslenskra aðila koma 3 rússneskir
hljóðfæraleikarar til landsins nú í desember
og halda tónleika víða um land. Á morgun
kl. 18 verða listamennirnir gestir MÍR í fé-
lagsheimilinu, Vatnsstíg 10, og kynna þá
* fjölbreytta efnisskrá sína í tali og tónum.
Tríó þetta var stofnað á árinu 1994 og hef-
ur síðan haldið tónleika víðsvegar í Rúss-
landi og utan þess undir nafninu „Rússkíe
virtúozy“, (Rússnesku vitrúósarnir). Efnis-
skrá tríósins er afar fjölbreytt, í bland þjóð-
leg tónlist og dægurlög, sígild tónlist og al-
þýðulög, en hver og einn hljóðfæraleikar-
anna er sagður snillingur á sitt hljóðfæri.
Virtir rússneskir söngvarar koma oft fram
með tríóinu.
Stjórnandi tríósins er Dmitrí Tsarenko,
sem leikur á balalæka. Hann lauk á sínum
tíma námi við Tónlistarháskólann í Lenin-
f grad með láði og hefur komið fram á tón-
leikum víða um heim, auk Rússlands m.a. í
Þýskalandi, Noregi, Ástralíu, Japan, Nýja-
Sjálandi, Frakklandi og víðar. Hann var í
hópi listamanna frá Rússlandi, sem komu til
íslands vorið 1985 og tóku þátt í dagskrá
Sovéskra daga MÍR það árið. Var hann þá
einleikari með þjóðlagaflokknum „Rossía"
undir stjórn söngkonunnar frægu, Ljúdmilu
Zykinu, og hljómsveitarstjórans Viktors
Gridin. Árið 1994 vann Dmitrí Tsarenko til
fyrstu verðlauna í alþjóðlegri tónlistar-
keppni og ári síðar var hann sæmdur titlin-
um „heiðurslistamaður Rússlands“ fyrir
framlag sitt til kynningar á þjóðlegri rúss-
neskri tónlist og framúrskarandi hljóðfæra-
leik.
Nikolaí Martynov leikur á bassabalalæka.
Hann hefur unnið til fyrstu verðlauna í al-
þjóðlegri tónlistarkeppni, sem kennd er við
gítarsnillinginn Segovia, og komið fram á
tónleikum í Þýskalandi, Tyrklandi, Hollandi
og víðar.
Vera Tsarenko leikur á domm. Hún hlaut
á sínum tíma verðlaun á æskulýðshátíð í
Havana á Kúbu og hefur komið fram á tón-
leikum í Japan, Bandaríkjunum, Kóreu,
Þýskalandi, Portúgal og víðar.
Aðgangur að tónjeikum rússneska tríósins
í félagsheimili MÍR á morgun er öllum
heimill.
PERLUR og skínandi gull heitir leik- og
danssýning leikhópsins Perlunnar sem flutt
verður í Iðnó á morgun, sunnudag, kl. 15.
Dagskráin samanstcndur af 6 atriðum:
Leikatriðunum „Ef þú bara giftist", „í dag
“, „Kærleikurinn er sterkasta aflið“ og
„Mídas konungur" í leikstjórn Sigrfðar Ey-
þórsdóttur og dansatriðunum „Romantica"
og „Handspil" undir stjórn Láru Stefáns-
dóttur.
Perluleikarar eru 15 talsins. Perlan er
skipuð fullorðnu, þroskaheftu fólki og hef-
ur það að markmiði að sýna opinberlega.
Perlan fagnar með sýningunni 17 ára af-
mæli sínu, að vera búin að fá samastað í
Iðnó og að vera með framlag til M-2000 -
Reykjavíkur - menningarborgar Evrópu
árið 2000. Tónlist: Eyþór Arnalds, Móeiður
Júnfusdóttir og Þorvaldur Bjarni Þorvalds-
son. Búningar: Bryndís Hilmarsdóttir og
Nína Njálsdóttir. Leikbúningar og grímur:
Dominique Poulin og Þórunn E. Sveins-
dóttir. Danshöfundur er Lára Stefánsdótt-
ir.
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 2. DESEMBER 2000