Lesbók Morgunblaðsins - 16.12.2000, Page 2
Morgunblaðið/Sverrir
Félagar í Sinfóníuhljómsveit íslands spila í Alþingishúsinu.
Jólatónleikar Sinfóníunnar
JÓLATÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveitar-
innar verða í Háskólabíói í dag, laugardag, kl.
15.
Tónleikarnir hefjast með syrpu af vinsæl-
um lögum eftir Leroy Anderson, því næst
leikur Stefán Jón Bemharðsson einleik í
Hornkonsert nr. 4, þriðja þátt, eftir W.A.
Mozart, Dans trúðanna úr þekktustu óperu
Bedrich Smetana, Seldu brúðinni, fylgir fast
á eftir og síðan syngur Unglingakór Grens-
áskirkju negrasálminn Feeling good og jóla-
lag frá Suður-Afríku, I paradisi. Fyrir hlé
flytur hljómsveitin verkin Forðum í bænum
Betlehem, Far, seg þá frétt á fjöllum í útsetn-
ingu Þóris Baldurssonar og Perpetuum mo-
bile scherzo galop op. 257 eftir J. Strauss.
Eftir hlé verða Hvítu jól Irving Berlins, Snjó-
karl Howards Blakes og Sleðaferð Leroys
Andersons flutt, en í Snjókarlinum syngur
Svanlaug Jóhannsdóttir einsöng með Ung-
lingakór Grensáskirkju.
Pottasleikir kemur í heimsókn og munu
þeir Guðni Franzson, Hermes, og Karl Ágúst
Úlfsson leiða okkur í allan sannleikann um
Pottasleiki og bræður hans. Tónleikunum
lýkur með Heims um ból og samsöng allra.
Hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkin-
son, kynnir og sögumaður er Karl Ágúst
Úlfsson, Guðni Franzson kemur fram í hlut-
verki Hermes, kórstjóri Unglingakórs Grens-
áskirkju er Margrét Pálmadóttir, einsöngv-
ari er Svanlaug Jóhannsdóttir og einleikari
er Stefán Jón Bernharðsson.
Morgunblaáið/Þorkell
Leikhópurinn Perlan ásamt Sigríði Eyþórsdóttur leikstjóra.
Perlu-jól
í Iðnó
DAGSKRÁIN Perlu-Jól verður í Iðnó á
morgun, sunnudag, kl 17.
Sýnt verður „Síðasta blómið“ eftir James
Thurber í þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar.
Tónlist og áhrifshljóð eru eftir Eyþór Arn-
alds og búningagerð annaðist Anna Birg-
isdóttir. Leikstjóri er Sigríður Eyþórsdóttir.
Frumfluttur verður dansinn „Jólakött-
urinn“ eftir Láru Stefánsdóttur við ljóð Jó-
hannesar úr Kötlum og tónlist Guðna
Franzsonar. Búningar eftir Bryndísi Hilm-
arsdóttur. Leikstjórn Sigríður Eyþórsdóttir.
Frumflutt verður „Krummasaga" eftir Jó-
hannes úr Kötlum við tónlist Mána Svav-
arssonar. Búningagerð Binna, Nína og
Sigga. Leikstjórn Sigríður Eyþórsdóttir.
Frumfluttur verður helgileikurinn „Sjá
ég boða yður mikinn fógnuð" við tónlist
Mána Svavarssonar. Búningar Binna, Nína
og Sigga. Leikstjóri er Sigríður Eyþórs-
dóttir. Guðni Franzson skemmtir með söng
og hljóðfæraslætti milli atriða.
Sýningin tekur um eina klukkustund í
flutningi. Aðeins þessi eina sýning.
Morgunblaðið/Ásdís
Guðfinna Helgadóttir undirbýr sýninguna á bútasaumsteppunum.
Sýning á
antikbúta-
saumsteppum
SÝNING á antik bútasaumsteppum verður
opnuð í aðalsal Hafnarborgar, menningar- og
listastofnunar Hafnarfjarðar í dag. laugar-
dag, kl. 11.
Teppin koma úr safni Marti og Dick Mich-
ell en safn þeirra er stærsta einkasafn af
þessum toga í Bandaríkjunum. Á sýningunni
verða um þrjátíu teppi, þau elstu frá því um
1850.
Samstarfsaðili Hafnarborgar að þessari
sýningunni eru hjónin Guðfinna Helgadóttir
og Helgi Axelsson, eigendur Vefnaðarvöru-
verslunarinnar Virku en Guðfinna hefur unn-
ið að undirbúningi og valið verkin á sýn-
inguna í samvinnu við eigendur.
Þau hjónin Marti og Dick Michell eru
væntanleg til landsins í lok desember og mun
Marti Michell halda fyrirlestur í Hafnarborg
miðvikudaginn 3. janúar kl. 20.30.
Sýningin verður opin kl. 11-17 dagana 16. -
23. og 27. - 30. desember og 3. - 7. janúar.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur.
Árnastofnun, Árnagarði: Handritasýn-
ing. Til 15. maí.
Café Mflanó: Ingvar Þorvaldsson. Til
31. des.
Galleri@hlemmur.is: Hekla Dögg. Til
7. jan.
Gallerí Geysir: Trúum við á engla? Til
6. jan.
Gallerí Hringlist: Fjóla Jóns. Til 24.
des.
Gallerí Reykjavík: Samsýning níu lista-
kvenna. ,Til 17. des. Dröfn Guðmunds-
dóttir. Árný Björk Birgisdóttir. Bene-
dikt S. Lafleur. Til 24. des. Sigurður
Atli Atlason. Jónas Bragi Jónasson. Til
31. des.
Gallerí Tapas: Haukur Dór. Til 10. jan.
Garður, Ártún 3, Selfossi: GUK. Til 17.
des.
Gcrðarsafn: Fullveldi. Til 30. des.
Hafnarborg: Englar, stjörnur og fjöll
og Jólakortasýning grunnskólabarna.
Til 7. jan.
Hallgrímskirkja: Kristín Gunnlaugsdótt-
ir. Til 19. feb.
Hestamiðstöð íslands: Bjarni Þór. Til
24. des.
Ingvar Helgason hf.: Olafur Oddsson
og Sigmundur Ernir Rúnarsson. Til 10.
jan.
Islensk grafík: Sigurður Hrafn Þorkels-
son og Þórarinn Svavarsson. Til 17. des.
Listasafn Akureyrar: „Heimskautslönd-
in unaðslegu“. Til 17- des.
Listasafn Islands: Úr safnaeign. Til 15.
jan.
Listasafn Rvk - Asmundarsafn: Hærra
til þín. Til 4. jan. Verk í eigu jsafnsins.
Listasafn Rvk - Hafnarhús: Island öðr-
um augum litið. Undir bárujárnsboga.
Til 7. jan.
Listasafn Rvk - Kjarvalsstaðir:
A.R.E.A. 2000. Til 7. jan. Jóhannes S.
Kjarval.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Hærra
til þín. Til 4. jan.
Listhús Ófeigs: Helgi S. Friðjónsson og
Sif Ægisdóttir. Til 24. des.
Listhúsið Laugardal: Sigurrós Stefáns-
dóttir. Til 27. des.
Ljósaklif, Hfj.: Susanne Christensen og
Einar Már Guðvarðarson. Til 20. des.
Mokkakaffi: Róbert Stefánsson. Til 3.
jan.
Norræna húsið: Jyrki Parantainen. Til
17. des. Brita Been og Barbro Hernes.
Til 31. des.
Skálholtskirkja: Katrín Briem. Til 1.
feb.
Sparisj. Hfj., Garðatorgi: Bubbi og Jó-
hann G. Jóhannsson. Til 21. des.
TÓNLIST
Laugardagur
Hallgrfmskirkja: Aðventutónleikar
Karlakórs Reykjavíkur. Kl. 17 og kl. 22.
Háskólabfó: Jólatónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar. Hljómsveitarstjóri:
Bernharður W'lkinsgn, kynnir og sögu-
maður: Karl Ágúst Úlfsson. Fram kem-
ur m.a. Unglingakór Grensáskirkju
undir stjórn Margrétar Pálmadóttur.
Einsöngvari: Svanlaug Jóhannsdóttir.
Einleikari: Stefán Jón Bernharðsson.
Kl. 15.
Háteigskirkja: Aðventutónleikar Lands-
bankakórsins. Stjórnandi: Guðlaugur
Viktorsson. Kl. 17.
Kristskirbja, Landakoti: Kór MR.
Stjórnandi: Marteinn H.Friðriksson. Kl.
21.
Langholtskirkja: Jólasöngvar Kórs
Langholtskirkju. Kl. 19 og 23.
Sunnudagur
Grensáskirkja: Aðventutónleikar
Kirkjukórs Grensáskirkju. Kl. 17.
Hallgrímskirkja: Áðventutónleikar
Karlakórs Reykjavíkur. Kl. 20.
Langholtskirlga: Jólatónleikar Kamm-
ersveitar Reykjavíkur. Kl. 16.
Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju. Kl.
20.
Neskirkja: Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna. Stjórnandi: Ingvar Jónasson.
Einleikarar: Ari Þór Vilhjálmsson, Elfa
Rún Kristinsdóttir, Ingrid Karlsdóttir
og Tóri Restorff Jacobsen. Inga Back-
man syngur einsöng. Kl. 17.
Þriðjudagur
Grafarvogskirkja: Sameiginlegir að-
ventutónleikar Gospelsystra Reykjavík-
ur, Stúlknakórs Reykjavíkur og Vox
Feminae. Kl. 20.30.
Miðvikudagur
Hallgrímskirkja: Sameiginlegir að-
ventutónleikar Gospelsystra Reykjavík-
ur, Stúlknakórs Reykjavíkur og Vox
Feminae. Kl. 20:30.
LEIKLIST
Iðnó: Sýnd veiði, laug. 16. des.
Leikhópurinn Perlan, sun. 17. des.
Ilafnarfjarðarleikhúsið: Jólaandakt -
Litla stúlkan með eldspýturnar, sun. 17.
des., mán. 18. des.
Loftkastalinn: Bangsimon, sun. 17. des.
Kaffileikhúsið: Jólavaka Hugleiks, sun.
17. des.
Missa Solemnis, sun. 17. des. Sýnt dag-
lega kl. 17.30 til jóla.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 16. DESEMBER 2000