Lesbók Morgunblaðsins - 16.12.2000, Blaðsíða 19
Kertaliósa-
tónleikar í
Kópavoqs-
kirkju
TONLEIKAR kammerhópsins Camerar ctica,
„Mozart við kertaljós“ verða í Kópavogskirkju
annað kvöld, sunnudagskvöld, kl. 21.
Leikinn verður Kvartett fyrir klarinettu og
strengi op. 79 (samtíma umritun á KV 378
(317d)) og Kvintett í B-dúr, KV 174 fyrir
strengi. I lokin verður að venju leikinn jóla-
sálmurinn „í dag er glatt í döprum hjörtum“.
Tónleikarnir verða um klukkustundarlangir og
verður kirkjan einungis lýst með kertaljósum.
Camerarctica skipa þau Armann Helgason,
klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir
og Sigurlaug Eðvaldsdóttir, fiðluleikarar, Guð-
mundur Kristmundsson, víóluleikari og Sig-
urður Halldórsson, sellóleikari en gestur
þeirra í ár er víóluleikarinn Þórunn Marinós-
dóttir.
Tónleikar
tileinkaðir
mennmqar
borgum
TIL AÐ minna á að auk Reykjavíkurborgar
eru 8 aðrar borgir í Evrópu menningarborgir
árið 2000 munu jólatónleikar Söngskólans í
Reykjavík að þessu sinni vera helgaðir tónlist
frá löndunum níu sem borgirnar tilheyra og
eru tónleikamir hluti framlags Söngskólans til
„Reykjavíkur - menningarborgar árið 2000“.
Tónleikarnir verða í Tónleikasal Söngskólans,
Smára, Veghúsastíg 7, nk. þriðjudagskvöld kl.
20. Nemendur unglingadeildar og nemendur á
öllum stigum söngnámsins flytja einsöngs-,
samsöngs- og kórlög frá löndunum níu á frum-
máli, m.a. tékknesku og pólsku, en í röðum
kennara við skólann eru kennarar frá Tékk-
landi og Póllandi. Með söngvurunum leika
hljóðfæraleikarar, flestir úr röðum kennara, á
píanó, flautu og selló. Einnig verður fjölda-
söngur og kaffiveitingar verða í boði skólans.
Umsjón með tónleikunum hafa Margrét
Bóasdóttir söngkona og Iwona Jagla píanó-
leikari. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Tónleikar
í Grensós-
kirkju
KIRKJUKÓR Grensáskirkju heldur aðventu-
tónleika í Grensáskirkju á morgun, sunnudag,
kl. 17.
Kórinn flytur kantötuna „Nun kom der
Heiden Heiland“, Nú kemur heimsins hjálp-
arráð, eftir J.S. Bach, með aðstoð strengja-
sveitar. Einsöngvarar eru Ingibjörg Ólafsdótt-
ir, Guðlaugur Viktorsson og Ingimar
Sigurðsson. Þá syngur kórinn einnig nokkur
aðventu- og jólalög, en stjórnandi er Ámi Ar-
inbjamarson, sem einnig leikur orgelverk eftir
J.S. Bach, Prelúdíu í C-dúr og sálmaforleiki
tengda aðventunni.
Ennfremur syngja þær Ingibjörg Ólafsdótt-
ir og Hellen Helgadóttir dúett úr Kantötu nr.
78 eftir Bach. Aðgangur er ókeypis.
Söng-
dagskró úr
Godspell
SÖNGDAGSKRÁ verður haldin í tónleikasal
Domus Vox að Skúlagötu 30,2. hæð, á morgun,
sunnudag, kl. 17 og 20.
Þar koma fram nemendur úr söngleikjadeild
skólans undir stjóm kennara, Margrétar Eir,
og flytja dagskrá byggða á söngleiknum God-
spell eftir Stephen Sehwartz. Aðgangseyrir
500 krónur. Nánari upplýsingar á vefsíðu skól-
ans www.domusvox.is
HINU VANRÆKTA SINNT
<
TðNLIST
Sígildír diskar
STEVEN ISSERLIS
Béla Bartók: Konsert fyrir víólu og hljóm-
sveit op. posth. (úts. Tibor Serly). Peter Eöt-
vös: Replica. György Kurtág: Þættir fyrir
víólu og hljómsveit. Einleikari: Kim Kas-
hkashian (víóla). Hljómsveit: Kammersveit
hollenska útvarpsins. Hljómsveitarstjóri:
Peter Eötvös. Heildarlengd: 50’06. Útgáfa:
ECM New Series 1711 / 465 420-2. Verð: kr.
1.999. Dreifing: Japis.
GEISLAPLÖTUR frá ECM skera sig frá
öðrum hliðstæðum útgáfum á markaðnum að
þvi leyti að umbúðirnar prýða gjarnan dökk-
ar, svart-hvítar ljósmyndir, listrænar að allri
gerð, og er þar samspil ljóss og skugga áber-
andi. Persónudýrkun á vel útlítandi stór-
stjörnum er ekki stíllinn hjá ECM en þar
skortir menn samt ekki listamenn í heimsk-
lassa á borð við m.a. Keith Jarrett, András
Schiff, The Hilliard Ensemble, Heinz Holl-
iger og Gidon Kremer. Af djasslistamönnum
má telja áðurnefndan Keith Jarrett, John
Abercrombie, Lester Bowie, Jan Garbarek,
Dave Holland Quintet og Jack DeJohnette.
Þegar kemur að efnisvali og samsetningu
diskanna er frumleikinn hafður í fyrirrúmi,
efnisval er nýstárlegt og hljóðritanir jafnan
fyrsta flokks.
Víóluleikarar í hópi einleikara eru ekki
ýkja margir, a.m.k. ekki samanborið við koll-
ega þeirra sem leika á fiðlu. William Prim-
rose, Paul Hindemith, Lionel Tertis og Nob-
uko Imai eru einu nöfnin á heimsfrægum
víóluleikurum sem koma upp í hugann í
fljótu bragði. Ástæðan fyrir því að svo fáir
strengjaleikarar sérhæfa sig í víólunni, sem
stundum er kölluð öskubuskan í strengja-
sveitinni, er væntanlega sú að einleiksverk
skrifuð fyrir þetta hljóðfæri eru tiltölulega
fá. Reyndar telst víólan frekar ómeðfærilegt
hljóðfæri að spila á en mjúkur og þýður
hljómurinn, mitt á milli fiðlunnar og sellós-
ins, er engu líkur. Að minnsta kosti þegar
listamenn eins og snillingurinn Kim Kashk-
ashian fara höndum um hljóðfærið og spila
að auki eitt fegursta tónverk allra tíma,
Víólukonsert Bartóks. Bartók vann að verk-
inu sumarið 1945 en það hafði verið pantað
af William Primrose. Áðstæður Bartóks voru
hinar ömurlegustu í New York og heilsa
hans síðasta árið var á hraðri niðurleið. Hon-
um tókst ekki að ljúka við verkið en einleiks-
röddin var nokkurn veginn tilbúin. „Handa-
vinnan er eftir“ skrifaði Bartók til Primrose
í ágúst. í lok september var Bartók allur og
hafði ekki tekist að Ijúka verki sínu. Vinur
hans Tibor Serly tók að sér það erfiða verk-
efni að koma hugmyndum Bartóks á blað og
því var ekki endanlega lokið fyrr en árið
1949. Andblær verksins er haustlegur, ang-
urvær og óendanlega fallegur. Kim Kas-
hkashian nær fullkomlega að koma boðum
Bartóks og snilldarútfærslu Serlys til skila
(hlustið t.d. á niðurlag fyrsta kafla og 1’39 -
2’27 í lokakaflanum).
Tvö önnur verk eru á diskinum eftir landa
Bartóks, þá Kurtág (f. 1926) og Eötvös (f.
1944) sem einnig stjórnar hljómsveitinni.
Béla Bartok
Camille Saint-Saéns
Verk Kurtágs, Þáttur fyrir víólu og hljóm-
sveit (1955), er mjög í anda víólukonserts
Bartóks þótt ívið rómantískara sé, angur-
vært og fallegt. Um er að ræða fyrri kaflann
í Víólukonsert hans en tónskáldið hefur helst
kosið að hann sé fluttur einn sér. Verk Peter
Eötvös, Replica (1999), er talsvert nútíma-
legra en vinnur vel á við endurtekna hlustun.
Góð viðbót við tiltölulega fá einleiksverk sem
til eru fyrir víólu og hljómsveit.
Víóluleikur Kims Kashkashians er geysi-
fallegur. Hún hefur mildan og hlýlegan tón
en auk þess afburðatækni. Hljómsveitinni,
Kammerhljómsveit hollenska útvarpsins, er
stjórnað af höfundi Replica, Peter Eötvös,
og ekki verður heyrt annað en að hér sé
fyrsta flokks hljómsveit á ferðinni. Hljóð-
ritun er með ágætum og meðfylgjandi bækl-
ingur sérstaklega fróðlegur og aðgengilegur.
KIM KASHKASHIAN
Camille Saint-Saens: Sellókonsert nr. 2, op.
119. Sellósónata nr. 2, op. 123. La muse et le
Poéte op. 132. Romance op. 67. Einleikari:
Steven Isserlis (selló). Meðleikarar: Joshua
Bell (fiðla) og Pascal Devoyon (píanó). Hljóm-
sveit: Norður-þýska útvarpshljómsveitin í
Hamborg. Stjórnandi: Christoph Eschen-
bach. Heildarlengd: 76’13. Útgáfa: RCA Red
Seal (BMG Classics) 09026 63518 2. Verð:
2.099. Dreifing: Japis.
ÞESSI nýi diskur Stevens Isserlis er troð-
fullur af tónlist sem sjaldan heyrist, því rúm-
ar 76 mínútur eru nálægt því hámarki sem
rúmast á geisladiski. Þegar um er að ræða
viðbót við frekar takmarkað úrval róman-
tískra einleiksverka fyrir selló og hljómsveit
er hér í alla staði um hinn eigulegasta grip
að ræða því Isserlis og meðflytjendur hans
leika þessa tónlist af mikilli sannfæringu.
Haft er eftir Sir Thomas Beecham að
Saint-Saéns hafi verið besta annars flokks
tónskáld rómantíkurinnar. Þessi staðhæfing,
og sleggjudómur að sjálfsögðu, kemur oft
upp í hugann þegar ég hlusta á tónlist Saint-
Saéns. Þvl alltaf má dást að glæsilegum
hljómsveitarrithætti hans, sérlega góðu
tímaskyni og tilfinningu fyrir hlutföllum í
tónlistinni og síðast en ekki síst fallegum
laglínum sem oft hitta beint beint í mark.
Hver þekkir og elskar t.a.m. ekki Svaninn úr
Karnivali dýranna og aríuna frægu úr Sam-
son og Dalila. Þessi atriði gera það öll að
verkum að það er alltaf hin notalegasta upp-
lifun að hlusta á tónlist Saint-Saéns þótt
maður myndi e.t.v. ekki treysta sér til að
velja plötu rrieð tónlist hans sem eina af tíu
til að taka með sér á eyðieyju.
Þótt hluti tónlistarinnar á þessum diski sé
e.t.v. ekki í flokki minnisstæðustu verka tón-
skáldsins er hér margt gott að finna. Stystu
verkin tvö, La muse et la poéte og Romance,
eru t.d. mjög falleg og gefa einleikaranum
næg tækifæri til að laða fram skáldlegustu
hliðarnar á þessu yndislega hljóðfæri. Isserl-
is er mikill meistari þess og honum veitist
auðvelt að laða fram tilfinningasemina í
þessari ósviknu rómantísku tónlist og í því
fyrra nýtur hann liðsinnis annars snillings,’
fiðluleikarans Joshua Bells. Önnur sellósón-
atan er viðamikið og glæsilegt verk en heyr-
ist mun sjaldnar en sú fyrri. Verkið er stórt
á alla kanta (fjórir kaflar, samtals 33 mín-
útur í flutningi) og virðist geysierfitt í flutn-
ingi því Saint-Saéns leggur allar hugsanleg-
ar hindranir í götu hljóðfæraleikaranna. Að
kynnast þessu verki var mér opinberun og á
verkið að mínu mati skilinn sess við hlið
sellósónata Brahms. Skersókaflinn, sem er í
tilbrigðaformi, er t.d. hreinasta sýningar-
stykki og hrikalega vel spilaður af þeim Is-
serlis og Deyvoyon. Þetta er verk sem allir
sellóleikarar og aðrir unnendur hljóðfæris-
ins ættu að kynnast. Scllókonsertinn nær
ekki alveg því flugi sem sá fyrri nær en er
samt sem áður hin áheyrilegasta tónsmíð í
alla staði og sérstaklega þegar flutningurinn
er eins sannfærandi og hér.
Þetta er frábær diskur og er hver einasta
mínúta peninganna virði.
Valdemar Pálsson
RAYM0ND WEIL
GENEVE
www.raymond-weil.com
ema
Garðar Ólafsson, úrsmiður
Lækjartorgi • S: 551-0081
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 16. DESEMBER 2000 1 9