Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 16.12.2000, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 16.12.2000, Qupperneq 6
Sérkennilega klæddar róður tóku stundum athyglina frá listaverkunum. Þessi er að horfa á nú- Karsten Greve, listhúseigandi í Köln, talar fyrir hönd listakaupstefnunnar á blaðamannafundi Samhverft skordýr, eftir Hamish Fulton (Galerie Mueller-Roth, Stuttgart). við opnun hennar. í ár sýndu 27 listhús frá 21 landi myndlist 20. aldar. FYRRI GREIN Listamarkaðir eru margir og viðamiklir í hinum ýmsu stórborgum 1 Evrópu og fer þeim fjölgandi. BRAGI ÁSGEIRSSON var tvisvar ó ferðinni í haust og skoðaði þrjó þ •eirra, Art Copenhagen í Kaupmanna- höfn, Art Forum í Berlí in og Art Cologne í Köln. Hann segir a f þeim í mc ili og myndum og ví íkur um leið að markaðssetningu myndlistar sem gegnir æ stærra hlutverki. c § 'Ö5 -I ? CQ I ÞRÁTT fyrir sýningaflóðið á höf- uðborgarsvæðinu, fjölda stórra og smárra listhúsa og margra opinberra listasafna, er mark- aðssetning myndlistar nær óþekkt fyrirbæri á íslandi, í öllu falli eins og hún gerist í nágrannalöndum okkar, hvað þá úti í hinum stóra heimí. Hvergi hef ág komist í viðlíka návígi við mikilvægi markaðssetningar og á kaup- stefnunni í Köln, þjónustan við blaðamenn að auk nánast fullkomin. Heill salur á efri hæð var lagður undir þá hlið framkvæmd- arinnar og var þar bókstaflega allt sem menn gátu óskað sér. Margar tölvur stað- settar á þægilegum vinnuborðum gerðu mögulegt að senda fréttir út strax og frammi lá mikið úrval litskyggna og svart- hvítra ljósmynda, sendar heim með hrað- pósti ef vUl. Þá var mikið magn upplýs- inga um markaðssetningu myndlistar, listasambönd og listrýni á hillum svo og stöðu mála víða um heim, ásamt upplýs- ingum um kaupstefnuna sjálfa og list- markaðinn í Köln. Þá var þarna sérstakur veitingasalur, fatahengisþjónusta og geymsluhólf fyrir verðmæti ásamt sérút- gangi sem losaði mann við öll þrengsli við lokun að kvöldi. Þótti rýninum frá Islandi þetta mikil býsn miðað við alla upplýsingafá- tæktina á heimaslóðum, þar sem það virðist jaðra við dónaskap og ofsóknir að fetta fing- ur út í hana. En kannski var hröð þjónusta, glaðlegt viðmót og hjálpsemi það sem helst situr eftir í heilahvelinu og æsti upp viljann til að gera hér vel. Kölnarkaupstefnan er líka ein hin grón- asta í Evrópu, og jafnframt veröldinni, og þetta markaðsform hefur álfan fram yfir Bandaríkin, sem eiga bara fjórar hlið- stæður og allar í New York. Var hin 34. í röðinni, sem segir ekki svo lítið um þýð- ingu slíkra uppstokkana þvf listamark- Hugmyndartkir skúlptúrar Armans vekja alltaf athygli og henni sópaði þessi stytta af Venusi að sér. Venus off-Shore, 2000 (Galerie Guy Pieters). Edda Jónsdóttir (Galleri I 8) stóð í ströngu í Köln og margir urðu til að hringja í hana. í bakgrunni sérf verk Hreins Friðftnnssonar. aðurinn í borginni er einn sá öflugasti í heiminum, með þræði sem Iiggja beint inn í kviku listamarkaðar New York og annarra stórborga, tók einmitt stefnu á hæðina sam- fara henni. Kaupstefnan í Basel er þó af mörgum álit- in sú mikilvægasta nú um stundir og vona ég að ég eigi eftir að bera hana augum á næsta ári. Og þótt hún færi fram á líkum tíma og hinar þrjár var ég nýkominn úr Evrópu- ferðalagi, sem endaði á viðamestu heimssýn- ingu til þessa. Hafði innbyrt slfkt magn af sjónlistum af öllu tagi, að helst má líkja við að éta yfir sig, og fyrr er fullt en út af flóir, ein risaframkvæmd í viðbót líkast meira en sterkustu fætur, andleg sem líkamleg melt- ingarfæri, þyldu og því nei takk. Listakaupstefnur árétta og undirstrika að samtímalistir blómgist helst þar sem mark- aðssetningin er opnust og heilbrigðust og hér mega Norðurlandabúar margt læra. Einkum í undirróðurs og pukurlandinu úti á Dumbshafi, þar sem röngum upplýsingum um stöðu mála er haldið að fólki. Eftir að hafa skoðað FIAC listakaupstefnuna í París niður í kjölinn í tvígang og Árt Forum í Berl- ín einu sinni fékk rýnirinn mikinn áhuga á að kynnast fyrbærunum nánar og gera þeim skil, einkum í ljósi ruglingsins á útskerinu. Var á leiðinni í þriðja sinn á FIAC en komst 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 16. DESEMBER 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.