Tíminn - 13.12.1966, Blaðsíða 7
MUÐJUDAGUR 13. desember 1966
2. deildarlið
KR í 2. sæti
- gjörsigraði Ármann á sunnudag, 22:10.
Alf-Reykjavík. — 2. deildarliS
KR hreppti 2- sæti í Reykjavíkur-
mótinu í handknattleik, hlaut 8
stig, eða jafnmörg og Valur, en
markahlutfall KR er aðeins hag
stæðara. Á sunnudaginn gjörsigr-
aði KR 1. deildarlið Ármanns,
sem tæplega verður lengi 1. deild
arlið með sama áframhaldi. Urðu
lokatölur 22:10 - 12 marka munur
__ og var það sízt of stór sigur.
Árm'ann hefur orðið fyrir mikl-
um S'kakkaföllum. Hefur misst
FH MÆTIR
HONVED
Alf—Reykjavík. — S. L
laugardag voru lið dregin
saman í 2. umferð Evrópu-
bikarkeppninnar í handknatt
leik. Eftir upplýsinguim,
sem Tíminn hefur aflað sér,
mun FH mæta ungversku
meisturunum HONVED, en
það er með sterkustu hand-
knattleiksliðum Evrópu og
lék tíl úrslita í síðustu Evr-
ópubikarkeppni, en tapaði
fyrir Leipzig. Blaðið hafði
samband við Birgi Bjöms-
son, þjálfara FH, í gærkvöldi
og spurði hann, hvernig hon
nim litist á mótherjana. Vildi
Birgir sem minnst segja, því
hann væri varla farinn að
átta sig á híutunum, eins og
hann orðaði það.
Hörð Kristinsson, Arna Samúels-
son, sem meiddist í leik fyrir
skömmu og Hans Guðmundsson,
sem ekki hefur haft tíma til að
sinna handknattleiksiðkunum.
Kannski réttir Ármann hlut sinn
í íslandtsmótinu, en þá þarf líka
mikið að breytast, því ekki var
heil brú í leik liðsins s.l. sunnu-
dag.
KR átti mjög léttan dag. Mörk-
in skoruðu: Gísli 7, Karl 6, Hilmar
og Jón A. 3 hvor, Ævar, Sigmund-
ur og Haraldur 1 hver. Mörk Ár-
mann skoruðu: Hreinn 4 Ragnar
Oifert og Grírnur 2 hver. Leikinn
dæmdi Sveinn Kristjánsson nokk-
uð vel.
Lokastaðan í mótinu varð þessi:
Fram 6 6 0 0 115:67 12
KR 6 4 0 2 97:85 8
Valur 6 4 0 2 90:79 8
ÍR 6 3 0 3 92:93 6
ya. 6 2 1 3 74:79 5
Ármann 6 1 1 4 66:95 3
Þróttur 6 0 0 6 56:92 0
Þorsteinn Björnsson, Halldór SlgurSsson, Tómas Tómasson og Sigurður Einarsson. Aftari röð: Sigurbergur Sig-
Einarsson og Frímann Vilhjálmsson.
(Tímamynd: Róbert).
Víkingur sigr-
aði ÍR 15:13
Leik Víkings og ÍR í Rvíkur-
mótinu í handknattleik lauk með
tveggja marka sigri Víkings, 15:13,
eftir jafna baráttu. Lengst af hafði
Víkingur fonistu, en í hálfleik
Framhald á bls. 23.
Fram átti ekki í neinum
erfiðleikum með Vai
-sigraði 18:10 ogvarð Rvíkurmeistari í handknattleik 1966.
Alf — Reykjavík. — Valsmenn
urðu engin hindrun á sigurbraut
Fram í Reykjavíkurmótinu í hand
knattleik. Fram sigraði fyrirhafn-
arlitið með 8 marka mun, 18:10,
og varð þar með Reykjavíkur-
meistari í handknattleik 1966.
Sigur Fram í mótinu var mjög
verðskuldaður og sést bezt af því,
að liðið vann lciki sína að meðal-
tali með 8 marka mun. Ýmsir
bjuggust við því, að Valsmenn
myndu veita Fram harða keppni
— og það gerðu þeir — en að-l
eins 15 fyrstu mínútur leiksins.
Pað, sem vakti sérstaka athygli
við leik Fram að þessu sinni, var
góður varnarleikur og ágæt mark
varzla Þorsteins Björnssonar. f
fyrri hálfleik fékk Fram einungis
þrjú mörk á sig, en þegar líða
tók á síðari hálfleikinn og úrslitin
ráðin, slökuðu leikmenn Fram á
hinni sterku varnarkeðju.
Fyrstu 15 mínúturnar báru
keim úrslitaleiks. Taugaspenn'a
var allsráðandi í herbúðum beggja
og tíð mistök. áttu sér stað. Ekki
Jón Antonsson, KR, skorar fyrir liö sitt í leiknum á mófi Ármanni. Karl Jóhannsson sést lengrá úti á vellinum.
bætti úr skák, að salargólfið var
blautt, og því s-tundum erfitt fyrir
taugaóstyrka leikmenn að fóta sig.
GunnF igur Hjálmarsson skoraði
fyrsta mark leiksins, en Bergur
Guðnason jafnaði fyrir Val rétt
á eftir. Næstu þrjú mörkin skor-
aði svo Fram og var staðan 4:1,
þegar 14 mínútur voru liðnar.
Framarar lögðu sérstaka á-
herzlu á að gæta Bergs og Her-
Imanns, og voru ebki viðbúndr
því, að Gunnsteinn Skúlason, sem
þó er annars góð skytta, gæti
skorað. Hann skoraði 2 mörb í
röð fyrir Val og var staðan þá
4:3 fyrir Fram. Fleiri mörk skor-
aði Valur ekki fyrir hlé, en Fram
bætti þremur mörkum við og hafði
yfir í hálfleik 7:3.
Raunverulega voru úrslit leiks-
ins ráðin á 5 fyrstu mínútunum
í síðari hálfleik, því að þá skor-
'aði Fram fjögur mörk í röð —
Gunnlauigur 3, þar af eitt úr víti,
og Gylfi 1 — og staðan orðin
11:3. Það var vonlaust fyrir Vals-
menn að jafna þennan mun, og
það, sem eftir var, bar leikurinn
þess merki, að úrslitin væru ráðin.
Um tíma var stað'an 18:7 — eða
11 marka munur — en síðustu
þrjú mörkin sboraði Vaiur og
lauk leiknum því 18:10.
Enginn vafi leikur á því, að
Fram-liðið er í sérflokki í Reykja-
vík, en það er auðvitað engin
trygging fyrir því, að liðið vinni
íslandsmeistaratitil. Ekkert Rvík-
urliðann'a hefur nýtt hinn stóra
völl eins vel og Fram eða sýnt
eins mikla fjölhæfni í sóknarleik.
Er þar átt við, að liðið getur
beitt línuspili og langskotum jöfn
um höndum. Vörnin hefur lagazt
mikið og markvarzlan verið þokka
leg. í eina táð var liðið byggt
jöfnum einstaklingum, en „stjörnu
blærinn" setur sterkan svip á það
| nú. Gunnlaugur, Ingólfur, Guð-
ijón og Sigurður Einarsson skera
' sig nokkuð úr að því leyti. Mörk-
in í leiknum á sunnudag skoruðu:
Gunnlaugur 6, Ingólfur og Gylfi
3 hvor, Guðjón 2, Sigurbergur,
Arnar, Tómas og Sigurður E. 1
hver.
Vals-liðið átti ekki góðan dag,
en þó ber þess að gæfca, að eng-
inn er betri en mótherjinn leyfir.
Vals-liðið virðist eiga langt í land
með að ná Fram, og óliklegt, að
það Mandi sér í baráttu um efsta
sæti í íslandsmóti á þessu keppn-
istímabili. Mörkin: Bergur 4,
Gunnsteinn og Hermann 2 hvor,
Ágúst oig Sigurður Guðjónsson 1
'hvor.
Bjöm Kristjánsson dæmdi leik-
inn, og slapp vel fyrir utan smá-
mistök.
Valur slgr-
aði í fjór-
um flokkum
Valur og Fram voni einu
félögin, sem sigruðu í hin-
um ýmsu flokkum í Rvíkur-
mótinu í handknattleik, sem
lauk um helgina Sigraði
Valur í fjórum fiokkum, þ.
e. meistara-, 1. og 2. flokki
kvenna og 2. flokki karla.
Fram sigraði í meistara-
flokki karla og 3. flokki
karia. Athygli vekur, að
Fram og Valur léku tíl úr-
slita bæði í meistaraflokki
karla og kvenna.
Keppni í eimun flokki er
ólokið, 1. flokki karla, en
þar verða Valur og KR að
leika aukaúrslitaleik.
/