Tíminn - 13.12.1966, Page 10
22
TLMINN
ÞRIÐJUDAGUR 13. desember 1966
JÓLAFÖTIN
Drengjajakkaföt frá 5—14
ára, terylene og ull,
margir litir.
Matrósaföt
Matrósakjólar 2—8 ára.
Matrósakragar og flautu-
bönd
Drengjabuxur terylene og
ull 3—12 ára
Drengjaskyrtur, hvítar frá
2 ára.
Drengjapeysur dralon og
ull..
R Ú M T E P P I yfir hjóna
rúm, diolon. þvottekta.
PATTONSGARNIÐ, margir
grófleikar, allir litir.
Dúnsængur
Gæsadúnssængur.
Ungjingasængur
Vöggusængur
Koddar og rúmfatnaöur.
Póstsendum.
Vesturgötu 12 sími 13570
JOLABÆKUR
Gefið litlu börnunum bóka-
safnið: Skemmtilegu smá-
barnabækurnar:
BLÁA KANNAN
GRÆNI HATTURINN
BENNI OG BÁRA
STUBBUR
TRALLI
STÚFUR
LÁKI
BANGSI LITLI
Ennfremur þessar sígildu
barnabækur:
BAMBl
BÖRNIN HANS BAMBA
SELURINN SNORRI
SNATI OG SNOTRA
Bjarkarbók er trygging
fyrir góðri barnabók.
BÓKAÚTGÁFAN BJÖRK
TENBDASONUR
ÓSKAST SÝNT
k FLÚÐUM
SG—Miðfelli, Árn.
Ungmennafélag Hrunamanna
hefur undanfarnar vikur æft gam
anleikinn Tengdasonur óskast eft
ir brezká höfundinn William
Douglas Home, þýðandi er Skúli
Bjarkan en leikstjóri er Pétur
Einarsson.
Með aðalhlutverk i leiknum sem
er tveir þættir, fara þau Sigur
björg Hreiðarsdóttir og Guðmund
ur Ingimundarson en leikendur
eru átta alls. Leikurinn verður
frumsýndur í Félagsheimilinu að
Flúðum n. k- miðvikudagskvöld
14. desember kl. 21.30. Önnur sýn
ing er svo fyrirhuguð að Flúðum
27. desembef, ennfremur er áætl
að að sýna leikinn í ýmsum
stærri samkomuhúsum hér sunn
anlands eftir áramótin.
Auglýsið í riMANUM
Þýzkar
telpnakápur
ELFUR
SkólavörSustíg 13.
Snorrabraut 38.
LÝÐRÆÐISTILLÖGUR
Framhald ai bls. 13.
Áróðurjnn fyrir þjóðaratkvæða-
greiðsluna hefur sett mark sitt á
allt líf á Spáni síðustu þrjár vik-
ur. Sósíalistar, sósialdemokratar,
kristilegir demókratar og aðrir
bannaðir stjórnarandstöðuflokkar
hafa margsinnis beðið um leyfi
til að reka opinberan áróður gegn
stjórnarlagabreytingu, með fundar
höldum og með skrifum í blöð,
en beiðni þar að lútandi hefur
stjórnin hafnað.
Flestir stjórnmálafréttaritarar
eru þeirrar skoðunar, að þrátt fyr
ir baráttu áðurnefndra flo-kka
gegn fyrirhuguðum stjórnarskrár-
breytingum, muni það ekki hafa
Aldraður maður slasast
alvarlega / umferðarslysi
KJ-Reykjavík, mánudag.
Enn eitt alvarlega umferðarslys
ið varð á Hringbrautinni fyrir
framan gamla Kennaraskólann í
dag um klukkan fimm. Aldraður
utanbæjarmaður var á leið yfir
götuna og nlður að Umefarðarmið
stöðinni, er liann varð fyrir bíl
er var á leið vestur götuna. Slasað
ist maðurinn mikið og var að lok
inni athugun á Slysavarðstofunni
fluttur á sjúkrahús.
Hvað eftir annað hafa orðið um
ferðarslys á þessum kafla Hring
brautarinnar, þ. e. frá gömlu
Gróðrarstöðinni og upp fyrir
strætisvagnabiðstöðina. Margt
fólk þarf þama yfir götuna, og
þá sérstaklega síðan Umferðarmið
stöðin tók til starfa. Fyrir um
bað bil ári síðan varð aldraður
maður fyrir bíl á þessum kafla
og lézt hann af völdum meiðsla er
hann hlaut.
Þá varð það slys í dag að mað
-ur hrasaði í stiga í Hafnarhúsinu
við Geirsgötu og slasaðist hann
það mikið að flytja varð hann á
sjúkrahús.
álhrif á atkvæðagreiðsluna á mið-
viteudag. f blöðum, flugritum,
sjónvarpi og útvarpi hafa yfjryöld
in vikum saman látið endurtatea
sömu slagorðin: Greiðið atkvæði
játevætt, greiðið atkvæði með friði.
Kröfuskjalið, sem dreiift var víðs
vegar um í landinu í dag var
undirritað af mörgum fremstu ^or
ingjum hinna bönnuðu flokka. Af
hálfu stjórnarinnar er því haldið
fram, að nauðsynlegt sé að banna
flokka þessa, svo að ekki verði
sa-ma ringulreiðin og kom borgar-
styrjöldinni árið 1936 af stað.
St j órn arands töðuf lokkarn ir
telja Uýðræðistillögur" Francós
falsið eitt, og því skuli fella þær.
DÆMDIR ÆVILANGT
Framhaid al bls 13
Duddy, 37 ára gamall og John
Withney, 36 ára að aldri. Roberts,
sem handtekinn var í síðasta mán
uði eftir umfangsmestu glæpa-
mannaleit í sögu brezku lögregl-
unnar á þessari öld, játaði fyrir
rétti, að hann hefði sfeotið tvo
hinna þriggja lögreglumanna.
Hins vegar neituðu bæði Duddy
og Whitney ákærunni á hendur
sér.
Dauðarefsing var afnumin til
reynslu næstu fimm ár í B-ret-
landi, í fyrr-a.
MÁLVERKASÝNING
Framhald af síðu 24.
legt hér sem ég hefði alveg
eins getað sagt í bók. Ég er
ekki að segja að myndirnar
hafi bókmenntalega þýðingu,
en það eru ýmsar kenndir í
þessu sem spila þarna, sem
hefðu væntanlega komið fram
í bók.
— Ertu að sterifa bók?
— Ég ætlaði að skrifa bók,
og var reyndar búinn að fá út
gefanda að henni. en svo fannst
mér ég ebki vera f nógu góðu
skapi til þes? að taka hana
saman, svo ég flúði skriffinnsk
una, flúði úr öllum þessum
vítshring - þessum veraldlegu
áhyggjum og málaði — í gríð
og erg.
— Er iangt síðan þú byrjaðir
að mála Steingrímur?
— Það eru upp undir tuttugu
ár. Hérna er elzta myndin á
sýningunni, máluð veturinn 1947
—48. Þá bjó ég á Fjölnisvegi 7
hjá Guðrúnu Stefánsdóttur
systur Davíðs skálds frá Fagra
skógi.
— Og hvað er þetta fyrir nokk
uð?
— Ég ínyndi segja að þetta tákn
aði Bakkus og ýmsa þætti hans
— það var á þeim árum!
— Þetta eru litiar og snotrar
myndir.
— Ja — ekki ætla ég að dæma
um það hvort þær eru snotrar,
en þær eru heldur litlar.
— Margar sjálfsmyndir?
— Það eru þrjár sjálfsmyndir,
og svo er ég á þessari mynd. sem
heitir langlínusamband- Hún er
máluð í „pop“ stíl.
— Konan er á langlínusam-
bandinu?
— Já, já, einmitt. Konan hefur
nefnilega fengizt við símstörf í
mörg ár, og var póst- og símstjóri
austur á Laugarvatni, og ég hef
búið eiginlega á tveim stöðum, und
anfarin tvö ár og varð að láta
mér nægja að tala við hana í síma.
— Þessi lampi hérna?
— Þetta heitir Galdralampi.
Þennan lampa gerði ég norður á
Akureyri. Mig vantaði góðan
lampa til að lesa við og Aðal-
björg Björnsdóttir hótelstýra á
Goðafossi sem ég bjó hjá, gaf
mér fótinn, og síðan varð lampinn
til, úr pappanum og Maríugleri.
Síðan setti ég eyrnalokka af
fyrri eiginkonu minni á lampann,
svona sem extra „dekúrasjón".
Annars hafði ég hugsað mér
lampann þannig að hann yrði að
hafa eyrnalobka úr beini. Svo er
hér lítil kerling sem hvílir á
stallinum.
— Er þetta einhver sérstök
kerling, kannski Aðalbjörg?
— Nei, nei, fjarri því, ég hefði
málað hana, glæsilega eins og
sál hennar er.
— Hvað er þetta?
— Þetta er sjálfsmynd, sem
er málað á kaþólskt fjölskyldu-
blað. Þú sérð, að hérna er fyrir
sögn President meets pope —
Forsetinn hittir páfann, málað fyr
ir norðan, það er að segja síðasta
veturinn minn fyrir norðan —
minn afdrifaríkari vetur fyrir
norðan!
— Eru þetta gam'ar myndir eða
nýjar?
— Mikið af þes?u er nýtt, en
svo eru hérna myndir frá ýmsum
tímabiíum, eins og tii að mynda
þessi hérna, tíu ára gömul m.vnd,
frá Herðabreiðar'.irdum — ég
kalla hana Fyrir norðan í „pró
gramminu", svo er hér önnur sem
ég kalla Einhvers staðar fyrir
norðan. Þetta er nú svona bara
áhrif af norðlenzku landslagi, al-
veg eins og sumar eru málaðar
undir áhrifum að austan. Maður
er búinn að búa í tvö ár austur á
Laugarvatni, og farinn að bera
sínar taugar til landsins þar.
— Ertu fluttur í bæinn?
— Nei, en ég er að flytja í bæ
inn. Ég held þessa sýningu eig
inlega til að heiðra fjárveitinga-
nefnd. Það er eiginlega þeim að
þakka að ég held þessa sýningu á
meðan ég bíð eftir svari frá
þeim, því það hefur staðið til að
ríkið keypti húsið okkar austur á
Laugarvatni. — Kannski fæ ég
svarið í dag. Fjárveitinganefndar
ritari hringdi í mig í dag. en ég
mátti ekki vera að því að tala
við hann — kannski ætla þeir að
kaupa húsið. Það má segja að
þeir hafi örfað mig til Hstdáða.
En eins og ég sagði þér áðan,
þá ætlaði ég að skrifa bók, en fór
út í það að mála í staðinn.
— Hérna er „stemning" úr
Reykjavík?
— Já, hún heitir Borgin græt
ur, séð þaðan sem ég bjó i Aust
urbrúninni í Reykjavík. Nafnið er
„anonymt" við bók Matthíasar Jó-
hannessen Borgin hló. Myndin er
máluð í ljósaskiptunum, þú sérð
kaþólsku kirkjuna hérna, og svo
er þessi þungbúni himinn og höfn
in og allt slíkt.
— Það ber mikið á þaþólsku
kirkjunni þama?
— Skiljanlega. Það ber alltaf
mikið á kaþólsku kirkjunni eins
og vera ber.
— Á hvað er myndin máluð?
— Hún er nú máluð á furðuleg
an pappír þessi skal ég segja þér.
Svona karton með stöfum, þetta
er til að minna mig á heim blaða
mennskunnar, þessir stafir —
máttur stafanna. ,
— Þeir eru á hvolfi þarna?
— Já, þeir eru á hvolfi.
— Er það af því að þú ert alltaf
á hvolfi þegar þú ert í blaða-
mennskunni?
— Ekki segi ég það nú kannski.
En það er nú svona ’þegar maður
setur sig í vígstöðu, þá getur það
alveg eins verið á hvolfi.
— Er þetta Frelsarinn? '
— Nei, þetta er dýrlingur, mið
alda áhrif frá píslarvottinum.
Annars sér maður þessa miðalda
píslarvotta á götunni stundum,
hittir þá í strætisvagni. Ég sá
einn á Röðli héma um kvöldið —
upphafinn mann, sem hefur farið
í gegn um píningar.
— Og er þetta kannski maður
in ná Röðli?
— Það getur verið. En svo er
hérna önnur mynd frá Röðli —
það er þessi mynd heina, ung
stúlka sem sat við borð eins sí/is
liðs, og svo kemur hérna reykur
inn frá sígarettunni henr.ar og
hann náttúrlega ve,ður að ei.,u
táki, en það verðum við að tala
um varlega.
— Er hún teiknuð á matseðilinn
eða servíettuna?
— Nei — nei, nei, hún er teikn
uð á pappír sem ég var með í
vasanum, ritvélapappir, eins og
maður notar stundum í biaða-
mennskunni.
— Hefurðu sýnt áður?
— Aldrei sjálfstætt, en ég hef
sýnt tvær myndir á sýningu hjá
Félagi frístundamálara, það var
vorið 1949. Það vita víst fæstir að
ég átti myndir þar. —!
— Hefurðu numið málaralist?
— Ég segi það nú kannski ekki.
Ég skrifaði talsvert mikið um
þetta á sínum tíma, og hef alltaf
haft áhuga á málaralist. Var á
tíma að hugsa um að fara alveg
út í þetta, það var 1948 þegar ég
kom heim eftir tveggja ára nám
í Englandi, rétt áður en ég gerðist
blaðamaður á Tímanum — þegar
ég fór í eldskírnina. En ég hætti
við málaralistina og fór að vinna
með Halldóri á Kirkjubóli — það
var talsverð eldskírn að vinna á
Tímanum í þá daga. Annars var
Halldór Ijúfur maður, og ég kunni
vel við hans vestfirzka hugarfar.
Hátt á fjórða hundrað manns
sótt sýninguna í dag og búið var
að selja 12 myndir þegar síðast
fréttist. Sýningin verður opin frá
14—22 til sunnudagskvölds.