Tíminn - 29.12.1966, Blaðsíða 16
I
❖
sp
297. tbl. Fimmtudagur 29. desember 1966 — 50. árg.
Tvö lejkrit Matthíasar Jó-
hannessen í Þjððleikhúsinu
MATTHIAS
Þjóðleikhúsið frumsýnir 8. jan-
úar n.k. tvo einþáttunga eftir
Matthías Jóhannessen, ritstjóra og
skáld. Eiinþáttungarnir heita Eins
og þér sáið — og Jón gainli, og
verða þeir sýndir á litla sviðinu
í Lindarbæ. Leikstjóri er Benedikt
Árnason en Lárus Ingólfsson ger-
ir leikmyndir og búningateikning-j
ar. Leikendur eru aðeins þrír, en
þeir eru: Valur Gíslason, Lárus
Pálsson og Gísli Alfreðsson, en
auk þess heyrast raddir nokkurra
þekktra leikara á segulbandi. Val-
ur Gíslason leikur aðalhlutverkln
í báðum leikritunum.
Þetta eru fyrstu leikritin, sem
sýnd eru á leiksviði eflir Mattíhías,
en áður hefur komið út eftir
'hann eitt leikrit, Sólmyrkvi, 1962.
Þess gerist vart þörf að kynna
Mattihías Jðhannessen fyrir blaða-
lesenduim, svo vel er hann öllum
landsmönnum kunnur sem blaða-
maður, ritstjóri og skáld og þótt
hann sé enn ungur að árum þá
hefur honum unnizt tími til að
senda frá sér 5 ljóðabækur, auk
nokkurra bóka í óbundnu máli.
Síðasta ljóðabók hans, „Fagur er
dalur“, kom einmitt út á þessu
ári. Mörg af Ijóðum hans hafa
verið þýdd og á næstunni kemur
Framhald a bls. 15.
Mæðginin hafa tv-vegis
staðið þjófa að verki
SJ-Reykjavik, miðvikudag.
Lánið hefur ekki leikið við
þá menn, sem hafa gert tilraun
ir til þjófnaðar í skartgripa-
verzlunuim við Skólavörðustíg-
inn. Tvívegis hafa verið vitni
að innbrotum í skartgripaverzl
un Kornelíusar og eru það
mæðgin sem hafa veitt lögregl
unni aðstoð við að handsama
þá menn sem þarna hafa verið
að verki.
Tíminn hafði í dag tal af
Ástu Skæringsdóttur, sem
býr á efstu hæð hússins, Skóla
vörðustígur 3A, en úr glugg
um íbúðar hennar blasir við
^kartgripaverálun Kornelíusar
og nærliggjandi hús handan
götumnar. Ásta var vakandi um
nóttina, þegar Bretamir gerðu
innbrot hjá Korneliusi, og sagð
ist hún hafa verið ný komin
heim á fimmta tímanum um
nóttina, eftir að hafa fylgt heim
gestum, sem höfðu dvalizt hjá
henni og syni hennar, Rafni
Gestssyni, sem býr hjá móður
sinni. Hún kvaðst hafa heyrt
brotJhljóð, og er hún leit út
um gluggann, sá hún mann
bograndi við gluggann. Hún
hljóp niður að útidyrunum, en
þá heyrði maðurinn til hennar
og hljóp upp að Bergstaða-
stræti og hvarf þar fyrir hom
ið. Maðurinn var klæddur í
steingráa úlpu, með hettu yfir
höfðinu, og sá hún ekki fram
an í hann. Ásta lét að þessu
búnu vekja son sinn og hringdi
hann til lögreglunnar, en eins
og lesendum er kunnugt tókst
lögreglunni að rekja spor
þjófsins og aðstoðarmanna hans
allt suður að Laufásvegi, þar
sem þeir voru búsettir.
Fyrir u. m. þ. b. ári stóð
sonur Ástu, Rafn Gestsson,
mann að verki, sem hafði brot
ið rúðu hjá Kornelíusi, og
sýndi Rafn þann dugnað að
handsama sjálfur mannimn.
Ásta sagðist hafa verið að þvo
þvott seint um kvöldið og er
hún kom upp í íbúðina var
Framhald á blis. 15.
MISLINGAFARALD
UR í REYKJAVlK
Flogiimei Sanaöl frá
Akureyrí til Rvikur
Bíll tepptur á Blönduósi með 400 kassa af lageröli, sem átti |
að dreifa á aðfangadag
SJ-Reykjavík,miðvikudag.
Sá orðrómur er á kreiki að
stöðvuð hafi verið sala á Lager
ölinu frá Sana á Akureyri vegna
þess að styrkleiki þess hafi verið
meiri en lög leyfa. Tíminn spurð
ist fyrir urn þetta hjá Hvannfell
h. f. í Kópavogi, en það fyrirtæki
sér um dreifingu ölsins hér sunn
anlands. Það var Bjarni Grímsson
sem varð fyrir svörum: j
— Þetta er, úr lausu lofti gripið, j
sagði Bjarni, styrkleikinn er ná-j
kvæmlega 2.25%. Aftur á mótij
höfum við hvergi nærri getað full i
nægt eftirspurninni, en okkurí
þykir þáð eðliilega ' mjög miður. j
Afköst verksmiðjunnar eiga að j
vera næg, þegar tími hefur gef i
izt til að safna á lager, en nú!
var byrjað að selja ölið á mesta |
sölutíma ársins, og þar að auki1
var óeðliiega mikil sala vegna
nýjabrumsins. Upphaflega var
ailltaf gert ráð fyrir allmiklum
lager hér, en þá kom fram bilun 1
í elektróník, sem stillir
saman
Framhald á bls. 14.
FB-Reykjavík, miðvikudag.
Mislingafaraldur geysar nú hér
í Reykjavík og virðist heldur vera
að aukast, að því er Björn Ön-
undarson, aðstoðarborgarlæknir
tjáði blaðinu í dag. Heilsuverndar-
stöðin liefur auglýst bólusetningu
gegn mislingum, og er hún aðal-
lega ætluð veikluðum börnum og
fólki, sem komið er yfir 15 ár
aldur.
Fyrstu mislingatilfellin, sem
borgarlæknisenvbættinu bárUst
fregnir af, voru skráð vikuna 13.
til 19. nóvem'ber, en síðan hefur
tilfellunum stöðugt verið að fjölga
og vikuna 11. til 18. desember,
voru tilfellin orðin um þrjátíu.
Mislingar stinga venjulega upp
kolinum á þriggja til fimm ára
fresti, en á þessum árstima, þeg-
ar rnikið er um jólatrésböll og
samgang manna ' á milli vegna
jólahátíðarinnar er nokkur hætta
á að faraldurinn geti breiðst
meira út en ella. .
Við höfðum samband við Mar-
gréti Jóhannesdóttur heilsuvernd-
anhjúkrunarkonu, og sagði hún
að í dag hefði verið auglýst, að
fólk gæti fengið ónæmisaðgerð
vegna mislinganna, en ónæmisað-
gerðin er sérstaklega ætluð veikl-
uðum börnum og fullorðnu fólki,
sem ekki hefur fengið misling-
ana. Tuttugu og einn hefur þeg-
ar komið á heilsuverndarstöðina,
til þess að láta bólusetja sig, en
pantað hefur verið efni fyrir 500
manns, og þurfi á meira efni að
halda verður það pantað. Þeir
sem vilja, geta hringt á heilsu-
verndarstöðina, og pantað þar ó-
næmisaðgerðina, og kostar hún
200 krónur.
Bretarnir ódæfír
í hegningarhúsinu
KJ-Reykjavík, miðvikudag.
Eftir því sem Tíminn hefur
fregnað, eru Bretarnir sex sem
handteknir voru vegna innbrots
ins hjá Kornelíusi á Skólavörðu
stíg, heldur ódælir í hegningar
húsinu við Skólavörðustíg, og
munu fangaverðir hafa orðið að
beita þá hörðu í dag vegna háv
aða og óláta. Gúmmí- og tré-
kyl'fur vom dregnar fram og
þeim beitt við þá' sean ódælastir
voru.
Við yfinheyrslur hjá rannsókn
I arlögreglunni í dag kom ekkert
I nýtt fram, en talið er sannað
hver á tóbaksbirgðirnar sem fund
ust í herberginu á Laufásvegin-
um.
GERIO SKIL
Dregið hefur verið í Happdrætti
Framsóknarflokksins, en ekki verð
ur hægt að birta vinningsnúmer
in fyrr en fu'llnaðarskil hafa bor-
izt, og er þess vænzt, að menn
geri skil, sem allra fyrst.
A3 vanda verða margar ára-
mótabrennur í Reykjavík á
gamlárskvöld, víða um bæinn,
og ef að líkum lætur má búast
við að þær verðj margar hverj
ar stórar og myndarlegar. Að-
albrennan verður eins og í
fyrra á Miklatúni, og er myndin
sem hér fylgir með af bálkest
inum þar, þegar unnið var að
því að bæta í hann. (Tímam.:
G.E.).