Tíminn - 11.01.1967, Page 1
r
ÓSAMHLJÓÐA FREGNIR FRÁ ÁTÖKUNUM í KÍNA:
EKKI TALIN HÆTTA
Á BORGARASTYRJÖLD
Að sögn frétta-
manna Reuters og
AFP í gær.
NTB—Hong Kong og Peking
þriðjudag.
f fréttum frá Peþing í dag er
greint frá áframhaldandi hópfund
um og mótmælaaðgerðum stuðn-
ingsmanna og andstæðinga menn-
ingarbyltingarinnar og fregnir frá
öðrum borgum Kína benda til, að
baráttan milli þessara tveggja
stæðu fylkinga sé enn í fullum
gangi. Fréttir eru annars enn mjög
óljósar af atburðum og frétta-
mönnum ber ekki saman. Ýmsar
sögur hafa verið á kreiki um yfit1
vofandi borgarastyrjöld í Iandinu,
en í dag eru birtar fréttir eftir
fréttamanni AFP-fréttastofunnar,
Jean Vincent, þar sem hann seg-
Búizt var viS, að ^Vietnamstyrjöldin yrði aðalefni þingræðu Johnsons, Bandarik|aforseta, sem hann flutti í nótt
eftir íslenzkum tíma, og af því tilefnl birtum við þessa svipmynd úr hinu ógnarlega stríðl. Bandarískir her-
menn brjótast áfram í þykkni frumskóganna, meðan stjórnmálamenn í Washington velta fyrir sér, hvernlg
snúizt verði við hinum gifurlega kostnaði vegna styrjaldarinnar.
Framhald á bls. 14
u inanr
BIÐUR L.B.J. UM HÆKKUN
SKATTA VEGNA VÍETNAM?
NTB-Washington, þriðjudag.
Lyndon B. Johnson, Banda-
ríkjaforseti, flutti „boðskap sinn
um stöðu ríkisins" á samciginleg
um fundi beggja þingdeilda í Wash
ington í kvöld-
VON AÐ FRIÐARVIÐ-
RÆÐUR GETI HAFIZT
ef USA hættir loftárásum á N-Vietnam
NTB-New York, þriðjudag. i
U Thant, framkvæmdastjóri I
Sameinuðu þjóðanna sagði á
blaðamannafundi í dag. að ef
Bandaríkjamenn liættu Ioftárásum
á Norður-Vietnam án skilyrða,
hefði hann von um, að friðarvið
ræður gætu hafizt. Eigi væri hægt
að búast við neinu skrefi í átt
til friðar meðan loftárásum væri:
áfram haldið. I
Blaðamenn spurðu framkvæmda
stjórann margsinnis að því, nvað
liði tilraunum hans til að koma
á samningaviðræðum, samkvæant
beiðni Bandaríkjastjórnar bar t'ð-
lútndi, en U Thant skaut sér
alltaf undan að gefa ákveðin svör
og sagði: Um þetta ætti maður
helzt ekki að tala opinberlega.
Varðandi ýmsar yfirlýsingar, er
fram hafa komð í Hanoi og París
og þótt hafa benda til breyttrar af
stöðu stjórnar Norður-Vietnam til
friðarviðræðna, sagði framkvæmda
stjórinn, að hér væri um að ræða
endurtekningu á velþekktri af-
stöðu, sem e. t. v. væri nú gefin
til kynna með breyttu orðalagi.
Þá fuiylrti U Thant, að frelsis-
hreyfingin í Suður-Vietnam, Viet-
cong, væri óháð stjórninni í Norð
ur-Vietnam. Framhald á bls. 14.
Fundur þessi cr talinn skipta
mjög miklu, sem upphaf baráttu
hans fyrir endurkjöri í forsetakosn
ingunuim árið 1968. Búizt var við
að Vietnam-styrjöldin yrði aðal
inntak ræðu forsetans og segja
fréttamenn hinn almcnna borgara
bíða í spcnningi eftir því, hvort
forsetinn færi fram á heimild
þingsins til hækkaðra skatta vegna
hinna gífurlegu útgjalda í Viet-
nam.
Stjórnmálafréttaritarar voru í
dag almennt þeirrar skoðunar, að
Johnson mundi á einhvern hátt
reyna að leiða hjá sér formlega
beiðni í þessa átt, en þeim mun
meir væri þessi stóra spurning
rædd meðal almennings. Vitað
er, að afstaða þingmanna til
skattahækkana vegna Vietnam-
styrjaldarinnar skiptist í tvö
horf, sem og afstaðan almennt til
stefnu forsetans í Vietnammálinu
í heild. Segja fréttamenn, að allt
af sé að koma betur og betur í
Ijós, hve alvarleg áhrif Vietnam
Framhald á bls. 15.
Morðin í Svíþjóð
2 teknir
- öðrum
sleppt
NTB-Stokkhólml, þriðjudag.
Sænska lögreglan tók í
dag höndum 22 ára gamlan
mann, Holger Geimars, sem
hún grunar að vera viðriðinn
lögregiumorðin, sem hafa
vaklð mikla reiði og ugg í
Svíþjóð. f gær handtók lög
reglan 24 ára gamlan félaga
þess fyrrnefnda. Báðir neita
þeir sakarglftum og hefur
þclm síðarnefnda nú verið
sleppt úr haldi, en yfir-
heyrslum haldið áfram yfir
Geimar.
Við rannsókn á byssukúl
um og skothylkjum, sem
fundust á morðstaðnum hef
ur því verið slegið föstu, að
tvö morðvopn hafi verið not
uð, með hlaupvíddina 9 mm
kaliber. Annað sé vélbyssa
en hitt skammbyssa af gerð
inni Parabellum.
Holger Géimars var óvopn
aður er lögreglan handtók
hann og sýndi engan mót-
þróa.
Hann og félagi hans hafa
venð rækilega yfirheyrðir,
en báðir neita staðfestulega
öllum sakargiftum. Hafa
þeir lýst athöfnum sínum á
Framhald á bls. 15 ™