Tíminn - 11.01.1967, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 11. janúar 1967
TÍMINN
í SPEGLITIMAIMS
Kvijsmynd Chaplins, Greifa-
ynjah af Hong Kong var frum-
sýnd í London nú fyrir
skömmu, og hlaut slæma dóma
gagnrýnenda. Chaplin tók dóm
ana ekki alvarlega, að því er
hann sagði sjálfur, og lék á
alls oddi. Margt stórmenna kom
til að vera við frumsýninguna,
og hér á myndinni sést hinn
aldni kvikmyndasnillingur
heilsa upp á Marlon Brando,
sem leikur annað aðalhlutverk
ið í myndinni.
Bandaríkjamenn ætla að
senda upp geimfar með þremur
mönnum 21. febrúar næstkom-
andi, og stendur undirbúningur
sem hæst. Virgil Grissom. Ed-
ward White og Robert Chaffee
hafa verið valdir til ferðarinn-
ar, sem taK* -á hálfan mánuð.
Finni nokkur, Lasse Kuparin-
en, sem búsettur hafði verið í
Horsens í Danmörku um
margra ára skeið, hvarf spor-
laust úr húsi, sinu fyrir hálfu
öðru ári og þátt fyrir mikla
leit spuðist ekkert til hans þar
til nú fyrir skömmu, er menn
voru búnir að gefa upp alla von
um að finna hann lífs. Hann
hafði siglt á litlum báti, sem
hann átti, beint til Finnlands,
og dvalizt þar um langa hríð.
en gleymt að tilkynna komu
sína. Síðan lá leið hans til Nor
egs, þar sem hann kynntist
ungri blómarós, og leiddu þau
kynni til hjónabands Er hann
var að útvega sér leyfisbréfið
þekktist nafn hans, og var lög
reglunni í Danmörku tdkynnt,
að héðan í frá gæti hún hætt
að grennslast fyrir um hann.
Ung og falleg vestur-þýzk
tolaðakona. Martina Kischke,
fór í sun*ar til Rússlands til að
giftast þarlendum unnusta sín-
um. Áður en í hjónabandshöfn
ina var komið, var stúlkan
hneppt í fangelsi fyrir njósnir
í þágu heimalands síns. Vestur
þýzk stjórnarvöld reyndu allt,
sem í þeirra valdi stóð til að fá
hana látna lausa, en allt kom
fyrir ekki. Þá fékk einhver þá
snjöllu hugmynd að fá skipti á
henni og tékkneskum njósnara
er setið hafði í fangelsi j Vest-
ur-Þýzkalandi í 5 ár, en hann
hafði verið dæmdur í ævilangt
fangelsi. Að þessu var gengið
og eru nú Martina og Tékkinn
komin hvort til síns heima.
Fyrir nokkru hafði lögreglan
í Kaupmannahöfn hendur í hári
mæðgina nokkurra eftir mikla
leit. Konan er 49 ára gömul og
öryrki, sonur hennar, uppkom-
inn, er atvinnulaus. Þau fóru úr
leiguíbúð sinni í Slagelse e^n-
hvern tíma í sumar, því að
þau höfðu ekki ráð á að borga
húsaleigu héldu til Kaupmanna
hafnar og bjuggu á mestu lúxus
xhótelum borgarinnar undir
fölskum nöfnum. Alltaf gátu
þau stungið af án þess að
borga reikninginn, og svona
gekk þetta í nokkra mánuði,
þar til lögreglan náði þeim.
Þau voru spurð, hvers vegna
þau hefðu bara valið beztu hót-
elin. og svarið var, að hvergi
hefði annars staðar verið hægt
að fá inni. Þau voru dæmd í
viku fangelsi.
1
★
Unga konan hans Frank Sin-
atra. Mia Farrow, hefur verið
útnefnd verst klædda kona
heims. Þennan harða dóm kvað
upp hinn færgi tízkuteiknari
Robert Blackwell. Elizabeth
Taylor fékk líka harðan dóm
hjá honum. Hann sagði, að hún
væri eins og tannkremstúba,
sem hefði verið kreist í miðju.
Af átta öðrum konum, sem
hann gaf slæma gagnrýni, má
nefna leikkonurnar Ann-Marga-
ret og Simone Signoret.
★
Náfrændi Eiljsabetar Breta-
drottningar ,Jarlinn af Hare-
wood, er sagður hafa í hyggju
að skilja við lafði sína og kvæn
ast á ný 38 ára gamalli konu,
sem áður var einkaritari hans.
Hún á tveggja ára gamlan son
sem hann er sagður faðir að.
Jarlinn hefur þó ekki ráðizt í
þetta fyrirtæki enn, og mun
orsökin vera sú, að hann ótt
ist reiði hennar hátignar,
frænku sinnar.
★
fylgjandi mynd sjást líkmenn
bera kistu hans út úr sjúkra-
húsinu.
Jack Ruby var jarðsettur við
hlið foreldra sinna í Westlawn
kirkjugarði á þrettándanum,
en svo sem kunnugt er, lézt
hann úr krabbameini á sjúkra-
húsinu í Dallas 3. þ.m. Á með-
Margrét Hollandsprinsessa
og Pieter van Vollenhoven
verða gefin saman í heilagt
hjónaband í Haag í dag og
birtum við þessa mynd af
brúðhjónunum af því tilefni.
Mikill fjöldi verkamanna,
vann að því í dag að hreinsa
snjó og ís af götum borgar-
innar, svo að hinn 130 ára
gam:!i hestvagn, sem flytur
þau til vígslunnar geti far-
ið óhindrai um göturnar.
Um 4500 lögreglumenn og
hermenn munu standa vakt
meðfram akbrautum, en
ekki er þó búizt við, að svip-
aðir atburðir verði og þegar
Beatrix, prinsessa gekk að
eiga Klaus, sem er> þýzkur.
!
n
Á VÍÐAVANGI
„Sjórinn var svona
dauður"
Dragnótaveiði hér í Faxaflóa
er oft á dagskrá, ýmist verið að
mælast til rýmkaðra heimilda
eða banns við þeim. Og svo er
talað um að hleypa togurunum
inn í landhelgina. Aldraður sjó
maður, Albert vitavörður í
Gróttu, Sem róið hefur á Fló-
ann í sextíu ár, segir svo í við-
tali við Sunnudagsblað Tímans
er hann er spurður um, hverju
sæti minnkandi smábátaútgerð
á mið Flóans:
„Nú, það er engan fisk að fá
hérna í Flóanum. Mig minnir,
að ég hafi farið þrisvar sinnum
í fiskileit í sumar. Lengst var
ég í tólf tíma. Eg var með næl
onfæri, húkkfæri, ýsufæri og
nýjan krækling. í tólf tíma leit
aði ég og fékk tvær smáýsur
inni í Hvalfjarðarmynni. Þær
voru ekki ætar. Þetta var árang
urinn eftir allan túrinn, og þó
leitaði ég á öllum frægustu
miðunum. Eg gerði að gamni
mínu að taka tímann. Eg
keyrði í hálftíma sunnan frá
Garðskaga án þess að sjá einn
einasta fugl. Ekki lunda, ekki
fýl, og ekki einu sinni ritu. Sjór
inn var svona dauður. Ekkert
síli. Ekkert æti.
— Hvað hefur komið fyrir?
— Það þarf ekki að fara í
neinar grafgötur með það.
Þetta er afleiðingin af dragnót
arveiðunum. Á friðunartímum
þurfti maður ekki að fara
lengra hérna út úr sundinu en
fimm mínútna keyrslu til að fá
ýsu, jafnvel stórýsu. Ef maður
vildi þyrskling, var enn styttra
á mið. Þegar dragnótin er leyfð
í annað sinn, bregður svo við,
að nú fæst ekki einu sinni fisk
ur f soðið“.
„Þetta er dragnótin"
Og Albert heldur áfram:
„Já, við skulum athuga, hvað
dragnótin gerir. Nú liggja drag
nótabátarnir fyrir lausu. Áður
lágu þeir fyrir lcgufærum,
hnýttu fyrra tóginu í legufærin
keyrðu út tógin og dragnótina
og drógu að sér. Núna setja
þeir bara bauju á endann, kasta
taka bæði tógin saman inn á
spil og keyra þangað ti> nótin
dregst saman. Svo nótin dragist
seinna saman hafa þeir vfra
næst nótinni. Vírarnir eru svo
þungir að þeir dragast niður í
sandbotninn og róta þar öllu
upp. Milli sjávarfalla liggur
sandsílið niðri á sandbotninum
en kemur upp á yfirborðið í
sjávarföllum og safnast þar i
lmapp. Þar er átan og fuglinn
og fiskurinn sækja í sandsíla.
vöðurnar. Nú hefur sandsílið
ekki gott næði í botninum, þeg
ar dragnótavírarnir róta hon-
um svona upp og flýr úr grugg
inu.
Eg hef fylgzt'með ferðalagi
fuglsihs og sandsílisins ár cftir
ár. Sandsílið kemur venjulega
sunnan og vestan fyrir Garð-
skaga, inn á Sviðið og á sand-
botninn. Þegar sílið hefur
ekki næði þar á botninum, flýr
það norður, alltaf norður upp
að Mýrum og út undir Jökul.
Þetta er gangurinn bæði á fugli
sfli og fiski, sem ekki er drep-
inn. Þar sem hvorki er fugl né
síli, er engan fisk að fá.
Nú, dragnótin drepur einhig
óhemju af sandkola, sem ekk
ert er við að gera og enginn
kærir slg um að flytja í land,
Framhald á bls. 15.
r