Tíminn - 11.01.1967, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 11. janúar 196V
14
Uppselt hefur veriS á allar sýn-
ingar á óperunni Mörtu, sem sýnd
er um þessar mundir í Þjóðleikhús
inu. Óperusöngkonan Mattiwilda
Dobbs söng titilhlutverkið á fyrstu
7 sýningunum, en nú tekur Svala
Nielsen við hennar hlutverki- og
syngur það í fyrsta skipti í kvöld.
Svala hefur sem kunnugt er oft
áður sungið stór hlutverk í óperum
og má í því sambandi minnast þess
að hún söng hlutverk Antóníu í
óperunni Ævintýri Hoffmanns á
síðastliðnu vori, í Þjóðleikhúsinu, og
hlaut mjög góða dóma fyrir. Einnig
söng hún hlutverk Suzuki í Madame
Butterfly vorið 1965 við mjög góð
an orðstí. Myndin er af Svölu í
hlutverki Mörtu.
TIL SÖLU
4ra herbergja risíbúð,
byggð á vegum Byggingar-
samvinnufélags V-R. Þeir
félagsmenn sem neyta vilja
forkaupsréttar sendi um-
sóknir sínar í pósthólf 1347
fyrir þriðjud. 17. þ.m. 7
Stjórnin.
EKKI HÆTTA
framhals at bls. 1.
ir, að í peking benði ekkert til
þess, aS svo stórkostlegir atburSir
séu í nánd.
Blöð um allan heim birta síðustu
fréttir af atburðum í Kína með
stórum fyrirsögnum á forsíðu og
fréttastofur senda látlaust fréttir
frá Kína.
Erlendir sendifulltrúar og stjóm
málamenn víðs vegar í heiminum
reyna að skýra ástandið í landinu
á grundvelli þessara frétta, en ekki
ber þeim saman frekar en frétta-
i mönnum.
Fréttamaður Reuters. Mohsin
Ali, hefur það eftir heimildum með
al erlendra sendifulltrúa í Lundún
um, að innan þess hóps sé það út
breidd s'koðun, að í Kína eigi sér
stað hatrömm barátta milli and-
stæðra hópa innan forustu kín-
verska kommúnistaflokksins ,en
hins vegar liggi ekki fyrir svo
glöggar heimildir, að hægt sé að
tala um opið stríð og blóðsúthell-
ingar.
Ali hefur átt viðtöl við sendifull
trúa landa, sem öll hafa sendimenn
í Kína, og samkvæmt þeim samtöl
um heldur hann því fram, að frétt
ir um blóðug átök í Peking, Kan-
ton, Nanking og Shanghai byggi
ekki á heimildum frá fyrstu hendi
og gefi því ýkta mynd af ástandinu
sem þó verði að telja mjög alvar-
legt.
Flestar fréttir, sem borizt hafa
til Vesturlanda, eiga rætur sínar
að rekja til áróðursspjalda Rauðu
varðliðanna í Peking og eru þær
upplýsingar bæði óljósar og vill-
andi. Sameiginlegt þeim er mikið
hól á Mao, formann, og ómyrkar á
sakanir í garð ímyndaðra eða raun
verulegra andstæðinga hans og
mennlingarbyltingarinnar.
Á hinu leikur enginn vafi, að
ýmsir árekstrar hafa orðið, en þó
er alltof djúpt tekið í árinni að á
lykta af þeim, að Kína riði á
barmi borgarastyrjaldar, segir
þessi fréttamaður Reuters. Ekki
sé hægt að búast við því, að hægt
verði að gera sér ljósa grein fyrir
ástandanu þar eystra fyrst um
sinn, en þó virðist allt benda til,
að valdabaráttan eigi frekar eftir
að harðna heldur en hið gagn-
stæða.
Blöð í Hong kong fullyrða í dag,
að óðir varðliðar hafi ráðizt inn
á sjúkrahús í borginni Kanton og
hindrað lækna í að gera að sárum
verkamanna, sem meiðzt hafi í á-i
tökum við Rauðu varðliðana.
Ferðamaður, sem kom nýlega frá
borginni, sagði við fréttamann
AFP, að hann hefði orðið vitni að'
bióðugum bardögum þar. Hefði ■
hann séð fólk liggja í blóði sínu á
götunni og blóð hafi runnið um
göturæsi.
Fréttastofan Nýja Kína segir íi
fréttum frá Shanghai í dag að and ’
byltingarsinnar þar hafi enn ekki!
náð sér eftir hinn mikla ósigurj
fyrir stuðningsmönnum hugsunarj
Maos, en hinir sönnu byltingarsinn ;
ar væru í þann veginn að koma ‘
saman allsherjar baráttufylkingu, l
sem mundi berja niður sénhverja j
mótstöðu.
Hið vel þekkta japanska blaðj
Asahi Shimbun segir í dag, að
Rauðu varðliðamir hafi gert ítrek
aðar, misheppnaðar tilraunir til
þess að brjótast inn í aðalstöðvar
kommúnistaflokksins til þess að ná
sér niðri á Liu Hsiao-chi, forseta,
og Teng Hsiao-ping, aðalritara
kommúnistaflokksins.
Tékkneska fréttastofan Ceteka
segir, að allar samgöngur milli
suður- og norðurhluta Kína hafi
verdð stöðvaðar vegna innanlands-
ástandsins. Byggir fréttastofan
fregnimar á spjöldunum í Peking.
Ykkur öllum, sem auösýnduð minningu
Sigurlaugar Erlendsdóttur
frá TorfastöSum
virðingu og okkur samúS og vinarhug við andlát hennar og útför,
færum vi5 einlægar þakkir og óskum ykkur farsældar á nýbyrjuðu
árí.
‘ Gæfan fyigi Biskupstungunum, sem hún unni svo mjög.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
FRIÐARVIÐRÆÐUR
Framhals al bls i
AFP-fréttastofan hefur það
eftir framkvæmdastjóranum, að
hann telji Suður-yietnam ek'ki
einhverja algera nauðsyn varð-
andi öryggi vestrænna landa, og
er framkvæmdastjórinn þar alger
lega á öndverðum meiði við
Bandaríkjamenn. Hann sagðist
ekki telja, að kommúnistar næðu
yfirráðum yfir alird Suð-austur-
Asiu, þótt þeir kæmust til vaida
í Vietnam.
OLÍUMÖL
Framhald af bls. 16
þær gömlu, og skýringin e. t.v.
sú að ekki sé búið að setja öll
slitlögin á þær nýju, og því
eigi vatnið greiða leið að
sprengja þær i sundur, svo sem
bezt sést þegar ekið er um
borgina. En það skyldi þó aldrei
vera, að olíumölin stæðist alla
umhleypinga og væri að því
leytinu heppilegri sem varan
legt slitlag á götur? Á þessu
sviði sem svo mörgum öðrum er
reynslan bezti dómarinn, og eft
ir því sem séð verður t. d. á
Borgarholtsbraut og Digranes
vegi í Kópavogi þá er olíumöHn
í góðu ásigkomulagi þar, og
eins t. d. á Flötunum í Garða
hreppi.
ÞORVALDUR ARI
Framhald af bls. 16
hún kallar á lögregluna. Ekki
er ljóst á þessu stigi eftir
hvern blóðið er á dyrabjöllunni.
í sambandi við hringinguna til
lögreglunnar sagði Sverrir að-
spurður að það atriði yrði
kannað mjög rækilega. Blað-
ið vill geta þess, að því hefur
verið fleygt að lögreglan hafi
verið heldur sein á staðinn,
en á þessu stiigi málsins er
ekkert, hægt um það að full-
yrða, og út i hött að fullyrða
eitt eða annað.
Við rannsóknina hefur það
komið fram að konan sem var
gestkomandi í húsinu varð fyr
ir hnífstungu Þorvaldar Ara
áður en hann lagði til fyrr-
verandi eiginkonu sinnar.
Varðandi það hvort Þorvald-
ur Ari hefur komið með hníf-
inn sem hann lagði til kvenn
anna með, eða fengið hann í
íbúðinni, er ekkert hægt að
fullyrða á þessu stigi málsins
svo öruggt sé, og eitt af þeim
atriðum sem mikil áherzla er
lögð á að leiða í ljós, en eins
og áður segir kom hann með
kjöthamarinn sem hann braut
rúðuna með, að heiman frá
sér, SólvaUargötu 63.
Svo virðist sem tveir yngri
drengirnir hafi farið í skól-!
ann eftir að faðir þeirra var
búinn að brjótast inn i íbúð
ina, en þó verið farnir áður
en hann réðst á móður þeirra.
Ekki er hægt að segja um
með fullri vissu, hvenær átök-
in á milli hjónanna fyrrver-
andi byrjuðu, en Þorvaldur
Ari kemur að húsinu um klukk
an átta og klukkan níu er
kaliað á lögregluna.
Aðstoðárborgarlæknir kom
á vettvang skömmu eftir að
rannsóknariögreglan kom, og
gaf hann út þann úrskurð er
hann skoðaði Hjördísi Ullu að
hún væri látin, en lögregiu-
mönnum, sem komu að henni
í baðkerinu virtist hún látin.
Aðstúðarborgarlæknir úrskurð-
aði líkið þá þegar til krufn-
ingar, og fer krufningin fam
hjá Atvinnudeild Háskólans, að
venju.
Við yfirheyrslur hefur Þor-
valdur Ari sagzt vera „túra-
drykkjumaður" og verið það
nokkur ár. Núna síðast byri-
aði hann „túr“ að kvöldi 3.
nóvember s.L og stóð sá „túr‘
fram til 5. eða 6. desember,
að visu með nokkra daga hlé-
um af og til Áður en hann
hóf þennan „túr“, hafði hann
ekki að eigin sögn farið á
„túr“ í tíu mánuði. í þessum
síðasta ,,túr“ skilur hann við
konu sína, og var gengið frá
skilnaðinum formlega að
morgni 1. desember. Ástæðuna
fyrir skilnaðinum segir Þor-
valdur vera þennan „túr“ og
hafi konan farið fram á skiln-
aðinn.
Þorvaldur segist hafa rifizt
við konu sína, er hann kom
heim til hennar á laugardags-
imorgunin, og rifrildið hafi
iverið á þann hátt að hann
hafi lagt til hennar í æði, en
•ekki ætlað sér að gera það,
og ekki myrt hana að yfiriögðu
ráði.
Á aðfangadag sendi hann
fyrrverandi eiginkónu sinni
einkennilegan pakka. í honum
var hnífur, sem stugið var í
gegnum tusku, sem átti að vera
hjarta og rauðir blettir í ból-
ull í kassanum. I-Ijá hnífnum
var brostinn fiðlustrengur og
fiðiubogi. Utan á kassann hafði
hann límt umbúðir utan af
13 13 bakteríudrepandi sápu,
en klippt í burtu orðið bakt-
eríu af umbúðunum, svo eflir
stóð 13 13 drepandi. Einnig
fylgdi kassanum kort til kon-
unnar með mynd af Útlagan-
um eftir Einar Jónsson mynd-
höggvara. Þorvaldur Ari hefur
gefið þá skýringu á gjöfinni,
að þetta hafi átt að vera á-
bending til konu hans fyrrver-
andi, að með slíkum hníf hefði
hann heldur viljað vera deydd
ur, en farið hefði verið með
hann á þann hátt, sem raun
varð á, og á þá við skilnað-
inn. Þá skyringu gefur hann
á kortinu með mynd af Út-
laganum, að honum hafi sjálf-
um fundizt hann væri gerður
útlægur.
Þá mun hann hafa sent tengda
mður sinni gjöf, en rannsókar-
dómarinn gefur á þessu þessu
stigi ekkert upp um hana. 1
Þorvaldi Ara var að venju bent
á það í upphafi rannsóknarinnar að
honum væri heimilt að fá sér verj
anda til að gæta réttar síns, en
hann sagðist vilja geyma sér þann
rétt þar til síðar. Honum mun ekki
skylt að fá sér verjanda, og þar
sem hann er löglærður maður og
með réttindi til málflutnings fyrir
Hæstarétti, þá er sá möguleiki fyr
ir hendi, að hann kjósi að Verja
sig sjálfur fyrir rétti. Hins vegar
er dómara heimilt að skipa honum
verjanda, ef honum sýnist andlegt
ástand ákærða sé þannig að nauð I
synlegt sé, að honum sé skipaður I
verjandi til að gæta réttar hans. I
Þorvaldur Ari var ekkert sér-1
staklega æstur, er hann mætti til •
yfirheyrslu fyrst á laugardaginn,
og ekki hefur verið hægt að segja
að hegðun hans í Hegningarhúsinu
hafi verið neitf ábótavant.
Nánari frétta er að vænta af
máli þessu seinnihluta vikunnar.
Svo sem að líkum lætur, er mál
Þorvaldar Ara, ærið umræðuefni
manna á meðal í borginni, og
margskonar sogusagnir á kreiki
um hann. Ein er sú að kona hans
hafi óskað eftir geðheilbrigðisrann
sókn á honum, og önnur að mað
ur nokkur kunnugur geðverndar-
máium hafi hitt hann á götu, fyr
ir ekki mjög löngu og sagt: „Þú
ert að verða brjálaður Þorvaldur,
þú skalt fara í rannsókn“. Honum
virðist Kiljan kær, því að á kort
með mynd af Útlaganum, sem hann
skrifaði tU kunninga sinna er 1
hann var við drykkju í Naustinu í
kvöldið fyrir morðið vitnaði hann j
í texta úr Ljósvíkningnum eftir
Kiljan: „Það fara ekki allir á
kirkjugarðsballið í haust, sem ætl
uðu þangað í vor“. Þá mun hann
hafa komið á Landsbókasafnið til
að afla sér upplýsing um hvað
Kiljan segði um eiginkonuna og
melluna í einni af bókum hans.
Þorvaldur Ari mætti til yfir-
heyrslu klukkan 16 á laugardag og
var þá yfirheyrður í hálfan ann
an klukkutíma, og að yfirheyrsiu
lokinni var hann úrskurðaður í 90
daga gæzluvarðhald og til að sæta
geðheilbrigðisrannsókn, en Þórður
Möller yfirlæknir á Kleppi mun
frámkvæma hana.
í gær var hann yfirheyrður í
rúma fjóra tíma, en minna í dag
þar sem tvö vitni í málinu voru þá
yfirheyrð.
HOLDANAUT
Framhald af bls. 16
góðu, ef ekki brygði til hins betra
nú alveg á næstunni, því þá mætti
búast við miklu kali í túnum í
vor.
Páll sagði að einn svellbunki
væri þarna efra í Rangárvallasýslu
en ástandið hvað þessu viðkæmi,
væri miklu betra þegar nær drægi
sjónum.
Þeir sem eiga stórar hrossahjarð
ir fyrir austan hafa kvartað undan
því sama sagði Páll, að hrossin
ættu erfitt með að fóta sig á svell
inu.
í vetur eru 1100 fjár á fóðrum
í Gunnarsholti og holdanautin eru
um 300 talsins.
Happdrætti Fram-
sóknarflokksins
í Kópavogi
Nú eru síðustu forvöð að gera
skil í Happdrætti Framsóknar-
flokksins á skrifstofu framsóknar
félaganna í KópavogL að Neðstu
tröð 4. Eru allir hvattir tH þess
að gera skil fyrir 12. janúar. Skrif
stofan verður opin daglega frá kl.
17-22-
Færö batnar
FB-Reykjavík, þriðjudag.
Mikil hálka er á vegum víðast
hvar á landinu, og sums staðar
illfært af þeim sökum. í dag var
verið að ryðja veginn milli Reykja
víkur og Akureyrar. Allmikill snjór
var í Skagafirði og Langadal, en
lítill á Öxnadalsheiði. Á mörgum
stöðum voru miklir svellbunkar, og
umferð því hættuleg. Sæmileg færð
var ftú A’rireyri til Húsavíkur og
allt austur á Tjörnes, en verið var
að opna Mývatnsheiði.
Á Austurlandi var sæmileg færð.
en vegir nokkuð blautir víða. Ann
ars staðar var mikil hálka og nokkr
ir bílar höfðu runnið út af veg
um, en hvergi höfðu orðið slys á
mönnum, af þeim sökum. Fjarðar
heiði er lokuð, en fær snjóbílum.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
JÓN AGNARS
FRlMERKjaVERZLUN
SíMI 17-5-61
kl. 7.30—8 e.h.