Alþýðublaðið - 17.04.1984, Síða 8

Alþýðublaðið - 17.04.1984, Síða 8
8 Þriðjudagur 17. apríl 1984 AÐALFUNDUR Aðalfundur Fulltrúaráðs Alþýðuflokksins I Reykjavlk verður haldinn að Hotel Esju, 2. hæð, þriðjudaginn 17. apríl n.k. kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Fram lagðar tillögur um breytingar á reglugerð fulltrúaráðsins. Mikilvægt er að fulltrúar sæki fundinn vel og stundvíslega. Stjórnin Andstöðu Framhald af bls. 7 en hér er. En eins og við höfum áður á öðrum vettvangi fjallað um, virðist svo lítill hluti þessara tekna verða til skiptanna, þegar upp er staðið. Ráðherrar opna jafnvel faðminn fyrir útlending- um, og segja þeim, að flytja rekst- ur sinn til íslands. Hér séu laun á svipuðu róli og hjá vanþróuðu þjóðunum. Röng fjárfesting Hin ranga fjárfesting, sem nú stefnir þjóðfélaginu í einhverjar TILGLÖGGVUNAR Til að sjá eru páskaegg eiginlega ekki mjög frábrugðin hvert öðru. En vegna þess hve þau eru ólík að bragðiog innihaldi er mikilvægt að geta greint á milli tegunda. Hér fylgir því ofurlítill leiðarvísir um páskaegg frá Nóa og Síríus. Verði ykkur að góðu! öruggasta leiðin er auðvitað að kaupa egg, brjóta það og bíta í. Þá finna bragðlaukarnir hvort um rétt egg er að ræða En það má líka treysta því, að'ef miði með 5 litlum og sætum ungum prýðir pokann, er eggið frá Nóa Sírfus. Poki úr glæru plastefni. Ganga má úr skugga um að um réttan poka sé að ræða, með því að blása hann upp.halda fyrir opið og slá síðan þéttingsfast á botninn með lausu höndinni. Á pokinn þá að gefa frá sér hátt og hvellt hljóð til merkis um að hann sé frá Nóa Síríus. Súkkulaðibragðið á að minna ákveðið á bragðið af Síríus hjúpsúkkulaði og Pippi. Kúlur, kropp, konfekt, karamellur og brjóstsykur benda eindregið til þess að eggið sé frá Nóa Síríus. Pó því aðeins að bragðið sé Ijúffengt. Gulur ungi af vandaðri þýskri gerð. Athugið þó að aðrir framleiðendur hafa einnig gula unga á eggjum sínum. Hnyttinn, rammíslenskur málsháttur skráður með svörtu letfi á litaðan borða. þær mestu efnahagslegu ógöngur, sem sögur fara af, hefur hirt obb- ann af því fjármagni, sem með réttu hefði átt að fara til fólksins, til að byggja upp og bæta afkomu hvers og eins. Milliliðir og skatt- svik taka sinn toll. Hallir mjólk- urbúa og banka, þreföld dreifing olíu, — allt er þetta ógnun við af- komu einstaklinganna, allt gleyp- ir þetta arðinn af starfi launþeg- ans og er um leið ógnun við vel- ferðarþjóðfélagið. Það hefur tekið áratugi að ná því marki, sem nú blasir við á sviði velferðarmála. Frá því marki má ekki hvika eitt einasta fet. — En við verðum að taka tillit til nýrra tíma, til nýrra stjórnmála- viðhorfa. Fyrst og fremst verðum við að hefta sókn íhalds- og aftur- haldsaflanna og koma þjóðinni í skilning um, að hjá þeim liggur ekki hreyfiafl til þeirra hluta, sem gera þarf. Virkja eigið framtak Við verðum að taka þátt í þeirri umræðu, sem nú á sér stað um vel- ferðarríkið og framtíð þess. Eitt er það vopn, sem gegn okkur er beitt, og það er, að velferðin, tryggingin frá vöggu til grafar, geti gengið svo langt, að hún svipti manninn athafnaþrá og framtaki. Slíkri velferð ætíum við ekki að stuðla að. En við viljum, að sú mannúðarstefna ríki og að hver maður beri í brjósti þá rétt- íætiskennd, að arðurinn af vinn- 'unni skiptist réttlátlega, en safnist ekki á fárra manna hendur. Þetta mun takast best með því, að virkja okkareigið framtak til þess að hafa áhrif og völd í atvinnu- rekstrinum sjálfum. Sjálfstœðismenn Frh. af bls. 2 standa undir þeim kostnaði..." Og áfram segir Albert: „... það er hrein sjálfsblekking ef menn halda að einstaklingar fáist til þess að leggja nýtt fé í slíkan rekstur sem sjávarút- vegurinn er orðinn... Að leggja skatt á styrkþegann og styrkþeginn er undirstöðuatvinnuvegur þjóðar- innar. Þettaeralveg furðulegt fyrir- tæki... Ég get ekki með nokkru móti skilið að blankur einstakling ur geti tekið lán hjá sjálfum sér til þess að fjármagna sínar þarfir“. Umræður um þessi mál vöktu mikla athygli. Sjónvarpað var frá atkvæðagreiðslunni. Breytingartil- laga Matthíasar Bjarnasonar nú- verandi heilbrigðisráðherra var samþykkt. Þótti niðurstaðan mikið áfall fyrir þáverandi sjávarútvegs- ráðherra Steingrím Hermannsson. Hæstvirtir núverandi ráðherrar, Al- bert Guðmundsson, Matthías Bjarnason og Matthías Á. Mathie- sen sögðu margt fleira en hér er til- greint um þá fávisku að gera upp- tækan gengismun af skreið. Ekki hefur staða þeirra, sem skreiðina eiga, batnað nema síður sé. Staðan er aðeins breytt að því leyti að þeir sjálfstæðismenn eru nú orðnir húskarlar Steingrims Her- mannssonar og verða að hlýða. Fulltrúar skreiðarframleiðenda komu á fund sjávarútvegsnefndar. Fram kom að staða skreiðarverkun- ar er margfalt verri en á sl. ári. Þeir létu nefndarmönnum í té upplýs- ingar sem birtar eru sem fylgiskjöl með þessu nefndaráliti. Minni hluti sjávarútvegsnefndar leggur til að frumvarp þetta verði fellt. í fyrsta lagi vegna þess að það gengur mjög á hlut sjómanna og hefur í för með sér stórfellda kjara- skerðingu. Jafnframt er það ljóst að rekstrargrundvöllur útgerðar- innar er ekki tryggður með þessum aðgerðum því að fiskverð og annar aðbúnaður útgerðarinnar er ekki sem skyldi. í öðru lagi leggjum við til að frumvarpið verði fellt vegna upptöku gengismunar. Minni hluti mun þó flytja breyt- ingartillögu varðandi upptöku gengismunar af skreið í því skyni að lagfæra verstu agnúa 3. gr. frv. Einnig má ætla að þeir háttvirtir al- bingismenn, sem ekki eru bundnir af ráðherradómi, geri sér grein fyrir þeim fáránleik að ætla að gera upp- tækan gengismun hjá skreiðar- framleiðendum sem sannanlega búa við stórfelldan taprekstur.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.