Alþýðublaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 17. apríl 1984
19
Rœtt við Svein
bakara um
gœðabrauðin sem
mörg veitingahús
borgarinnar
notfœra sér og
m ódelskreytingar
í stórveislur
sælt, þúsundir gesta og all-
ir sem vildu fengu eitthvað.
Annars lærði ég bakaraiðn á
Akureyri og útskrifaðist frá Krist-
jánsbakaríi á Akureyri árið 1962.
Ég vann svo þar uns ég fluttist til
Reykjavíkur árið 1966. Þar tók ég
við bakaríinu á Hótel Loftleiðum,
sem þá var nýstofnað og vann þar í
sex ár, en tók þá við bakaríinu í veit-
ingahúsinu Glæsibæ og var með
það þangað til árið 1978.
Sveinn Krístdórsson bakarameist-
ari, öðru nafni Sveinn Bakari.
Ég skrapp einnig til Danmerkur
og vann þar um tíma og var einnig
eitt ár yfirmatreiðslumaður á Hótel
Valhöll á Þingvöllum.
11. nóvember 1980 hóf ég svo
rekstur Sæluhússins að Banka-
stræti 11 og rak það í tvö ár, eða
þangað til ég flutti hingað á Grens-
ásveginn, þar sem ég rek fyrirtækið
mitt undir því nafni, sem flestir
þekkja mig, Sveinn bakari.
Mér likar afar vel hérna, mikið er
að gera og fólkið gott og svo sann-
arlega ástæða til þess að brosa. Það
er í rauninni bara þúsund manna
afmælisveisla sem getur máð það af
andlitinu. Hjá mér vinna 16 manns
og hreint út sagt, þá hef ég ekki við
að anna eftirspurninni.
Hérna hef ég sérhæft mig í gæða
brauðum og kökum, einnig fyrir
veitingastaði. Ég get með nokkru
stolti talið upp sum veitingahúsin
sem skipta við mig. Staði eins og
Veitingahöllina, Múlakaffi, Pott-
inn og pönnuna, Lækjarbrekku,
Hótel Borg, Glæsibæ, Mensu,
Gestgjafann í Vestmannaeyjum,
Botnskálann, Bláa Lónið og Ask
við Suðurlandsbraut auk þess sem
ég annast sérverkefni fyrir Hótel
Esju og Hótel Loftleiðir.
Með slíkan viðskiptalista auk
allra annarra viðskiptavinina, þá
verður það náttúrlega að segjast
eins og er að maður sér varla fram
úr verkefnunum. Þó langar mig að
leggja áherslu á það að við reynum
alltaf að láta allt þannig frá okkur
fara, að það sé sem best úr garði
gert.
Störf mín fyrir aðila á borð við
Hótel Loftleiðir, Glæsibæ og Hótel
Valhöll hafa óneitanlega valdið því
að ég hef fengið mörg spennandi
verkefni að spreyta mig á um dag-
ana. Stundum komu þau líka óvænt
og voru erfið.
Þannig hef ég oft lent i því að
skreyta stórveislur þessara staða.
Sérstaklega er mér hugleikið að
minnast stórra módelverka úr sykri
af heilum byggingunt, flugvélum
svo ég tali nú ekki um hnattlíkanið
mitt fræga, sem ég bjó til fyrir ný-
ársfagnað Hótel Loftieiða hérna i
eina tíð.
í svona skreytingar- og sköpun-
arvinnu liggur oft ótrúlegt érfiði, en
sköpunargleðin er mér ásköpuð og
auðvitað hríslast um mig stolt og
gleði þegar ég sé módelverkið mitt
sem hápunkt fagurlega skreyttrar
stórveislu.
Að lokum vil ég bara segja það,
að vinsældir mínar hérna á Grens-
ásveginum eru ekki mér einum að
þakka. Ég er svo lánsamur að hafa
frábært starfsfólk og það er nokk-
uð sem maður í mínum rekstri,
hvers afurð, ef svo mætti að orð-
um komast bráðnar uppí viðskipta-
vininum, fær seint fullþakkað",
sagði Sveinn bakari að lokum.
G.T.K.
Eitt af hinum glœsilegu módelum
sem Sveinn bakari hefur gert um
dagana. Þarna er það Hótel Valhöll
HP — 150
Einkatölvan með
snertiskjánum frá
Hewlett Packard
Leitið upplýsinga hjá söluaðilum:
Elding Trading Company h.f.
Hafnarhvol v/Tryggvagötu
Símar 16303 og 15820
Tölvuvinnsla og kerfishönnun hf.,
Furugeröi 5, Reykjavík
Sími: 85420
HEWLETT
PACKARD