Alþýðublaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 17. apríl 1984
15
Mikli-
garður
fœr
óska-
byr
. «8$
Ljósm.: G.T.K.
Fullt var út úr dyrum í Miklagarði og gífurleg ös við kassana.
S&S . 'v-. Sj 3 si j áZ&S ■ ~*mÉt vdj ***** - J.
. I.. - <■** U U •: i ím r wjitoö -W".***- Uúj
md
Seljum mikið fyrir lítið
í Miklagarði í Holtagörðum var ös út úr dyrum, þegar
okkur bar að garði síðdegis á föstudegi. Framkvæmda-
stjórinn, Jón Sigurðsson,gaf sér þó smá tíma til að tala
við okkur, áður en hann var rokinn út í verslun að bjarga
einhverjum málum.
„Hér hefur verið mjög góður gangur á hlutunum,“
sagði Jon, „alveg frá því að við byrjuðum. Jólaverslunin
var auðvitað gífurlega mikil og svo komu smá rólegheit
fyrstu dagana í janúar. Þetta var þó miklu minna, en við
áttum von á, og urðum reyndar alveg furðu losnir að sjá
fólk mæta hér í verslunina eins og ekkert hefði ískorist
í snjóunum miklu í janúar.
Núna er aukningin á þessu ári
gífurlega mikil. Þannig er yfir
hundrað prósent aukning á veltu í
marsmánuði frá janúarmánuði.
Síðustu sex vikurnar höfum við
slegið hvert sölumetið á fætur öðru.
Margir dagar núna eru jafnvel betri
en í desember og það er nokkuð
sem við áttum alls ekki von á.
Upprunalega settum við hér upp
14 greiðslukassa og héldum svo
sannarlega að þeir myndu algjör-
lega duga, enda af hraðvirkustu
gerð sem finnast í landinu. Við höf-
um nú fjölgað þessum kössum um
30% og þó anna þeir varla verslun-
inni. Ekkert sannar betur en þetta
að fólkið kann að meta þá stefnu
okkar að selja mikið fyrir lítið.
Það er lika greinilegt að tilkoma
Miklagarðs hefur almennt talað'
haft gífurleg áhrif á alla verslun út
Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri Miklagarðs, stœrstu verslunar Islend-
inga. Ljósm.: G.T.K.
um allt land. Samkeppnin er orðin
miklu harðari og markvissari til
stórra hagsbóta fyrir alla neytend-
ur. Áberandi er hvað öll verð eru
borin saman við þau verð sem hér
eru á hlutunum, hvort sem það er
nú einstakir kaupmenn við verð-
ákvörðun í eigin búð eða hreinlega
opinberir aðilar í umræðum í fjöl-
miðlurn.
Velgengni okkar má einnig
marka af því hversu ntjög Mikli-
garður hefur verið hafður á orði í
íslenskri fjölmiðlun undanfarið og
þá sérstaklega vegna velgengni
sinnar. ÖIl þessi umræða bendir
okkur ótvírætt á það að við erum á
réttri braut. Samkeppnisaðilarnir
ræða auðvitað hitt og þetta um
okkur en fólkið sjálft, neytendur í
landinu, finna að hér er verslun sem
hefur hag þess algjörlega að leiðar-
ljósi og þrýstir niður vöruverði,
þrátt fyrir gæði. Fólkið sjálft kann
svo sannarlega að meta þessa,
stefnu okkar það sýnir verslunin
hér og þá erum við áhægðirþ sagði
Jón Sigurðsson í Miklagarði að lok-
um. G.T.K.