Alþýðublaðið - 17.04.1984, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 17. apríl 1984
17
bíl náði Volvo ákveðnu forskoti þar
sem fæstir samkeppnisaðilarnir
voru þá koninir með vörubíla með
turbo-vélum.
Það var svo í beinu framhaldi af
framleiðslu turbo-vélanna sem far-
ið var að hugleiða frekari útfærslu
á þeim og nota loftkælingu í stað
vatns. Eins og áður segir voru skref-
in sem stigin voru í fyrstu öll fremur
smá, en þau miðuðu að ákveðnu
marki og þegar á árinu 1964 hafði
tæknimönnum Volvo-verksmiðj-
anna tekist að leysa nokkur grund-
vallaratriðið sem „lntercooler"
tæknin byggðist síðan á. Mönnunt
varð fljótlega Ijóst að með þessari
aðferð var unnt að framleiða vélar
sem voru mun kraftmeiri en þær
vélar sem þá tíðkuðust í vörubílum.
Takmarkið var að frantleiða vél sem
hefði 400 hestafla orku og er Ijóst
að framsýni hönnuðanna og tækni-
nranna hefur verið mikil.
Árið 1970 settu Volvo-verks-
miðjurnar á markaðinn vörubíl
sem bar tegundarheitið Volvo F89. í
þeim bíl var 12 lítra vél með 330
hestafla orku. Bílar þessir náðu
mjög miklum vinsældum og uðru á
skömmum tíma einna mest seldu
vörubílarnir í heimi. Við smíði vél-
anna var beitt tækni sem grundvöll-
uð var á „lntercooler“ tækninni, en
hún var þó töluvert frábrugðin því
sem síðar varð, einkum að því leyti
að um vatnskælingu var að ræða.
En í beinu framhaldi af smíði vél-
anna í F89-bílnum hófust tilraun-
irnar með það „Intercoller" kerfi
sem nú hefur rutt sér til rúms, þar
sem eingöngu er notað loft. Árang-
urinn hcfur ekki látið á sér standa
og má geta þess til gainans að nú
vinna vélfræðingar verksmiðjunn-
ar að þvi að smíða 12 lítra „Inter-
cooler“ vél með 450 hestafla orku.
Jafnhliða stöðugum endurbót-
um á vélum Volvo-vörubílanna hafa
einnig verið gerðar margháttaðar
breytingar á öðum tæknilegum
atriðum bílanna svo sem Volvo F 10
og Volvo N 12 sem settir voru á
markaðinn i fyrra bera hvað best
með sér. Allt hefur miðað að því að
svara þeim kröfum sem nú eru gerð-
ar til vörubíla sem notaðir eru til
langferða og þungaflutninga, en
meginatriðin eru að slíkir bílar séu
þægilegir í akstri, kraftmiklir, spar-
neytnir og að bílstjórnarnir geti
nánast átt sitt annað heimili í bílun-
um.
Sem fyrr greinir var Volvo F 10
„lntercooler" valinn vörubíll ársins
1984. Að því vali stóðu blaðamenn
frá mörgum Evrópulöndum og
byggðu þeir, auk eigin reynslu, á
áliti fjölmargra vörubílstjóra sem
segja að þessi nýi bíll hafi í raun
gjörbreytt vinnuaðstöðu þeirra og
afkomu.
Málin rœdd. Haraldur Hjartarson,
almenninjgstengsla — (PR-) maður
Volvo á Islandi og Ásgeir Cunnars-
son, forstjóri Veltis h.f.
Ljósm.:G.T.K.
Samvinnuferðir
— Landsýn
Framhald af bls. 20
þrátt fyrir gífurlega gagnrýni, nú
eru allir snúnir til betri vegar í þeim
efnum.
Við byrjuðum með ný form á
greiðslukjörum, SLrferðaveltu, þar
sem fólki er boðinn sparnaður uppí
ferð og eftirstöðvum dreift. Við
buðum fyrstir aðildarafslátt núna
eru allir komnir með einhverskonai
afsláttarform. Við stóðum einnig
við það, að Islendingar eru eir
þjóð í þessu landi með því að bjóða
sama fargjald frá hvaða stað al
landinu, sem fólk býr. Þarna ganga
samkcppnisaðilarnir enn í okkar
kjölfar og bjóða afslætti af ferðum
til Reykjavíkur tengdri erlendri ferð
allt uppí 50%“, sagði Helgi Jó-
hannsson hjá Samvinnuferðum —
Landsýn að lokum. G.T.K.
Bónus
Framh. af bls. 12
tryggða, sem verið hafa án úttekt-
ar frá 15. apríl til 30. júní.
Þeir sem stofna nýjan 6 mán-
aða reikning í Iðnaðarbankanum
fyrir mitt ár eða eiga hann nú þeg-
ar fá þannig strax í júlí 1.5% IB
bónus.
Ekkert umstang
Eigendur bundinna 6 mánaða
reikninga i Iðnaðarbankanum
þurfa ekki að koma í bankann til
að millifæra eða endurnýja reikn-
inga sína. Þeir fá vaxtabónus
sjálfkrafa tvisvar á ári ef reikning-
arnir eru án úttektar. Innstæðan
er laus í tvo mánuði á ári án þess
að vextir lækki og reikningseigandi
getur auk'ið við innstæðuna þegar
honum hentar.
Ekkert umstang við sölu verð-
bréfa, engin bið eftir kaupanda,
engin sölulaun, engin afföll.
Millifærslur milli verðtryggðra
og óverðtryggðra reikninga valda
ekki bónusmissi og eru heimilar
hvenær sem er án lengingar bindi-
tíma.
*Almenn sparisjóðsbók 15,0%
*Venjulegur 6 mánaða verð-
tryggður (sé miðað við 15% verð-
bólgu) 16,6%
*6 mánaða verðtryggður reikn-
ingur með IB bónus og vaxta-
reikningi á miðju ári (rniðað við
15% verðbólgu) 18,3%
*6 mánaða óverðtryggður reikn-
ingur hjá Iðnaðarbankanum án
1B bónus (venjulegur 12 mánaða
reikningur í öðrum bönkum)
19,9%
*6 mánaða óverðtryggður reikn-
ingur með fullum IB bónus21,6%
Intercooler
Framh. af bls. 11
eða turbo fyrir vörubíla. Einnig á
því sviðið þurfti að yfirstíga marga
erfiðleika í byrjun og hönnunin
kallaði á þrotlaust starf og þolin-
mæði. Það var ekki fyrr en á árinu
1954 að Volvo setti Titan Turbo
vörubílinn á markaðinn að mark-
miðinu var náð. Með þessum vöru-
Vandlátustu sóldýrkendur velja Riminisólina sumar eftir sumar;
aðgrunna strönd, afþreyingaraðstöðu af bestu gerð, frábæra
veitingastaði og eldfjörugt næturlíf. Héreigaallirfjölskyldumeðlimir
ánægjulega daga, ekki síst þeir yngstu, því íslenski barnafarar-
stjórinnsértilþessaðsmáfólkið nýtur hverrar stundar ekki síður
en hinir fullorðnu. Skoðunarferðir til ógleymanlegra staða,
s.s. Rómar, Feneyja og Flórens eru síðan góð ábót á líflegt
strandlífið og gera Riminiferðina að stórskemmtilegri blöndu,
þarsem ríflegum skammti af fróðleiksmolum er stráð yfir
ómælt magn af sólskini.
Dæmi um verð-
*"“*»»», ,984
3Íiuf42Mm 20.200
---S—_í
^arnaafsl 80-800
----10.000
•*«*......_ 7JJ“
prðlækkm m
Verð frá kr. 16.200
miðað við sex manns í 3ja herb. íbúð í 11 daga.
Barnaafsláttur allt að kr. 5.700
Aðildarfélagsafsláttur kr. 1.600 fyrir hvern fullorðinn
og kr. 800 fyrir börn. Verð fyrir hvern farþega í 6 manna
fjölskyldu (miðað við hæsta barnaafslátt)
kr. 11.332
11 og 21 dags ferðir
Beint leiguflug til Rimini.
ÞULIFIRLENGI
ÁGÓÐU
SUMARLEYFI
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRl: SKIPAGÖTU 18 - SfMAR 21400 & 23727