Alþýðublaðið - 17.04.1984, Side 20

Alþýðublaðið - 17.04.1984, Side 20
20 Þriðjudagur 17. apríl 1984 Samvinnuferðir — Landsýn Keppinautum til betri vegar Hjá Samvinnuferðum—Landsýn í Austurstræti hitt- um við framkvæmdastjórann Helga Jóhannsson að máli og spurðum hvað væri efst á baugi hjá honum. Helgi sagði að í rauninni væri það hin mikla aðsókn en nú væru allar þeirra ferðir að seljast upp. „Margir töldu“, sagði Helgi, „að hinn margumræddi samdráttur i þjóðarbúskapnum myndi bitna á ferðum íslendinga til útlanda fyrst og fremst. Við hérna hjá Samvinnu- ferðum bjuggum okkur undir þetta á vissan hátt og slógum vissa vara- nagla, ef eftirspurn myndi minnka mikið. Þetta þýddi það, að við hefð- um getað dregið sanran ef eftir- spurnarminnkunin hefði reynst staðreynd. Sem betur fer hefur þetta alls ekki orðið raunin á, held- ur þvert á móti, eftirspurnin hefur aldrei orðið jafn mikil og núna og sem dæmi um það, þá höfum við reglulega bókað 7 til 800 manns á viku síðan bæklingurinn okkar kom út. Ég held bara að það hafi aldrei skeð fyrr hjá okkur að um miðjan april, þá séu 80% framboðs af ferðum uppselt. Á þessu eru sjálf'sagt margar skýringar og ekki eru kenningar ferðaskrifstofufólks færri. Af hverju spáðum við svona rangt til um eftirspurnina? Ég hef aðallega tvær skýringar á takteinum. Fyrsta er sú að nú sjái fólk fram á stöðugleika í efnahagskerfinu, verðbólgan er svo til stöðvuð og fólk á þó launin sín núna. Áður fyrr var oft um 40 til 50% hækkun far- gjalda á því hálfa ári, sem leið á milli bókana og ferðar. Þetta kvekkti fólk oft mjög mikið. Nú halda sem sagt verðin. Annað sem við höfum sérstaklega gert, það er að lækka alla álagningu á ferðirnar og þetta getur þýtt jafnvel með hag- stæðum samningum að ferðirnar verði lægri hjá okkur í ár en í fyrra. Dagskipunin hérna hjá okkur er nefnilega sú að verðleggja ferðirnar fyrst og fremst þannig að allir geti ferðast sem mögulega hafa tök á því. Þau félög sem eiga Samvinnu- ferðir og eru launþegafélög gera nefnilega fyrst og fremst þá kröfu að öllum verðum sé haldið niðri til hins ítrasta svo félagsmennirnir komist í frí. í þessu sambandi gefum við 7.5 milljóna sérstakan afslátt til aðild- arfélaganna auk alls afsláttarins sem fólk fær með hinu lága verði á ferðum okkar. Við erum nefnilega fyrst og fremst þjónustufyrirtæki við aðildarfélög okkar og stefna okkar með sjálfum rekstri skrif- stofunnar er sú ein , að hún standi undir sér. Alls ekki að hún skili nokkrum sérstökum hagnaði. Hin skýringin sem ég hef á þess- ari auknu eftirspurn er sú að hugs- snúið unargangur fólks liefur einfaldlega breyst gífurlega hvað ferðalög varð- ar. Þessa breytingu hef ég jafnvel orðið var við í auknum mæli síð- ustu tvö árin. Feröalög hafa færst ofar á óskalista fólks, en ég tel svona almennt talað þá hafi þau verið í 5. til 6. sæti hér áður fyrr. Nú tel ég að þau séu komin í 2. til 3. sæti og búin að skjóta jafnvel íbúðar- og bílakaupum al'tur fyrir sig. Fjöl- skyldan fer líka öll saman í ferðalög núna. Börnin, amma og afi tekin með, en ekki skiiin eftir heima með krakkana eins og vildi brenna við hér áður fyrr. Hjá okkur tökum við best eftir þessari þróun í sumarhúsunum. Þau eru blátt áfram gífurlega vin- sæl. Sumarhús okkar í Hollandi voru sneisafull í fyrra og I ár tvö- földuðum við framboðið og samt seldist allt upp í febrúar. Þetta eru 2.700 manns sem fara frá okkur til Hollands í ár, það er hreint ekki svo lítið. Annars verða þetta um 10.000 farþegar sem ferðast með okkur í ár og þar af eru 8.000 þúsund nú þegar búnir að kaupa sína ferð. Sumarhúsin víðsvegar um Evr- ópu taka um 60% viðskiptavinanna; aðrir fara i sólarlöndin okkar sem eru Rimini á Ítalíu, Grikkland og Dubronik í Júgóslaviu. Ferðirnar eru i rauninni alltaf að lækka, það gera þessir ódýru pakkar sem við bjóðum. Við fáum líka sífellt betri nýtingu á húsunum og flugið lækk- ar. Helgi Jóhannsson framkvœmda- stjóri: Ferðalög verða sífellt stærri hlutur í lífi alþýðufólks. Ljósm.: G.T.K. Ég get ekki látið hjá líða að fjalla aðeins nánar um sumarhúsin, því á þeim vettvangi erum við algjörir brautryðjendur. Þegar við byrjuð- um á þessu í Danmörku fyrir þrem- ur árum, þá sögðu allir að nú fær- um við útá hála braut, þetta væri tóm vitleysa. Núna, aðeins þremur árum seinna bjóða allar stærstu ferðaskrifstofur Iandsins svona sumarhús og Flugleiðir einnig. Þarf frekari vitnanna við, hver hafði rétt fyrir sér? Annars varð þessi hugmynd til vegna skipta við Dani á orlofshús- um verkafólks og byrjaði þetta gegn um ASÍ. Sumarhúsin sameina fjöl- skylduna, fólk spilar tennis, hjólar og meðan börnin kynna sér hina frábæru leikaðstöðu í þessum húsa- hverfum, prófar pabbinn sig áfram að aka eigin bílaleigubíl um svæðið, sem endar auðvitað með minni eða stærri ferð vítt og breitt um alla Ev- rópu. Sumarhúsið er fasti punktur- inn, sem fólk getur alltaf snúið til eftir nokkurra daga akstur, þar sem sú gisting er notuð á hverjum stað sem býðst. Rœtt við Helga Jóhannsson framkvœmda- stjóra um ferða- mennsku, ný kjör og brautryðjenda- starf almenningi til hagsbóta Við erum einnig með ótrúlega ó- dýrar ferðir til staða á Norðurlönd- unum eins og Þrándheims, Lúleá og Helsinki. Þessar ferðir verða svona ódýrar vegna þess að við náurn fluginu niður í algjört lágmark með því að selja útlendingum farið til baka til íslands, í þeirra sumarfrí hingað. í þessu tilboði koma bara um 2.200 útlendingar til landsins, sem styður ferðamennsku á Islandi auðvitað gífurlega, en alls koma á okkar vegunt um 4.700 útlendingar til landsins í ár. Við hérna hjá Samvinnuferðum erum stolt af því brautryðjenda- starfi sem við höfum unnið á mörg- um sviðum og teljum okkur hafa blásið nýju lífi í rnargar þær glæður sem fyrir voru, almenningi til hags- bóta og fjölbreyttara lífs. Ég nefni nokkur dæmi. Við byrjuðum með erlent leigu- flug og náðum þannig verðum nið- ur og urðum hálfgerð Ijósmóöir fyrir alls konar APEXA, hvort sem þeir urðu nú rauðir eða grænir. Við byrjuðum á sumarhúsunum, Framhald á bls. 17 í Peningar flæöa ekki A um öll gólf hjá ungu fólki Æj sem er að hefja búskap. JBK Ef þeir geröu þaö væru gólfteppi nánast óþörf. Þaö væri synd aö segja að KRÓNÝTEPPIN væru eingöngu ætluð ungu fólki, en þau henta ungu fólki vel vegna þess aö þau eru ódýr. Ódýr gæðavara úr íslenskri ull er ekki versta undirstaðan þegar fyrstu sporin eru tekin sameiginlega á nýjum staö. Égætlaað fámérKRÓNÝ þegar égverðstór! í/iifi-* . .

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.