Tíminn - 14.03.1967, Síða 14
14
TÍMINN
ÞRÍBJUDAGUR 14. mar* 1967
BRIDGE
Framhald aí bls. 13
Jón Áisbjömsson —
Karl Siguhhjartarson 1492
Agnar Jör,gensson —
Ingólfur Isebarn 1492
Áismundur Pélsson -r-
Hjalti EMasson 1490
Hilmar Guðmundsson —
Jakob Bjamason 1486
Jðhann Jónsson —
Benedikt Jóihannsson 1484
Eggert Benónýsson —
Stefán Guðjóhnsen 1483
Jóhann Jólhannsson —
Þorvaidur Matthíasson 1481
í fyrsta flokki báru sigur úr
býtum Jón Hjaltason og Örn Arn
þórss. með 1699 stig, sem er mjög
há skor, en spiluð^ voru sömu spil
í meistaraflokki. í öðru sæti
urðu Ólafur Haukur Ólafsson og
Þröstur og í þriðja sæti Ámi Guð-
mundsson og Bragi Jónsson.
BALLETT
Framhald af bls. 2.
eru nú um 140, en skólinn hefur
verið starfræl^tur á vegum Þjóð
leikhússins í s. 1. 16 ár.
Fay Werner hefur verið ballett
meistari hjá Þjóðleikhúsinu s. 1.
3 ár og stjórnaði hún sjálfstæðri
ballettsýningu fyrir tveimur árum
með nokkrum nemendum úr
Listdansskólanum í Lindarbæ.
Auk þess hefur hún samið og æft
dansa í mörgum leiksýningum hjá
Þjóðleikíhúsinu á s. 1. 3 árum og
nú síðast í barnaleiknum Galdra
karlinn í Oz. Fay Wemer er mjög
dugandi kennari og hefur hlotið
lofssamlega dóma fyrir þá dansa,
sem hún hefur æft og samið fyrir
ýmsar sýningar hjá Þjóðleikhúsinu
að undanförnu.
Eins og fyrr getur verður frum
sýningin á þessum fjórum ballett
um í Lindarbæ. Tveir eru í klass
ískum stíl og tvr.r eru nútíma
ballettar. Sá fyrsti heitir ,,Kærasta
í hverri höfn“ samin við tónlist
eftir Malcolm Arnold, þá kemur,
„Stúlkan sem 'grætpr" við tónlist
eftir Paul Hindemitíh, „Silkiborð-
arnir“ við tónlist eftir Jacques
Ibert og ,,Pípuhatturinn“ samin
við tónlist eftir Don Gilles.
Undirleik annast „Kvintett", en
í honum eru hljóðfæraleikarar úr
Sinfóníuihljómsveit íslands. Hljóð
færaleikarar eru Gunnar Egilson,
Simon Hunt, David Ince, Kristján
Stephensen og Sigurður Markús-
son.
Auk þess leikur Kvintettinn tón
list milli ballettatriða m. a. hljóm
list eftir Mozart og Haydn.
HELMINGI FLEIRI
Framhald aí bls. 16
hálfan mánuð, stunda nætur-
klúibba og skemmtanalíf. Það þyk
ir ekki í frásögur færandi orðið
í Bretlandi þðtt einhver fari til
Spánar á baðströnd, en eins og
þú veizt kannski þá tala Bretar
mikiö um sumarferðalög sín, og
sá sem hefur mest að segja í því
sambandi á athygli allra. Ef þú
værir að segja frá því að þú
værir nýkomin frá Spáni, myndi
varla nokkur Mta upp úr dagblaði,
sem hann væri að lesa, en aftur
á móti ef þú ert nýkominn frá Is-
landi, þá sperra allir eyrun, og
hlusta með athygli á hvað þú ert
að segja. Ferðamannastraumurinn
frá okkur eykst alltaf stöðugt til
Norðurlandanna og höfum við gef-
ið út sérstakan bækling um ferðir
þangað, og nefnist hann Scantours.
- Hefur nýja Boeing þota Flug
félagsins mikið að segja í því
sambandi að selja ferðir til ís-
lands?
— Já, hún hefur sitt að segja,
því það er alltaf gott að geta
sagt fólki að það sé góður far-
kostur í boði, og það þurfi ekki
að sitja aUt of lengi í flugvél til
að komast á leiðarenda. Það er
búið að auglýsa það mikið í Bret-
landi að á 6 tímum komizt fólk
til New York frá London, og því
er ekki sem bezt að þurfa að
segja að það taki fimm til sex
tíma að fljúga til íslands, því
áhrifin verða þau, að fólk heldur
að ísland sé enn lengra í burtu
en New York.
— Hvert var erindið hingað,
Trigger?
— Ég var að skoða hótel hér
og gera samninga, fór norður á
Akureyri, en margt af því fólki
sem við sendum hingað, býr á
Hótel KEA, og því er nauðsynlegt
fyrir mig að hafa skoðað hóteMð.
Annars var mikill snjór á Akur-
eyri riúna, og ég komst ekki að
skoða hótelin við Mývatn, vegna
þess hve mikill snjór er á veg-
um, en þeir við Mývatn svara
alltaf bréfum mínum, svo þeir
geta ekki verið alveg fenntir í
kaf þar.
— Seljið þið farseðla ykkar
beint til ferðamanna eða í gegn
um aðrar ferðaskrifstofur?
— Við seljum mest til annarra
ferðaskrifstofa, er selja beint til
ferðamannanna út um allt Eng-
land, en okkar skrifstofa sendir
fleiri ferðamenn til fslands en
nokkur önnur, og vonast ég til
að enn eigi margir eftir að bætast
við í íslandsferðirnar okkar i
sumar.
— Og hvað er töfraorðið í sam
bandi við það að selja fólki far-
seðla til íslandsferðar?
— Því er fljótsvarað — lands-
lagið. I
MINNINGARATHÖFN
Framhald af bls. 16
ir, sálminn „Ég er á langferð um
lífsins haf“.
Samúðarkveðjur bárust frá mörg
um, þar á meðal frá biskupi ís-
lands, Sigurbirni Einarssyni, sjáv-
arútvegsmálaráðberra Eggert G.
Þorsteinssyni, fyrrverandi prest-
um í Súðavík, séra Magnúsi Guð-
mundssyni og séra Bernharði Guð
mundssyni, Skarði; bæjarstjórn
ísafjarðar, hreppsnefndum og
fleirum.
Hátalarakerfi var komið fyrir
í narnaskólahúsinu í Súðavík.
Minningarathöfnin var hljóðrituð
og verður henni útvarpað á morg-
un, þriðjudag. Hreppsnefnd Súða-
víkur sá um athöfnina í virðingar-
skyni við hina látnu sjómenn.
F.Í.H.-STÖÐVAR
Framhald af bls. 16
frekt fyrirtæki og nýtur engra op
inberra styrkja. Er nú mjög tví
sýnt um hvort hægt verður að
flytja Jóhannesarpassíuna því
kórinn hefur ekki yfir fjármagni
að ráða tii að greiða híljómlistar
mönnum meira en samið var um,
enda munu hljóðfæraleikararnir
fremur hafa tekið þátt í fyrirtæk
inu af álhuga en í fjáraflaskyni.
í dag var haldinn fundur með
formanni FÍH og formanni Poly-
fónkórsins. Var kröfum FÍH enn
haldið til streitu og jafnframt tek
ið fram að yrði flutningijum út-
varpað mundi greiðsla til hljóð-
færalekiaranna tvöfaldazt. Eftir
því verður kórinn að greiða hverj
um hljóðfæraleikara á 7. þús. kr.
Vitað er um fjölda dæma að
hljóðfæraleikarar hafa leikið við
ýmis tækifæri og fengið lægri
greiðslur en taxti félags þeirra
segir til um, án þess að neinn
skipti sér af. Nægir að tilgreina
fyrrnefnda tónleika Polyfónkórs-
ins og hafa mörg önnur menning
arfyrirtæki sem ekki eru rekin t
gróðáskyni notið góðs af v»l-
vilja og áhuga hljóðfæraleikara.
Stjórnandi Polyfónkórsins, Ing
ólfur Guðbrandsson, sagði í við-
tali við Tímann í dag, að sér
kæmi þessi stöðvun mjög á
óvart og að meðlimir kórsins
hefðu lagt á sig mikla vinnu við
æfingar á þessu tónverki og væri
hann mjög leiður yfir að ekki tæk
ist að flytja það vegna launadeilu
við stjórn FÍH.
Svavar Gests sagði, að FÍH
gerði öMum atvinnurekendum sem
tækju félagsmenn í vinnu ljóst
að þeir hefðu ekki leyfi til að
greiða þeim undir taxta. Kvað
hann haifa verið kvartað til fé-
lagsins vegna fyrirhugaðra hljóm-
leika Polýfónkórsins og því eðli-
legt að stöðva æfinguna. Væri
þessi stöðvun ekkert einsdœmi því
hljómlistarmenn hefðu iðulega
verið stoppaðir í veitingahúsum,
leikihúsum, útvarpi og jaifnvel sjón
varpi fyrir að vinna undir um-
sömdum taxta.
HERMANSON
Framhald af bls. 16
róttækra stúdenta við Háskóla
íslands, sem boðið hefur Her
mansson að flytja fyrirlestra á
vegum félagsins. Hann mun dvelja
hér í um vikutíma.
Félagið heifur boðað tii fundar,
föstudaginn 17. marz, þar sem
Hermansson mun hafa framsögu
um eifnið: „En ny partistruotur
for venstresocialistiske partier i
Norden". Til þessa fundar, sem
ekki verður opinn almenningi, hef
ur um 100 forystumönnum Al-
þýðubandalagsins og Sósíalista-
flokksins verið þoðið.
Á sunnudaginn, 19. marz, boðar
Félag róttækra til opins fundar í
Lido kl. 3 e. h. Hermansson mun
filytja þar erindi, sem hann nefn
ir „Vánsterns vág í Norden". Að
erindinu loknu verða frjálsar um
ræður.
Væntanlega mun Hermansson
koma fram á fleiri fundum og
mun skýrt frá því síðar. Hann
fer heimleiðis til Svíþjóðar þann
21. þ. m.
(Fréttatilkynning frá Félagi
róttækra stúdenta).
BORGARNES
Framhald af bls. 16
Hér í Borgarnesi verður af-
mælisins minnzt á eftirfarandi
hátt. í •tilefni dagsins verður
verzlunum og þjónustufyrir-
tækjum lokað kl. 12 á hádagi.
Kl. 2 verður hreppsnefndar-
fundur í Barnaskólanum, op-
inn öllum, kl. 3 verður opnuð
myndasýning í barnaskólanum
og sýnir hún þróun byggðarlags
ins og sitthvað fleira. Kl. 4—6
hefur hreppsnefndin gestamót-
töku að Hótel Borgarnes. Kl.
8.30 um kvöldið verður kvöld
vaka í samkomuhúsinu og frá
henni verður reynt að útvarpa
á stuttbylgju, þannig að sem
flestir heimamenn og nágrann
ar geti heyrt, hvað fram fer,
en þar er í stórum dráttum
þetta: Annáll úr sögu staðar
ins, þáttur, sem Guðmundur
iSigurðsson, vísnasmiður og
snillingur annast,_ þá verður
söngur og ávörp. Á fimmtudag
inn kl. 2 verður hátíðamessa,
kl. 4 barnaskemmtun, og um
kvöldið verður sýnt leikritið
Deleríum Búbónis, eftir Jón-
as og Jón Múla Árnasyni. í
ráði er, að Akraborgin fari
frá Reykjavik til Borgarness
á miðvikudag og síðan aftur
á annan í páskum.
Prentuð verður hátíðardag-
skrá afmælisins, og Finninn
Aunio hefur gert hátíðarmerki.
BÍLASMIÐJAN
Fi-n- 'H :>( hls •<
koma fyrir 20 bílgrindum til yf-
irbyggingar og inréttingar i senn
í framleiðsluröð og nægt að vinna
við jafnmargar yfirbyggingar á
hliðarsvæðum. Jafnframt styttipt
vinnutími við hverja vfirbygg-
ingu um allt að fjórðung, þegar
full hagræðing verður komin til
framkvæmda og unnið er sarntím
is við marga vagna af sömu ge.ð.
Fyrir þann gjaldeyri, sem fer
til kaupa á einni erlendri yfir-
byggipgu. er hægt ið kaupa efni
í hvorki meira né minna en
fjórar yfirbyggingar tilsmíðaðar
hér. Nú er ætlunin að þesai eini
aðili, Strætisvagnar Reykjavíkur,
kaupi 38 bíla í einu. Ef þeir
kæmu allir til landsins með yfir
byggingu, væri til slíks varið
gjaldeyri, sem mundi nægja til
kaupa á efni í hvorki meira né
minna en 152 — eitt hundrað
fimmtíu og tvær — yfirbyggingar
til smíða í landinu sjálfu. Hér
er þvi mikið í húfi, og þetta er
ekkert einkamál þeirra manna,
sem byggja yfir bifreiðir.
í ræðu sem stjórnarformaðurinn
Lúðvík Á. Jóhannesson hélt í
boði er fyrirtækið efndi til á laug
ardaginn í tilefni þessara þrí-
heilögu tímamóta sagði hann m.
a. að á næstu tveim árum þyrfti
að byggja yfir 60 langferðabíla
og strætisvagna hér á landi. Ef
byggt væri yfir þá erlendis kost-
aði það 30 milljónir í gjaldeyri,
en ef byggt yrði yfir bílana hér
færu um 8 milljónir króna í gjald
eyri í yfirbyggingarnar. Sparnað
urinn næmi því 22 mililjónum í
gjaldeyri.
Stjórn nýja fyrirtækisins^ skipa
eftirtaldir menn: Lúðvík Á. Jó-
hannesson, formaður, Gunnar
Björnisson, Þorkel Pálsson, ÓI-
•fur Guðmundsson og llheódór
Marinósson,
SVETLANA
Framhald af bls. 1.
dómsmálaráðherrann á blaðam,-
fundinum, að Svetlana, hefði sjálf
óskað eftir því að vera laus við
blaðamenn, og samkvæmt svissn
eskum venjum yrði sú ósk hennar
virt.
Von Moos staðfesti, að Svetlana,
sem kom öllum á óvænt til Genf
ar frá Róm á laugardag, hefði feng
ig ferðamanna vegabréfsáritun til
þriggja mánaða, fyrst um sinn.
Hann sagði, að Svetlana hefðl
ekki beðið um hæli sem pólitísk
ur flóttamaður, en hins vegar sýnd
ist ekkert standa í vegi fyrir því,
að dvalarleyfi hennar yrði fram-
lengt, ef hún óskaði. Þá gat von
Moos þess, að Svetlana hefði feng
ið rússneskan túlk sér til aðstoð-
ar.
Von Moos sagði, að Sve»lana
hefði ákveðið að yfirgefa Sovétrík
in, er hún kom til Indlands, en
indversk yfirvöld hefðu ekki vilj
ag veita henni dvalarleyfi. Þegar
svo var komið hefði hún snúið sér
til bandaríska sendiráðsins í Nýju
Delhí, sem aðstoðaði hana við för
ina til Rómar. Þar hafi hún fengið
að vita, ag hún gæti ekki haldið
áfram til Bandaríkjanna. Fleira
vildi dómsmálaráðherrann ekki
segja varðandi þetta og bætti við
að lokum, að frekari upplýsingar
yrðu blaðamenn að fá í viðkom
andi löndum.
Indira Gandhi, forsætisráðherra
Indlands sagði í Nýju Delhí í
dag, að Svetlana' hefði einskis
óskað af indverskum yfirvöldum,
er hún var þar. Dean Rusk, utan
ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði
að málig hafi ekki verið komið á
það stig í samskiptum bandaríska
sendiráðsins og Svetlönu, að hún
hefði óskað hælis í Bandaríkjun
um sem pólitískur flóttamaður.
VÍÐA ILLFÆRT
Framhald ai bls i
til sums staðar, en unnið hefur
verið að því að láta veghefla eða
önnur ruðningstæki fara á undan
bílunum. þannig að þeir kæmust
áður en mjólkin yrði of gömul,
þótt ekki sé beinlínis um mokstur
að ræða.
Þá er svipaða sögu að segja
með færðina alveg austur Flóann
og anstur f Rangárvallasýsluna
vesran til. austur • Holtin, og má
segja að færð sé meira og minna
slæm austur á Hvolsvöll. Aftul
á móti telst ægurinn vera fær
stórum bílum eftir að kemur að
Þjórsá, og í uppsveitum Árnas-
sýslu eins og t. d. Skeiðum, Hrepp
um, Biskupstungum, Þjóris'árdal,
þar er yfirleitt snjólétt.
Síðan er nokkuð greiðfært frá
Hvolsvelli og austur með Eyja-
fjöllum. En allir vegir, sem liggja
þaðan til suðuns af aðalveginum,
t.d. Þykkvabæjarvegur, eru allir
ófærir, nema þegar kemur austur
í Landeyjamar — þar má teljast
fært.
Fljótshlíðin er fær, en í Vik
í Mýrdal hefur verið blindbylur
í tvo sólarhringa og allt ófært þar
ír báðar áttir, austur og vestur.
Ófærðin virðist ná austur að
Skaftártungu, en í dag var sæmi-
legt veður á Kirkjubæjarklaustri
«g fært þar um slóðir.
Blaðið hafði tal af yfir-
manni afgreiðslu sér-
leyfisbifreiða hjá Kaupfélagi Ár-
nesinga og sagði hann mjólkur-
flutningana hafa gengið furðulega
vel miðað við allar aðstæður, og
hefðu bílarnir komizt megnið af
leiðunum. Verst hafi færðin verið
neðst í Flóanum — í Villinga-
holts- og Gaulverjabæjarhreppum
og niður á Stokkseyri og Eyrar-
bakka.
— Þar sem verst er, reynum
við að fara annan hvern dag, —
sagði hann, — því við getum
ekki farið þetta nema hafa mokst- .
urstæki. Við höfum eina 5—6
veghefla hérna og snjóplóg úr
Reykjavík. Auk þess vorum við að
fá hingað tvær ýtur úr Reykja-
vík, og erum auk þess með tvær
hérna. Það þýðir ekkert annað en
hafa jarðýtur, ef þetta versnar
eitthvað.
— Er hætta á því? <
— Ja, þetta virðist vera að fær-
ast uppeftir, færðin er orðin vond
í Grímsnesinu. Nú, og skafrenn-
ingurinn er svo mikill, að þetta
lokast allt aftur. Við reyndum
í dag að komast niður á Stokks-
eyri og Eyrarbakka, en þangað
hefur verið lokað í marga daga.
Þar lokaðist allt jafnóðum, því
þar er hörkubylur núna.
Hjörleifur sagði færð annars
staðar á landinu svipaða og áður.
— Það er núna sæmilega fært
fyrir Hvalfjörð og í Borgarfjörð
og um Snæfellsnes, nema hvað
fjallvegir eru þar lokaðir, og eins
þungfært á norðanverðu nesinu,
sagði hann. T.d. er ófært í Grund
arfjörð úr Stykkis'hólmi. Á morg-
un er aftur á móti mokstursdagur.L
og er þvi gert ráð fyrir að þá
verði þetta fært. Þá verður einnig
fært í D'alina um Bröttubrekku.
en sniór mun ekki mjög mikill
þar.
Á sunnanverðum Vestfjörðum"
er snjólétt, t.d. ágæt færð um-
hverfis Patreksfjörð og sæmileg
færð á Bíldudal. Af Norðurfjörð-,
unum hef ég aftur á móti engar x
fregnir. t
— En á Norðurlandi?
— Holtavörðuheiði og Öxnadals
heiði eru lokaðar, en gert er ráð
fyrir að þær leiðir opnist á morg-,
un, og jafnvel alla Ieið til Húsa-'
vikur, en þangað er lokað sem
stendur. Mikið er ófært í Suður-
Þingeyjarsýslu — þeir komast lít- '
ið nema þá á stórum trukkum úr^
Aðaldalnum til Húsavíkur, og
ófært er í Reykjadal, Bárðardal og
upp ; Mývatnssveit. Norð-austur-
landið er allt lokað, bæði Norður-
Þingeyjarsýsla og N-Múlasýsla og
eiginlega allt Austurlandið.
Fréttaritari blaðsins á Raufar-
höfn sagði, að í dag hefði verið
flogið þangað í fyrsta sinn i hálf
an rr.ánuð. Hafi það tekið 20 tíma
að ryðja veginn út á flugvöll, en
hann er 5 km. Hófst það verk
um miðjan dag í gær, og stóð
þar tii í morgun. Var svo ruddur
hluti flugvallarins svo vél Tryggva
Helgasonar gat lent þar.
Aunars sagði hann að allt væri
á Kafi á Raufarhöfn og þar í
kring, ag allir vegir lokaðir. j