Tíminn - 07.04.1967, Side 5
FÖSTUDAGUR 7. aprfl 1967
TÍMINN
NATO-styrkir
Atlantshafsbandalagið leggur
árlega fé af mörkuin til að
styrkja unga vísimiamenn í að-
ildarríkjunum til rannsóknar-
starfa eða framhaldsnáms er-
lendis. Fjárhæð sú, er á þessu
ári hefur komið í hlut íslend
inga í framangreindu skyni,
nemur um 335 þúsund krónum,
og mun henni verða varið til
að styrkja menn, er lokið liafa
kandidatsprófi í einhverri grein
raunvísinda, til framhaldsnáms
eða rannsókna við erlendar
vísintlastofnanir, einkum í að
ildarríkjum Atlantshafsbanda-
lagsins-
Umsóknum um styrki af þessu
fé — „NATO Science Fellow
ships“ — skal komið til mennta
málaráðuneytisins, stjómarráðs
húsinu við Lækjartorg, fyrir
15. maí n. k. Fylgja skulu stað
fest afrit prófskírteina, svo og
upplýsingar um starfsferil. M
skal og tekið fram, hvers konar
framhaldsnám eða rannsóknir
umsækjandi ætlar að stunda,
við hvaða stofnun eða stofnan
ir hann hyggst dvelja, svo og
greina ráðgerðan dvalartíima.
Styrkir EvrópuráSsim
Útlilutað hefur verið heil-
brigðisþjónustustyrkjum Evr-
ópuráðsins 1967. ADs voru veitt
ir 147 styrkir, þar af 8 til ís-
lendinga. Hér fer á eftir skrá
íár í slenzku styrkþegana:
Rrýnjólfur Sandholt dýra-
læknir til að sækja 3 mánaða
námskeið í Danmörku í aí-
mennri heilbrigðisfræði.
Guðmundur Þórðarson læknir
til 3 mánaða dvalar í Bretlandi
til að kynna sér réttarlæknis-
fræði, sérstaklega blóðflokkun
Dr. Grannar Guðmnndsson
læknir til 3 mánaða námsferðar
til Bretlands, Danmerkur og
Svfþjóðar til að kynna sér nýj
ar aðferðir við greiningu heila
skemmda.
Gylfi Baldursson heyrnar-
fræðingur til mán a ð ardval ar í
Danmörku til að kynna sér
stjórn og eftirlit heyrnar-
stöðva.
Henrik Linnet læknir til
2 mánaða dvalar í Bretlandi
til að kynna sér rönbgenrann-
sóknir á sýkingu í þvagfærum
barna-
Jóhanna Kjartansdóttir,
hjúkrunarkona til 2 mánaða
dvalar í Bretlandi til að
kynna sér meðhíöndlun radí-
ums, þegar undirbúin er með
ferð á legkrabbameini.
Oddur R. Hjartarson dýra-
læknir til 2 mánaða dvalar í
Danmörku til að kynna sér
heilbrigðiseftirlit með kjöt-
vörum.
Snorri P. Snorrason læknir
til 6 vikna dvalar í Bretlandi
til að kynna sér nýjar aðferð
ir og tækni við meðferð
gæzlu hjartasjúklinga.
Þá hefur verið tilkynnt í
aðalstöðvum Evrópunáðsins í
Strassborg, að það hafi veitt
fé til þriggja sérfræðinga, sem
á þess vegum vinna að rann
sókn á atriðum, sem áhrif
hafa á lengd sjúkrahúsvistar.
Einn þessara sérfræðinga er
Ólafur Björnsson læknir.
Héraðsþing H.S.H.
Héraðsþing H.S.H. var
haldið að Breiðabliki í Mikla
holtshreppi 12. marz s. 1. Þing
forseti var kjörinn Stefán Ás-
grímsson, Stóru-Þúfu. Gestir
þingsins voru Þorsteinn Ein
arsson, íþróttafulltrúi, sem
flutti erindi um íþrótta- og
félagsmál og Jón F. Hjartar,
er flutti kveðjur og árnaðar-
óskir frá Ungmennafélagi fs-
lands-
Á þinginu var lögð fram í
fyrsta sinn fjölrituð ársskýrsla.
Alls höfðu verið sett 14 ný
héraðsmet í frjálsum íþróttum
á árinu og 2 í sundi. 25 karlar
og konur höfðu öðlazt rétt á
íþróttamerki ÍSÍ. íþróttamaður
ársins var kjörinn Sigurður
Hjörleifsson f. M., en hann er
einn fjölhæfasti íþróttamaður
sambandsins. Hefur hann náð
athyglisverðum árangrl í frjáls
um íþróttum auk þess sem hann
hefur vakið athygli sem góður
körfuknattleiksmaður. Vann
hann til eignar áletraðan silfur
pening, en auk þess hefur
Kirkjusandur h. f. ákveðið að
gefa styttu, sem verður fa.rand
gripur, er ílþróttamenn ársins
hverju sinni skulu varðveita. í
skýrslu formanns kom fram, að
stjórn sambandsins hefði í
Á dögunum mátti sjá hvar stór
vörubíll ók með gríðarstóran loft
hitunarketil niður Laugaveginn.
Hér var á ferðinni Thermobloc
lofthitunarketill sá stærsti sem
framleiddur hefur verið hér á
landi 325.000 cai. Það er Blikk-
smiðjan Glófaxi sem framleiðir
þessa Thermobloc lofthitunarkatla
með einkaleyfi frá Wanson í
Belgíu. Ketillinn var framleiddur
fyrir Stálvík í Garðahr.Glófaxi hef
ur framleitt þessa katla um nokk
urra ára skeið, og hafa katlarnir
reynzt vel, og verið eins og gæð
in er fullkomlega samkeppnis
fært við samkonar erlenda vöru
að því er þeir í Glófaxa segja.
Myndina tók G. E. af bílnum með
ketilinn.
hyggju að ráða íþróttakennara
til að ferðast um sambandssvæð
ið í sumar og leiðbeina í íþrótt
um. Margt fleira athy.glisvert
kom fram í skýrslu formanns
m. a. hafði sambandið staðið
fyrir 2 æskulýðssamkomum á
árinu. Mörg mál voru afgreidd
á þinginu. Stjórn sambandsins
var öll endurkosin, en hana
skipa: Jóiias Gestsson, formað
ur, Grundarfirði, Guðbjartur
Gunnarsson, Hjarðarfelli, ritari,
Sigurður Björgvinsson, gjald-
keri, Stykkishólmi, meðstjóm-
endur Stefán Ásgrímsson, Stóru
Þúfu og Þórður Gíslason, Öl-
keldu og varaformaður Sigurð
ur Helgason, Laupargerðisskóla.
í lok þingsins sýndi íþróttafull-
trúi nýja kvikmynd um frjálsar
íþróttir, íþróttafélag Mikla-
holtshrepps sá um þingið.
írskur styrkur
frsk stjómarvöld bjóða fram
styrk handa íslendingi til náms
við liáskóla, eða hliðstæða stofn
un á írlandi liáskólaárið 1967—
1968. Styrkfjárhæðin er 350
sterlingspund, en styrkþegi
þarf sjálfur að greiða kennslu
gjöld. Styrkurinn veitist til
náms í irskri tungu, bókmennt
um, sögu eða þjóðfræðum, eða
í enskri tungu og bókmenntum.
Umsóknir um styrk þennan
sendist menntamálaráðuneytinu
Stjórnarráðshúsinu við Lækjar
torg, fyrir 30. apríl n. k. Um-
sókn fylgi staðfest afrit pró-
skírteina ásamt tvennum með-
mælum og vottorði um kunn-
áttu umsækjanda í ensku eða
írsku-
Umsóknareyðublöð fást í
menntamálaráðuneytinu.
Aðalfundur Nátfúru-
fræðinga
Aðalfundur Félags íslenzkra
náttúrufræðinga var haldinn 17.
marz s. 1.
Fundurinn lýsti ánægju sinni
yfir því, að Háskóli fslands á-
formar nú að taka upp kennslu
í náttúrufræðum og væntir
þess, að vandað verði til kennsl
unnar eftir því sem framast er
unnt.
Eftirfarandi ályktun um kjara
mál var samþykkt samhljóða.
Aðalfundur Félags íslenzkra
náttúrufræðinga, haldinn 17.
marz 1967, lýsir óánægju sinni
með launakjör háskólamennt-
flðra sérfræðinga, sem laun taka
samkvæmt hinu almenna launa
kerfi ríkisins. Jafnframt vill
fundurinn vekja athygli á því
mikla og lítt þolandi ósamræmi
sem nú er á launakjörum há-
skólamenntaðra manna í opin
berri þjónustu. Fundurinn lýsir
yfir fullum stuðningi við Banda
lag háskólamanna og telur það
sjálfsagða réttlætiskröfu, að
samningsréttur fyrir háskóla
menn sé í höndum þess og aðild
arfélaga þess. Fundurinn bend
ir á, að Félag íslenzkra náttúru
fræðinga er ekki og hefur
aldrei verið aðili að Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja, og
telur því fráleitt, að B-S.R.B.
sé með lögum falið að fjalla um
kjör náttúrufræðinga. Telur
fundurinn, að reynsla undanfar
inna ára hafi sannað, að B.S.R.
B. haífi ekki sýnt kjaramálum
og sérstöðu náttúrufræðinga
og annarra háskólamanna nægi-
legan skilning- Treystir fundur
inn því, að Bandalagi háskóla
manna verði hið fyrsta veittur
fullur samningsróttur fyrir
hönd aðildarfélaga sinna.
Fullgildir félagsmenn, nú
57, eru náttúrufræðingar, sem
hafa viðurkennda námsgráðu í
einhverri grein náttúrufræða,
og eru að aðalstarfi náttúru-
fræðingar við rannsóknarstofn
anir, svo sem rannsóknarstofn
anir atvinnuveganna, veður-
stofu og náttúrufræðistofnun.
Fjölmennastir eru veðurfræð-
ingar, fiskifræðingar og jarð-
fræðingar.
Formaður félagsins er nú
Bjarni Helgason og aðrir í
stjórn Markús Einarsson, Berg
þór Jóhannsson, Gunnar Ólafs
son og Svend Aage Malmberg.
Fulltrúi þess hjá B.H.M. er
Jónas Jónsson.
ítölsk menningarsýning
Dagana 4. 14. maá n. k. verð
ur efnt til ítalskra menningar-
og verzlunarsýninga hér í
Reykjavík, aðallega í Háskóla
bíói og Hótel Sögu. Koma þar
m. a. framsýningarstúlkur, frá
tizkuhúsum Ítalíu, heimskunn
ur listamaður heldur tónleika,
ítalskur matsveinn kynnir
ítalska rétti, kvikmyndir verða
sýndar til kynningar á Ítalíu,
ítalskri menningu og ítölskum
vörum ,endurprentanir verða
sýndár af ítölskum listaverkum
og hérlendir kaupmenn kynna
umboðsvörur sínar frá ítalíu.
Að sýningum þessum standa
viðskiptaráðuneyti Ítalíu, við-
skipta- og menningardeildir
ítalska sendiráðsins í Osló, og
aðálræðismaður Ítalíu á fs-
landi. Hefur viðskiptafulltrúi
ítalska sendiráðsins í Osló, dr.
Luigi Morrone, aðstoðað mjög
við undirbúning sýninganna, og
er nýfarinn héðan að loknum
viðræðum við sýningarnefnd,
sem skipuð hefur verið. Hefur
sýningunum verið gefið heildar
nanfið „La Linea Italiana". eða
ítalska línan.
í sambandi við sýningarnar
verður efnt til samkeppni um
gluggaskreytingar í verzlunum
borgarinnar. Er öllum verzlun
um, sem hafa ítalskar vörur á
boðstólum, boðin þátttaka í
•þeirri keppni. Verða hér ítalsk
ir sérfræðingar í gluggaskreyt
ingum kaupmönnum til aðstoð
ar, ef óskað er. Einnig sjá sér
fræðingar þessir um götuskreyt
ingar í nánd við helztu verzlan
rinar, sem þátt taka í keppn
1?
inni, og við Háskólabíó og
Hótel Sögu.
Sérstök verðlaun verða veitt
fyrir beztu gluggaskreytingarn
ar. Alls eru verðlaunin sex, og
fyrstu verðlaun flugfar fyrir
tvo til Rómar og heim aftur
með vikudvöl í fyrsta flokks
gistihúsi í Róm.
Skákþing Kópavogs
Fyrsta Skákþing Kópavogs
stóð yfir frá 12. — 23. marz.
Teflt var í Gagnfræðaskólanum
og voru þátttakendur alls 22
en þar af tefldu 12 í unglinga-
flokki.
Ská’kmeistari Kópavogs 1967
varð Guðmundur Þórðarson er
hlaut 714 vinning.
í unglingaflokki urðu efstir
og jafnir þeir Róbert Eyjólfs
son og Helgi Sigurðsson með
8V2 vinning hvor.
Á eftir fór fram hraðskákmót
og sigraði Guðmundur þar
einnig, hlaut 20y2 vinning af
21 mögulegum.
Nokkru áður en Skákþinginu
lauk, afhenti einn af stjórnar
meðlimum Rotary-klúibbsins,
Guðmundur Arason, hinu unga
félagi að gjöf tíu töfl ásamt
tafldúkum og flytur T. K. Rot-
ary-klúhbnum innilegustu þakk
ir fyrir þann hvetjandi hug, sem
hinni veglegu gjöf fylgir.
Aðalfundur Lúðrasveitar ,
Reykjavíkur
Aðalfundur Lúðrasveitar
Reykja.víkur var haldinri fyrir jj
nokkru. í stjórn voru kjörnir, |
Halldór Einarsson formaður, S
Þórarinn Óskarsson varaformað |
ur, Eyjólfur Melsteð gjaldkeri, ®
Ólafur Gáslason ritari og Sig H
urður Ingvi Snorrason með- i
stjómandi. Á síðasta ári lék p
sveitin fjörutíu sinnum opin-
berlega, við ýmis tækifæri. Á
þessu ári verður Lúðrasveit
Reykjavíkur fjörutíu og fimm
ára, og er ætlunin að halda
hátíðatónleika í tilefni afmælis
ins. Stjórnandi Lúðrasveitar
Reykjavíkur er Páll Pampichl
er Pálsson. í ráði er að auka
starfsemi Lúðrasveitar Reykja
víkur með auknu tónleikahaldi
og kennslu á hljóðfæri. Meðal
annara sem kenna á hljóðfæri
á vegum Lúðrasveitar Reykja
víkur er Lárus Sveinsson, sem
er nýkominn frá námi í Austur
ríki. Það sem aðallega háir úti
tónleikahaldi Lúðrasveitar
Reykjavíkur er skortur á
hentugum stað til að leika á
og í því sambandi er vert að
benda á að enginn útitónleika
pallur er til í Reykjavík.
Félagsheimili Lúðrasveitar
Reykjavikur er Hljómskálinn.
Aðalfundur Sjálfsbjargar
Aðalfundur Sjálfsbjargar í
Reykjavík var haldinn 2. marz
s. 1. Nú eru í félaginu 311 aðal
félagar, 129 styrktarfélagar og
9 ævifélagar, eða samtals 449
félagsmenn. Formaður félags-
ins er Sigurður Guðmundsson,
en aðrir í stjórn Helgi Eggerts
son, varaformaður, Árni Sveins
son, gjaldkeri, Vilborg Tryggva
dóttir, ritari, og Hlaðgerður
Snæbjörnsdóttir vararitari-
Á árinu bárust félaginu gjaf
ir í húsbyggingarsjóð að upp-
hæð rúmlega 30 þúsund krón
ur og á aðalfundinum_ barst fé-
laginu 30 þúsund frá ónefndum
gefanda.
........................... ■ I