Tíminn - 07.04.1967, Page 10
22
TÍMINN
FÖSTOBAGUn 7. apríl 1967
Álitsgerð stjórnar Rit-
höfundaféiags íslands
Fundur í Rithöfundafélagi ís-
lands, haldinn sunnudaginn 12.
marz 1967, lýsti stuðningi isínum
við eftirfarandi áiitsgérð stjórn-
ar félagsins, sem samin var vegna
frumvarps menntamálaráðherra
sem nú liggur fyrir Alþingi, en
var ekki komið fram þegar álitsins
var óskað.
Þess hefur verið óskað að Rit-
höfundafélag íslands lýsti áliti
sínu á frumvarpi sem menntamála
ráðherra hefur í undirbúningi að
leggja fyrir Alþingi um nýskipun
á úthlutun listamannalauna. í
þingsályktunartillögu frá Alþingi
á fyrra vori var skorað á ríkis-
stjórnina að bera fram frumvarp
um þessi mál og tekið fram að
haft skuli samráð við Bandalag
íslenzkra listamanna. Það mun ekki
hafa verið gert fyrr en frum-
varpið er nú er lagt fram til at-
hugunar fullsamið að því er virð-
ist.
Nú er tóminn algerlega ófull-
nægjandi, sem okkur er veittur til
athugunar á frumvarpi þessu.
Stjprn Rithöfundafélags íslands
óskaði á sameiginlegum fundi
stjórna Rithöfundasambands ís-
lands eftir fresti svo unnt væri
að bera frumvarpið undir félags-
fund en frestur sá fékkst ekki
Stjiórn Rithöfundafélagis íslands
óskaði eftir rækilegri a^hugun á
þessu frumvarpi og einnig á öðrui
frumvarpi sem Gils Guðmundsson1
alþingismaður hefur lagt fyrir A1
þingi. Fullnægjandi athugun hef-
ur ek'ki farið fram, enda ekki tími
til þess eins og málin hafa verið
lögð fyrir okkur.
Þess skal fyrst getið að sam-
kvæmt ósk stjórnar Rithöfundafé-
lags íslands kom Gils Guðmunds-
son á fund í félaginu fyrir nokknu
og skýrði frumvarp sitt ítarlega
fyrir félagsmönnum og svaraði fy_r-
irspurnum og athugasemdum. 0-
hætt mun að fullyrða að á fund-
inum rikti almennur áhugi fyrir
frufnvarpinu sem heppilegasta
grundvelli fyrir endurskoðun út-
hjutunarmálanna sem þá lá fyrir.
Ekki þótti ástæða til að gera á-
lyktanir á fundinum um málið
vegna þesis að von var á frum-
varpi frá hendi menntamálaráð-
herra, og þótti fundarmönnum
sanngjarnt að bdða þess.
Stjórn Rithöfundafélags Islands
hefur haldið nokkra fundi vegna
frumvarþs menntamálaráðherra og
ATHUGASEMD
Framhald af bls 18.
Piltarnir slá því föstu að þarna
sé verið að ráðleggja bændum að
gefa kúnum 4,2 Fe af fóðurblöndu
með 275 g. af melt, hrein protíni
eða eins og þeir reikna út, 302 g
melt. hrá protín.
Dæmið þeirra lítur þannig út:
auk þess léitað álits ýmissa félags-
manna með persónulegum við-
ræðum. Innan stjórnarinnar ríkir
alger samhugur í afstöðunni, og
niðurstöður af óformlegum viðræð
um við þá félagsmenn sem stjórn-
in hefur ráðgast við hníga á sömu
lund.
Er skemmst af segja að frum-
varp þetta vekur sár vonbrigði,
ekki sízt vegna þess að ráðherra
sá sem nú fer með menntamál
nýtur sérstaks álits meðal lista-
manna fyrir velvilja í þeirra garð
og áhuga og þekkingu á list og
málefnum listamanna, og hefur
látið í Ijós að hann hefði hug á
því að ófremdarástandi því sem
ríkt hefur um tuttugu ára skeið
í úthlutunarmálunum linnti, Frum
varpið sem liggur fyrir til álita
meðal listamanna er allsendis ó-
fullnægjandi. Það skortir viðun-
andi form og skilgrtiningar og
vikur varla að ýmsu sem við telj-
um brýnast, og skulu nokkur at-
riði nefnd:
í fyrsta lagi: æskilegur er al-
ger aðskilnaður heiðurslauna og
starfslauna, og verði heildarupp-
hæð listamannafjár ekki skert með
ákvörðunum Alþingis um veitingu
heiðurslauna.
í öðru lagi: styrkir verði í sér-
flokki handa ungum mönnum svo
þeir megi reyna og sýna og sanna
getu sína, og verði þeim úthlutað
sérstaklega, .aðgreint frá launum
til annarra starfandi listamanna:
sem sagt eins konar tilrauna- og
áhættustyrkir.
í þriðja lagi: tryggt verði að
listamannalaun gegni nafni og sé
varið til raunverulegra eflingar
listar, og eru þá að sjálfsögðu
bókmenntir meðtaldar. í þvi sam-
bandi fari fram allsheljarendur-
skoðun þessara mála.
1 fjórða lagi: í firumvarpi
menntamálaráðherra er ekki gert
ráð fyrir þeirri stofnun sein þings
ályktunartiUaga Alþingis víkur að
og frumvarp Gils Guðinundssooar
alþm. gerir ráð fyrir. Telur stjórn
Rith.f. íslands æskilegt að kannað
verði hvort slík stofnun væri ckki
likleg til að draga úr þeim póli-
tísku áhrifum sem hingað til hafa
sett svip sinn á úthlutun lista-
mannalauna. Vísar stjórnin til áð-
urnefndrar þingsályktunartillögu
sem einmitt var borin fram af
áhrifamönnum úr öllum stjórn-
máiafloikkum.
Rétt er að nefna þætti í frum-
varpi ráðherrans sem vekja efa-
semdir. Fyririiuguð ráðgjafanefnd
iistamanna yrði, eins og um bnút-
ana virðist búið, algerlega valda-
]aus og aúk þess líkleg til að magna
deilúr og sundurþykkju meðal
listamanna- Fyrirhugaðar leyni-
legar kosningar vekja tortryggni
og virðast fremur miðaðar við hag
úthlutunarmanna en listamanna.
Sýnist einmitt brýnt að nefndin
starfi saman fyrir opnum tjöld-
um og í fullu ljósi með ítarlegum
umræðum og ráðgerðum.
Fyrirhugaðar listakosningar með
leynd auka tækifæri til skugga-
legra athafna.
Styrkir til annarra framleiðslu-
stétta þjóðfélagsins eru . bundnar
því að styrkþegi hafi einhverja
framleiðslu með höndum og geti
sannað að hann fáist í raun og
veru við það sem hann hlýtur
styrk eða laun fyrir. Það er krafa
•okkar að sama verði látið gilda
•um listir svo ekki verði hægt að
nota orðið ölmusa um listamanna
laun, eða verri orð né viðlíka.
Loks má geta þess að þær fjárfhæð
ir, sem hafa verið veittar til lista-
mannalauna eru allsendis ófull-
nægjandi og þarf að auka miklu
við til að komi að verulegu gagni.
í stjórn Rith.f. íslands:
Thor Vilhjálmsson (formaður)
(sign)
Kristinn Reyr (gjaldkeri) (sign)
SÆLUVIKA
Framhald af síðu 24.
syngja á sæluvikunni og dansað
verður fimm kvöld vikunnar.
Kvikmyndasýningar verða alla
daga.
í Skagafirði er nú sunnanótt og
þíðviðri og allir vegir að verða
færir.
loðnan í 99 löndunum en síldin
á 4 iöndum. Aflahæstur loðnulbáta
er Örninn.
SIGURVEGARAR
Framhald af síðu 24.
Sigurvegurunum var boðið
í utanlandsferð og á fostu-
dagsmorgun fljúga þeir til
Luxemburg og munu þeir
ferðast þar um og til Rínar-
landa og vera vikutíma í ferða
laginu. Af hálfu útvarpsins
fer Stefón Jónsson með þeim
til leiðsagnar og skemmtunar.
SAUMAVÉLAR
Framhald af bls. 2.
ingar frá Husqvarnaverksmiðj-
unum í Svíþjóð. Þarna lærðu
saumakonur að gera við vélamar
og viðgerðarmenn oQ sölumenn
að sauma, en ætlast er til að allir
þeir sem einhver afskipti hafa af
sölu þessara véla kunni á þeim
full skil og geti frætt kaupendur
um notkun þeirra, og að við
gerðarmaður sé á hverjum stað
þar sem þær eru seldar.
MJÓLKURHYRNUR
Framhald af bls. 24
verSur alveg að selja mjólk f
liyrnum.
Breytt hefur verið um skreyt
ingu á mjólkurhyrnunum og
komu hinar fyrstu með nýja
útlitinu í mjólkurbúðir í morg
un. Þegar ferköntuðu umbúð
irnar koma verða þær með
svipaðri skreytingu. Myndirn-
ar sem nú eru á umbúðunum
eru gerðar eftir fyrirmyndum
af gömlum íslenzkum rúm-
fjölum og smjöröskjum, semi
eru á safni í Stokkhóli. En!
verksmiðjan sem framleið,
ir umbúðirnar sér um útlit
þeirra.
AFLI
Framhald af bls. 2.
um. Er hér eingöngu um að ræða
afla ,sem landað hefur verið í
Keflavík.
Undanfarna dága hefur verið
ágætis yeður en afli sáralítill.
Stærri bátarnir, sem sækja Breiða
fjarðarmið, komu með 15-25 tonn
í róðri, en þar er um 3ja nátta
fisk að ræða.
Hingað hafa borizt 13.997 tonn
af loðnu og 331 tonn af síld. Kom
Dæmi II. á melt pró- g melt
Nyt kg Fóður kg FE tín í FE prótín samtals
Heildarefnaiþarfir 20 11,2 129 1440
1. Meðaltaða 14,0 7,0 150 1050
2. Fóðurblanda Afgangur 4,2 4,2 302 1268 878
Síðan fylgir þessi umsögn: „Og
ef við lítum á dæmi II, þar sem
gert er ráð fyrir. fóðurblöndu með
302 g. melt, prótín (275 g melt.
hreineggjalhvíta) í FE. í þessu til
felli fær kýrin 878 g melt. prótín
framyfir þarfir.“
Af framanrituðu ætti nemendum
Bændaskólans á Hvanneyri og
kennarar þeirra í fóðurfræði, sem
eflaust hefur leiðbeint piltunum í
uppsetningu dæmanna að vera það
ljóst, að öruggara er að lesa vel
undir tímana. ”
Eins og þetta greinarkorn ber
með sér, er þetta ekki svar við
áskorun Hvanneyrarpiltanna, því
lienni var beint til yfirstjórnar,land
I búnaðarmála, sem er landbúnaðar-
ráðuneytið. Ég mundi nú frekar
hallast að því að taka undir áskor
urii með Hvanneyringum til vísinda-
mánna og fá þá til að skera úr um
hvað kýrnar þurfa mikið til við-
halds og afurða, hvort við eigum
að ræða um eggjahvítu eða prótín
eða hrá eða hrein protín.
Agnar Guðnason.
GÖNGUSEIÐI
Framhald af síðu 24.
sem sleppt var úr Kol'lafirðinum.
Gönguseiðin verða afhent kaup
endum í júnílbyrjun í ár. Á þeiin
tíma leita þau til sjóvar og eiga
lífsvon sína ekki undir misjafn-
lega góðum ætiskilyrðum í án-
um. Að vori næsta ár má búast
við að þau gangi aftur í árnar,
sem þeim var sleppt í upphaflega.
Sjóbirtingsveiði hefur verið
mjög léleg það sem af er veiði
timabilinu, sem byrjaði 1. apríl.
Sjóbirtingurinn heldur til sjávar
á vorin þegar hlýnar í veðrl en
tíð hefur verið köld til þessa
og margar ár undir ís á stórum
svæðum. Ef hlákan sem nú er
sunnanlands helzt má búast við
að sjóbirtingurinn fari að hreyfa
sig á næstunni. Sjóbirtingsveið-
in er ávallt mest og best á Suð
urlandi en einnig veiðist talsvert
af honum í ám í Borgarfirði og
vestur á Snæfelisnesi. Sjóbirtings
veiðin er mest stunduð af stangar
veiðimönnum en einstaka bænd
ur veiða hann í net þar sem sú
veiði er leyfð. Þessi veiðimennska
helzt yfirleitt ekki nema í örfga
daga eða þegar vorhlýindi og
væta ganga yfir og árnar ryðja
sig. Þá syndir fiskurinn strax
til sjávar. í árnar gengur fiskur
inn aftur á tveim tímalbilum.
Hrygningarfiskurinn gengur í
júlí og fram 1 september. en
geldfiskurinn nokkru seinna og
yfirleitt ekki fyrr en eftir veiði
tímabilið. Sjóurriðinn hrygnir
á haustin þegar hann gengur aft
ur í árnar. Er þetta nokkuð sér
kennileg hegðun miðað við aðra
laxfiska. Laxinn t.d. gengur í árn-
ar á vorin og heldur sig síðan
djúpt í hafi yfir vetrartímann.
En á sumrin heldur sjóbirtingur
inn og sú bleikja sem gengur í
sjó, sig við ströndina yfir sum-
arið og er iðulega veidd af krökk
um við bryggjur.
Veiðimálastjó.. sagði að mik
ið hefði verið merkt af sjóbirt-
ingi í Kollafirði en svo bæri til
að hann væri veiddur aftur í
Elliðaánum, Úlfarsá og jafnvel
uppi í Borgarfirði svo hann virð
ist ekki vera við eina fjölina
felldur hvað snertir að ganga í
ár sem hann hefur aldrei komið
í áður.
Menn eru nú farnir að hugsa
til laxveiða og búið að ákveða
verð á mörgum laxveiðiám í sum
ar. Svo virðist að verð á þeim
sem hingað til h..:.i verið dýrast
ar hækki ekki í ár en aftur á
móti hækkar verð á ódýrari ám
og í sumum tilfellum til jafns við
hinar sem áður voru dýrast
Massey Ferguson
drAttarvéla-
OG GRÖFUEIGENDUR.
Nú er rétti tíminn tii að
láta yfirfara og gera vjö véi
amar fyrir vorið.
Massey Ferguson-viðgerða-
þjónustu annast.
VÉLSMIÐJA
EYSTEINS LEIFSSONAR
H. F.
SíðumúJa 17.
Sími 30662.
PÍANÓ -
FLYGLAR
Steinway & Sons
Grotrin-Steinwag
[bach
Schimme)
Fjölbreytt. úrval.
5 ára ábyrgð.
PALMAR ÍSÖLFSSON
6 PÁLSSON,
Simar 13214 og 30392.
Pósthólf 136,
Trúlofunarhringar
afgreiddir
samdægurs.
Sendum um allt land.
HALLDÓR,
SkólavörSustig 2.
TRÚLOFUNARHRINGAR
Fljót afgreiSsla.
Sendum gegn póstkröfu
Guðm. Þorsteinsson.
gullsmiður
Bankastræti 12.