Alþýðublaðið - 15.11.1984, Síða 10
10
Fimmtudagur 15. nóvember 1984
Kjartan 12
Alþýðuflokksins, hvort heldur
Kjartan Jóhannsson eða Jón Bald-
vin Hannibalsson sitja þar á for-
mannsstóli?
— Vafalaust mun þaö einhverju
breyta.
— Viltu spá nokkru um niður-
stöður kosninganna á flokksþing-
inu?
— Eg gef auðvitað kost á mér
vegna þess að margir hafa rætt það
við mig og þá að það væri farsælast
að ég gæfi kost á mér að nýju eins
og nú standa sakir. Ég vænti þess að
sá skilningur komi fram á flokks-
þinginu. Það er auðvitað í ljósi
þessa og í trausti þess, sem ég hef
gefið kost á mér. Það þýðir vita-
skuld, að ég geri ráð fyrir að sá
skilningur sé ríkjandi og komi fram
í stuðningi á flokksþinginu.
— Mun það hafa áhrif á störf
þín í flokknum að öðru leyti á
hvorn veg formannskosningarnar
munu fara?
— Verkefni mín verða auðvitað
mismunandi eftir því á hvorn veg
kosningarnar fara. En að öðru leyti
hefur það ekki áhrif á störf mín í
flokknum.
VELALEIGA-
VE RKTAKAR
LEIGJUM ÚT ALLSKONAR
TÆKIOG ÁHÖLD
Jarðvegsþjöppur Borvélar Hjólsagir Juðara
Brotvélar Naglabyssur og margt, margt fleira.
Viljum vekja sérstaka athygli á tækjum fyrirmúrara:
Hrærivélar - Vibratorar - Vikurklippur - Múrpressur í röppun
Sendum tæki heim efóskað er
BORT/EKTMT SF vélaleiga- verktakar
■*-' X X ■“■ ■ NÝBÝLAVEGI 22 - 200 KÓPAVOGI SÍMAR: 46980 46899
1392-6700
Förum um allt land - Fljót og góð þjónusta - Þrifaleg umgengni
Jón Baldvin 13
skiptingu og stuðla að þjóðfélags-
legu réttlæti". Þarna er gerð ítarleg
grein fyrir róttækri stefnu flokksins
í skattamálum. Þetta ítarlega plagg
(ca. 30 síður) er dæmi um hvað ég á
við, þegar ég tala um Alþýðuflokk-
inn sem róttækan umbótaflokk.
Plaggið er morandi í róttækum til-
lögum, sem munu vekja ótta, and-
stöðu, deilur, af því að þetta eru til-
lögur sem koma við kaunin á hinni
nýríku svindlarastétt. Ég vona að
þið á Alþýðublaðinu sláið henni
rækilega upp.
— Mun það að þínu mati breyta
miklu um áherslur og stefnumið
Alþýðuflokksins, hvort heldur
Kjartan Jóhannsson eða Jón Bald-
vin Hannibalsson sitja þar á for-
mannsstóli?
— Alveg tvímælalaust. Þegar
Kjartan bauð sig fram gegn
Benedikt Gröndal fyrir 4 árum,
lagði hann á það megináherslu, að
þeim bæri ekkert í milli. Engin
ágreiningsmál. Hins vegar taldi
hann eðlilegt í lýðræðisflokki, að
kosið væri milli manna (þótt þá
greindi ekki á um neitt). Ég er
ósammála þessari skoðun Kjartans.
Ég sé enga ástæðu til þess að kjósa
um ekki neitt, af því bara.
Mitt framboð byggir á allt öðrum
forsendum. Ég er ekki að þessu að
gamni mínu. Framboð mitt er rök-
rétt niðurstaða af margra vikna og
mánaða umræðu í Alþýðuflokkn-
um, sem hefur leitt til þeirrar mál-
efnalegu niðurstöðu, að róttækra
breytinga sé þörf á öllum sviðum.
Þess vegna er þetta ekki spurning
um Pétur eða Pál, Kjartan eða Jón
Baldvin. Umfram það, að persónu-
leiki í pólitík skiptir alltaf máli. Það
er varla hægt að hugsa sér ólíkari
menn. Kjartan er varfærinn, gæt-
inn, lokaður, flinkur fagmaður,
ekki skjótur til ákvarðana. Ég er
opinskár, hreinskilinn, afdráttar-
laus í skoðunum, hef gaman af
áhættu; tapa stundum og get þess
vegna unnið stórt.
Við erum gott gengi. En eigi að
spila sóknarleik, þá á að nota sókn-
arleikmanninn.
— Viltu spá nokkru um niður-
stöður kosninganna á flokksþing-
inu?
— Nei. Ég pípi á skoðanakann-
anir og spádóma. Hins vegar tek ég
kosningar alvarlega og kosningaúr-
slit, einkum ef þau eru mér að
skapi.
— Mun það hafa áhrif á störf
þín íflokknum að öðru leyti á hvern
veg formannskosningarnar munu
fara?
Ég er „ástríðupólitíkus". Ég var á
sínum tíma dæmdur í „pólitíska út-
legð“ heim til mín, vestur á Firði, til
að sitja þar á friðarstóli og stjórna
skóla. Ég var ekki búinn að vera þar
nema nokkra mánuði fyrr en ég var
farinn að safna liði (sameinaði
reyndar Frjálslynda og vinstrimenn
og Alþýðuflokkinn) í bæjarstjórn.
Kosningaúrslitin skipta sköpum
fyrir Alþýðuflokkinn.
Eina gamansögu í lokin? Þótt ég
þykist ekki vera hjátrúarfullur (í
þjóðlegum stíl), þá er ég nú engu að
síður forlagatrúar, svo sem verið
hafa mínir forfeður. Þegar ég fædd-
ist í Alþýðuhúsinu á ísafirði var ég
fyrirburður, tekinn með keisara-
skurði, til að bjarga lífi móður
minnar. Ég hafði átt að heita Þór-
hallur. En seinustu næturnar, sem
móðir mín bar mig undir belti, vitj-
aði Jón heitinn Baldvinsson svo
ákaft nafns, út af þessum hvítvoð-
ung, sem vart var hugað líf, að hún
lét undan. Þess vegna heiti ég Jón
Baldvin Hannibalsson — en ekki
einhver Þórhaliur.
— Hver er ég að ég streitist á
móti örlögunum?
Svavar Gestsson:
Falsanir for-
sætisráðherra
Svavar Gestsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, hefur sent eftir-
farandi fréttatilkynningu:
„í sjónvarpsþætti á þriðjudags-
kvöldið birti Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra, línu-
rit um fall kaupmáttar launa á ár-
inu 1983 og 1984. Þar fullyrti hann
að launahrapið á 2. ársfjórðungi
ársins skrifaðist allt á reikning frá-
farandi ríkisstjórnar. Hér var um að
ræða grófar falsanir sem óhjá-
kvæmilegt er að leiðrétta:
Fyrsta verk ríkisstjórnar Stein-
gríms Hermannssonar var að fella
niður verðbætur á laun, 22<Vo 1. júní
1983 og að banna síðan verðbætur
með bráðabirgðalögum allt til vors-
ins 1985. 2. ársfjórðungur 1983
skrifast því á reikning ríkisstjórnar
Steingríms Hermannssonar ein-
vörðungu, því að verðbætur á laun
voru síðast greiddar 1. mars 1983.
Þess vegna komu engar verðbætur
á 2. ársfjórðungi nema 8% launa-
breyting 1. júní í stað 22% eins og
átti að vera samkvæmt kjarasamn-
ingum og Ólafslögum.
Ríkisstjórn Gunnars Thorodd-
sen greip til efnahagsráðstafana
vegna fallandi þjóðartekna seint á
miðju ári 1982. Þær efnahagsráð-
stafanir höfðu það í för með sér að
kaupmáttur launa féll nokkuð eða
um sama hlutfall og þjóðartekjur.
Þegar ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar tók við var kaupmátt-
urinn hins vegar felldur langt um-
fram fall þjóðarteknanna. Þetta
sést glöggt á meðfylgjandi línuriti.
Það er frá kjararannsóknarnefnd
að öðru leyti en því að inn á það er
teiknuð lína sem sýnir þróun þjóð-
arframleiðslu á árunum 1980 til
1984. Þar sést að lækkun kaup-
máttar og lækkun þjóðartekna
fylgdist að í tíð síðustu ríkisstjórn-
ar, en eftir að Steingrímur tók við
hrapaði kaupmátturinn. Á línurit-
inu kemur einnig fram hve hár
kaupmátturinn var á árunum 1980
til 1982 og þyrfti kaup eins og það
var fyrri samningana nú að hækka
um 27% til þess að ná þeim kaup-
mætti. Kjarasamningarnir ná að-
eins hluta kaupránsins til baka eins
og kunnugt er og ríkisstjórnin hef-
ur uppi áform um að svipta Iauna-
fólk árangri kjarasamaninganna
með gengislækkun og verðbólgu á
næstu vikum ef marka má orð ein-
stakra ráðherra.
Það var alger grundvallar-
forsenda Alþýðubandalagsins I við-
ræðunum um myndun ríkisstjórnar
vorið 1983 að ekki kæmi til greina
að kaupmáttur launa lækkaði
meira en nemur lækkun þjóðar-
framleiðslu og þjóðartekna. Ég
gerði Steingrími Hermannssyni og
Geir Hallgrímssyni grein fyrir þessu
sjónarmiði. Það var ófrávíkjanlegt
af hálfu Alþýðubandalagsins. Þeir
kusu hins vegar að skera kaupmátt-
inn enn frekar niður. Það sést
glöggt á meðfylgjandi línuriti.
Spurningin er þá sú: Hvað hefur
orðið af þessum mismun? Ekki hef-
ur hann gufað upp — nei, stað-
reyndin er sú að þessir fjármunir
hafa verið fluttir til milliliða, þjón-
ustu og verslunar. Þannig hefur
kauplækkun launafólksins staðið
undir gróðamyndun gæludýra
ríkisstjórnarinnar.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra á í vök að verjast.
Framsóknarmenn sverja af sér
stjórnina. Sjálfstæðisflokksþing-
menn missa trú á stjórninni með
hverjum deginum sem líður. í van-
mætti sínum reynir forsætisráð-
herra landsins að falsa línurit til
þess að gera sjálfan sig dýrlegan.
Það er aumt hlutskipti að eiga
ekkert nema falsanir til þess að
veifa í kringum sig eftir átján mán-
aða stjórarsetu með íhaldinu. En
það er og var ekki við öðru að bú-
ast. Spurningin er hvað Steingrímur
reynir að gera næst til þess að
bjarga sér á land upp úr feninu —
kannski hann taki saman skrá um
þau kosningaloforð sem Framsókn-
arflokkurinn á eftir að svíkja. Það
yrði ekki langur lestur“