Alþýðublaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 15. nóvember 1984
23
Dalalíf 7
leikur. Þessi gerðarlegi kvenmaður
birtist í pardusfeldi, berleggjaður,
ríðandi berbakt í hlaðið.
Fyrri hluti kvikmyndarinnar er
byggður upp á bröndurum í kring-
um óburðuga búskaparhætti pilt-
anna úr borginni. I sum atriðin er
farið að slá í af elli, en þó er hægt
að brosa að einstaka uppátækjum
félaganna, enda eru þeir Eggert og
Karl Ágúst sæmilega sjóaðir í hlut-
verkum sínum. Þegar búið er að af-
greiða búpeninginn með nokkrum
vel völdum atriðum er tekið á það
ráð að senda þá sveina og Katrínu á
ball í bænum.
Heldur dettur hraði myndarinn-
ar niður þegar dansarar reika í Óð-
ali. Ballferð þessi er þó ekki til
einskis, því Þór hittir lifsleiðan
kaupsýslumann, sem elskar fjósa-
lykt. I love it, hrópar hann í sífellu
og þau orð geri ég að rnínunt unt
túlkun Sigurðar Sigurjónssonar á
kaupsýslumanninum. Hann bregst
ekki frekar en fyrri daginn.
Eins og alþjóð veit fá íslendingar
helst geníal hugmyndir við skál á
börum og svo er um Þór. Hann
ákveöur að efna til dalalífsviku á
bóndabænum og bjóða þangað
borgarbúum í fjósavinnu gegn álit-
legri þóknun. Ekki ætla ég að rekja
söguna lengra, en þetta endar vitan-
lega með ntikilli Miðsumarsgleði og
hápunktur hátíðarinar er þegar
Hallbjörn Hjartarson ríður syngj-
andi inn á sviðið.
NÚ líður mér vel!
Dalalíf er langt frá því að vera vel
heppnuð gamanmynd. Hún þjónar
þó sínum tilgangi, að stytta landan-
um stundir og lokka fram brosvipr-
ur í þjakaðar ásjónur hans, nú á
þessum haustdögum, þegar þorri
landsmanna horfir fram á að þurfa
að nærast á skuldasúpu í hvert mál.
Leikarar komast misvel frá sínum
hlutverkum. Um frammistöðu
þeirra Eggerts, Karls Úlfars og Sig-
urðar Sigurjónssonar þarf ekki að
fjölyrða meir en þegar hefur verið
gert, allir þrír eru gæddir þeirn fá-
gæta eiginleika að geta Iyft brún-
inni á forhertustu skrifstofublók.
Guðmundur Ingi Kristjánsson leik-
ur upprennandi stjórnmálamann,
sem hefur skráð sig sem þátttak-
anda í Dalalífsvikunni, til að kynn-
ast bústörfum áður en hann býður
sig fram í sveitinni. Æfir hann
mælskulist yfir kálfunum í fjósinu
og ferst Guðmundi hlutverkið álíka
vel úr hendi og þegar hann kynnir
sjónvarpsefni næstu viku i im-
bakassanum.
Hvað tæknilegu vinnuna áhrærir
eru margir agnúar á henni, sérstak-
lega á hljóðinu en það vildi brenna
við á stundum að undirritaður átti
í erfiðleikum með að greina orða-
skil. Einnig gerðist það að skerpan
í myndinni var slæm, hvort sem þar
var um vanrækslu sýningarstjórans
að kenna á þessari einu sýningu eða
glöpum kvikmyndatökumannsins.
Dalalíf er ekkert stórvirki, heldur
er henni ætlað að vera smá spé-
spegill á ákveðna þætti í íslensku
þjóðarsálinni. Hefði mátt vera
meiri broddur í háðinu, því land-
búnaðarmál Islendinga eru með
slíkum eindæmum að ekki þarf að
hnika til miklu, svo úr verði drep-
fyndinn farsi. I aðalhlutverkum
yrðu þá ýmis ráð, nefndir og stjórn-
ir í Reykjavík en sjálfir bændurnir
léku aukahlutverk.
Sáf
FJDLBRAt/TASXÚLIM
BKiBHOUl
FRÁ F JÖLBRAUTA-
SKÖLANUM
BREIÐHOLTI
Umsóknir um skólavist í Dagskóla F.B. á vorönn
1985 skulu hafa borist skrifstofu skólans Austur-
bergi 5 fyrir 1. desember næstkomandi.
Nýjar umsóknir um Kvöldskóla F.B. (öldunga-
deild) á vorönn 1985 skulu berast skrifstofu skól-
ans fyrir sama tíma.
Staðfesta skal fyrri umsóknir væntanlegra ný-
nema með símskeyti eöa símtali viö skrifstofu F.B.
sími 75600.
Skólameistari.
MIÐ BJOÐUhN
METRINU
BYRGINN'
ItniDGESTOIIE
Sagt er að allir tali um veðrið, en enginn
geri neitt í því.Við hjá BRIDGESTONEget-
um að vísu ekki gert neitt við veðrinu, en
við bjóðum stóraukið öryggi i vetrarakstri
með hinum heimsþekktu ÍSGRIP vetrar-
hjólbörðum. ÍSGRIP hjólbarðarnir eru úr
sérstakri gúmmíblöndu, sem harðnar
ekki í kuldum, þeir haldast mjúkir og gefa
því einstaklega góða spyrnu í snjó og
hálku. Tryggðu öryggi þitt og þinna í vet-
ur, keyptu BRIDGESTONE ÍSGRIP undir
bíhnn — þeir fást hjá hjólbarðasölum um
land allt.
Sérlega hagstætt verð.
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99
ISGRIP
TRYGGING BEGN
VBWB&GU
Á sex mánaða fresti er óhreyfð innstæða borin saman við
ávöxtun verðtryggðra reikninga með 6.5% vöxtum og
hagstæðari kjörin látin gilda. Slík trygginger sérstaklega
mikilvæg í ótryggu ástandi þjóðmála.
Sparisjóðurinn í Keflavík, — Sparisjóður Kópavogs, — Sparisjóður Mýrasýslu, — Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, — Sparisjóður vélstjóra.