Alþýðublaðið - 30.03.1985, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 30.03.1985, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 30. mars 1985 félagsleg leið til framtíðar Umræðan um húsnæðismálin í dag snýst eðlilega fyrst og fremst um það hvernig rétta megi hlut þeirra íbúðarkaupenda, sem eru að sligast undan greiðslubyrð- inni vegna misvægis lánskjara og launa og hárra vaxta af lánum. Hér er á ferðinni verkefni sem krefst brýnna úrlausna. En húsnæðismálin hafa fleiri hliðar og ein er sú að horfa til framtíðarinnar og sjá til þess að því unga fólki, sem nú er að hefja búskap eða mun hefja hann á næstu árum, verði gert kleift að fá þak yfir höfuðið án þess að þurfa að veðsetja bæði sál og líkama um ókomna tíð. Margir horfa hýru auga til hús- næðissamvinnufélaganna sem lausn á þessu vandamáli. Margir en ekki allir, því viss öfl innan Sjálf- stæðisflokksins hafa barist gegn húsnæðissamvinnufélögunum með oddi og egg. Þrátt fyrir dygga varð- stöðu nátttröllanna efast enginn lengur um að húsnæðissamvinnu- kerfið mun skipa sinn sess í fram- tíðarlausn húsnæðiskerfisins. Tölvuútboð Alþingis Alþingi óskar eftir að kaupa 14 einkatölvur og viðeigandi búnað til ritvinnslu og spjaldskrárvinnslu. Útboðsgögn liggja frammi á skrif- stofu Alþingis frá kl. 10 mánudag- inn 1. apríl og verða skýrð á fundi í Vonarstræti 12, kl. 10 þriðjudaginn 2. apríl. Tilboð verða opnuð á skrif- stofu forseta sameinaðs Alþingis kl. 10 mánudaginn 29. apríl nk. Ritari Utanrlkisráðuneytiðóskaraðráða ritaratil starfaiutan- rikisþjónustunni. Krafist er góðrar kunnáttu (ensku og a. m. k. einu öðru tungumáli auk góðrar vélritunarkunnáttu. Eftir þjálfun ( utanrlkisráðuneytinu má gera ráð fyrir að ritarinn verði sendur til starfa I sendiráöum íslands er- lendis. Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist utanrlkisráðuneytinu, Hverfisgötu 115, Reykjavlk, fyrir 10. aprll nk. Utanríkisráðuneytið. Frá stofnfundi Búseta á Hótel Borg. Eysteinn Jónsson í ræðustól. Frá mótmælum Búseta við Alþingi vorið 1984. Á myndinni má sjá þau Jón Rúnar Sveinsson, formann Búseta í Reykjavík, Auði Styrkárdóttur, stjórnarmeðlim í Búseta Reykjavík og Reyni Ingibjartsson starfsmann Búseta, á leiðinni inn i Alþingi með mótmælaályktun sem samþykkt hafði verið á fundinum. Búseti og mangó Það var haustið 1983 að Búseti var stofnaður í Reykjavík, nánar til- tekið 26. nóvember á fjölmennum fundi á Hótel Borg. Þá þegar höfðu 1000 manns skráð sig sem stofnfé- laga. Nú rúmu ári síðar eru félagar orðnír um 3000 talsins. Þessar tölur sýna berlega að þörfin fyrir þetta húsnæðisfyrirkomulag er mikil. í byrjun síðasta árs lýsir Alex- ander Stefánsson, félagsmálaráð- herra því yfir að opnuð verði leið til lána úr Byggingarsjóði verka- manna til Búseta. Þessi yfirlýsing Alexanders átti þó eftir að draga dilk á eftir sér, því um vorið ‘84 sló í brýnu milli ríkisstjórnarflokk- anna um Búseta. Einsog mönnum er enn í fersku minni fórnaði Fram- sókn Búseta fyrir mangó-málið svokallaða og var því allt útlit fyrir að töf yrði á því að Búseti gæti haf- ið byggingar fyrir félagsmenn sína. Þrátt fyrir að dyrunum væri lok- að á Búseta fékk félagsmálaráð- herra því framgengt að skipuð var nefnd stjórnarflokkanna, sem hafði það verkefni að semja frum- varp um Búseturétt og átti frum- varpið að vera tilbúið sl. haust. Þar sem ekkert bólaði á frum- varpinu bar Jón Baldvin Hanni- balsson fram fyrirspurn til féiags- málaráðherra 6. nóvember um hvernig frumvarpssmíðinni vegn- aði. í framhaldi af fyrirspurninni ræddi Jón Baldvin um að Búseti hefði sótt um Ián til bygginga leigu- íbúða ætluðum til útleigu fyrir námsfólk, aldraða og öryrkja, á hóflegum kjörum, og spyr hvort tekin hafi verið afstaða til þeirra umsókna. í svari ráðherra kom fram að nefndin átti enn langt í land með frumvarpið og engin skýr svör komu fram um hvernig umsóknir Búseta yrðu afgreiddar. Það sem síðan hefur gerst er að Búseti hefur verið í biðstöðu. Félag- ið hefur sótt um lóðir í Grafarvogi en ekki fengið ákveðið svar enn. Fyrir liggur munnlegt loforð um lóðir frá Davíð sem ekki hefur feng- ist staðfest enn. Fyrir Alþingi liggur fyrirspurn frá öllum stjórnarand- stöðuflokkunum um það hvernig lagafrumvarpinu líði. Erlend reynsla Fyrstu húsnæðissamvinnufélög- in í heiminum voru stofnuð um miðja síðustu öld. Það var í Þýska- landi og Danmörku sem þetta hús- næðisfyrirkomulag var fyrst reynt. Þetta fyrirkomulag er mjög algengt á öllum Norðurlöndunum nema ís- landi. Það er einkum þangað sem Búseti sækir fyrirmyndir sínar. Þrátt fyrir það er fyrirkomulagið þekkt viða um heim, í Þýskalandi og Niðurlöndum og í góssenlandi einkaframtaksins, Bandaríkjunum. í viðtali við Olle Lindström, framkvæmdastjóra Riksbyggen í Framh. á bls. 22.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.