Alþýðublaðið - 30.03.1985, Blaðsíða 16
16
Laugardagur 30. mars 1985
Borgarstjóm og húsnæðisfáránleikinn:
íhaldið hunsaði
unga og aldraða
Um þessar mundir eru fjölmenn-
ustu árgangar íslandssögunnar aö
leitast við að stofna heimili og
koma sér upp húsnæði. En hvað
fær þetta unga fólk í forgjöf? Dýr-
ustu lán íslandssögunnar samhliða
ört lækkandi kaupmætti.
Um þessar mundir býr aldrað
fólk í Reykjavík hundruðum saman
við neyðarástand í húsnæðismál-
um. Hvað vill Davíð og companí í
borgarstjórnarmeirihlutanum gera
við því? Ekkert. Hins vegar horfir
fólk upp á ellihallir hinna ríku rísa
í Kringlunni, þar sem „rjóminn af
þjóðfélaginu“ ætlar að una sér
saman í vellystingum á ævikvöldi
sínu.
Vesældarleg frammistaða
Þegar fjárhagsáætlun Reykja-
Vildi frekar
byggja brú yfir
Bústaðaveg og
byggja yfir
Rafmagns-
veituna
ónum króna yrði varið til fram-
kvæmdalána til byggingar sjálfs-
eignaíbúða fyrir aldraða. Á móti
þesum útgjaldaauka lagði Sigurður
til að hætt yrði við 45,6 milljón
króna ævintýri varðandi brú yfir
Dæmi um ung hjón
1. júní 1979 keyptu ung hjón sér
tveggja herbergja íbúð. Ibúðar-
verðið var 180 þúsund kr. og sjálf
áttu þau þriðjung kaupverðs, þ. e.
60 þúsund kr., sem jafngilti þá
2Zi árslaunum samkvæmt 8.
launaflokki VMSÍ, en mánaðar-
laun voru þá 1955 kr. samkvæmt
þeim launaflokki. Afganginn 120
þúsund urðu þau að taka að láni.
Sé gert ráð fyrir að þessi lán séu
verðtryggð með lánskjaravísitölu
til 20 ára og beri breytilega vexti
samkvæmt ákvörðun Seðlabank-
ans verður niðurstaðan eftirfar-
andi:
1. júní 1979 er 120 þúsund kr.
lánið jafngilt 61,38 mánaðarlaun-
um samkvæmt 8. launafl. VMSÍ
eða 3,06 mánaðariaunum á ári.
Með vöxtum er þetta 4,3 mánað-
arlaun fyrsta árið. Á gjaiddaga
1984 skulda þau ennþá 796.500
kr. eftir greiðslu, sem er uppfærð-
ar eftirstöðvar lánsins með láns-
kjaravísitölu og er það ígildi 63,6
mánaðarlauna.
Af þessu má sjá að ungu hjónin
skulda á 5. gjalddaga, eða 5 árum
eftir töku lánsins, meira að raun-
gildi en þegar lánið var tekið.
Greiðslubyrði árið 1984 samsvar-
ar 6,6 mánaðarlaunum og ef gert
er ráð fyrir að þessi þróun haldi
áfram á þessu ári mun greiðslu-
byrði þeirra á árinu 1985 samsvara
8,6 mánaðarlaunum.
víkurborgar var afgreidd í síðasta
mánuði leitaðist Sigurður E. Guð-
mundsson, borgarfulltrúi Alþýðu-
flokksins, við að bæta úr vesældar-
legri frammistöðu borgarstjórnar-
meirihlutans með breytingatillög-
um sínum. Annars vegar lagði hann
til að borgin legði fram 50 milljónir
króna til framlags/láns til smíði og
kaupa á kaupleiguíbúðum fyrir
ungt fólk og hins vegar að 35 millj-
Bústaðaveg og að útgjöld vegna
nýrra bifreiða og véla lækkaði úr
33,5 milljónum í 15 milljónir króna,
sem og að útgjöld vegna bygginga
Rafmagnsveitu Reykjavíkur yrðu
skorin niður, en í það eiga tæplega
20 milljónir að fara.
Eignareinstefna
Þessar tillögur hlutu ekki stuðn-
ing borgarstjórnarmeirihluta Sjálf-
stæðisflokksins. Sá flokkur blæs á
vandræði unga fólksins og hinna
öldruðu í húsnæðismálum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
marg oft opinberað ofstæki sitt lýst
andstöðu sinni við kaup á og bygg-
ingu kaupleiguíbúða. Hjá þeim
flokki kemst ekkert annað að en að
menn búi endalaust við það fyrir-
komulag sem ríkjandi er, eins og
það er nú glæsilegt eða hitt þó held-
ur að koma sér upp húsnæði við
núverandi aðstæður. Alþýðu-
flokkurinn hefur á hinn bóginn um
margra ára skeið barist fyrir því að
samjDykkt verði sérstök löggjöf um
kaupleiguíbúðir. Fyrir tilsþiHi hans
er þó gert ráð fyrir því aiii borgin
verji 15 milljónum króna ti^þessa í
ár, en það er bara ekki nóglpins og
málin standa. >•
Kaupleiguformið er þekltt Viðp
erlendis og hafa verið gerðir slíkir
samningar um fleiri fasteignir. Hér
á landi hefur hins vegar þrön^sýnin
verið ráðandi og borgarstjörnar-
meirihlutinn hefur boðið ungu
fólki upp á það helst að reisa luxus-
villur í Grafarvogi.
Húsnæðismál aldraðra
Sú staðreynd liggur á borðinii að
borgarstjórnarmeirihluti Sjálf-
stæðisflokksins hefur nánast iað-
gerðalaus horft upp á vaxandi
neyðarástand í húsnæðismálum
aldraðra. Margt eldra fólk á sér þá
óska að geta selt of stórar íbúðir
sínar til að geta flutt í nýjar íbúðir
af hæfilegri stærð. En borgar-
stjórnarmeirihlutinn kaus að horfa
framhjá þessu neyðarástandi og
felldi tillögu Sigurðar E. Guð-
mundssonar um sérstök fram-
kvæmdarlán upp á 35 milljónir
króna til að brúa þetta bil. Allt
þetta kjörtímabil hefur meirihlut-
inn setið með hendur i skauti.
Bygging öldrunarhúsnæðis á veg-
um Reykjavíkurborgar er a. m. k.
heilu ári á eftir áætlun. Slíkur er
vesældómur meirihlutans í hús-
næðismálum aldraðra almennt, að
nú bíða 1200 aldraðir eftir úrlausn
á þessu sviði, nánar tiltekið rúm-
Framh. á bls. 23.
N0RRÆN SAMVINNAI VERKl:
20% IÆKKUN Á ELECTR0LUX
BW 200 UPPÞVOTTAVÉLUM!
Kr:26.900f
Vörumarkaðurinn og Electrolux hafa með samvinnu
sinni lækkað allverulega verð á hvítum uppþvottavélum
af gerðinni Electrolux BW 200 - sem kemur per til góða.
Fullkomin uppþvottavél á afsláttarverði, ein hljóðlátasta vélin á
markaðnum - frábær þvottakerfi (með sparnaðarrofa) - öflugar
vatnsdælur sem þvo úr 100 ltr. á mínútu - þrefalt yfirfallsöryggi. -
Ryðfrítt 188 stál í þvottahólfi. - Barnalæsing á nurð. - Rúmar
borðbúnað fyrir 12—14 manns.
Fullkomin Electrolux BW 200 uppþvottavél á tilboðs-
verði sem þú trúir tæpast - og ekkert vit í að hafna.
VÖRUMARKAÐURINN |J| ÁRAAÚLA1A SÍMl 686117