Tíminn - 29.06.1967, Blaðsíða 2

Tíminn - 29.06.1967, Blaðsíða 2
TIMINN FIMMTUDAGUR 29. júnf 1967 Coca-cola verksmiðjan hefur yfir algjörlega sjálfvirkum vélum að ráða, og þessi stúlka, sem sést á myndinni þarf ekki annað að gera en styðja á hnapp og stöðva vélarnar, ef eitthvað fer af laga. íslendingar hafa drukk- ið Coca-cola í 25 ár OÞE-iReykjavík, miSvikudiag. Um þessar mundir er liðinn aldarfjórðungur frá því að Coca-Cola framleiðsla hófst hér á landi, en 1. júní 1942 tók verksmiðjan Vífilfell h.f. til starfa sem emkaframleið- andi þessa heimsfræga svala- drykkjar hér á landi. f tilefni af afmæli þessu boðaði Björn Ólafsson forstjóri blaðamenn á sirm fund í dag, og gerði lítils háttar grein fyrir störfum verk smiðjnnnar, o.fl. Fymsta velasamstæðan, sem verfesmiðjan tók í notkun ár- ið 1942 gat framleitt 12.000 flSsíkiur í diagvinnu, en vélarn- asr, sem nú eru í notkum fram- leiða 58.000 íltöskur í dagvinnu en saimt sem áður hefur verk- smiðjunni enn e'kki fyllilega tekizt að anna eftirspurninni, OocaOola dryk'kurinn hefuir verið framleiddur svo til ó- breyttur frá síðustu aldamót- um, og sagði Björn að þar væri um að ræða aigjört eins- dæmi í gosdrykkjaframleiðslu, sem annars væri mjög mikl- um breytingum háð. Hann ságði, að Coea-Oola væri tví- mælalaust vinsælasti svala- drykkur í heimi, hann væri nú framleiddur í um það bil 124 þjóðlöndum, og dagleg neyzla í öllum heiminum væri um 80 millj. flöskur. Víifilfell h.f. hefur í þjónustu sinni um 60 starfsmenn, þeg- ar allt er talið. Við framleiðsl- una vinna að jafnaði 7 manns á hverri vakt, en þær eru tví- skiptar. Útsölustaðir Coca- Cola hér á landi eru u.íþ.b. 1000 og um allt landið. Vffilfell h.f. hefur frá önd- verðu einungis framleiitt þessa einu vörutegund, og til skamms tíma aðeins í einni flöskustærð. Coca-Cola verk smiðjur víða um heim framleiða fleiri tegundir Coca Cola, svo sem sykurlaust Coca Cola o.fl., en svo sem að fram- an greinir getur , verksmiðjan ekki annað eftirspurninni á þessari einu tegund. Framkvæmdastjórn verk- smiðjunnar skipa þessir menn: Björn Ólatfsson forstjóri, Pét ur Björnsson framkvæmdarstj. og Kristjián G. Kjartansson f ramkvæmdanst j óri. ENN CEFUR BAUER TIL SURTSEYJARRANNSÓKNA ! ES-Reykjavík, miðvikudag. Bandaríski vísindamaðurinn dr. Bpuer, sem kunnur er hér á landl fyrir fjárframlög sín til rannsókna í Surtsey, afhenti Surtseyjarfélaginu 5.000 dali að i móttöku hjá bandaríska sendi- herranum hér á landi síðdegis í dag. Surtseyjarráðstefnunni, sem staðið hetfur hér í Reykjavík síð- an á sunnudag, lauk síðdegis í dag. í morgun skiluðu vinnuh p- í ar skýrslum, og að loknum umræð ! um um þær, sleit Steingrímur Her- mannsson, formaður Surtseyjarfé- lagsins, ráðstefnunni. Kl. 18.00 mættu þátttakendur ásamt nokkr- um fleiri gestum í móttöku í sendi ráði Bandaníkjanna hér á landi, og þar tilkynnti dr. Bauer, að stofnun nans, Bauer Scientific Truist, hefði ákveðið að færa Suritseyjarfélaginu 5.000 dali að gjöf, sem verja skyldi til áfram- haldandi vísindarannsókna í Surtsey. Steingrímur Hermanns- son veitti gjöfinni viðtöku, og MIKIÐ KASTAÐ EN SÍLDIN ER STYGG Hærviðri var á síldármiðunum s.l. sólarhring. Skipin voru á sömu slóðum og undanfarna daga, eða lítið oitt norðar. Veiði var frekar lítil, þótt mikið væri kastað. Mikið fannst af síld, en hún var stygg eins og fyrr og stóð djúpt. Samtals tilkypntu 13 skip um atfla, 2280 lestir. Raufarhöfn Arnar RE Guðm. Péturs. IS lestir. 130 240 Barði N Dagfari ÞH Guðrún Jónsdóttir IS Sigurður Jónsson SU Dalatangi Gullver NS Sigurvon RE Ásgeir RE Ársæll Sigurðsson GK Sæfaxi II NK Ásbjörn RE iGuðbjörg 1S 14 200 290 110 170 250 210 270 150 70 100 90 gat þess, að þar með hetfði dr. Bauer samtals veitt um 26.000 dali til Surtseyjarrannsó'kna, og sýndu þessi framilög hans einstak- an skilning á gildi íslenzkra vís- Framhald á bls. 15. * Aðalfundur Rithöfundafélags Islands Fordæmir vaída- ráaið / Grikklandi Aðalfundur Rithöfundaifélags ís lands hefur nýlega verið haldinn. Formaður félagsins, Thor Vil- hjáknsson, minntist Ragniheiðar Jónsdóttur ritlhöfundar, sem lézt fyrir skömmu. Hún var hinn ágæt asti liðsmaður félagsins og vin- sæl, hún var um sinn fonmaður þess. Fundarmenn risu úr sætum og vottuðu minningu hennar virð- ingu sina. Þá rakti formaður starfið á ár- inu og gerði grein fyrir ýmsum 'helztu miálum sem stjómin hefði afgreitt og kom fram ánægja á fundinum með það. Fundarmenn þökkuðu formanni og óskuðu eft- ir því að hann gegndi áfram þvi staarfi. Var Thor Vilihjálmsson ein nóma endurkjörinn formaður. Hann lýsti ánægju sinni með samstarf innan stjórarinnar og óskaði eftir sömu samstarfsmönn um: vonu þeir síðan einróma end- urkjörnir. Þeir eru þessir: E'lías Mar varafarmaður, Kristmn Reyr gjaldkeri, Þorsteinn frá Hamri ritari, Jón Óskar meðstjórnandi. Endurskoðendur voru endunkjörn ir: Sigríður Einars og Jólhann Kúld. Einar Bragi baðst undan MADAMA COTTON LÁTIN Madama Eugenie Ootton, for- seti Alþ jóð asambands lýðrœðis- sinnaðra kvenna dó í París 16. þ.m. 85 ára gömul. Madama Ootton var eðlisfræð- iingur að mennt, lærisveinn Curie bjóna, sem allur heimurinn þekk- ir íyrir uppgiötvun þeirra á Rad- tum. Fyrri ár ævi sinnar starfaði madama Cotton við háskólann í Paiús, en síðari árin starfaði hún að friðarmálum og réttinda- málum kivenna og barna. Madama Ootton var forseti Aliþjóðasam- bands lýðræðissinnaðra kvenna frá því þau samtök voru stofnuð, árið 1945 til dauðadags, urðu þau samtök undir forystu hennar fjöl- mennustu og öflugustu kvenna- samtJök í neimi. endurkosningu í stjórn Rit- höfundasjóð Rí'kisútvarpsins og var Stefán Hörður kjörinn í hans stajð. Ýmis mál voru rædd á fund- inum. Fundurinn gerði eftirfar- andi ályktun: Aðalfundur Rith'öf- undaifélags íslands harmar valda- rán fasiista í Grikklandi og skor- ar á ríkisstjórn íslands að mót- mæla eindregið á alþjóðavett- vangi því ofbeldi og leggjia eftir megni þeim öflum lið sem vilja tryggja grísku þjóðinni lýðræði og frelsi. Nokkrar umræður urðu vegna Framhald á bls. 15. VISITAZIA BISKUPS Biskup yfir íslandi, herra Sig- urbjörn Einarsson, vfsiterar í sum ar Skagafjarðar- og Húnavatns- prófastsdœmi. Verður vísitazíuTini í aðalatriðum hagað sem bér seg- ir: Mánudaginn 3. júlí: Kl. 2 Ríp- urkirkja, kl. 9 Sauðárkrókskirkja. Þriðjudag 4. júlí: Kl. 2 Reyni- staðakirkja, kl. 5 Glaumbæjar- kirkja. Miðvikudag 5. júlí: Kl. 2 Víði- mýriarkirkja, kl. 5 Reykjakirkja. Fimmtudag 6. júlí: K3. 2 Goð- dalakirkja, kl. 5 Ábæjarkirkja. Föstudag 7. júlí: Kl. 2 Mæli- fellskirkja, kl. 5 Hofstaðakirkja. Laugardag 8. júií: Kl. 11 Bœn- thúsið að Gröf, kl. 2 Hofskirkja, kl. 5 Fellskirkja. Sunnudag 9. júlí: Kl. 1 Hóla- dómkirkja, kl. 5 Viðvílkurkirkja, kl. 9 Hofsósskirkja. Friamhald á bls. 15. FÉLL FYRIR BORÐ OG DRUKKNAÐI Það slys vildi til aðfaranótt þriðjudagsins, þegar Sigurborg frá Siglufirði var á síldveiðum, að ungur piltur, Ævar Hólmgeirsson írá Flatey á Skjálfanda lenti fyr ir borð með nótinni, og drukkn- aði. Myndin var tekin, er dr. Bauer afhenti Surtseyjarfélaginu 5.000 dali að gjöf í bandaríska sendiráð- inu í gær. Á myndinni eru talið frá vinstri: dr. Bauer, Rolvaag sendiherra Bandaríkjanna á fslandi, og Steingrímur Ilermannsson formaður Surtseyjarfélagsins. Tímamynd:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.