Alþýðublaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 15
Laugardagur 17. janúar 1987 15 Þegar ég var að skrifa þessar línur á nýársdag hafði ég les- ið nokkrar áramóta- greinar og viðtöl við vísa menn um af- rakstur af starfi þjóð- arinnar á síðasta ári og framtíðarhorfur. Vafalaust var þar margt viturlega sagt, og orðin „hagvöxtur“ og „aukning þjóðar- tekna“ oft nefnd, enda afrakstur verka hinna vinnandi handa aldrei meiri í sögu þjóðarinnar en á síð- asta ári. En fræðingarnir, sem búa til formúlurnar, höfðu ekki mörg orð um það hvernig þjóðarauðurinn hefði komist til skila til þeirra, sem starfa í undirstöðuatvinnugreinun- um, til einstakra þjóðfélagshópa, eins og aldraðra, fatlaðra, skuld- ugra húsbyggjenda og því síður var minnst á skiptingu fjármagnsins í réttlátu hlutfalli á milli einstakra landshluta. Ekkert var minnst á byggðaröskun, aðförina að velferð- arkerfinu eða hverjir hefðu hirt ágóðann af þrældómi fjöldans. Mér varð hugsað til þeirrar stað- reyndar, að á okkar tímum snýst stjórnmálabaráttan á alþjóðavísu um þrjá megin valkosti; alræði kommúnismans, auðhyggjuna, sem stundum er kölluð óheft markaðs- hyggja og á síðari árum nýfrjáls- hyggja, og um stefnu lýðræðisjafn- aðarmanna. íslendingar hafa hafn- að kommúnismanum. Aðeins nokkrar eftirlegukindur hreyfa kenningum hans af og til, en tala fyrir daufum eyrum. Hins vegar hefur nýfrjálshyggjan náð að festa rætur, og áhrif hennar hafa þegar haft alvarlegar afleiðingar. Þjóðfélag réttlœtis og jafnaðar í áramótaleiðara í Alþýðublað- inu sagði ég m.a.: „Síðasti dagur ársins 1986 er runninn upp. Við ára- mót hvarflar hugurinn til atburða ársins, sem er að líða, og margir velta þeirra spurningu fyrir sér hvað nýtt ár ber í skauti sér fyrir einstak- linginn og þjóðarheildina. Þrátt fyrir ýmsa agnúa á þróunarbraut hvers manns og hverrar þjóðar, hlýtur óskin um velfarnað og gott gengi að yfirgnæfa minninguna um það, sem miður hefur farið. Árið, sem nú er að líða, hefur að mörgu leyti verið merkilegt í sögu íslensku þjóðarinnar. Sjaldan eða aldrei á síðustu áratugum hefur efnalegt misrétti orðið eins auðsætt og á þessu ári. Velferðarkerfið hef- ur átt mjög undir högg að sækja, og þrátt fyrir mesta góðæri og mestu þjóðartekjur í sögunni, hefur hall- að undan fæti hjá hinum efna- minni, en auðurinn hrannast upp í hirslum fjármagnseigenda. Þegar þessar staðreyndir blasa við, hljóta margir að nema staðar og svipast um eftir ástæðum mis- Nýtt landsstjórnarafl gegn nýfrjálshyggju, efnalegri stéttaskiptingu og misrétti réttisins, einkum þeir, sem hörðum höndum vinna að sköpun þjóðar- auðsins. En ástæðurnar eru ekki augljósar; það hefur tekist að dylja þær að verulegu leyti. Það fer þó ekki á milli mála, að meginástæðan er áhrif hins óhefta markaðskerfis, nýfrjálshyggjunnar, sem byggir völd sín á gamalgrónu kerfi, er fjár- magnseigendum hefur tekist að móta á undanförnum áratugum" Aðstöðurmunurinn Þá sagði ég í leiðaranum: „Þetta kerfi birtist meðal annars í stór- felldum skattsvikum og aðstæðum til að koma undan umtalsverðum fjármunum. Það kemur fram í sam- ansúrruðu valdi og einokun ýmissa rekstrareininga, sem lifa sjálfstæðu lífi utan laga og siðferðislegs réttar. Það kemur fram í stórfelldum að- stöðumun einstaklinganna og heilla landshluta til að fá notið þjónustu og fjármagns. Það kemur fram í óeðlilegri fyrirgreiðslu til þeirra, sem æskilegir eru í hugum ríkjandi valdamanna á hverjum tíma. Allt þetta misrétti sker í augu, þegar litið er til þróunarmála á ár- inu 1986. Kannski svíður þó sárast undan því misrétti, sem aldraðir eru beittir í þessu landi; kynslóðin, sem kom fótunum undir íslenskt nú- tímasamfélag. Þessu fólki hefur þjóðin brugðist og þakkar því ævi- starfið með hangandi hendi skiln- ingsleysisins. Það fer ekkert á milli mála, að mikilvægasta óskin um þessi ára- mót er sú, að á næsta ári verði tekið til höndum við að jafna kjör þjóð- félagsþegnanna, umbylta úreltu og óréttlátu skattakerfi, taka upp markvissari efnahagsstjórn og færa hinum vinnandi manni réttlátan hlut af hinni margfrægu þjóðar- köku. Þessi markmið eru hafin yfir allt argaþras hins daglega lífs. íslendingum er það einnig lífs- nauðsynlegt, að stefnt verði að því að skapa mannlegra samfélag, draga úr vinnuþrælkun, huga betur að umhverfismálum og að þess verði gætt, að sóknin eftir auknum hagvexti verði ekki á kostnað hinn- ar eiginlegu lífshamingju, sam- hjálpar og jafnréttis. Nýtt gildismat ryður sér til rúms, en í því er fólgin krafan um samstöðu, frið og sátt manns við mann og manns við nátt- úruna og umhverfi sitt. Til að þessar áramótaóskir megi rætast þarf þjóðin að styðja nýtt landsstjórnarafl, sem byggir á grundvallarkenningunni um frelsi, jafnrétti og bræðralagí* Hamingjuleitin í áramótagreinunum bar lítið á hugleiðingum um hamingjuna. Enginn minntist á þá umdeildu skoðanakönnun, sem sagði okkur, að íslendingar væru hamingjusam- asta þjóð veraldar. Ólafur Ólafs- son, landlæknir, gerði þó mann- ræktina að umræðuefni í áramóta- grein, þegar hann spyr: „Hefur mannræktin gleymst?“ Hann segir, að ýmislegt bendi til þess, að í heilsufarsbyltingunni, sem beinist að manneldi og líkamsrækt, hafi mannrækt að einhverju leyti gleymst. Síðan segir hann: „Nefna má eft- irfarandi: Vinnustreita hefur nær tvöfaldast meðal karla og kvenna í Reykjavík á aldrinum 30 til 50 ára. Mest ber á vinnustreitu meðál þeirra er ekki vinna líkamlega vinnu. Tíðni háþrýstings virðist fara hækkandi. Margir telja streitu einn megin orsakavald þessa sjúk- dóms. Streituvaldur er m.a. gífur- legt vinnuálag, sem fylgir baráttu ungs fólks við að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Nýtískulegar vinnu- aðferðir, svo sem tölvuvinnsla og hagræðing, virðast auka á streit- una. Lífsstíllinn er harður og krefj- andi. Til hvers er þá öll hagræðing- in? Leita verður ráða til úrbóta" í þessum orðum landlæknis kem- ur það skýrt fram, að vinnuálagið hefur ekki aðeins í för með sér and- lega togstreitu og erfiðleika, heldur eykur það á líkamlega sjúkdóma. Menn geta spurt hvað verði um hamingjuleitina við slíkar aðstæð- ur. Vegna lágra launa er stór hluti þjóðarinnar knúinn át'ram og verð- ur að vinna myrkranna á milli til að skrimta. Heimilislífið og stundum andlegt jafnvægi fer úr skorðum. Er ekki eitthvað mikið að, þegar svona er komið hjá þjóð, sem eykur hagvöxt á milli ára meira en flestar aðrar þjóðir Vestur-Evrópu? Er auðnum ekki ranglega deilt, þegar mestu þjóðartekjur í sögunni hvorki lina vinnuþrældóminn né bæta greiðslu- og kaupgetu í sam- ræmi við aukningu þjóðartekna? Og hverjir hirða þá arðinn af öllum þrældómnum? — Er ekki kominn tími til að efla landsstjórnarafl, sem hefur þá meginstefnu að stuðla að jöfnuði og réttlátri tekjuskiptingu og breyta hinni efnalegu tekjuskipt- ingu til hagsbóta fyrir vinnandi fólk? Svari hver fyrir sig. Norðurland eystra Norðurland eystra er eitt þeirra kjördæma landsins, sem hefur orð- ið illa úti vegna þeirrar stefnu mis- skiptingar og misréttis, sem hefur kristallast vegna áhrifa afturhalds- afla í núverandi stjórnarflokkum. Ég þarf í engu að lýsa afleiðingun- um. Umtalsverð byggðaröskun vofir yfir kjördæminu, ef ekki verður gripið í taumana. Ég hef áður lýst því í þessu blaði hvernig hin svokall- aða byggðastefna hefur gjörsam- Iega brugðist og snúist upp í stjórn- lausa fyrirgreiðslupólitík, sem aftur hefur ýtt til hliðar og að engu gert skynsamlega áætlanagerð og upp- byggingu. Sú upplausn, sem nú ríkir í ís- Ienskum landbúnaði, snertir þetta kjördæmi harkalega. Menn skyldu nú minnast viðvarana Alþýðu- flokksins um tveggja áratuga skeið. En um orðinn hlut þýðir ekki að fást. Það hlýtur að verða eitt megin- verkefni næstu ríkisstjórnar að taka á landbúnaðarvandanum á raunsærri hátt en gert hefur verið nú. Þar þarf að stokka upp sölu- og markaðsmála og tryggja að bænd- ur sjálfir hafi eitthvað um eigin mál að segja í stað hinna alvöldu emb- ættismanna suður í Reykjavík. Þá verða væntanlegir þingmenn kjördæmisins að hafa forgöngu um skipulega atvinnuuppbyggingu, berjast fyrir meira sjálfstæði og fjármálalegu valdi Sveitarfélag- anna. — Það er ekki bara að mann- afli hafi sogast suður á Stór- Reykjavíkursvæðið, það hefur fjár- magnið einnig gert. — Það er grundvallaratriði, að hin pólitíska fyrirgreiðsla verði stöðvuð. Hún lít- ur engum skynsamlegum lögmál- um, hún hefur þegar valdið miklu tjóni, enda skipulagslaust fálm, sem byggir á greiðasemi við „góða flokksmenn" án nokkurs tillits til hagsmuna heildarinnar. Atvinnu- og mannlíf í Norður- landi eystra á mikla vaxtarmögu- leika, ef skynsamlega er á málum haldið. Nú ríður á að móta nýja stefnu og skilgreina forgangsverk- efni. — í fyrsta lagi verður að stöðva sogkraft útþenslumaskín- unnar á höfuðborgarsvæðinu, sem dregur til sín alltof margt hæfileika- fólk af yngri kynslóðinni. í öðru lagi, að tryggja það að takmarkað fjármagn úr sameiginlegum sjóði landsmanna, sem kjördæminu er skammtað, fari í það að Ijúka ein- stökum verkefnum, en því ekki dreift út og suður í fálmkenndum tilraunum til að gera öllum einhver skil. í þriðja lagi, að gera skipurit af fyrirsjáanlegri þróun byggðar og miða allar áætlanir um uppbygg- ingu við það. í fjórða lagi, að gera sameiginlegt átak til að afla fjár- muna til nýrra atvinnugreina. Þar þurfa öll sveitarfélög kjördæmisins að standa saman. í fimmta lagi, að stöðva óeðlilegan flutning á fjár- magni úr kjördæminu og efla sjálf- stæði þeirra peningastofnana, sem þar starfa. Um þessi atriði þurfa þingmenn kjördæmisins að eiga samstarf og hætta um leið pólitískri fjármálafyrirgreiðslu, sem hefur stórlega veikt varnarmátt kjör- dæmisins gegn ytri áföllum. Nytt landsstjórnarafl Það er von og trú jafnaðar- manna, að í næstu kosningum tak- ist að móta nýtt landsstjórnarafl, sem hefur það að meginmarkmiði að útrýma efnalegri stéttaskipt- ingu, misrétti gagnvart einstakling- um, einstökum hópum og heilum landshlutum. Það er orðið verulega tímabært að slíkt landsstjórnarafl fái að taka til höndum, hreinsa til og auka jöfnuð. Stjórnmálaflokkar, sem í baráttu sinni, taka ekki mið og berjast ekki fyrir hinu eiginlega réttlæti, hinum sanna jöfnuði og rétti hvers manns til sómasamlegs lífs, taka heldur ekki afstöðu til þróunar eða hnign- unar, lífs eða dauða, stríðs eða frið- ar. Slíkir flokkar hafa ekkert annað að bjóða en baráttu fyrir sérhags- munum tiltekinna þjóðfélagshópa, tiltekinna þjóða eða fara að boði hagfræðikenninga, er virða af- komu heildarinnar einskis. Jafnaðarmenn hafa ávallt barist gegn slíkum stjórnmálaflokkum, og munu halda þeirri baráttu áfram. Skilningurinn á stefnu þeirra fer nú vaxandi, sérstaklega meðal yngri kynslóðarinnar, sem hefur tileinkað sér nýtt gildismat þar sem samvinna, félagshyggja og jöfnuður er í fyrirrúmi. Þeirra er framtíðin og með aðstoð þeirra eldri er unnt að gera framtíðarhorf- urnar bjartari. Að því skal stefnt. Gleðilegt og farsælt ár. (Þessi grein var upphaflega skrifuð fyrir Alþýðumanninn á Akureyri) Japönsk tœkni og islensk fegurð. Bíllinn stendur ísýningarsal Heklu við Laugaveg og er í réttri 7/10 stœrð af fyrsta fjöldaframleidda bílnum í Japan. Daman er alislenskur starfskraftur Heklu og upplýsti okkur um, að alltaf vœri eitthvað spennandi og nýtt að sjá í sýningarsölunum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.