Alþýðublaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 2
2 Laugardagur 17. janúar 1987 alþýöu- Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: (91) 681866, 681976 Útgefandi: Blað hf. Ritsljóri: Árni Gunnarsson (ábm.) Blaðamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján Þor- valdsson og Jón Danielsson Iramkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Kva Guðmundsdóltir Setning og umbrot Alprent hf„ Ármúla 38 Prentun: Blaðaprent hf.. Siðumúla 12 Áskriftarsíminn er 681866 PÓIAR HE CH R1 DE Einholti 6, s. 18401,105 Reykjavík. TREYSTU CHLORIDE •OKKAR REYNSLA ER ÞIN TRYGGING nokkrum llnum I kosninga- stefnuskrám. Þessi skoðun er hárrétt. ís- lensk menningarpólitík er engin til, nema sú, sem lista- mennirnir sjálfir móta með störfum sínum, sem oft eru lít- ils metin. Engar tilraunir hafa verið gerðar af opinberri hálfu til að skapa einhverja menn- ingarstefnu, t.d. með framlög- um til listsköpunar og nauð- synlegrar mannvirkjagerðar. Að vísu geta stjórnvöld aldrei úrskurðað um lista- og menn- ingarstefnur, hvað sé rétt og hvað sé rangt, eins og tiðkast I alræðisríkjum, en þau geta átt sinn þátt í því, að gera jarð- veg frjósaman svo gróskumik- ið listalíf og menning geti úr honum sprottið. Þaðerklókt hjálistamönnum að vekja athygli á þessu stefnuleysi nú rétt fyrir kosn- ingar. Það gæti orðið stjórn- málaflokkunum hvati til að skilgreina stefnu sína í menn- ingarmálum betur en þeir hafa gert, og gera lýðum Ijóst að hvaða marki þeir vilja stefna. En þrátt fyrir stefnuleysi stjórnvalda í menningarmál- um, ermeð ólíkindum hve mik- il gróska er í menningarlifi hér álandi. Um þettabervitni mik- il bókaútgáfa, öflug leikstarf- semi, reksturóperu og sinfón- luhljómsveitar og aragrúi hvers konar listsýninga. Allur almenningur styður vel við bakiðáallri þessari listsköpun með góðri aðsókn að listvið- burðum. En það er ekki nóg. Listamenn og list þeirra lifir ekki á loftinu og þjóðin lifir ekki án menningar. Sumum er þó tamt að gera lítið úr menn- ingarstarfi, en þeir kæmust fljótlega að þvi, að án menn- ingar yrði lífið litlaust og snautt og þjóðarsálinni hætta búin af annarlegum áhrifum. Ríkulegt menningarstarf er forsenda þess, að lífið verði annað og meira en bleksvartur þrældómurog tilf inningalaust strit. Og maðurinn lifir ekki af brauðinu einu saman. Oflugur stuðningur við menningarlif þjóðarinnar er mikil nauðsyn. Menn getur greint á um listir og ágæti þeirra.en þaðerhafiðyfirallan ágreining, að lifandi og kjarn- mikið listalif er undirstaða þeirrar menningar, sem sköp- uð er á hverjum tima. Frelsi til listsköpunar er ekki minna virði en frelsi til tjáningar um hin beinhörðu gildi í lýðræðis- þjóðfélagi. Listin kemur hvar- vetna inn í hversdagslífið og hún getur haft afgerandi áhrif á umhverfið og daglega líðan, andleg störf og lífshamingju. Það kostar peninga að ástunda listirog menningarlíf, en það er góð fjárfesting og skilar sér margfaldlega. V æntanlega taka stjórnmála- flokkarnir menninguna I sátt fyrir næstu kosningar og gera henni betri skil úr valdastól- um. RITSTJÓRNARGREIN Menningarpólitík Fyrirnokkru varumræðuþátt- ur í ríkissjónvarpinu, þar sem forystumenn listamanna ræddu útlit og horfur í menn- ingarmálum hér á landi á ný- byrjuðu ári. Allirvoru þeirsam- mála um það, að hér væri ekki fyrirhendi nein opinberstefna í menningarmálum og að stjórnmálaflokkarnir sinntu þessum málaflokki ekki, nema rétt fyrir kosningar, og þá meö Ókeypis þjónusta Við yfirförum rafgeymi bifreiðarinnar þér að kosfnaðarlausu og bendum á hvað betur má fara. Áratuga reynsla Pólar hf. hefur 35 ára reynslu í sölu rafgeyma og þjónustu við bifreiðaeigendur. Okkar reynsla er þín trygging. Chloride Ultra Start rafgeymar Vökvalausu rafgeymarnir frá Chloride heita Ultra Start. Þeir hafa reynst sérstaklega vel við íslenskar aðstæður og eru sannkallaðir þrumuræsar á köldum vetrardögum. Chloride rafgeymar Chloride verksmiðjurnar hafa löngum verið í fararbroddi framleiðenda á rafgeymum. Chloride rafgeymar hafa sérstakt kaldræsiþol og þola ótrúlega vel mikið álag. Inniaðstaða fyrir alla b/la Nú getum við tekið síóra jafnt sem litla bíla í hús, til viðhalds og endurnýjunar á rafgeymum þeirra Opið alla virka daga frá kl. 8:00 - 18:00 Laugardaga frá kl. 9:00 -12:00

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.