Alþýðublaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 17.01.1987, Blaðsíða 16
16 Laugardagur 17. janúar 1987 Þjóðleikh úsið: r Hallæristenór, I smá- sjá og Aurasálin — sýningar 16. —18. janúar Hallæristenór Gamanleikurinn HALLÆRIS- TENÓR (Lend me a tenor) eftir bandaríska leikskáldið og lögfræð- inginn KEN LUDWIG verður frumsýndur á stóra sviði Þjóðleik- hússins á laugardagskvöld kl. 20.00. Leikurinn var frumfluttur í Bandaríkjunum í ágúst 1985, frum- sýndur í London í mars 1986 og hef- ur verið einn vinsælasti gamanleik- urinn á fjölunum þar síðan. Nú er Hallæristenórinn leikinn víðsvegar, en Þjóðleikhúsið er fyrst leikhúsa á Norðurlöndum til að frumsýna þennan bráðfyndna gamanleik. BENEDIKT ÁRNASON leik- stýrir Hallæristenórnum, þýðandi er FLOSI ÓLAFSSON, leikmynd- arhönnuður KARL ASPELUND, æfingastjóri tónlistar AGNES LÖVE og ljósahönnuður SVEINN BENEDIKTSSON. Leikurinn gerist á hótelsvítu í Ohiofylki í Bandaríkjunum fyrir hálfri öld, þar sem ítalskur hetju- tenór á að syngja hlutverk Othello á hátíðarsýningu Clevelandóperunn- ar. En þessi kvenholli og duttlunga- fulli tenórsöngvari veldur óperu- stjórninni ótrúlegustu erfiðleikum fyrir sýninguna. Þó tekst að bjarga sýningunni á ævintýralegan hátt, ekki síst fyrir tilstilli allsherjar- reddarans Max, sem býr yfir leynd- um hæfileikum. Átta leikarar eru í eldlínunni i þessum ágæta gamanleik: ÖRN ÁRNASON — Max, aðstoðarmað- ur Saunders. TINNA GUNN- LAUGSDÓTTIR — Maggie, kær- asta Max. ERLINGUR GÍSLA- SON — Saunders, faðir Maggiar, aðalforstjóri Cleveland óperunnar. AÐALSTEINN BERGDAL — Tito Merelli, heimstenór, þekktur af aðdáendum undir nafninu 11 Bíánó. HELGA JÓNSDÓTTIR- —Maria, eiginkona Titos. ÁRNI TRYGGVASON—Frank, vikapilt- ur á hótelinu. LILJA ÞÓRIS- DÓTTIR—Díana, sópran. HER- DÍS ÞORVALDSDÓTTIR—Julia, formaður óperuráðsins. Fyrstu sýningar á HALLÆR- ISTENÓRNUM verða á laugardag, þriðjudag og fimmtudag kl. 20.00. í SMÁSJÁ Á Iaugardags- og sunnudags- kvöld kl. 20.30 verður Ieikritið I SMÁSJÁ eftir Þórunni Sigurðar- dóttur sýnt á Litla sviðinu, sem opnað var að Lindargötu 7 um ára- mótin. ARNAR JÓNSSON, KRISTÍN ANNA ARNGRÍMS- DÓTTIR, SIGURÐUR SKÚLA- SON og RAGNHEIÐUR STEIN- DÓRSDÓTTIR flytja þetta magn- aða verk. læikurinn fjallar um tvenn hjón og eru þrjár persónurnar læknar. Yfirlæknir og vísindamaður er að öðlast alþjóðlega viðurkenningu fyrir störf sín, er vágestur knýr að dyrum konu hans. Glímt er um til- finningar, starfsmetnað og hvernig við bregðumst hvert á sinn hátt við lífsháskanum. Þetta er nærgöngult verk um nútímafólk á örlaga- stundu. Leikstjóri var ÞÓRHALU UR SIGURÐSSON, Ieikmyndar- hönnuður GERLA, ljósahönnuður BJÖRN BERGSTEINN GUÐ- MUNDSSON og höfundur tónlist- ar og leikhljóða ÁRNI HARÐAR- SON. AURASÁLIN Hinn sígildi gamanleikur Moliere um aurasálina Harpagon virðist ekki síður eiga erindi til íslendingá í dag en Frakka fyrir 300 árum, því leikurinn hefur fengið frábærar móttökur og verið uppselt á allar sýningar til þessa. BESSI BJARNASON fer á kostum í hlut- verki aurasálarinnar og af öðrum leikurum má nefna Pálma Gests- son, Lilju Guðrúnu Þorvaldsdótt- ur, Jóhann Sigurðarson, Guðlaug Maríu Bjarnadóttur, Sigríði Þor- valdsdóttur, Randver Þorláksson og Sigurð Sigurjónsson. Leikstjóri var Sveinn Einarsson. Sýningar á AURASÁLINNI eru á sunnudagskvöld og miðvikudags- kvöld kl. 20.00. Alþjóöleg bænavika: Ef einhver er í Kristi... Samstarfsnefnd kristinna trúfé- laga á íslandi stendur að undirbún- ingi Alþjóðlegu bænavikunnar hér á landi. Bænavikan ber að þessu sinni yfirskriftina: „Ef einhver er í Kristi, er hann skapaður á nýí‘ Þessi orð eru úr II. Korintubréfi 5,17— 6,4a, en sá kafli er lagður til grund- vallar að bænum kristinna manna um víða veröld um einingu og sam- hug. í þessari viku er lögð áhersla á, að kristnir söfnuðir heimsæki hverjir aðra og taki þátt í guðsþjónustum hver annars þessa viku. í Reykjavík hefst bænavikan sunnudaginn 18. janúar með messu í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Sam- komur verða síðan kl. 20.30 mið- vikudaginn 21. jan. í Kristskirkju í Landakoti, fimmtudaginn 22. jan. í Hjálpræðishernum, föstudaginn 23. jan. í Aðventkirkjunni, laugar- daginn 24. jan. í Fíladelfíu. Bæna- vikunni lýkur með messu í Bústaða- kirkju sunnudaginn 25. jan. kl. 14.00. Á Akureyri hefst bænavikan með messu sunnudaginn 18. jan. í Akur- eyrarkirkju kl. 14.00. Samkomur verða síðan kl. 20.30 á þriðjudags- kvöld 20. jan. í Hjálpræðishernum, miðvikudagskvöld 21. jan. í Kaþólsku kirkjunni og fimmtu- dagskvöld 22. jan. í Hvítasunnu- kirkjunni. Bænavikunni á Akureyri lýkur með messu í Glerárskóla sunnudaginn 25. jan. kl. 14.00. Árshátíð Alþýðuflokksins í Hafnarfirði veröur17.janúarfSkútunni kl.20. Húsiðopnað kl. 19. Heiðursgesturverður Rannveig Guðmundsdóttir. Omar Ragnarsson skemmtir. Miðapantanir í símum 651515 og 51115. Nýtt Alþýöuflokksfélag stofnaö: Alþýðuflokksfélag Kjaíarneshrepps Síðastliðinn mánudag, 12. janú- ar, var stofnað Alþýðuflokksfélag Kjalnesinga, en í Kjalarneshreppi hefur ekki áður verið starfandi flokksfélag, heldur hafa íbúar þar átt þess kost að starfa í Alþýðu- flokksfclagi Mosfellssveitar og Kjósarsýslu. Tuttugu manns mættu á fundinn og fóru þar fram gagnleg- ar umræður um störf og stefnu Al- þýðuflokksins og þau mál er varða hreppsbúa sérstaklega. Kjartan Jóhannsson alþingis- maður setti fundinn með ávarpi þar sem hann rakti nokkur atriði varð- andi stjórnmálaviðhorfin og óskaði Kjalnesingum til hamingju með fé- lagsstofnunina, sem hann sagði fullviss að yrði bæði Kjalnesingum og Alþýðufíokknum til góðs. Olaf- ur H. Einarsson formaður Alþýðu- flokksfélagsins í Mosfellssveit stýrði fundinum en Hulda Ragnars- dóttir var kosin fundarritari. í stjórn félagsins voru kjörin Björn Björnsson, Hulda Ragnars- dóttir og Óskar Harry Jónsson og í varastjórn Hallgrímur Árnason og Margrét Jónsdóttir. Endurskoð- endur voru kosnir Haukur Ragn- arsson og Snorri Hauksson. í lok fundarins þakkaði Björn Björnsson fyrir hönd nýkjörinnar stjórnar það traust sem þeim hefði verið sýnt og sagði að þær umræð- ur og skoðanaskipti sem þegar hefðu farið fram á þessum fundi sönnuðu að rétt hefði verið að efna til stofnunar flokksfélagsins og fé- lagið mundi gagnast vel áhugafólki um jafnaðarstefnuna í hreppnum. Björn Björnsson Alþýðuflokksfélagi Kjalarneshrepps: Búum við átthagafjötra „Við erum fyrst að koma upp á yfirborðið núna sem félag og vitum þess vegna ekki hverjir koma til með að fylgja okkur að málum, en það verður bara að koma í Ijós. Eg er viss um að það verður hart slegist í komandi alþingiskosning- um. Við eigum þátttakanda á fram- boðslistanum á Reykjanesi, Huldu Ragnarsdóttur“, sagði Björn Björnsson í samtali við blaðið. „Það hefur staðið til síðan í september að stofna þetta félag. Hér hafa einungis verið fram að þessu hreppsmálafélög, nema hvað Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft hér félag, en hann hefur leynt og ljóst reynt að láta líta út eins og þetta sé allt saman flokksbrot úr Sjálfstæðisflokknum. Með þessari flokksstofnun ættu línur hins vegar að verða skýrari. í hreppnum eru, þegar allir eru taldir 380 manns, en kosningabærir munu vera um 210. Þetta er rétt að fara í gang svo að við höfum ekki heyrt mikið hvernig þetta hefur mælst fyrir, nema hvað þeir voru ánægðir sem mættu á stofnfundinn. Þau mál sem brenna heitast á okkur hér eru samgöngumál og skólamál. Við höfum reyndar mal- bikaðan veg alveg hingað upp eftir, en með samgöngumálum þá á ég við almenningssamgöngur. Við er- um 25 eða 30 km frá Reykjavík og það verða að vera tveir bílar á hverju heimili ef vel á að vera, því að almenningsbílar eru engir. Börn og gamalmenni eiga ekki upp á pall- borðið í þessari sveit, því þau kom- ast hvorki fram né aftur. Hér er eng- inn strætisvagn. Ef menn eiga ekki einkabíl þá komast menn hvorki eitt né neitt. Fólk er átthagabundið. Þetta stendur þó til örlítilla bóta. Skólamálið er aftur á móti vont mál, eins og það er í dag. Eftir að hafa jagast í fjárveitingarapparat- inu í nokkur ár, þá fáum við núna tvær milljónir til þess að hefja skólabyggingu. Það gæti dugað fyrir teikningunni og þó veit ég það ekki. Þessi fjárveiting var hugsuð fyrir grunnskóla. í dag eru bekkjardeildir upp í 7. bekk. Börnin sem eru í 8. og 9. bekk eru aftur á móti keyrð héðan niður í Mosfellssveit, en sveitarsjóður Kjalarnesshrepps á hlut í grunn- skólanum þar. En við hyggjumst að sjálfsögðu flytja þessar tvær bekkj- ardeildir hingað uppeftir eins fljótt og auðið er“, sagði Björn Björns- son, einn af stofnendum nýs Al- þýðuflokksfélags í Kjalarnes- hreppi. IAUSAR STÖÐUR HJÁ _____REYKJAVÍKURBORG Starfsmenn óskast til sumarafleysinga á Slökkvistöó- ina í Reykjavik á sumri komandi. Umsækjendurskulu veraáaldrinum 20—28áraog hafa meirapróf til aksturs. lönmenntun eða sambærileg menntun æskileg. Umsóknareyðublöö fást á skrifstofu Slökkvistöðvar- innar. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 1. mars n.k. Nán- ari upplýsingar veitir Tryggvi Ólafsson skrifstofustjóri.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.