Alþýðublaðið - 22.12.1987, Qupperneq 4
4
Þriðjudagur 22. desember 1987
FRÉTTIR
Samningaviðrœður VMSÍ og VSÍ:
ÞAD ÞARF I ANNAN HEIM
til að mœta kröfum launþegahreyfingarinnar, segir Þórarinn V Þórarinsson,
framkvœmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands.
Að sögn framkvæmda-
stjóra Vinnuveitendasam-
bands íslands, Þórarins V.
Þórarinssonar er þaö ekki
raunhæft að einhver hreyfing
komist á samningaviðræður
VMSÍ og VSÍ nú fyrir áramót.
„Það þarf að fara í einhvern
annan heim heldur en heim
raunveruleikans til að mæta
þeim griðarlegu óskum sem
launþegahreyfingin setur
fram“ sagði Þórarinn.
í samtali við Alþýöublaðið í
gær sagði Þórarinn V. Þórar-
insson að VSÍ hefði ekki lagt
fram neinar formlegar tillögur
í samningaviðræðum VMSI
og VSÍ. Sagði Þórarinn það
ennfremur ekki raunhæft aó
einhver hreyfing yrði á þess-
um málum nú fyrir áramót.
„Við áttum lausar kaffibolla-
viöræður við ákveðna for-
ystumenn Verkamannasam-
bandsins sem leiddu til þess
að menn sþurðu sig þeirrar
spurningar hvort það væri
efni til þess að setjast niður.
Niðurstaða Verkamannasam-
bandsins varð sú að það
væru engar forsendur til
þess," sagði Þórarinn. Sagði
hann ennfremur að þeir f
Vinnuveitendasambandinu
hefðu ekki nýverið fundið þá
sjóði sem gerðu það mögu-
legt að mæta þeim gríðar-
legu óskum er launþega-
hreyfingin setur fram.
Skemmtistaður í húsa-
kynnum Nýja bíós:
STEFNT AÐ
OPNUN Á
GAMLÁRS-
KVÖLD
Stefnt er að þvi aö opna
nýjan skemmtistað á gaml-
árskvöld í húsnæði Nýja Bíós
i Reykjavík. „Ég vona aö
þetta geti orðið 700 manna
staður,“ sagði Vilhjálmur
Svan Jóhannsson, aðaleig-
andi staðarins, í samtali við
Alþýðublaðið í gær.
Að sögn Vilhjálms verður
unnið af fullum krafti fram á
síöasta dag við að innrétta.
Enn sem komið er hefur litlu
verið raskað í húsakynnum
biósins, en á verkstæðum er
verið að smíða innréttingarn-
ar sem að líkindum verða
settar upp á milli jóla og ný-
árs.
Vilhjálmur Svan vildi ekki
tjá sig frekar um staðinn og
sagði að það yrði bara að
koma í Ijós hvernig hann liti
út og til hverra hann höfðaði.
Guðmundur í. Guðmundsson.
GUÐMUNDUR í.
GUÐMUNDSSDN
LÁTINN
Guðmundur í. Guðmunds-
son, fyrrverandi ráðherra og
sendiherra, lést á heimili
sinu aðfaranótt laugardags.
Guðmundur var 78 ára að
aldri. Hann hafði átt við van-
heilsu að striða siðustu
vikur.
Guðmundur var fyrst kjör-
inn á Alþingi árið 1942 fyrir
Alþýðuflokkinn og sat þartil
ársins 1965. Hann var utan-
ríkisráðherra 1956 til 1959 og
jafnframt fjármálaráðherra frá
1958 til ’59. Utanríkisráðherra
var hann síðan frá 1959 til ’65
er hann var skipaður sendi-
herra.
Eftirlifandi eiginkona Guð-
mundar er Rósa Ingólfsdóttir.
Þau eignuðust fimm syni og
eru fjórir þeirra á lífi.
Jólasveinn, að amerískri fyrirmynd, tekur við jólagjafaóskum frá börnunum sem koma í Kringiuna.
A-mynd/Róbert
Góða veðrið:
MENGUN EINN ORSAKAVALDUR?
Páll Bergþórsson veður-
fræðingur segir að árið í ár
verði með hlýjustu árum i
u.þ.b. 140 ár. Hann segir að
nú sé mildara veðurskeið og
að á undanförnum árum hafi
hlýnað á norðurhveli og „við
höfum átt þetta inni“. Einnig
mun kolsýru- og freom meng-
un í loftinu eiga þarna hluta
að máli.
Veðrið verður fólki sífellt
meiri ráðgáta og samræður
um veðrið heyrast svo til alls-
staðar, enda fólk ekki vant
því að milt vorveður sé um
jólin. Alþýðublaðið hafði
samband við Pál Bergþórs-
son veðurfræðing og innti
hann eftir skýringum á
þessu.
Sagði hann að langt mál
væri að skýra þetta og í raun
væri lítil skýring sem hægt
væri að gefa. Þetta væri
fjórða árið í röð sem væri
töluvert mildara en árin þar á
undan. Á árunum 80—83 hafi
verið mjög hlýtt á norðurhveli
jarðar en á sama tima kalt
hér. „Þannig að það má segja
að viö höfum átt þetta inni“.
Líkur séu á að nú séum við á
mildara skeiði.
Þetta sé hins vegar ekkert
einsdæmi, því að á árunum
1933 og 1945 hafi nóvember
og desember verið hlýrri en
líklegt sé að verði nú. Nú sé
hiti þó með því mesta sem
verði á þessum árstíma. Árið
í ár verði með þeim hlýjustu
frá því mælingar hófust í
Stykkishólmi árið 1845.
Skýringuna á því að á með-
an mildir vetur hafi verið hér
á landi hafi fólk verið að
frjósa í hel sunnar í Evrópu,
segir hann vera að oft sé öf-
ugt veður í Skandinavíu og
Evrópu en hér. Er það vegna
þess að á norðurhveli sé al-
mennt ríkjandi vestanátt og
þegar þær sveiflur sem verði
á henni valdi sunnanátt hér,
séu líkur á að norðanátt ríki
2—3000 km. austar og vestar.
— Hvað með áhrif meng-
unar á veðrið?
„Það er hugsanlegt að auk-
in kolsýra í loftinu og reyndar
ýmiss konar mengun önnur
sem henni fylgir eigi þátt i
þvi að siðustu 50—70 ár hafi
verið töluvert hlýrri en þau á
undan“. Þetta væri ekki sann-
að, en líkur væru þó til þess
að tengja mætti þetta sam-
an. Fleiri áhrifaríkir þættir
kæmu þó einnig til og eiga
mætti von á köldum árum
inn á milli.
Nefndi hann einnig freon
sem kemur úr hárlakksbrús-
um og slíku, sem eyðist ekki
í andrúmsloftinu og eyðilegg-
ur ósonlagið. Veldur það kæl-
ingu uppi, en hitun niðri við
jörð.
Kolsýran í andrúmsloftinu
skapaði svokölluð „gróður-
húsaáhrif” sem felst í því áð
sólargeislar komast inn f
gegn, en hitageislar frá jörðu
komast ekki út og endurkast-
ast til baka.
Klapparstígur 1 og Laugavegur 148:
ÁTTA AÐILAR VILJA
KAUPA LÓÐIRNAR
Átta aðilar hafa sýnt áhuga
á að kaupa lóðirnar Kiappar-
stig 1 (Völundarlóö) og
Laugaveg 148 (Timburverslun
Árna Jónssonar). Ekki hefur
fengist uppgefið hverjir það
séu sem vilja kaupa.
Að sögn Hjörleifs Kvaran
framkvæmdastjóra lögfræði-
og stjórnsýsludeildar Reykja-
víkurborgar var óskað eftir
því að þeir sem áhuga hefðu
á að kaupa umræddar lóðir
sendu inn skrifleg svör fyrir
18.,des.
Átta aðilar sýndu lóðunum
áhuga og er farið að ræða við
þá. Taldi Hjörleifur að við-
ræðum verði lokið fyrir ára-
mót. Ekki vildi hann gef a upp
hverjir það eru sem áhuga
hafa á að byggja á þessum
lóðum.