Alþýðublaðið - 12.03.1988, Side 2

Alþýðublaðið - 12.03.1988, Side 2
2 Laugardagur 12. mars 1988 LÍTILRÆÐI Flosi ólafsson skrifar AF HAGNÝTU MINNISLEYSI Bragakaffi, þad hressir — en ekki uppá minnið (Kaffitíðindi) Þaö er alltaf frekar óþægilegt þegar veriö er aö fara ofaní saumana á umsvifum at- hafnamanna, sérstaklegaef feimnismál eru dregin fram í dagsljósiö, innanhússmál sem maður kærir sig ekkert um aö veröa vitni aö frekar en ástarleikjum í heimahúsum. Oft eru góðir og grandvarir menn settir í sviðsljósiðog látnirsvarafyrirhvaö þeirhafi nú verið aö basla og sýsla síóustu mánuði, ár og jafnvel áratugi. Þessi hnýsni almennings, fréttamanna og jafnvel dómstóla væri óbærileg ef skap- ari himins og jaröar heföi ekki búiö svo um hnútana aö athafnamenn sem ná árangri hafa einn höfuðkost. Þeir veröa alveg ótrúlega gleymnir þegar á þarf aö halda. Ekki veit ég af hverju mér dettur þetta í hug þessadagana, eða kannske erég búinn aö gleyma því. Eg er nefnilega alveg ofboöslega gleym- inn. Mér lífsins ómögulegt aö muna hvaö hann heitir hagfræðingurinn......hagfræö- ingurinn sem skrifaði bókina........bókina hérna...hvað hét hún nú aftur..... „Practical Amnesia in Buissness".....(Hagnýtt minnis- leysi í viðskiptum)...hann kom hérna í haust....muniði....alveg þrælgóöur. Talaöi um þaö í sjónvarpiö sem máli skiptir í rekstri fyrirtækja..æ hvaö hét hann nú aftur..... Hann var einmitt meö kenninguna um aö menn ættu aö aðlaga sig breyttum kringumstæöum. Þaö væri númer eitt. Halda ekki áfram að strögla í gamla farinu þegar greiöfærari leiöir væru um allar trissur. Þetta hlýtur aö koma..... þaö var ekki Maison Rouge, ekki Hannes Hólmsteinn, Parkison né Bjarni Bragi. Og þaö var áreió- anlega ekki Hayek eöa Friedman og ekki var þaö Adam Smith, því hann er löngu dauð- ur.....Ég kem þessu bara ekki fyrir mig. Hvaö um þaó, ég man ekki alveg hvaö maðurinn hét...ég held hann hafi veriö....nei annars ég man þaö ekki..ég man að ég hitti hann, þó getur þaö verið misminni og ég man ekki hvaö okkur fór á milii. Ef hann heldur einhverju sérstöku fram í þeim efn- um misminnir hann áreiöanlega....o.s.frv.... Þetta er að vera gleyminn og svona gleyminn er ég og alveg í rusli útaf því Þaö er lítiö gaman aö vera dálkahöfundur og munaekki nokkurn skapaöan hlut. Bara öllu stolið úr manni. Og þetta verður allt þeim mun undarlegra þegar hugsaö er til þess að til eru mætir menn og ærukærir sem telja minnisleysiö ekki bara höfuðkost, heldur líka lífsnauðsyn. Þetta eru oftar en hitt menn sem hafa völd, mannaforráð og mikiö umleikis. Ég held aö þaö sé kennt í Samvinnuskól- anum — þó man ég það ekki alveg fyrir víst — að góöur stjórnandi þurfi aö vera: Djarfur, hagsýnn og gleyminn. Og þaö er hárrétt einsog dæmin sanna. Ef íslensk verslunar og viöskiptasaga væri til ófölsuð kæmi það raunar í Ijós aö úr jarðvegi minnisleysisins hafa sprottið mörg ótrúlegablómleg fyrirtæki, eðaeins og mál- tækiö segir: — Gleymska um stund gefur gull í mund. Æöi oft kemur þaó fyrir, þegar mikil við- skiptaumsvif eru dregin fram í dagsljósið, aö þá missa aðstandendur, einn eóa fleiri minnið, stundum í vikur, stundum í mánuöi og venjulega þartil búiö er aö koma málum á þurrt. Menn fara bara í „blackout“ einsog þaö var kallaó áður en maöur varó þorstaheftur, hrista sig svo, eins og þeir séu aö standa uppúrfylleríi og muna þáflest annaö en þaö sem máli skiptir. Stundum missa menn minniö þegar pen- ingar týnast, stundum þegar peningar finn- ast, stundum þegar peningar finnast ekki, eöa týnast ekki. Margur stálminnugur og ærukær at- hafnamaðurinn hefur, í gegnum tíðina, oröið gersamlega minnislaus þegar bók- hald, olía, kaffi eöa peningar hafa veriö á dagskrá annaðhvort í fjölmiðlum eöa fyrir dómstólum. Stálminnugir menn hafa jafnvel orðið minnislausirútaf samningum um launakjör. Óminnishegrinn þrumir samt ekki yfir þessu ágæta fólki, nema rétt á meðan veriö er aö rannsaka hvort launin hafi nú verið einsog um var samiö, eöa einhverjar til- færslur á fiski, kaffi, olíu nú eöa peningum, sem betur fer. Þegar svo allt er um garö gengið halda allir áfram aö vera fínir menn, jafnvel ennþá fínni en áður. Sjúkdómurinn er meira aö segja talinn heldrimannakvilli, einsog „podagra11 (þvag- sýrugigt) og heitir á latínu „amnesia temporalis" (tímabundið minnisleysi). Hverjir hafa, gegnum tíðina veriö haldnir þessum ósköpum, á viðkvæmum augna- blikum, er úr mér stolið. Ef til vill man ís- lenska þjóöin þaö. En mér er ekki nokkur leið aö muna hverja minnisleysið hrjáir mest þessa dagana. Þar meö er þaó orðin gæfa mín, hvaö ég ergleyminn, því ef ég færi aö rifja þetta upp, yröi Alþýðublaðið gert upptækt, ég rekinn og settur í fangelsi fyrir þaó aö muna þaó sem, lögum samkvæmt á aö vera „gleymt og grafið". Dæmin sanna aö þaó getur veriö vissara aö gleyma jafnvel því sem maður man, svo blettur falli ekki á þá sem til hagsældar og blessunarfyrirblómleg fyrirtæki og þjóöina alla verða aö gleyma því sem óráðlegt er aö muna í augnablikinu. Minnumst þess sem stendur í Filipíbréf- inu 3. kapítula 14.-15. versi: — Eitt gjöri eg, eg gleymi því sem ad baki er, en seilist eftir því sem fyrir framan er og keppi þannig að markinu, til verðlaunanna. Þetta hugarfar skulum vér allir hafa, sem fullkomnir erum. Bon Giomo - við erum byrjuð að œfa ítölskuna, fyrir áœtlunarflugið til Mílanó.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.