Alþýðublaðið - 12.03.1988, Qupperneq 9
Laugardagur 12. mars 1988
9
argengi, aö þau fylgi í kjölfar-
iö.“
— Áttu viö aö fólk treysti
ekki Alþýðuflokknum núna
þegar hann segist vera að
byggja upp velferðarkerfið?
„Alþýöuflokkurinn hefur
alltaf veriö ábyrgur flokkur í
mínum huga, og þaö lýsir
ábyrgð aö vilja ná niður fjár-
lagahalla og moka flórinn á
skemmri tíma en talinn var
nauösynlegur eftir kosning-
arnar í fyrra. Gleymdu ekki aö
fyrir kosningar viðurkenndu
stjórnarliðar ekki aö þaö væri
neinn flór. Þetta hefur Al-
þýöuflokkurinn talið nauö-
synlegt til aó hleypa góöu
málunum aö.
Alþýöuflokkurinn getur þvi
miöur ekkert treyst þvi aö
góöu málin komist að þó aö
skorið sé niður í eigin ráöu-
neytum meðan nauösynlegar
hreinsanir eiga sér staö í
efnahagskerfinu. Látlausar
yfirlýsingar ráöherra og lítil
samstaöa meöal ríkisstjórn-
arflokkanna bendir alls ekki
til þess aö Alþýðuflokkurinn
fái svigrúm til aö hrinda sum-
um málum fram.“
Hallalaus fjárlög strax
of stór biti
— Gaf Alþýðuflokkurinn
Ég kom úr eld-
húsinu með þann
metnað að
standa mig jafn-
fætis öðrum
eftir þegar hnífnum var beitt
um daginn og skorið niður í
ráðuneytunum?
„í fyrsta lagi vil ég segja
þaö aö í upphafi setti rikis-
stjórnin þau markmið aö
skila hallalausum fjárlögum á
tveimur til þremur árum. Þaö
var skynsamlegt. Síðan var
ákveöiö aö skila hallalausum
fjárlögum þegar á fyrsta ári.
Mín skoðun er að þarna hafi
verið tekinn of stór biti i
einu, vegna þess aö þaö varö
að gera svo margar óvinsæl-
ar aðgerðir að ég er ekki viss
um aö það hafi verið þess
virði. Þaö er ekki gefið aö Al-
þýöuflokkurinn fái aö upp-
skera afraksturinn."
— Ertu þá bitur út í stjórn-
arsamsstarfið vegna þess að
Alþýðuflokkurinn hafi orðið
að fórna miklu?
„Ég er ekki bitur, en mér
finnst vafasamt að beita
hnífnum svona kröftuglega á
málefni Alþýöuflokksins eins
og gert var núna. Og annað
er aö ákvörðunin um að frum-
varp um verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga tæki gildi á
þessu ári var tekin án þess
aö frumvarpið fengi nægilega
kynningu og umfjöllun meöal
sveitarstjórna á suðvestur
horninu. Ég er t.d. ekki sátt
við að heimilishjálp skuli fal-
in sveitarstjórnunum einum,
því aö ríkið sparar stórfé í
rekstri stofnana ef fólk getur
verið sem lengst heima hjá
sér. Þess vegna á kostnaður-
inn aö mínu viti ekki að lenda
á sveitarfélögunum einum,
því aö þá er hætt vió að ekki
verði lagðir nægir peningar í
heimajDjónustu vegna þess
að sveitarfélög skortir stöö-
ugt fjármagn. Öflug heima-
þjónusta fyrir aldraða í litlu
sveitarfélagi getur veriö því
um megn en kostar e.t.v. ekki
hærri upphæö en sem svarar
kostnaöi viö eitt vistunar-
pláss á sjúkrastofnun. Ég
fékk ekki aö láta þetta álit í
Ijós, og ég tel aö fólk hér á
mestu þéttbýlissvæðunum
heföi viljaó fá meiri umræöu
um verkaskiptingarfrumvarp-
iö. Síðan gerist þaö aö sveit-
arfélög ganga frá fjárhags-
áætlunum eftir aö fjárlög rík-
isins voru samþykkt. Þau
gera ráö fyrir framlagi úr
Jöfnunarsjóöi sveitarfélaga
og gera jafnvel ráö fyrir því
aö uppgjör fari fram um
kostnaðarliði sem ríki og
sveitarfélög eiga aö standa
saman aö en sveitarfélög
hafa fjármagnað ein. Þegar
sveitarfélögin hafa lokió sínu
verki er allt í einu kippt í
spotta og hætt við verka-
skiptinguna og afturkallað
framlagiö sem átti aö koma
sérstaklega úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga. Maöur er mjög
ósáttur viö svona vinnubrögð
og þaö aö lang mest er skor-
iö niður í félagsmálaráðu-
neytinu eöa á fjóröa hundrað
milljóna í sveitarstjórnar- og
húsnæðismálum, og þar aö
auki í andstööu viö félags-
málaráöherrann.“
Auðvitaö er verið að
krukka í velferðina
— Félagsmálaráöherra
hefur sagt aö Alþýöuflokkur-
inn hafi ööru hlutverki aö
gegna í ríkisstjórn en að
moka flórinn...
„Alþýðuflokksmenn hafa
sagt aö undirstaöa velferöar-
kerfisins veröi aö vera traust
og þess vegna veröi aö koma
ýmsu á réttan kjöl fyrst.“
— Er ekki veriö aö klípa i
velferðina meö aögeröunum
núna?
„Auðvitað er verið aö
krukka í velferðina, þegar
svona stór upphæö er sótt i
eitt ráðuneyti, en það er rétt
stefna aö borga skuldir áður
en ráöist er í ný verkefni. Þaö
er ætlast til aö ríkið lifi ekki
um efni fram fremur en heim-
ilin í landinu og allt gott og
blessaó um þaö. En eins og
menn tala í þessari rfkis-
stjórn, tel ég aö Alþýðuflokk-
urinn veröi að koma sínum
málum aö jafnhliða efna-
hagsaðgeröunum. Eins og ég
hef sagt er engin trygging
fyrir því aö flokkurinn fái aö
glíma við góðu jafnaðarmál-
in, þegar búiö er koma fjár-
málum í lag — ætli verói þá
ekki einhver stokkinn frá
boröi?,,
Árangur í sveitarstjórn
skilar sér strax
„Sveitarstjórnarmálin eru
svo nærri manni og smærri í
sniðum en flest mál hjá rík-
inu — en jafnframt mjög
mikilvæg. Þú sérö líka árang-
ur af verkum þínum mjög
fljótt. Viö hér í Kópavogi höf-
um haft tækifæri til þess aö
setja mikinn félagsmálasvip
á bæinn. Við höfum sett fjöl-
skylduna i fremstu víglínu,
þó aó viö fylgjum „höröu“
málunum eftir. Viö höfum
lagt mikið undir í byggingar-
málum grunnskóla, dagheim-
ilaog íþróttamannvirkja. Okk-
ur finnst þaö slæmt að ekki
skuli hægt aö standa viö gef-
in loforð um aö Ijúka við
sundlaugarbyggingu í haust.
í Kópavogi búa fimmtán þús-
una í notkun á siöasta hausti
samkvæmt samningi."
— Gengur ekkert aö hafa
áhrif á fjármálaráðherra og
formann fjárveitinganefndar?
„Mörgum fannst aö dreif-
býlissjónarmið endurspegl-
uðust mjög í síöustu fjárlög-
um, og margir voru þess
vegna óánægðir í mesta þétt-
býlinu."
— Hafa sveitarfélög á suð-
vesturhorninu ekki drýgri
tekjustofna en sveitarfélög
úti á landi?
„Reykjavíkurborg hefur
náttúrlega algjöra sérstööu.
Tekjur hennar eru miklu
hærri en sveitarfélaga í
kring.“
Þarna hefur mitt hjarta
slegið
— Þú ert formaður i Hús-
næðismálastjórn með öðru.
Er hægt að sinna öllum
þessum störfum meö heim-
ili?
„Ég kom úr eldhúsinu meö
þann metnaö aö standa mig
jafnfætis öörum. Þaö er lög-
mál þessara starfa aö þau
hlaða utan á sig og þaö bitn-
ar vafalaust á öðru. En ég hef
lagt alúö á þaö sem ég tek
mér fyrir hendur og þaó er
siöan annarra aö metá hvern-
ig til tekst.“
ALÞYÐUBIAÐ HÖPAVOGS ,.,(i
________________________aii
Konur viö stjórnvölinn!
Konur hafa haslað sér völl í bæjarpólitíkinni í Kópavogi. Forseti bæjar-
stjórnar og formaöur bæjarráðs eru konur og þær halda viða um
taumana.
und manns en aðstaða til
skólasunds hefur veriö alls
ófullnægjandi. Það er svolitiö
biturt aö ríkiö skuli aöeins
leggja 5 þúsund krónur á
þessu ári í þetta mannvirki
sem er meðal annars ætlaó
aö tryggja aö grunnskólalög-
um sé betur fylgt en áöur.“
— Þiö hafiö verið í sam-
starfi við vinstri fiokka und-
anfarin ár í bæjarstjórninni i
Kópavogi. Hvernig hefur
gengiö?
„Eg fullyröi aö þær áhersl-
ur sem hafa verið lagðar á
undaförnum árum hafa breytt
þessu bæjarfélagi mjög, og
fólk í Kópavogi hefurveriö
ánægt meö þær áherslur.
Þaö er hins vegar erfitt aö
fullnægja á öllum sviöum.
Bærinn kallar líka á sérstök
verkefni eins og þau aö viö
þurfum aö endurbyggja allt
gatnakerfiö í gamla bænum.
Eitt af því sem viö höfum
sótt mjög fast að fá er bygg-
ing framhaldsskóla. Viö tók-
um ákvöröum um aó vera
ekki í samkeppni við aöra
fjölbrautaskóla en einbeita
okkur aö matvælaiðju sér-
staklega, sem ekki hefur ver-
iö sinnt í skólakerfinu. Því
miöur fæst ekkert fjármagn
frá ríkinu til framhaldsskól-
ans í Kópavogi, þó að átt
hefði aö taka nýju bygging-
— Þú segist hafa komið úr
eldhúsinu. Hefuröu getaö
unnið eins og þú hefur viljað
eöa hefurðu oröiö aö venja
þig að „karlastarfi“ utan
heimilisins?
„Ég sagöi stundum fyrstu
árin mín í bæjarstjórn að mér
fyndist ég ekki bara vera sem
einstaklingur í bæjarstjórn,
heldur væri ég á vissan hátt
meö kvennabaráttuna á herö-
unum. Karlmaóurinn þarf
bara að standa fyrir sínu, en
flestum konum finnst aö
standi þær sig ekki veröi þaö
notað að konur séu ekki jafn
góöar og karlar. Konan er
borin saman við karlinn en
karlinn viö sjálfan sig.
— Er jafnaðarstefnan þér í
blóö borin?
„Ég ólst náttúrlega upp á
ísafirði. Bara þaö segir sína
sögu. Þaö var kratabær, en
ég kem ekki frá pólitísku
heimili. Pólitikin haföi þegar
á unglingsárum samt sterk
áhrif á mann, svo að ég er
ekki i vafa um aö á ísafirði
lagöist grunnurinn aö mínum
lífsviöhorfum. Jafnaöarstefn-
an fer saman við sterka þjóö-
félagslega réttlætiskennd, og
þarna hefur mitt hjarta slegið
frá öndveröu," segir Rann-
veig i lokin og bætir við: „Ég
J á hvergi annars staðar
I beima."