Alþýðublaðið - 31.03.1988, Side 6

Alþýðublaðið - 31.03.1988, Side 6
6 Fimmtudagur 31. mars 1988 að kristin kirkja eigi að vera nokkurs konar innkaupa- stofnun, heldur að vera trú sjálfri sér og túlka boðskap- inn á máli sem er skiljanlegt samtíðinni og raunhæft. Kirkjan þarf ekki að breyta boðskap sínum til að þókn- ast fólki á einhvern innkaupa- lista.“ Maríu Magdalenu að ganga að gröfinni og sjá að hann er risinn upp. Þarna er mér gef- in stór von. Ég held að fólk sé almennt tilbúið að hlusta á þennan boðskaþ. En þá komum við aftur að því sem Sigurður var að segja: Höfum við túlkað þennan boðskap þannig að fólk skilji hann?“ Sigurður: „Ef kirkjan „þOþpar sig upp“ er hún endanlega búin að bíða skip- brot. þegarvið tölum um að kirkjan þurfi að túlka boð- skaþinn svo að fólk skilji, erum við að tala um að fólk skynji boðskapinn og segi með sjálfu sér: Þetta er mín reynsla, þetta er ég. Þetta er túlkað til dýptar þannig að fólk finnur sjálft sig í boð- skapnum." — Vill fólk hlusta á boð- skapinn nema hann sé i auð- meltanlegu formi líkt og fjöl- rniðlar láta núna? Hanna María: „Ég held það. Líf er andstæða dauð- ans, þjáningarinnar. Þess vegna held ég t.d. að páska- boðskapurinn sé mjög skilj- anlegur þeim sem vilja heyra og það þarf ekkert að færa hann í einfaldan búning. Boð- skaþurinn um lífið á ekki síst erindi í dag til fólks, sem tal- ar um að það hafi ekki tíma eða orku til að lifa og sinna því djúpa sem fólk kallar lífs- gildi. Fólk hrópar á meira til að styrkja sig og gefa sér kraft til að stoppa sig af. Mér finnst páskaboðskapurinn vera í þeim dúr að hann hvetji mann til að staldra við. Ég upþlifi sjálf svo sterkt þennan atburð þegar Maria Magdalena kemur hinn fyrsta páskamorgun að gröfinni, þegar sólin var að rísa. Þessi kona sem var forsmáð af samfélaginu. Ég hlakka til páskanna vegna þess að ég uþplifi svo sterkt reynslu Hver er ég? Sigurður: „Við erum alltaf tilbúin að hlusta á boðskap um nýtt líf og að vissu leyti eru pólitískar hreyfingar að því. Kvenfrelsið er dæmi þar um. Hins vegar geta félags- legar eða pólitískar hreyfing- ar aldrei komið i stað hinnar kirkjulegu trúar eins og boð- skapur páskanna hljóðar, því að þær svara aldrei hinum hinstu spurningum. Og það er á þvi sem félagslegar eða pólitískar hreyfingar steyta á steini. Þær ná aldrei að svara þvi hver er ég, til hvers er ég, og hvers má ég vænta?" — Hvers vegna geta þær ekki svarað þessum grund- vallarspurningum? Siguröur: „Hér komum við inn á hina trúarlegu vídd. Kvennalistar geta ekki meira en fleytt kerlingar á vatninu. Þær ná ekki að kafa djúpt vegna þess að þær skortir hina kirkjulegu vídd til að svara spurningum. Það sem kirkjuna vantar í dag er að koma til móts við þessar spurningar og svara þeim á raunhæfan hátt.“ Allt líf er hráefni Sigurður: „Það getur eng- inn maður lifað hamingju- sömu lífi endanlega nema hafa trúarlega túlkun. Sú túlkun er með vissu í þjóðar- hefðinni, sem við þurfum að túlka á nýjan hátt.“ Við þurfum að efla þjóðmenn- inguna en vera um leið framúrstefnuleg Hanna María: „Við megun heldur ekki gleyma því að unga fólkið í dag upplifir Kirkjan á að vera trú sjálfri ser og máli túlka boðskapinn er samtíðinni a sem skiljanlegt og raunhæft virkilega átök milli lífs og dauða. Spurning er hvemig geta krakkarnir sagt frá sinni tilveru, og hvernig get ég orð- að minar tilfinningar þannig að við náum saman.“ Sigurður: „Allt líf er hráefni og lífshamingja einstaklings felst í úrlausninni sem efni- viðurinn kallar á. í fortíð voru sömu átök sem unglingurinn upplifir í dag, en það er spurning um þann ramma sem við gjörum, svo að hin félagslegu og tilfinningalegu boð komist til skila. Við þurf- um að efla þjóðmenninguna en vera um leið framúrstefnu- leg. Það þýðir ekkert að vera konservatlfur. Við verðum alltaf að vera með augun á framtíðinni. Hvað getum við gert?“ Hanna Maria: „Þetta er dæmigerð kristin lífsskoð- un.“ Stimpilstofnun í kringum stóratburði Hanna Maria: „Það má ekki líta neikvæðum augum á þjóðmenninguna. Hverein- staklingur er mótaður af sinni fortíð, ekki bara af upp- eldinu heldur líka af öldun- um, þannig að við tökum allt- af fortíðina inn í framtíðina." — Er hlutverk kirkjunnar aö færa vonina um líf jafn mikilvægt í dag og það var áður? Hanna María: „Það hefur aldrei verið jafn veigamikið og nú.“ Sigurður: „Ég held að fólk sé að trúvæðast mjög í dag. Menn finna að hin plástíska menning dugar ekki sálinni. Þó að alls konar skoðanir séu uppi taka menn á trúar- legan hátt á málum. Þegar við vorum að alast upp var „trúarlíf" vinstri stefna. Trúar- líf fer vaxandi, en það er spurning hvort við kirkju- menn og prestar heyrum þá köllun sem kirkjan ætti að fylgja. Ég held að það sé stóra synd kirkjunnar, að henni hættirtil að vera stimpilstofnun í kringum stóratburði lífsins og verða afgreiðslustofnun eins og Póstur og sími. Er kirkjan til- búin að kafa til dýptar og andæfa og vera raunverulega salt í samfélaginu?" Hanna María: „Prestar gegna líka öðru mikilvægu hlutverki sem gleymist þegar kirkjan er gagnrýnd og það er að hún er tengiiiður og vett- vangur þar sem fólk getur náð sarnan." Efla líf Siguröur: „Mér finnst safn- aðarstarf blómstra mjög i þeim söfnuðum sem virki- lega takast á við nútíma sam- félag. Starfið stóreflist víða, sem er ævintýralega spenn- andi, en því miður er það ekki nærri nógu víða. Eg er ekki síst gagnrýninn á starfið I kirkjunni fyrir það að ég hef sjálfur brugóist og ekki verið nógu vakandi gagnvart þeim hræringum sem eru í samfé- laginu. Það er svo auðvelt að falla fyrir því hlutverki sem flestir setja prestinn I og verða þar með stikkfrí. Prest- ar eiga ekki að leyfa fólki að setja sig á stall. Okkar kirkjuhugmynd þarf að breytast mjög róttækt. Presturinn þarf að hverfa sem þessi hefðbundni sókn- arprestur og starfsemi kirkj- unnar þarf að verða meiri grasrótarhreyfing. Presturinn þarf að vera hvati til að fólk komi til starfa og kirkjurnar þurfa að iöa af alls konar lífi. Það þarf að stórefla alla leik- mannastarfsemi. Nú hiilir undir það að söfnuðirnir verði miklu betur stæðir fjár- hagslega og það má ekki verja þeim peningum aðeins steinsteypu, heldur í að efla Iff með þvl m.a. að ráða starfsmenn til kirknanna til að sinnaýmsum málaflokk- um og kirkjurnar þurfa að vera vettvangur þar sem ólík- ar skoðanir geta þrifist, þar sem hægt er að ræða mál sem brennur á fólki.“ í

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.