Alþýðublaðið - 04.06.1988, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 04.06.1988, Qupperneq 4
4 pfcau&araatauraM’il'gés ÍIHIIIIIilflllll Útgefandi: R'art hf Framkvæmdastjóri Hákon Hákonarson Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson Umsjónarmaður helgaríilaðs: Þorlákur Helgason Blaðamenn: Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttir, Ómar Friðriksson, og Sigríður Þrúður Stefánsdóttir. Dreifingarstjóri: Þórdís ÞórisdóttiT Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12. Áskriftarsíminn er 681866. , ‘ Dreifingarsimi um helgar: 18490 Áskriftargjald 700 kr. ámánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virkadaga, 60 kr. um helgar. EKKI N0G AÐ MINNAST SJÓMANNASTÉTTARINNAR EINA STUND Skúla Guðmundssyni atvinnumálaráðherra mæltist svo á sjómannadaginn fyrir 50 árum, er hann var fyrst haldinn hátíðlegur á íslandi: „Það er ekki nóg að minnast sjó- mannastéttarinnar eina stund úr einum degi“. í dag hálfri öld síðar er ástæða til að minnast þessara orða. Það er ekki nóg að flagga í tilefni dagsins. Þjóðin er minnt á hlut sjómannastéttarinnar ár inn og ár út. Afkoma okkar er undirsjávarfangi komin. Verði breytingariaflaeðaámörk- uðum eru samstundis komin boð inn í efnahagskerfið. Að- eins um 5af hundraði allravinnustunda í landinu eru í fisk- veiðum, en af þessum 7 þúsund ársverkum og tíu þúsund- um í fiskvinnslu ræðst velgengni þjóðarinnar. Nú kann einhverjum að þykja þröngur sjóndeildarhringur- inn og tekið undir með einni stétt manna. Þjóðin sé eitt. Verðmætin verði ekki til með einum saman fiskveiðunum og vinnslu afurða. Samstillingu hugar og handa þurfi til um landsbyggð alla og meðal allra þegna. Undir þaó verð- ur tekið en við megum þá ekki gleyma því að eitt skal yfir alla ganga. Óskar Vigfússon formaður Sjómannafélags- ins víkurað þessu í viðtali við Alþýðublaðið í dag. „Þjóðin þarf öll að vera á hlutaskiptum", segir Óskar. Þegar tekjur sjómanna hafa aukist vegna góðs afla og hagstæðs verðs á mörkuðum, hafa allar aðrar stéttir manna talið sig eiga tilkall til stærri bita af þjóðarkökunni. Hins vegar hefur það lögmál ekki gilt þegar illa árar. Þá hafa sjómenn orðið að taka á sig skellinn. Þeir eru eina stétt manna í landinu þar sem afkoman er algjörlega bundin því sem er til skipt- anna. Við hin höfum getað komist upp með að krefjast hærri launa án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því hvort sú krafasé í einhverju samhengi við raunveruleikann. „Við sjómenn höfum ekkert að fela“, segir Óskar Vigfússon. Þegar afli kemur á land getur hver sem er séð hvað er til skiptanna. Hver hlutur háseta verður, bátsmanna, stýri- manns, kokks og skipstjóra. Meira er ekki til skiptanna en verðmætin segjatil um. Það er því skiljanlegt að formaður Sjómannasambandsins telji þjóðinni hollt að hugsa um hlutaskiptin — og ekki bara á sjómannadaginn. Því miður hafa sjómenn gripið til hálfgerðra örþrifaráða til að viðhalda óbreyttu kaupi sínu. Óskar Vigfússon víkur að öryggismálum sjómanna í kjölfar þess að sífellt fækkar í áhöfn áskipum. Með minni mannskap þarf í fleiri horn að líta samtímis fyrir hvern og einn. Það hefur stórlega aukið slysahættu. Það hefur ekki dregið úr slysum á sjó með aukinni tækni og betri aðbúnaði. Undirtektir þær sem slysavarnaskóli sjómanna hefur fengið meðal sjómanna sjálfra er góðs viti, en öryggi sjómanna og þeirra sem vinna áhættusöm störf er mál okkar allra. Ef það er vegna þess að sjómenn eru of fáir um borð sem slysum fjölgar, eins og Óskar Vigfússon fullyrðir, hlýtur það að veraalvar- legur hlutur, sem ekki er hægt að leiða hjá. „Hetjur hafsins" afla þjóðinni vista svo að hún komist af. Þó aó sjómennskunni fylgi ekki lengur sami dýrðarljómi og áður, krefst sjómennskan áræðis og atorku sem fyrr- um. Fiskveiðar verður væntanlega heldur ekki hægt að stundaán þess að sjómaðurinn sé langdvölum fjarri fjöl- skyldu. Kröfurum betramannlíf, meiri þægindi og lífskjör, mætatakmörkum, þegar litiðertil sjómannsfjölskyldunn- ar. Faðirinn fer að miklu leyti á mis við uppeldi barnanna og nýturekki þeirrastundasem eru öllum kærastar, innan um sína nánustu. Við skulum heldur ekki gleyma þessari „mannlegu" hlið sjómennskunnar á sjálfan sjómanna- daginn innan um fagurt tal um djörfung og dug happa- sællar sjómannastéttar. Sjómannadagur í 50 ár Vigdís Finnbogadóttir Forseti íslands heimsótti gesti í dvalarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfiröi í tilefni hátíöahaldanna

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.