Alþýðublaðið - 04.06.1988, Síða 7

Alþýðublaðið - 04.06.1988, Síða 7
Laugardagur 4. júní 1988 7 Óskar Vigfússon íAlþýðublaðsviðtali Þjóðina alla á hlutaskipti Oskar Vigfússon hefur verið formaður SJómannasambands Islands í rúman áratug. „Ég heffengið lífs- reynsluna á áþrcifan- legan hátt í gegnum sjó- mennskuna, lífsreynslu sem allir ganga sem betur fer ekki i gegnum — eins og sjóslys, sem hefur sett mark sitt á mig, “ segir Óskar Vig- fússon, formaður Sjó- mannafélagsins. Oskar bjargaðist við illan leik er vélskipið Edda fórst í Grundar- firði 1953. 9 sjómenn fórust með skipinu en 8 var bjargað. Oskar var einn þeirra. Hann slas- aðist illa á fœti, hlaut varanlegt örkuml. „Það var sjálfgert eft- ir aðgerð, sem ég varð að gangast undir síðar, að ég varð að fara í land, “ segir Oskar. * x 4»! Viðtal : Þorlákur Helgason Maður gleymir því aldrei — Slysið líður þér aldrei úr minni? „Nei maður gleymir því aldrei að horfa á félaga sína deyja gg heyja sjálfur dauða- sfríð. Ég tel ekki að það hafi brennimerkt mig þannig að ég sé neikvæður út í einn eða annan. Sumir hafa kannski látið að því liggja að starf mitt sem formaður í sjó- mannasamtökum og að ég hafi kosið aö berjast fyrir fé- laga mína á sjónum, sé af- leiðing af upplifuninni viö sjóslysið. Svo er ekki, en þetta er kapítuli sem maður hefur lengst af ekki látið neitt uppi um. Að sjálfsögðu er slíkt áfall sálrænt áfall.“ — Þú kærir þig ekki um að tala um slysið? „Nei, ég vil það ekki.“ — Situr það ekki í þér þannig aö þú viljir enn frekar benda á aðstæður þær sem sjómenn búa við? „Ju, sem formaður í sam- bandinu legg ég mikla áherslu á öryggismál sjó- manna. Mér finnst þjóðin sýna því lítinn skilning að það þurfi að leggja meira á sig til að forða slysum á sjó. Slysum hefur fjölgað gífur- lega, sem er furðulegt með bættum aðbúnaði manna og aukinni tækni. Slysatíðni er hæst í sjómennsku af öllum atvinnugreinum og blóðtakan í mannslífum á sjónum er meiri en Bandaríkjamenn máttu þola í Víetnamsstrió- inu. Þessu gleymum við.“ — Hver er ástæða þess að slysum fjölgar? „Sjómenn hafa i gegnum tíðina þurft að berjast hat- rammri baráttu fyrir sinum kjörum, en sú barátta hefur verið skrykkjótt.og menn hafa gripió til ýmissa ráða til að halda uppi tekjum — m.a. með því að fækka mannskap um borð í skipunum. Ég álít að þetta sé það versta sem menn hafi gripiö til, vegna þess að færri um borð þýðir meiri hreyfingu og menn þurfa að beina athyglinni að fleiru en einum hlut á sama tíma. Allt þetta kallar á aukna slysahættu." — Hverjir hafa barist fyrir fækkuninni? „Sjómenn sjálfir, því mið- ur.“ Fór á mis við uppeldi barnanna „Menn fara ekki á sjóinn nema því aðeins að þeir eigi von á góðum tekjum. Það er ekkert sældarbrauð að vera fjarri sinni fjölskyldu dögum og vikum saman ár eftir ár. Ég veit það til daemis með mig sem dæmi. Ég tel mig hafa farið á mis við uppeldi minna barna. Ég var sjómað- ur, kom í land kannski í 24 tíma og út aftur. Ég missti algjörlega af æsku minna barna.“ — Ertu sár að hafa ekki getað notið samvista með börnunum sem skyldi? „Það er erfitt að koma orð- um að því, en enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Manni finnst einhvern veginn að maður hafi misst af ákveðnu timabili ævi- skeiðsins. í dag er ég að upp- lifa þetta með því að um- gangast barnabörnin og fylgj- ast með þeim i uppvextinum. Kannski er það sárabót fyrir það sem ég fór á mis við með mínum börnum. Ósjálfrátt verður manni hugsað til þess hvert þessi þjóð er að fara með því að byggja dagheimili á hverju götuhorni. Ég spyr mig hvar á að ala upp börnin í framtið- inni, hvar er fjölskyldan í þjóðfélaginu?" — Er ekki þörf á dagvist- un vegna þess að allir vinna úti?

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.