Alþýðublaðið - 04.06.1988, Síða 14

Alþýðublaðið - 04.06.1988, Síða 14
14 ' - 4. * i'jy w. I:ajgartrsgar4:farirt988' ÍÞRÓTTIR Umsjón: Þorlákur Helgason Preben Elkjær JanHeintze Michael Laudrup Kim Vilfort PerFrimann John Eriksen John Sivebæk IvanNielsen John Helt SorenBusk S0ren Lerby LarsOlsen Flemming Povlsen Klaus Berggreen Bj0rn Kristensen John Jensen Troels Rasmussen Peter Schmeichel Sepp Piontek JesperOIsen Morten Olsen Danska landsliðið í úrslit Evrópukeppninnar valið: GÖMLU MENNIRNIR ÓMISSANDI „Veröum viö ekki fyrir óhappi og leikmenn leika á toppi, þá veröum viö næstum því eins sterkir og í Evrópu- keppninni 1984 og í heims- meistarakeppninni 1986,“ segir þjálfari danska lands- liðsins, Sepp Piontek. Pion- tek er umdeildur en engum blandast hugur um að danska landsliðið í fótbolta er eitthvert það allra skemmtilegasta í Evrópu í dag, og árangur liðsins und- anfarin ár leyfir fólki að halda að enn geti liðið leikið vel. „Gömlu mennirnir" eins og Preben Elkjær og Michael Laudrup eru ómissandi, og danskir ætlast til þess að þeir leiki sama leikinn og undanfarin ár. Elkjær verður að öllum likindum allra fremst á vellinum og mun hrella markverðina ef að lík- um lætur. Piontek þjálfari segir að hraði ráði miklu um val ein- staklinga i landsliðið. Meiðsli hrjá leikmenn eins og Elkjær og Morten Olsen, en þegar Piontek var spurður að því hvað hann geröi ef lækninum tekst ekki að koma þeim á ról fyrir keppnina, svaraði hann um hæl: „Þá verður að reka lækninn." Jesper Olsen sem leikur með Manchester United kom inn í hópinn á síðasta snún- ingi. Iþróttafréttaritarar í Danmörku hafa gagnrýnt það val og telja Jesper ekkert er- indi eiga, hann komist til að mynda ekki lengur í aðallið United. Piontek sagðist velja Jesper í liðið m.a. vegna þess að hann ætti það til að gera eitthvað óvanalegt á veliinum. Fyrsti leikur Dananna verð- ur gegn Spánverjum 11. júní, en í spænska liðinu eru 8 af 20 leikmönnum frá Real Madrid. Það er næsta vist að ís- iendingar fylgjast með Evrópukeppninni. Bjarni og félagar senda marga leiki beint heim í stofu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.