Alþýðublaðið - 06.08.1988, Síða 12

Alþýðublaðið - 06.08.1988, Síða 12
12 Laugardagur 6. ágúst 1988 eða nýju fötin keisarans? Hljóðsnældur með skilaboðum, sem eyrað nemur ekki, hafa selst grimmt í Bandaríkjunum á undanförn- um árum. Um er að ræða nokkurs konar heilaþvott, sem menn nota annað hvort á sjálfa sig eða fólkið í kringum sig. Sálfræðingar og læknar telja hins vegar ósannað að skilaboðin hafi þau áhrif, sem framleiðendur lofa. Nú er farið að selja þessar umdeildu kassettur hér á landi. Þess vegna velta menn þvi fyrir sér, hvort þetta verður næsta „æðið“, sem grípur þjóðina — nú þegar allir hafa eignast fótanuddtæki, litla ljósálfa, afruglara, útigrill og eyrnalokka sem hjálpa fólki að hætta að reykja. Þráir þú aö draumadísin/prins- inn fái þig á heilann? Þeir fyrir „westan“ telja sig hafa ráð við þvi, eins og mörgu öðru. Þú átt bara að gefa ástinni þinni kassettu með skilaboðum, sem einungis heilinn nemur — ekki eyrað — en slíkar snældur eru nú framleiddar í Bandaríkjunum í tonnatali. Næsta skref er að sjá til þess að viðkomandi spili snælduna daginn út og inn og BINGO: Þá mun sá, sem þú þráir, líka fara að þrá þig. Árangurinn er sagður svo krass- eftir Jóninu Leósdóttur andi, að fórnarlambið líti hreiniega ekki við öðrum upp frá þvi. Eða, eins og segir í einni auglýsingunni: „Hann mun elska þig heitar en áður og vera þér trúr, enda sannfæra hin leynilegu skilaboð hann um að þú sért "glæsilegasta, kynþokkafyllsta og eftirsóknarverðasta kona í heim- inum. Hann mun heldur ekki líta við daöurdrósum, því honum finnst aðrar konur orönar ósköp litlausar og óaðlaðandi.“ Það er ekki ama- legt... Framleiðendur fullyrða einnig, að fólk geti beitt sjálft sig þessum kassettu-brögðum. Með því að láta ógreinanleg skilaboð dynja á heila- búinu á t.d. að vera hægl að hætta að reykja og drekka, minnka streitu, fá aukið sjálfsálit og öryggi, grennast, sofa betur, auka ánægj- una af kynlífi og ótalmargt annað. Neikvæð manneskja — sem á am- erísku myndi kallast „spoilsport" eða gleðispillir — hugsar þá kannski með sér: „Fyrst lausnin á öllum þessum vandamálum er svona einföld, hvers vegna eru þá ekki allir jarðarbúar fyrir löngu orðnir afslappaðir, hamingjusarn- lega giftir, grannir, reyklausir, ódrukknir og fullnægðir?" En út í slíka sálma fara framleiðendur af einhverjum ástæðum ekki. Sálfræðingar og geðlæknar vita hins vegar sitt af hverju um heilann og starfsemi hans og eru alls ekki sannfærðir um að földu skilaboðin á snældunum skili árangri. Það er þó Ijóst og óumdeilanlegt að heil- inn getur numið skilaboðin. Deilan snýst einungis um það hvort skila- boðin nái aö „festa rætur“ í heila- búinu og hafa þar með áhrif á at- ferli þess, sem meðtekur þau. íslenskt póstþjónustufyrirtæki í Garðabæ, Námsljós, hóf nýverið sölu á bandarískum kassettum með földum skilaboðum á ensku. Kosta þær tæpar 2.000 krónur stykkið. Þetta eru allt snældur, sem menn eiga að nota sjálfir. Þeir hjá Náms- Ijósi sögðust telja hæpið að selja þá tegund, sem nota ætti á grunlaust fólk. Lítil reynsla er ennþá komin á móttökurnar, en aðstandendur fyr- irtækisins segjast bjartsýnir á að markaður sé fyrir þessa vöru hér á landi. í stuttu kynningarriti frá Námsljósi segir m.a.: „Undirmeðvitundin getur numið og unnið úr skilaboðum, sem með- vituð skynjun svo sem heyrn og sjón verður ekki vör við — boðin eru neðan marka dagvitundar. Virkni þessarar tækni hefur verið staðfest opinberlega í Bandaríkjun- um með sérstökum lögum, sem banna notkun neðanmarkaboða í auglýsingaskyni.“ Ennfremur segir í bæklingnum: „Rannsóknir sýna, að hljóðleiðslan byrjar að verka strax og farið er að hlusta og að áhrifin eru í beinu hlut- falli við hlustunina. Því meira sem hlustað er, því meiri verða áhrifin. Þegar hljóðleiðslu er beitt til að breyta ávana, sem t.d. hefur staðið svo áratugum skiptir, er ekki nema eðlilegt að það taki nokkurn tíma. Þannig getur þurft að hlusta á við- komandi snældu um nokkurra vikna skeið eigi hún að aðstoða ein- staklinginn við að htetta reykja, grennast eða draga úr ofneyslu áfengis. Rannsóknir hafa m.a. leitt í ljós að gagnstætt við matarkúra þá haldast áhrif hljóðleiðlsu þannig að sá, sem grennist, fitnar ekki jafnóð- um aftur.“ Þetta hljómar sem sagt nógu vel, en það er annað mál hvort fólk trúir þessu. TEIKNING: JÓN ÓSKAR

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.