Alþýðublaðið - 06.08.1988, Side 14

Alþýðublaðið - 06.08.1988, Side 14
14 Laugardagur 6. ágúst 1988 Kjarvalsstaðir VERK EFTIR GUÐLAUG ÞÓR, RUT REBEKKU OG KJARVAL Myndlistafólkiö Guölaugur Þór Asgeirsson og Rut Rebekka Sigurjónsdóttir opna sýningar í vestursal Kjarvalsstaöa laugardaginn 6. ágúst kl. 14.00. Guðlaugur Þór lauk námi viö grafíkdeild Myndlista- og Handíðaskóla l'slands voriö 1981. Hann hefur áður haldiö tvær einkasýningar, þá fyrri í Nýja Galleríinu að Laugavegi 12 áriö 1982, og hina siðari í Gallerí Djúpi 1983. Guölaugur Þór hefur einnig tekiö þátt í nokkrum samsýningum, t.d. sýningunni Ungir Myndlistar- menn sem haldin var aö Kjarvalsstöðum 1983. Flestar myndirnar á sýn- ingu Guðlaugs Þórs eru oliu- og pastelmyndir, sem hann hefur unnið á árunum 1986- 88. Verk eftir Guðlaug Þór Asgeirsson. 3 DYRA HATCHBACK Júníverö kr. 849.000.-* Tilboösverð kr. 749.000.-* TOYOTA Verð án afhendingarkostnaðar RÝMINGARSALA! Til að rýma fyrir árgerðum 1989 verða Corolla GT-i bílarnir seldir á júníverði með 100.000 kr. afslætti. KAUPBÆTIR! Þeir sem koma fyrstir fá kaupbæti því þeir geta valið sér álfelgur að verðmæti 35.000 kr. eða sóllúgu að verðmæti 45.000 kr. TIL AFGREIÐSLU STRAX! Rut Rebekka stundaöi nám í Myndlistarskólanum í Reykjavik og útskrifaðist síö- an frá málaradeild Myndlista- og Handíöaskóla íslands 1982. Hún hefur einnig dvalió í norrænni gistivinnustofu í Danmörku á vegum Nordist Kunstcenter. Rut Rebekka hefur áöur haldið þrjár einka- sýningar, síöast að Kjarvals- stööum 1985. Hún hefureinn- ig tekið þátt í ýmsum sam- sýningum hérlendis, í Dan- mörku, Bandaríkjunum og í Kanada. Rut Rebekka sýnir bæöi olíumálverk og grafik á sýn- ingu sinni. Rut Rebekka Sigurjónsdóttir opn- ar sýningu á verkum sinum á Kjarvalsstöðum um helgina. Sýningar Guölaugs Þórs og Rutar Rebekku standa frá 6.-21. ágúst og eru opnar dag- lega frá kl. 14-21. I vesturforsal veröur opnuö á sama tíma Ijósmyndasýn- ing á myndum eftir sænskan Ijósmyndara, Bengt S. Eriks- son. Bengt S. Eriksson er einn þekktasti Ijósmyndari Svía, og hefur hlotió sérstakt lof fyrir landslagsmyndir sínar. Hann hefur haldiö fjölda einkasýninga á Ijósmyndum sínum, bæói í Svíþjóö og annars staöar, auk þátttöku í samsýningum. Myndir hans hafa birst í þekktum blöðum og tímaritum eins og ZOOM, FOTO og Modern Photo- graphy, og einnig í bókum og sjónvarpsþáttum. Hann hefur fengiö ýmis verðlaun fyrir Ijósmyndir sínar, s..s Agfa- chrome styrkinn og Hassel- blad Masters Award. Bengt S. Eriksson dvaldi hér á islandi viö myndatökur i apríl 1986, og þótt mjög skemmtilegt aó Ijósmynda hér. Á sýningunni eru um 50 litmyndir af norölægum slóö- um, m.a. frá Skandinavíu og íslandi. Sýningin stendur frá 6.-21. ágúst. í austursal Kjarvalsstaöa stendur yfir sumarsýning á landslagsmyndum eftjr Jóhannes S. Kjarval. Á sýn- ingunni er aö finna verk er spanna alla starfsævi Kjarvals, og jafnframt eru á sýningunni skissurog smærri myndir, sem hafa lítið komiö fyrir almenningssjónir. Sýningar á verkum Kjarvals eru ávallt vinsælar og hefur aðsókn veriö góö fram aö þessu. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-22 fram til 21. ágúst. í Austursal Kjarvalsstaða stendur yfir sumarsýning á landslagsmynd- um eftir Jóhannes S. Kjarval.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.