Alþýðublaðið - 13.08.1988, Side 10
10
Laugardagur 13. ágúst 1988
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
skrifar
FA AÐ STUNDA EIGNAR-
LEIGU Á FASTEIGNUM
Eigið fé að lágmarki 8%. Bankaeftirlit
Seðlábankans hafi eftirlit með eignarleig-
unum. Eignarleigurnar eingöngu hlutafélög
og innborgað hlutafé 10 milljónir að lág-
marki. Meirihluti stjórnar hvers fyrirtœkis
verði búsettur á Islandi. Samruni eignar-
leigufyrirtœkja óheimill nema með leyfi
ráðherra.
í tilraun stjórnvalda til aö
hemja „gráa markaöinn" svo-
kallaða hefur mikil vinna ver-
ið lögð i það i viðskiptaráðu-
neytinu á síðustu mánuðum
aö semja frumvarp um fjár-
mögnunarleigufyrirtækin eða
eignarleiguna eins og það er
nú kallað.
Á siðasta ári kom i Ijós að
þetta nýja fyrirbæri á íslensk-
um peningamarkaði hafði
mikið umleikis og námu
leigussmningar á árinu rúm-
lega fjórum milljörðum kr.
Fjögur eignarleigufyrirtæki
höfðu náð fótfestu á síðasta
ári og sexfaidaðist efnahagur
þeirra á árinu m.a. á útgáfu
verðbréfa á innlendum mark-
aöi. Leigusamningar fyrir-
tækjanna jafngiltu um 1,5%
af öllum lánum lánakerfisins
í landinu.
Með aðgerðum viðskipta-
ráðherra á síðasta ári var
gripið i taumana og erlend
lán eignarleiganna tak-
mörkuð viö 70% af verðmæti
leigu- og lánssamninga. Nú á
að koma föstum böndum á
þessa starfsemi og er það
liður í þeim viðfangsefnum
sem unnið er að t tengslum
við efnahagsaðgerðir rikis-
stjórnarinnar.
Er gerð tillaga um að eigið
fé eignarleigufyrirtækja, að
viðbættum víkjandi lánum frá
eignaraðilum, skuli á hverjum
tíma ekki nema lægri fjár-
hæð en sem svarar 8% af
heildarskuldbindingu hvers
og eins.
Tillagan um að eigið fé
eignarleigufyrirtækjanna
svari til 8% af heildarskuld-
bindingum þeirra á hverjum
tíma kann að mæta mót-
spyrnu á fjármálamarkaðn-
um, en þetta mun vera í sam-
ræmi við áform um að setja
lágmarkskröfur um eigið fé
hjá verðbréfafyrirtækjum til
að gæta fyllsta samræmis.
EFTIRLIT
Lagt er til að bankaeftirlit-
inu verði falið eftirlit með
starfsemi eignarleigufyrir-
tækja og.aö eftirlitinu verði
heimilaður aðgangur að
gögnum og upplýsingum
sem það telur sig þurfa á að
halda. Einnig mun vera mælt
fyrir um skyldu eignarleigu-
fyrirtækja til þess að veita
upplýsingar um reksturinn
vegna opinberrar hagsýslu-
gerðar.
Þegar reynt er að setja
bönd á þennan markað verða
menn að líta á starfsemina
alveg frá grunni og skilgreina
hvað hún felur í sér. Mun vera
lagt til í frumvarpinu að eign-
arleiga verði afmörkuð í lög-
gjöfinni frá því sem venjulega
er nefnt „leiga" því þarna
selur leigusali hlut í leigu
gegn umsömdu gjaldi I til-
tekinn lágmarksleigutíma og
skv. sérstökum skilmálum
um eignar- eða afnotaréttinn.
Til eru ýmis form eignarleigu
(eða „leasing" eins og fyrir-
bærið nefnist á ensku) sem
skipta má i fjármögnunar-
leigu og rekstrarleigu. Gera
frumvarpssmiðirnir skýran
greinarmun á þessu tvennu
enda þörf á skýrum skilgrein-
ingum vegna skattareglna því
eðlilegast þykir að skattaleg-
ar byrðar verði lagðar á leigu-
taka fremur en leigusala.
SKYLDUR
Verði frumvarpið að lögum
mun eignarleigufyrirtækjum
aðeins heimilað að stunda
sína starfsemi skv. leyfi við-
skiptaráðherra og eru skilyrði
fyrir veitingu þess a.m.k.
þrenns konar skv. heimildum
Alþýðublaðsins: (1) Fyrirtæk-
ið sé hlutafélag og nemi inn-
borgað hlutafé þess a.m.k. 10
milljónum kr. (2) Meirihluti
stjórnar félagsins sé búsett-
ur hér á landi og (3) fram-
kvæmdastjóri sé búsettur
hérlendis og ríkisborgari á
e.h. Norðurlandanna, fjárráða
og með óflekkað mannorð.
Heimilt verði að stunda
eignarleigu með fasteignir
jafnt og lausafjármuni og er
ekki gert ráð fyrir að undan-
skilja eignarleigustarfsemi
sem kann að verða stunduð
vegna fasteigna en nánari
skilyrði um slíka eignarleigu
verði sett í reglugerð.
Hugmyndir ganga líka út á
að eignarleigufyrirtæki hafi
ekki með höndum aðra starf-
semi en eignarleigu eða ná-
skylda starfsemi i nafni þess
félags sem eignarleigu
stundar. Þá ber eignarleigu-
fyrirtækjum að haga starf-
semi sinni á þann veg að við-
skiptamenn þess njóti jafn-
ræðis um upplýsingar, verð
og önnur viöskiptakjör og eru
einnig I smíðum ákveðnar
reglur um form eignarleigu-
samninga sem ætið þarf þá
að gera skriflega þar sem
lágmarksleigutimi, vaxta-
ákvæði og önnur kjör og svo
réttur til riftunar er m.a.
tíundaður.
VIÐURLÖG
Eins og fyrr segir er sett
ákveðið 8% lágmark á eigið
fé eignarleigufyrirtækja og ef
því verður ekki hlítt tekur
bankaeftirlit Seðlabankans til
sinna ráða. Getur það krafið
endurskoðanda fyrirtækisins
þegar I stað um reiknings-
uppgjör og er ráðherra jafn-
vel heimilt að afturkalla
starfsleyfi eignarleigufyrir-
tækis ef eigið fé er ekki auk-
ið umfram lögboðið lágmark.
Þá er lagt til að samruni
eignarleigufyrirtækja verði
óheimill nema að fengnu
samþykki viðskiptaráðherra.
Eru rökin þau að slíkt kunni
að skerða samkeppnina á
markaðnum þó að í sumum
tilvikum geti hann verið
æskilegur til að leysa alvar-
legan fjárhagsvanda slíkra
fyrirtækja.
Vegna skattareglna hefur
reynst nauðsynlegt að skil-
greina kaupleigu sérstaklega
þannig að Ijóst sé í lögum
hver sé greinarmunurinn á
fjármögnunarleigu og sér-
stakri tegund fjármögnunar-
leigusamninga innan eignar-
leigusamninga. Það verður
hins vegar höfuðverkur al-
þingismanna að ákveða
hvaða skattalega meðferð
mismunandi fjármögnunar-
leigusamningar eiga að fá.'
Meginspurningin er sú hvort
eignarréttur flyst til leigutaka
eða ekki.
Verði eignarleigurnar um-
svifamiklar á fasteignamark-
aðnum gætu spurningar á.
borð við Hver á hvað og
hvenær? orðið flókið úrlausn-
Sjúkrahúsið á Húsavík sf.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Óskast til starfa nú þegar eöa eftir samkomulagi.
Húsavík er 2.500 manna bær meö góöar samgöngur
og þjónustu, aðstööu til íþrótta og útivistar.
í sjúkrahúsinu eru almenn deild, fæöingardeild og
langlegudeild, samtals 62 rúm.
Hringió eða heimsækiö okkur og kannið kjör og
aöbúnað.
Hjúkrunarfors^jóri simi 96—41333