Alþýðublaðið - 13.08.1988, Side 13
Laugardagur 13. ágúst 1988
Sogn í Ölfusi: Á tíu árum hafa innritanirnar verid 4120
„Það er enginn
vandi að afvatna
alkóhólista.
Vandinn er að
fyrirbyggja að
hann fari aftur í
efnið, “ segir Sig-
urður Gunnsteins-
son dagskrár-
stjóri.
X
m
laga okkar erlendis. Það má
því segja að við byggjum á
alþjóðlegri reynslu."
ÁRANGURINN ÞAÐ BESTA
— Hvað er þér efst í huga
eftir 10 ára starf á Sogni?
„Við sjáum árangur. Veru-
legan árangur. Margir koma
inn til okkar á árinu núll, ef
ég má orða það svo. Styrktar-
félag Sogns heldur hér ár-
lega sumarhátíð og þá koma
nýir Sognverjar sem gamlir
og skemmta sér saman eina
helgi. í sumar tókst hátíðin
sérlegavel. Þar sámaðurárang
urinn samankominn í ein-
um samstæöum hópi. tg
gekk bara á milli og naut
þess að horfa á fólk sem
hafði tekið ótrúlegum þroska
og framförum eftir að það
slapp úr fangbrögðum
Bakkusar. Ég sá fjölskyldur
sem höfðu endurnýjast; það
sem áður var brotið var nú
bætt. Þess vegna segi ég:
Mér er efst í huga að sjá
árangurinn. Það er besta við-
urkenningin sem ég og við
sem störfum við SAÁ höfum
fengið."
BYRJADI SEM KOKKUR
Sigurður hefur verið starf-
andi á Sogni næstum því frá
því húsiö var tekið í notkun.
Hann byrjaöi í desembermán-
uði 1978 en húsið hóf starf-
semi sína í ágúst sama ár.
Sigurður, sem sjálfur hefur
farið í meðferð og er óvirkur
alkóhólisti, byrjaði að starfa
á Sogni sem kokkur, en gerð-
ist brátt ráðgjafi og tók siðan
við forstöðustarfi á Sogni
sem hann gegnirenn þann
dag í dag. Hann segir að að-
staðan hafi stórbatnað gegn-
um árin, í fyrstu hafi allt
starfsliðið aðeins haft níu
fermetra herbergi til umráða,
og þar var samankomið vakt-
in, ráðgjöfin og önnur skrif-
stofuaðstaða: „Maðurvar
með höndina í vasanum á
næsta manni, svo þröngt var
í herberginu. En þetta gekk
fyrstu árin. Siðan hefur
starfsaðstaðan stórbatnað. í
dag gengur reksturinn vel,
hann er fjármagnaður af
Tryggingastofnun og frjálsum
framlögum og Styrktarfélag
Sogns hefur styrkt okkur
með gjöfum og framlögum
og vinnu. Styrktarfélagið
heldur tvær hátíðir árlega;
vetrarhátíðina i Reykjavik og
svo sumarhátíðina á Sogni.
Hún tókst sem sagt með
prýði í ár sem ávallt og
kannski enn betur; það voru
samankomnir 1.800 manns
þegar mest var. Það var stór-
kostleg stund, því það að
horfa á árangurinn er svo
spennandi," segir Sigurður
Gunnsteinsson, dagskrár-
stjóri á Sogni.
Alþýðublaðið óskar Sogni
og Sognverjum til hamingju
með afmælið.
STRIK/SÍA