Alþýðublaðið - 13.08.1988, Síða 12
12
Laugardagur 13. ágúst 1988
Eftirmeðferðarstöðin á Sogni 19 ára:
— segir Sigurður Gunnsteinsson dag-
skrárstjóri
„Þetta er fyrsta meðferðar-
stöðin í einkageiranum sem
hefur náð að þróast og verða
að allsherjar endurmeðferðar-
stöö,“ segir Sigurður Gunn-
steinsson, dagskrárstjóri á
Sogni i Ölfusi, við Alþýðu-
blaðið. Sogn — önnur
tveggja eftirmeðferðarstöðva
SÁA — á 10 ára starfsafmæli
á morgun, sunnudaginn 14.
ágúst.
Sogn tekur sem sagt viö
þegar afvötnun alkóhólista
lýkur á Vogi. Afvötnunin tek-
ur yfirleitt um tíu daga og á
Vogi fá alkóhólistar fyrstu
fræðsluna um sjúkdóminn.
Haldi menn áfram í eftirmeð-
ferð liggur leiðin annaöhvort
vestur á Staðarfell í Dala-
sýslu eða austur fyrir fjall að
Sogni í Ölfusi. En hvernig
skyldi þessi staður hafa verið
valinn?
„Fyrsta eftirmeðferðarstöð
SÁÁ var Reykjadalur," segir
Sigurður Gunnsteinsson, „og
skjótt kom að þvi að samtök-
in fóru að svipast um eftir
stærra og hentugra húsnæði
fyrir skjólstæðinga sína. Á
þessum tíma, árið 1978, var
enn mikið um utanlandsferðir
áfengissjúklinga en eins og
menn kannski muna lá loft-
brúin til Bandaríkjanna þar
sem íslenskir alkóhólistar
lögðust svo hundruðum
skipti inn á meðferðarstöðina
Freeport á Long Island. Heil-
brigðisyfirvöld á íslandi
höfðu áhuga á því að flytja
þekkinguna heim og fækka
utanlandsferðum og starfs-
leyfið til okkar var einmitt
veitt á þeim grundvelli. Fljót-
lega eftir að SÁÁ tók til
starfa lögðust ferðirnar til
Freeport alveg af, og I dag er
það nær einsdæmi ef íslend-
ingur fer utan til að fá bót við
áfengis- eða fíkniefnavanda-
málum. Sogn varð fyrir valinu
vegna þess að bæði er stað-
urinn og húsið fallegt, en
einnig vegna þess að staður-
inn er stutt frá bænum, húsið
og jörðin eru I eigu Náttúru-
lækningafélags íslands og
höfum við haft staðinn á
leigu allt frá 1978, hvað sem
síðar verður. Við höfum byggt
150 fermetra eigið hús á lóð-
inni til viðbótar til að rýma
alla starfsemina. Su viðbótar-
bygging reis 1982.“
EKKERT RÚM
KÓLNAÐ FRÁ 1978
— Hve margir hafa farið í
eftirmeðferð á Sogni þessi
tíu ár?
„Innritanirnar eru á skrif-
aðri stundu 4.120. Þetta segir
þó ekki alla sögu um ein-
staklingafjöldann, þvi um
10% hafa verið áður hjá okk-
ur í meðferð. Fólk sem mis-
tekst í glímunni við Bakkus
virðist leita aftur til okkar og
það er ánægjulegt, því val-
kostirnir á eftirmeðferð eða
annars konar meðhöndlun
eru miklu fleiri þeir en voru
fyrir nokkrum árum.“
— Hvað eru margir vist-
menn á Sogni að jafnaði?
„Á Sogni eru 30 vistmenn
alla daga ársins. Það er alltaf
fullt hjá okkur og hefur ekk-
ert rúm kólnað síðan við opn-
uðum 1978.“
STREITULAUST UMHVERFI
— Hvað geturðu sagt okk-
ur um meðferðina sem fer
fram á Sogni?
„Meðferðin felst í fræðslu,
þjálfun og áætlunargerð.
Með fræðslunni skoðar sjúkl-
ingurinn sig með tilliti til
þeirra upplýsinga sem hann
fær. Þjálfunin styrkir hæfni
hans til að fást við lífið án
áfengis og áætlunargerðin er
til þess að sjúklingurinn geti
sett niður fyrir sig hvernig
hann ætli sér að halda áfram
í lifinu án áfengis. Það er
enginn vandi að afvatna alkó-
hólista. Vandinn er hins veg-
ar að fyrirbyggja að alkóhól-
istinn fari aftur í fíkniefnið.
Við viljum reyna að gefa alkó-
hólistanum frelsi til að
drekka ekki.
Á Sogni höfum við leitast
við að skapa einstaklingnum
streitulaust umhverfi, kraft-
mikinn mat, tóm til að hugsa
og hvílast og ekki síst; sam-
vistir við aðra alkóhólista.
Dagskipanirnar eru fræðslu-
erindi um sjúkdóminn,
kvenna- og karlagrúppur, AA-
fundir, líkamsuppbygging og
skrifleg verkefni."
í STÖÐUGRI ÞRÓUN
— Hafa breytingar átt sér
stað í meðferðarprógramm-
inu?
„Meðferðarprógrammið er í
sífelldri þróun. Það hefur
enginn fundið endanlega
lausn á því hvað er fullkomið
meðferðarprógramm. Við
þjálfum stöðugt okkar ráð-
gjafa, reynslan bætist sífellt
við okkur og ný þekking,
bæði hérlend og erlend, kem-
ur okkur stöðugt að notum.
Það er víða leitað til okkar er-
lendis frá. Við höfum einnig
skipst á upplýsingum við fé-
ÁRANGURINN
VIÐURKENNINGIN
ER RESTA