Alþýðublaðið - 13.08.1988, Side 21
Laugardagur 13. ágúst 1988
TÓNLIST |i
Rikharður H. Friðriksson JJ
skrifar:
HVALASÖNGUR OG TÖLVUTÆKNI
Tónleikar UNM í Norrœna húsinu í dag
Bryndís Pálsdótfir fiðluleikari og Þórólfur Eiriksson tónskáld verða
fulltrúar tæknivæddrar tónlistar á tónleikum UNM i Norræna húsinu i
dag.
Á laugardaginn, 13. ágúst,
klukkan 16 heldur íslands-
deild samtakanna Ung Nord-
isk Musikfest, eða UNM tón-
leika í Norræna húsinu. Þar
verða kynnt nokkur þeirra
verka sem fara á hátíðina
sem í þetta skiptið verður
haldin i Osló vikuna 14,—21.
ágúst, auk nokkurra annarra.
Þessir árlegu tónleikar eru
með þeim forvitnilegustu
sem boöið er upp á í Reykja-
vík, því þarna er á einum eft-
irmiðdegi hægt að fá góða
innsýn inn i það sem yngsta
kynslóð íslenskra tónskálda
er að fást við í dag.
Til þess aö kynna lesend-
um Alþýðublaðsins þessa
kynslóð íslenskra tónlistar-
manna tók ég tali tvö þeirra
ungmenna sem aó tónleikun-
um standa, þau Þórólf Eiriks-
son tónskáld og Bryndisi
Pálsdóttur fiðluleikara.
Þórólfur veröur fyrstur fyrir
svörum og fræðir okkur aö-
eins um uppruna sinn:
„Ég var I hinu og þessu
hérna heima, læröi svolítið á
píanó, flautu og fiölu, en ekk-
ert mikið. Svo var ég í popp-
inu á tímabili. Eftir það fór ég
út í tónsmíðanám til
Hollands þar sem ég var í raf-
tónsmíðum og hljóðfræði við
„Sónológíuna" í Utrecht og
Tónlistarháskólann í Haag.
Þá var ég líka í „venjulegum"
tónsmiðum við Tóniistarhá-
skólann í Utrecht."
HVALASÖNGUR í
VATNSMÝRINNI
Á tónleikunum verða flutt
eftir hann rafverkið „í geisla-
snörunni" og „Mar“ fyrir
klarinett og segulband, en
það er einmitt seinna verkið
sem fer á hátíðina í Osló.
„Ég nota þarna nær ein-
göngu umhverfishljóð og þá
mest hljóð frá hvölum, mjög
litið af rafeindahljóðum. Eg
hugsa þetta ekkert sérstak-
lega sem hvalfriðunarsöng.
„Mar“ er fyrst og fremst
hugsað sem hljóðríma þar
sem hvalirnir fá að tala sínu
eigin máli en klarinettið
stendur fyrir hljóðheim okkar
mannanna. Þetta eru eins og
tveir heimar svo til sam-
bandslausir hvor við annan,
nema að annar er að ausa
hinum upp. Ég er þarna að
reyna að leiða þá saman í
tæpar tíu mínútur.“
Þórólfur var að koma heim
frá námi í sumar eftir fimm
ára dvöl í Hollandi. Hvað
skyldi hann vera að fást við
núna?
„Ég er núna að vinna
músík fyrir sjónvarpsþátt og
bara að koma mér fyrir hérna.
Svo er ég líka að reyna aó
koma mér upp aðstöðu til að
geta unnið tónlist hér
heima.“ Aðspurður hvort
hann hygðist fara út í þá
tölvuvinnslu tónlistar sem
orðin er svo algeng í dag gaf
hann ekki mikið út á það:
„Ég byrjaði að nota umhverf-
ishljóð og vinna úr þeim á
segulböndum og eg mun
halda því áfram. Ég vil halda
opnum áfram þeim mögu-
leika að geta notað hvaða
hljóð sem er. Þess vegna
nota ég þá tækni sem hentar
mér best hverju sinni.“
ERFIÐUR MEÐSPILARI
Bryndís Pálsdóttir byrjaði
að læra á fiðlu átta ára
gömul og lauk einleikaraprófi
frá Tónlistarskólanum i
Reykjavík árið 1984. Eftir það
hélt hún til framhaldsnáms
við hinn virta Juilliard-
tónlistarskóla í New York,
þaðan sem hún lauk meist-
araprófi núna í vor. Framund-
an eru einkatímar hjá fræg-
um kennara í Amsterdam og
hvað síðan verður veit eng-
inn.
„Ég var í Hamrahliðarkórn-
um í mörg ár og fór víða með
honum. Þaö var góður skóli,
ekkert síðri en tónlistar-
námið. Ég hlusta mest á
klassík og þá ekkert endilega
í fiðlutónlist. Ég hef líka
gaman af djassi, sérstaklega
Stephane Grappelli og Ellu
Fitzgerald. Nei, ég hef ekki
spilað djass af neinu viti,
gaman væri þó ef ég gæti
það einhvern tíma, en ég hef
aldrei reynt það af neinni
alvöru.
Ég hef nú ekki gert mikið
af því að spila nútimatónlist
hingað til. Það er hins vegar
gaman að koma inn í svona
andrúmsloft. Maður sér eitt-
hvað nýtt i hverju verki.“
Hvernig finnst henni að
spila með segulbandi eins og
hún gerir í einu verkinu á tón-
leikunum?
„Það hefur gengið bara
ágætlega, nema að stundum
er svolitið erfitt að hemja
það. Það er óvenjulegt að
hafa svona stabilan meðspil-
ara sem heldur alltaf takti og
gerir aldrei mistök. Þetta er
auðveldara í umgengni að þvi
leyti hversu taktfast það er.
Verra er hins vegar að hafa
engin merki frá meðspilurum
að fara eftir og verða að
treysta alfarið á heyrnina. Jú,
jú. Ég og þessi meðspilari
minn erum orðin sátt að
mestu leyti þó að i vissum
köflum slettist aðeins upp á
vinskapinn."
Gerðuþérmat
úrþessu verði:
AFKÖST
ENDING
GÆÐI
Fyrir þá sem eru í eldavélarhugleiðingum þá eru
þetta góðir tímar. Nú bjóðum við gæða eldavélar
frá AEG á aðeins kr. 36.640,- stgr.
Vestur-þýsk gæði á þessu verði, - engin spurning!
Eldavél firá AEG F640-W
•Fjórar hellur, þar af tvær hraðsuðuhellur.
•Undir- og yfirhiti.
•Blástur.
•Grillblástursgrill*)
•Skúffa undir ofni til að geyma bökunarplötur o.fl.
*)Fáanlegt en ekki með í verði.
A E G heimilistæki
- þvíþú hleypir ekki hverju sem er í húsverkin!
BRÆÐURNIR
Lágmúla 9, sími 38820