Tíminn - 11.01.1968, Page 6
FIMMTUDAGUR 11. janú&r 1968.
TfMINN
Bæjarstjóri athugar framkvæmdir viS hltaveituna. (Ljósm. St. Petersen)
Hið mikla og fagra Skagafjarð-
arhérað, sem skáldum verður yrk-
isefni á upphafningarstundum,
flestir ferðamenn hrífast af og
Skagfirðingar elska meira en ann
að á jörðu, er mjög breiður dal-
botn að meginhluta. Bn einhvern
tíma í fyrndinni hefur báran
gjálfrað við sanda og sær biikað
iþar sem nú er hið mikla, flata og
grösuga eylendi. En þar er land
svo fiatt, að í Béraðsvötnum er
engimn foss eða flúð á þessu
svæði og engi og bakkar neðan
við Varmahlíð, meira en 20 km
frá sjó, er aðeins fáum metrum
hærra en sjávarborð.
Ég varð stórhrifinn af Skaga-
firði í fyrsta sinn, sem ég fór
þar um, hef ekki losnað undan
þeim áhrifum síðan og nýt þess
í hvert sinn, að fara þar um.
Hin víðiáttumikla byggð með um-
lukt tignarlegum og margbreyti-
legum fjallahring, skiptist í 14
sveitarfélög með 4 þúsund manns.
Þar af er eimm kaupstaður, Sauð-
árkrókur.
Á langri og hafnlausri strönd
eru þrír verzlunarstaðir, Hofsós,
Haganesvík, auk Sauðárkróks, sem
hefur tekið forystuna í þessu
byggðarlagi og er nú óumdeilam-
legur höfuðstaður þess ■ og sá
byggðakjarni héraðsins, sem lík-
legastur er til mikils vaxtar. Hér
aðið er sögufrægt að fornu og
nýju, íbúarnir frjálslyndir, söng-
vinnir, glaðir, hestmargir, hafa
sína sæluviku og þykir hún ekki
of löng, eru margir ágætir bænd-
ur og hafa með hjálp samvinnu-
félags síns rutt mörgum steinum
úr vegi. En það væri þó mjög of-
mælt, að allir Skagfirðingar séu
samvinnumenn, því að margir
þeirra eru mjög miklir einstákl-
ingshyggjumenn í orði og athöfn.
En þegar þeir bindast sínum sam
tökum og það verða þeir að gera,
þegar mikils þarf með, hafa fram
kvæmdir stundum farið í handa-
skolum og eru margar kollsteyp
ur slíkra samtaka landskunnar frá
því héraði.
Tvær höfuðleiðir liggja til
Skagafjarðar á landi, önnur frá
Eyjafirði um Öxnadal, hio um
Vatnsskarð. Þegar Öxnadalsleið
er valin opnast mönnum þröngur
dalur, Nbrðurárdalurinn, sem
mörgum sýnist, hrjóstugur. - En
þegar komið er af Vatnsskarði til
Skagafjarðar, opnast ein hin feg
ursta útsýn, sem um getur og
flestum vekur fögnuð í brjósti.
Andstæðurmar sem þessar eru
raunar táknrænar fyrir héraðið í
heild, svo fjölbreytilegt er það
að landslagi og öllum staðháttum.
Pyrir landi skarta þær Drang-
ey og Málmey. Innsiglingin þykir
stórfengleg og fögur í senm.
Einn góðan nóvemberdag lagði
ég leið mína til höfuðstaðar Skag
firðinga, Sauðárkróks, sem fyrst
byggðist fyrir nálega 100 árum
en nú telur um 1400 íbúa. Eftir
að hafa ekið um kaupstaðinn og
leitt augum þau mannanna verk,
sem báru svip þess að vera ný
eða í sköpun, brá ég mér inn á
hótelið og fékk mér kaffi, en
bankaði síðan upp á hjá bæjar-
stjóranum, Hákoni Torfasyni.
iSkagfirðingar ganga skjótt til
dyra og opna meira en í hálfa
gótt þegar gesti ber að garði og
svo var hér, þótt Hákon sé raun
ar Vestfirðingur. Ég bar þegar
upp erindi mitt, spurði hvort svo
væri, sem sýndist, að hér væri
verið að.þyggja .öU,. ósköp. B.æjar
stjóranum virðist rósemi í blóð
borin og svaraði á þann veg, að
fleiri vekefni biðu óleyst en þau
sem nú væri að unnið.
Fyrir hve marga nemendur er-
uð þið að byggja gagnfræðaskóla?
I þeim áfanga, sem nú er ver
ið að byggja, verður rúm fyrir 150
—180 nemendur. Byggingin hófst
fyrir nokkrum árum. Ennfremur
haustið 1966 og var haldið áfram
í sumar og er nú húsið orðið fok
helt. Verður haldið áfram vinnu
við það ef fjármagn fæst til þess.
Stærðin er 6 þús. rúmmetrar en
grunnflötur 1,737 fermetrar.
Ég sé að þið hafið unnið nokk
uð að gatnagerð?
M, við unnum dálítið að varan
legri gatnagerð og í því skyni
voru blandaðir hér 1500 rúmmetr
ar af olíumöl. Nokkur hluti var
lagður út í sumar en stærri
hlutinn bíður til næsta vors og
verður þá vonandi hægt að þekja
meiri hlutann af götum bæjar
ins með olíumöl. Véltækni h. f.
í Reykjavík, framkvstj. Pétur
Jónsson, tók þessar framkvæmdir
að sér fyrir Sauðárkróksbæ. Tækni
legur ráðunautur við verkið voru
(verkfæðingamir Haukúr Péturs
son og Sigurhjörtur Pálmasop í
Reykjavfk.
Við höfnina hefur líka verið
unnið nú í sumar?
Unnið var að því í sumar að
fullgera fremsta hluta hafnargarðs
ins með því að reka niður 48
(metira langt stállþil meðfram
steinnökkva, sem sökkt var þar
fyrir nokkrum árum. Ennfremur
var sandfangari, sem tefja á
sandinnburð í höfniina fylltur með
grjóti og steypt hlífðardekk
Næsti áfangi er að byggja 360—
500 metra langan fyrirstöðugarð
úr grjóti meðfram landi að aust-
anverðu og dæla síðan upp fyrir
hann 70—110 þús. rúmmetrum af
sandi upp úr höfminni, en sand
burður inn í höfnina og hafnar
svæðið hefur verið mikið vanda
mál hér frá fypstu tíð. Um verk
ið sá Hafnarmálaskrifstofan í R-
vik. Áætlaður kostnaður 1,5—2
^mjlljójiir, ,kt„ en raunvei-ulegur
•kostnaður mun verða allmiklu
meiri.
Er það ekki bókhlaða, sem verið
er að byggja hér í kaupstaðnum?
Sumarið 1965 var hafin bygg
ing bókhlöðu, sem Sauðárkrókur
og Sýslusjóður Skagafjarðar-
sýslu byggja í sameiningu. í sum
ar var unnið að þvi að innrétta
hluta hússins og standa vonir til
að hægt verði að flytja sýslubóka
safnið í þessi húsakynni á næsta
ári. Húsið er tvær hæðir auk
kjallara að hluta, grunnflötur 360
fermetrar.
En íþróttavöllur og sundlaug?
í sumar var unnið við að inn-
rétta annan áfanga byggingarinnar
sem er kennsluaðstaða, búnings-
klefar og snyrtingar. Likur eru á
iþví, að þessu verði lokið á næsta
ári. I haust var svo hafin gerð
íþróttaleikvangs fyrir kaupstað-
imn, með því að jafna svæðið sunn
an sundlaugarinnar. Fyrirhugað
er að skapa þarna aðstöðu til
allra útiíþróttaiðkana, en á þessu
svæði er gert ráð fyrir knatt-
spyrnuvöllum til keppni og æf-
inga hlaupabrautum o.s.frv.
Er það rétt, að þið séuð að
flytja bæjarskrifstofurnar?
— Já, það stendur fyrir dyrúm
að flytja þær í Búmaðarbankahús
ið nýja, efri hæði-na. Þar verða
skrifstofur bæjarins og bæjar-
stofmana en eins og þú sérð er
orðið þröngt hér. Hér hinum meg
in við ganginn er tannlæknastofa
segir bæjarstjóri um leið og ein-
hver gengur um. Tannlæknislaust
hefur verið hér í tvö ár, en á
þessu er nú ráðin bót og tamrn
læknir með fullkomna tannlækn
ingastofu setztur hér að.
Eru ekki öll hús kaupstaðarins
hituð með laugarvatni?
útvegum eldhúsinnréttingar
og fataskópa eftir máli.
Gerum fast verðtilboð. —- Ennfremurt
SZEMEHS eldavélasett
pHÍIffS
ísskápa
\ottbre|nsa,fa
eldhúsvaska
með innbyggðri uppþvottavél
(verð frá kr. 7.500.00 compl.)
Sérlega hagkvœmir greiðsluskilmálar.
irn
KIRKJUHVOLI - REYKJAVÍK - SIMI 21718
Skattaframtöl
í Reykjavík og nágrenni, annast skattframtal
fyrir einstaklinga og ársuppgjör og skattframtal
fyrir smærri fyrirtæki- Upplýsingasími 20396 dag
lega ki. 18—19.