Tíminn - 11.01.1968, Blaðsíða 9
9
FIMMTUDAGUR 11. janúar 1968.
TÍMINN
Útgefandi: FRAMSÖKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb) Andrés Krlstjánsson. Jón Helgason og IndriSi
G Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar- Tómas Karlsson Aug-
lýsingastjóri: Steingrímui Gislason Ritstj.skrifstofur ' Eddu-
búsinu, símar 18300—18305 Skrifsofur- Bankastræti ? Af-
greiSslusimi: 12323 Auglýsingastmi- 19523 ASrar skrifstofur.
sími 18300, Ásikriftargjald kr. 120.00 á mán. Innanlands — í
lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f.
Landbúnaðurmn og
gengisfellingin
Við þriðju umræðu fjárlaganna fyrir 1968, fluttu al-
þingismennimir, þeir Stefán Valgeirsson, Vilhjálmur
Hjálmarsson, Ásgeir Bjarnason og Páll Þorsteinsson, til-
lögu um, að ríkisstjóminni yrði heimilað:
„1. Að greiða úr ríkissjóði þá verðhækkun á kjarn-
fóðri, sem orðið hefur eða verða kann á tímabilinu
24. nóv. 1967 til 1. júní 1968, vegna gengisbreytingar-
innar.
2. Að greiða það sem á vantar til að bændur fái verð-
lagsgrundvallarverð fyrir útflutta ull og gærur af fram-
leiðslu ársins 1966- <
3. Að taka að sér fyrir hönd ríksisjóðs greiðslu á
þeim hluta stofnlána ræktunarsambanda og vinnslustöðva
landbúnaðarins, sem svarar til þeirrar hækkunar lánanna
í íslenzkum krónum, sem gengisbreytingin hefur í för
með sér“.
Ekki náðu þær ráðstafanir, senj í þessum tillögum
felast, samþykki að þessu sinni, hvað sem síðar kann að
verða. En í glöggri framsöguræðu gerði Stefán Valgeirs-
son grein fyrir þeim rökum, sem fyrir því eru, að slíkar
ráðstafanir yrðu gerðar. Stefán sagði, að heimsmarkaðs-
verð á ull og gærum hefði í úrskurði yfirnefndar verið
reiknað með gengisbreytingarálagi en ekki eins og það
var 1 íslenzkum krónum í sept., þegar verðlagningin átti
að fara fram. Af þessum ástæðum væri kjötverð orðið
lægra en ella og væri því þarna um að ræða niður-
greiðslu á kostnað bænda, sem þeir yrðu að fá endur-
greidda í einhverju formi. y
Hann sagði ennfremur, að eins og kunnugt væri hefði
yfirnefnd nú ákveðið bændum svo að segja sama verð-
lagsgrundvöll og í fyrra. En samkomulag um verðlags-
grundvöllinn í fyrra hefði byggzt á hliðarráðstöfunum,
sem ríkisstjórnin hefði heitið bændum þá, og fram-
kvæmt t d. svonefnt framleiðnisjóðsfé. Hinum óbreytta
verðlagsgrundvelli nú ætti því, ef rétt væri að far;$. að
fylgja nýjar hliðarráðstafanir, sem jafngiltu hinum eldri,
frá í fyrra. Það fé, sem bændur ættu þannig inni, af
tveim fyrmefndum ástæðum, kvað Stefán eftir atvikum
nú, heppilegast að greiða þeim á þann hátt, sem mælt
var fyrir um í tillögum þeirra fjórmenninganna. Hann
sagði, að bændum hefði í haust verið ráðlagt að setja
á kjarnfóður,' sem nú væri mun dýrara en þá. Bændur
hefðu orðið fyrir verulegum tekjumissi vegna þess, að
það ullar- og gæruverð, sem byggt var á verðlagsgrund-
velli í fyrra, hefði ekki staðizt. Að lokum gerði Stefán
grein fyrir því, að ýmis ræktunarsambönd og vinnslu-
stöðvar landbúnaðarins væru nú að komast í greiðslu-
þrot vegna gengishækkunar erlendra lána, sem þau hefðu
tekið sem verðtryggingu á lánsfénu hjá Búnaðarbank-
inum.
Stefán tók sérstaklega fram, að jafnvel þótt verð-
hækkun kjarnfóðurs yrði færð inn í verðlagsgrundvöll-
inn (sem nú mun hafa verið gert), vantaði samt allmikið
á. að bændum yrði bætt upp verðhækkunin á þann hátt,
þar sem kjarnfóðurnotkunin væri í verðlagsgrundvelli
yfirnefndarinnar ekki áætluð nema helmingur þess, sem
ætla mætti að hún yrði vegna heyskorts víða um land.
ERLENT YFIRLIT
Hefjast viðræður milli stjórna
Bandaríkjanna og N-Vietnam ?
Utanríkisráðherra Norður-Vietnam birtir mikilvæga yfirlýsingu
VAXANDI orSrómur er nú
um það, að innan tíðar kunni
að hefjast viðræður um friðar-
umleitanir í Vietnam milli
stjórna Banaríkjamna og
Norður-Vietnams, og ef til
vill einhvefra fleiri aðila.
Orðrómur þessi komst á kreik,
þegar utanríkisráðfcerra Norð-
ur-Vietnam, Nguyen Duy Trinh
lýsti yfir því í nýársboðskap
sínum, að stjóm Norður-Viet-
nam væri reiðubúin til að setj
ast að samningaborði með
stjóm Bandaríkjanna, ef
Bandaríkin hætta loftánásum
og öðram hernaðaraðgerðum
gegn Norður-Vietnam. Þetta er
í fyrsta sinn, sem slík yfirlýs-
ing hefur verið birt opinber-
lega af hálfu stjórnarinnar í
Norður-Vietnam, en U Thant,
Kosygin og fleiri hafa um all-
langt skeið lýst þeirri skoðun
sinni, að stjórn Norður-Viet-
nam myni fús til að hefja
samningaviðræður, ef Banda-
ríkin hættu loftárásunum á
Norður-Vietnam.
ÞESSI yfirlýsing utanríkis-
ráðlherra Norður-Vietnams, hef
ur að sjálfsögðu orðið til að
herða baráttu þeirra, sem hafa
beitt sér fyrir samningaviðræð
um í Vietnam. Fyrstur reið U
Thant á vaðið og endurnýjaði
þá áskorun sína, að Bandaríkin
hættu loftárásunum á Norður-
Vietnam. Síðan hafa margir
bætzt í hópinn. Meðal nýrra
aðila, sem hafa bætzt í þenn-
an hóp, hefur flokkur sósial-
demókrata í Vestur-Þýzkalandi
vakið mesta athygli. Stjórn
hans, með Willy Brandt utan-
ríkisráðherra í fararbroddi, hef
ur hvatt Bandaríkin til að
hætta loftárásunum á Norður-
Vietnam. Hinn stjórnanflokkur-
inn í Ve.stur-Þýzkalandi, kristi
legir demókratar, hefur hins-
vegar tekið fram, að hann sé
ekki samþykkur þessari af-
stöðu sósíaldemókrata, þvi að
hann álíti, að Bandaríkjastjórn
eigi að ráða sjálf, hvað hún
gerir. Hún hafi bezta aðstöðu
til að meta alla málavexti.
í Bandaríkjunum hafa hinar
svonefndu dúfur gripið tæki-
færið til að endurnýja kröfur
sínar um að loftárásunum á
Norður-Vietnam verði hætt.
Mest hefur þar borið á Robert
Kennedy, sem lét þess jafn-
framt getið, að Bandaríkia-
stjórn hefði glatað þremur tæki
færum til að hefja samninga-
viðræður í Vietnam.
Undirtektir hinna svonefndu
hauka i Bandaríkjunum, hafa
verið á aðra leið. Þeir telja
yfirlýsingu Duy Trinhs merki
þess, að styrjöldin gangi Norð-
ur-Vietnam i óhag og þvi vilji
stjórain þar hefja samninga-
þóf og vera laus við loftárás-
iraar á meðan. Haukarnir
telja, að nú eigi þvi að láta
hné fylgja kviði og knýja
stjórnina i Norður-Vietnam ti!
enn meira undanhalds.
AF HÁLFU Bandaríkja-
DuyTrlnh utanríkisráSherra NorSur-Vietnam.
stjórnar hefur yfirlýsingu utan
ríkisráðherra Norður-Vietnam
verið tekið með varfærni. Hún
hefur aðeins lýst yfir því, að
hún mun kynna sér til hlítar
hvað yfirlýsingin þýðir. Af
hálfu Bandaríkjastjórnar hafa
jafnan verið sett tvö skil
yrði fyrir því, að hún hætti
loftárásunum á Norður-Viet-
nam. Annað er það, að samn-
ingaviðræður verði hafnar. Hiti
er það, að stjórn Norður-Viet-
nam hætti liðsendingum til S-
Vietnam eða a.m.k. auki þær
ekki. Þetta síðara atriði hefur
stjórn Norður-Vietnam aldrei
viljað fallast á. f áðurnefndri
yfirlýsingu utanríkisráðherra
Norður-Vietnams var tekið
fram ,að Bandaríkin yrðu að
hætta loftárásunum ssilmála-
laust.
í tillögum þeim, sem U
Thant hefur borið fram um
þessi mál, hefur hann gert ráð
fyrir því, að í framhaldi ar
því að Bandaríkin hættu loft-
árásum á Norður-Vietnam og
samningar hæfust, yrði leitast
við að draga úr styrjöldinni i
Suður-Vietnam.
Af hálfu ýmissa þeirra, sem
eru í nánum tengslum við
Johnson forseta, hefur sá ugg-
ur verið látin í ljós, að stjórn
Norður-Vietnam ætli sér ekk'
að semja, þótt hún fallist á
samningaviðræður. Hún failist
á viðræðurnar til þess eins
að losna við loftárásirnar og
fá þannig bætta aðstöðu til að
herða styrjölina í S-Vietnam. f
þessu sambandi er bent á, að
samningaviðræður f Kóreu
stóðu yfir í tvö ár, án þess að
nökkuð gekk eða rak
ÞRÁTT fyrir þennan agg,
virðist þó ljóst, að Bandankja
stjórn hyggist kynna sér til
hlítar, hvað vakir fyrir stiórn
Norður-Vietnam. Þetta er
m.a. dregið af þvi, að sendi-
herrar Bandaríkjanna og Kína
í Varsjá ræddust við nú í vik-
unni. Þá mun Bandaríkjastjórn
einnig hafa gert fyrirspurn um
þetta efni til stjórnar Sovél-
ríkjanna. Ýmis atriði þarf að
fá betur upplýst áður en samn
ingaviðræður hefjast. m.a.
hverjir eigi að taka oátt, •
þeim. Eiga viðræðurnar að
vera eingöngu milli st]orna
Bandaríkjanna og Norður-Viet
nam eða eiga t.d. stjóm Suður
Vietnam og Vietcong einnig að
taka þátt i þeim? Af hálfu
stjórnar Suður-Vietnam hefur
verið látin í Ijós mikil and-
staða gegn því, að Vietcoog
taki þótt í slíkum viðræðum.
Bandaríkjastjórn hefur hins
vegar lýst yfir því gagnstæða.
Þetta getur orðið erfitt deilu-
mál milli hennar og stjórnar
Suður-Vietnam.
Það má hiklaust fullyrða, að
engum tíðindum yrði fagnað
meira en að samningaviðræð-
ur hæfust í Vietnam, jafnvel
þótt styrjaldarátökin hættu
ekki jafnhliða Fyrsta sporið í
friðarátt er vitanlega það, að
deiluaðilar byrji að ræðast við.
Sá aðilinn, sem. vegna ein-
hverra óeðlilegra skilmála,
kæmi í veg fyrir samningavið-
ræður, mun hljóta þungan dóm
allra þeirra, sem vilja vinna
að friðsamlegri sambúð • heim
inum. Þ. Þ.