Tíminn - 13.01.1968, Qupperneq 14
14
TÍMINN
LAUGARDAGUR 13. janóar 1968.
Dæmdir í þrælkun
Frambald af Ms. 1
til alimenninigsátitsins í heimin-
um.
í yfirlýsingunni kröfðust þau
þess að dómurinn væri lýstur ó-
merkur og sakborningar Mtin laus.
en þess í stað komið í kring nýj-
um, sanngjðrnum réttarhöldum
yfir þeim, þar sem erlendir frétta
menn og lögfræðingar fengju að
vera viðstaddir. Þau Litvinov og
frú Daniel segja, að dómurinn
brjóti í bága við einföldustu meg
inatriði sovézks réttartfars. Dóm-
arinn, ákærandinn og fólk í saln-
um ,sem var sérstaklega va'lið til
þess arna, tóku höndum saman
um að gera réttarhöldin að skrípa
leik, og þau Ginsburg, Galanskov,
Dobrovolsky og Lasjkova höfðu
aldrei minnstu von um óhlutdræga
málsmeðferð. segir í skjalinu.
„Réttarfar af þessu tagi ætti ekki
að vera hugsanlegt á tuttugustu
öld, áheyrendur voru allir öryggis
lögreglumenn og gæðingar flokks
ins, og hrópuðu i sífellu móðganir
og svívirðingar til sakborninga,
gripu fram í fyrir þeim og trufl-
uðu gang réttarhaldanna á alla
lund“. Að vísu fengu þau Litvinov
og frú Daniel ekki að vera við-
stödd réttarhöldin fremur en aðr-
ir, en einstöku ættingjum sakborn
inga var leyft að líta þar inn
fyrir dyr, og hafa þau upplýsing-
ar sínar um framganig mála frá
þeim.
í dag deildu þau út afriti af
skjali þessu meðal erlendra bíaða
manna. Stjórnmáilafréttaritarar í
Moskvu telja mjög líkleg.t að þetta
tiltæki þeirra dragi dilk á eftir
sér. og komi fyrir dómstóla Sovét
ríkjanna, á sama hátt og mál
Daniels og Sinjavsky. Buskovsky-
málið í fyrrahaust og nú réttar-
höldin yfir fjórmenningunum.
Norski lögfræðingurinn Ingjald
Sörheim, sem fór til Moskvu á
vegum alþjóðlega lögfræðingasam
bandsins til að kynna sér réttar-
höldin, fékk eins og fyrri daginn,
ekki að stíga inn fyrir dyr í dóm
salnum. Hann verður þó áfram
í Moskvu um hríð, til viðræðna
við sovézka kollega sína.
Þrátt fyrir tuttugu stiga frost
var mikill mannfjöldi saman kom
inn fyrir utan dómshúsið í dag,
eða um tvö hundruð manns, til að
bíða úrskurðar réttarins. Tugir
vina og vandamanna sakborning-
anna voru í þeim hópi, auk erlendra
blaðaimanna. sem voru mjög fjöl-
mennir. í dyrum byggingarinnar
stóð röð lögreglumanna. og óei.n-
kennisbúnir öryggislögreglumenn
tóku Ijósmyndir, með aðstoð leift
urljósa, af hverjum þeim sem kom
út úr byggingunni og gaf sig á
tal við erlenda fréttamenn. Þetta
hefur lögreglan gert samvizkusam
lega hvern einasta dag réttarhald
f fremstu röð mannfjöldans
stóðu fjórar ungar stúlkur, og
héldu þær á nellikuvöndum sem
þær gáfu verjendunum. Þeir voru
fjórir talsins, Kaminsjaka, Solotu
tsjin, Srvirsky og Arija, og tóku
fegins hendi við blómunum, og
þökkuðu fyrir, en vörðust að segja
nokkuð frekar.
Af hálfu hins opinbera hefur
ekkert verið sagt um réttarhöldin.
freanur en þau væru ekki til, og
bæði sovézku blöðin og fréttastof
an Tass hafa ekki minnzt einu
orði á þau.
Öll voru sakborningarnir fundin
sek um að hafa dreift áróðri fjand
samlegum Sovétríkjunum, og þar
með brotið sjötugustu grein þar-
lendra refsiilaga. Galanskov hlaut
einnig dóm fyrir ólöglegt gjald-
eyrisbrask, þar eð han.n kvað hafa
tekið við greiðslum frá NTS, „A1
þjóðlega verkamannasambandinu“
sem er samtök rússneskra úblaga,
og eru aðalstöðvar þeirra í Vestur
Þýzkalandi. Mark og mið þess fé-
lagsskapar er að steypa Sovét-
stjórninni frá völdum.
f kvöld var enn óljóst hvort
dómum yrði áfrýjað eða hvort
hægt væri að áfrýja honum á ann
að borð. Eins og áður er sagt
verður Vera Lasjkova að líkind
um látin laus eftir vikutíma. þar
eð hún hefur setið í fangelsi tæpt
ár og því afplánað dóm sinn.
Þeir örfáu vandamenn hinna á-i
kærðu. sem fengu að vera við- j
stödd réttarhöldin, gengu út úr|
byggingunni klukkan sex í kvöld.
Meðal þeirra var unnusta Gins-
burg og grét hún sáran, en móðir
hans sem var í fylgd með henni,
lét ekki á sér sjá nein merki geðs
hræringar. Eiginkona Galanskovs
leit út fyrir að hafa fengið tauga
áfaill og studdu sonur Duniels rit
höfundar og dr. Pavel Litvinov
VSNNINGS-
NÚMER Á
SUNNUDAG
Á sunnudaginn er róðgert að
birta vinningsnúmerin í happ-
drætti Framsóknarflokksins, en
það hefur ekki verið hægt til
þessa, þar sem ekki hefur enn
verið gengið frá skilagreinum
fyrir heimsenda miða. Þeir,
sem enn eiga eftir að gera skil,
eru beðnir að gera það nú þeg-
ar á skrifstofu happdrættisins,
Hringbraut 30, sími 2-44-80.
hana inn í bifreið og óku brott.
Ekki kom til uppþota og óeirða
af neinu tagi fyrir utan dómshús-
ið. Þegar fréttamenn spurðu konu
Daniels nánar um mótmæilaskjalið
sivaraði hún þreytulega: „Þetta var
allt sem unnt var að gera, og í
okkar valdi stóð“.
KRAG
Framhald af Ms. 1
stjóm, sem íhaldsmenn Vinstri
flokkurinn og Róttækir vinstri
menn eigi aðild að. Er stefnt
að því. að þessir fiokkar fái
hreinan meirihluta í þinginu,
og geti þainnig myndað meiri
hlutastjóirn. Br ekki ólíklegt,
að Poul Hartling, formaður
Vinstri flokksins, yrði for-
sætisráðherra sllikrar stjórnar.
En segja miá, að jiafnóvíst sé
að þessir flokkar fái hreinan
meirihluta, og að sósíalista-
flokkarnir fái slíka aðstöðu til
stjórnarmynduiniar (þ. e. án
Vinstrisósíalista).
Jafnaðarmenn munu, haldi
þeir nokkurn veginn velli, eink
um leyta fyrri sér hjá Rót
tækum vimstri mönnum — en
þessir flokkar hafa áður starf
að saman. Fái þeir tveir hrein
an meirihluta, er stjórnar-
myndun þeirra á milli ekki ó
sennileg. Aftur á móti er ó-
sennilegt, að þeLr fái þann
meirihluta er til þarf.
Niels Westerby, leiðtogi
Frjálslyinda miðflokksins, er
fyrir nokkru klofnaði út úr
Vinstri flokknum, telur ó-
sennilegt að fylkingarnar tvær
— íhaldsmenn, Vinstrimenm
og Róttækir annars végar og
Jafnaðarmenn og Sósíalistíski
þjóðarflokkurinn hins vegar
— nái meirihluta. Því telur
hann, að flokksbrot sitt muni
fá lykilaðstöðu varðandi
stj'órnarmyndun.
Westerby er talsmaður sam
steypustjórnar Jafnaðarmanna,
Vinstri flokksiins og íhalds-
flokksins. en frekar ólíklegt er
að slík stjórn verði mynduð.
Yrði þar um algjöra breytingu
að ræða í dönskum stjórnmál
um.
Aftur á móti virðist nokkuð
Ijóst, að nái enginm flokkur úr
slitasigri í kosningunum 23.
janúar, getur orðið erfitt um
stjórnarmyndun, og jafnvel
hugsanlegt að minnihlutastjórn
verði áfram við völd. Það virð
ast þó flestir vilja forðast, er
svo að sjá að Danir vilji nú
fá hreinar línur, og að annað
hvort svonefndir borgaraflokk
ar, eða vinstriflokkarnir, hljóti
traustan meiirihluta í himu nýja
þingi.
RÁNSMÁL
Framhald af bls. 16.
maninanna hefur heldur haft
neitt samband við sendiráðið
áður, þótt þeir hafi dvalið nokk
urn tíma í Danmörku, og þá
náttúrlega ekki leitað þar að-
stoðar vegna peningavandræða.
Að himu leitimu, sagði amb
assadorinn. að þegar málið
kemur fyrir rétt má búast við
að maðurinn þurfi túlk og
einhverja aðra aðstoð, og þá
verður það að sjálfsögðu látið
í té, en ekki hefur komið til
þess enniþá.
Þótt mikið sé af íslending
um í Kaupmanmahöfn, eru
mjög fáir sem eru hér iðju
• lausir á flækingi. Eru
langflestir við nám eða vinnu.
Sagði ambassadorinn að sem
betur færi heyrði það til
hreinna undamtekninga að ís
lendingar þar i borg kæmust
í kast við lögin, og að sendi
ráðið þyrfti að hafa afskipti
af misyndismönnum.
anna.
Systir okkar
Kristín Sigurðardóttir,
frá Þorvaldsstöðum í Hvítársíðu,
Freyjugötu 7,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 15. janúar kl.
1,30 e. h.
Halldór Sigurðardóttir,
Lingný Sigurðardóttir,
Guðný Sigurðardóttir.
Alúðarþakkir til allra þeirra, er sýndu samúð við andlát og jarðarför
Valgerðar Jónsdóttur,
Ökrum v/Nesveg.
Anna G. Bjarnadóttir,
Steinar Bjarnason,
og aðstandendur.
ASÍUINFLUENZA
Framhald af bls. 16.
þjónustustörf.
Hjá rannsóknarstöðinni á Keld
um fékk blaðið þær fregniir, að
ekki væri að vænta öruggrar nið-
urstöðu af ranmsóknunum þar
fyrr en í fyrsta lagi eftir viku.
Em þær munu skera úr um, hvort
umrædd sjúkdómstilfelli stafa
af Asíuin'flúensuvei'ru.
Farsóttir eins og sú, sem geis
að hefur í Bandarikjunum, Bret
lamdi og Danmörku að undan-
förnu, ganga gjarman yfir á nokk
urra ára fresti. En eitt einkenni
iinflúensufaraldra er, að þeir,
sem sýkjast eitt árið gera það
mær aldrei næsta ár.
SLYS VIÐ
BÚRFELL
OÓ-Reykjavík, föstudag.
Bilstjóri í grjótflutningabíl slas
aðist við Búrfell í morgun. Va.r
hann fluttur þaðan í sjúkrabíl á
slysavarðstofuna í Reykjavík.
Slysið vildi til rétt fyrir há-
degi. Mi'kil hálka var þarma og
rákust tveir grjótflutningabilar á.
Bilarnir fóru báðir út af veg
inum við áreksturinn en ultu ekki.
i Bilstjórinn á hinum bílnum meidd
ist ekki.
Ofnarnir sprungu í
franska sendiráiinu
HS-Œteykj'avík, föstudag.
f kuldakastinu, sem gekk yfir
landið á dögunum, lentu starfs-
memn framiska sendiráðsins hér í
Reykjavík í miklum erfiðleikum.
Sendiráðið er til húsa að Tún-
KRISTJÁN BJARNA-
SON, VERKSTJÓRI,
ÞINGEYRI, LÁTINN
SE-Þingeyri, föstudag.
f dag var jarðsunginn frá Þing-
eyrarkirkju Kristján Bjarnasom
verkstjóri í hraðfrystihúsi Kaup-
félags Dýrfirðimga. Kristján va,r
fæddur á Þingeyri árið 1909, og
varð bráðkvaddur á heimili sínu
6. þ.m. Mikið fjölmenni var við
útförina.
götu 22, einmitt á því svæði, þar
sem hitaveitan er hvað lélegust,
iþegar einhverjir kuldar eru. Og
í frosthörkunum skeði það að nær
allir miðstöðvarofnar í húsiinu
sprungu og auk þess leiðslur í
veggjunum. Búið er í kjallara
hússinis, en það lán var í óláni,
að sendiráðið hefur á leigu íbúð
i Barmahlíð fyrir sendiráðsritara.
en þar sem enginm ritari er nú
við sendiráðið gat fólkið flutt í
þá íbúð til bráðabirgða.
Hitaveitam var nær óvirk í
sendiráðinu í mánaðartíma — en
rafmagnsofnar keyptir til að hafa
i hverju herbergi. Nú hefur ver-
ið gert við skemmdimar að mestu
en tjón var mjög mikið, eins og
gefur að skilja, auk þeirra óþæg-
inda. sem sendiráðsfólkið hefur
átt við að stríða.
BLAIBERG UÐUR
ENNÞÁ VEL
NTB-Höfðaiborg, föstudag. ;
Philip Biaiiberg, „hjartamanni“ |
í Höfðabor?. líður p'n .« ">*t’I
oig engin merki sjást þss, að i
líkami hans ætii að snúast gegn
nýja hjartanu, sagði dr. Barmard
sem stjórnaði aðgerðinmi, í við
tali við fréttamenD'í dag.
Hann sagði, að sjúklingurimn
hefði smiávægileg særindi í hálsi j
ein það væri ekkert alvarlegt á
ferðum, aðeins lítilsháttar veiru
smitun, og hann hefði ekki hita.
„Blaiberg hefur góða matarlyst,
en þó hefu,r hamn létzt ofurlítið,
sagði Barnard, en það er mjög
heppilegt því að holdafar hans
var höfuðorsök þess að vessa-
vökvimn myndaðist í krine um
hjartað fyrir nokkrum dögum.
Barnard sagði, að nú liði
sjúklingnum „50— B0% betur"
en áður en aðgerðin var gerð á
honum, og með hverjum degi ykj
ust líkur þess, að hanm næði full
um bata. Blaiberg er himn hress
asti, og getur nú setið nokkra
stund í einu á rúmstokknum og
raibbað við hjúkrunarkonur og
lækma.
í dag töluðu Bernard og aðstoð-
armenn hans inn á hljómplötu.
og lýstu einstökum atriðum aðgerð
arinnar nákvæmlega. FyTirætlað
er, að læknastúdentar um allan
heim geti síðan eignazt plötuna
og lært af henni. Tekjurnar af
þessari útgáfustarfsemi renna til
„Chris Barnard stofnunarinnar“,
sem ver þeim til rannsókna á sviði
læknavísindanna.
í fréttatilkynningu Stanford
sjúkrahússins í Kaliforniu sagði
í dag, að stáliðnaðarmanninum
Mike Kasperak liði nú betur, en
nú eru sex dagar síðan nýtt hjarta
var grætt í hann. í gærkveldi fékk
hann í fyrsta skipti síðan aðgerðin
var gerð, að fara fram úr rúm-
inu. Hjúkrunarkonur studdu hann
að stól í sjúkrastofunni o,g sat
hann þar í stundarfjórðung og
talaði við komu sína, sem kom í-
heimsókn. Læknarnir eru þó ugg-
andi um líf hans. því að þó hon-
um líði bærilega nú. getur lifrar-
og nýrnarsjúkdómur hans tekið
sig upp, hvenær sem er og dregið
hann til dauða.
RAFVIRKJUN
NýlagiUr og viðgerðir. —
Sím.i 41871, — Þorvaldur
Hafberg raívirkiameistari.
Hemlaviðgerðir
Rennurr bremsuskálar. —
Slipum bremsudælur-
Limum ð bremsuborða og
aðrar almennar viðgerðir.
HfcMLASTILLING H-F.
Snðarvog: 14. Sími 30135.