Tíminn - 23.03.1968, Síða 1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hringið í síma 12323
DMM
58. tbl. — Laugardagur 23. marz 1968. — 52. árg.
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
NOVOTNY
KVEDUR!
NTB-Prag, föstudiag.
Antonia Novotny, forseti
Tékkóslóvatóu, sagði lausu em
bætti sínu í dag, eftir að hafa
haft það með höndum í ellefu
ár. Þessi afsögn Novotnys er
lokaþáttur langrar og strangr-
ar valdabaráttu irnnan Komm-
únistaflokks landsins, en þar
hafa hia íihaldssamari öfl, með
Novotny í fylkingarbrjósti, átt
í höggi við hin frjálslyndari.
Barátta þessi er ha'rla óvenju-
leg, því hún hefur verið háð
fyrir opnum tjöldum, að heita
má. í henni hafa íhaldsöflim
farið halloka. og þvi hrökkl-
ast ' Novotny nú frá völdum.
Novotny sendi a-fsagnar-
beiðni sína ti'l forseta þjóð-
þingsins í morgun og var hún
tekin til greina. Þetta er mik-
ill sigur fyrir hinn nýja aðal-
ritara flokksins, Alexander Du
beck, sem stefnir að þwi að
koma á frjálsari og lýðræðis-
legri stjórnarháttum í Tékkó-
Framhald á bls. 14.
NOVOTNY
Þetta er Reynisfjall eins og þa8 horfir viS Reynishverfi. Framundan gilinu lengst til vinstrl er bærinn Lækjarbakki, þar sem fyrsta skriðan féll,
um kl. 10 í gærmorgun. LangleiSina til hægri er svo bærinn Reynir og Presthúsabæirnir, þar sem tvær skriður féllu siSar um daginn. —
(Ljósmynd: Páll Jónsson).
SnjófScð valda miklum
fjárskaða í Reynishverfi
9E-Reyni og E'J-Reykjavík,
föstudag.
ic Snjóflóð féllu í dag á þrem-
ur stöðum úr Reynisfjalli. Tvö
snjóflóð féllu á fjárhús og hlöður
og munu á þriðja hundrað fjár
hafa farizt og mikið hey spillzt.
Litlu munaði að manntjón yrði á
einum bæjanna, Lækjarbakka.
Það vildi bóndanum þar, Gísla
Skaftasyni, til happs. að honum
dvaldist óvenjulengi við störf í
fjósinu og komst því ekki í fjár-
húsin á réttum tíma — þeim tíma
sem snjóflóðið skall á þau og
. og hlöður á Lækjarhakka. Um
sáma leyti féll snjóflóð úr Reynis-
fjalli hjá Reyni. Lenti það á milli
fjárhúss og íbúðarhúss og olli
engu tjóni. Síðdegis í dag féll
snjóflóð síðan á fjárhús og hlöðu
í Efra-Presthúsum sunnan við
Reyni og gróf á kal i fönn. Unnið
var í allan dag i blindbyl við að
grafa kindur, lifandi og dauðar,
úr fjárhúsunum á Lækjarbakka
og Presthúsum. Þá héldu nokkrir
menn seint í dag álciðis að Görð
um, syðsta bænum undir Reynis-
fjalli, en ekkert símasamband hef
þreif með sér þök og hey eina ur verið við bæinn í aUan dag, og
fimm hundruð metra. , þótti vissara að kanna hvort eitt-
if Það var um 10 leytið í morg I livað hefði komið fyrir þar. Kom-
un að snjóflóðið féU á fjárhúsið ust þeir þangað eftir kvöldmatinn
V
og reyndist allt vera í lagi. Snjó-
flóðið, sem lénti á fjárhúsunum i
Efri-Presthúsmn, mun hafa tekið
símalínuna út að Görðum um leið.
Norðaustan átt hefur geisað í
Vík í Mýrdal og svæðinu undir
Pieynisfjalli og allt vestur undir
Ey.iafjölL Snjór hefur verið peiri
en elztu mernn muna eftir. í Vík
eru hús víða á kafi, og einna helzt
hægt að ferðast milli húsa þar
á skíðurn. Snjóri'nn er mjög laus
i sér og erfiður jrfirferðar.
Það var upp úr kl. 10 í morgun
að Gisli Skaftason bóndi á Lækjar
bakka. sem er skammt vestan við
Reyni, hélt til fj'árhúsa. Hafði
hann tafizt óvenju lengi við mjalt
ir vegna rafmagnsbilunar og
ófærðarinnar. Kom í ljós, að mik-
ið snjóflóð hafði fallið á fjárhús-
in og tvær hlöður. Snjóflóðið
hafði tekið þök húsanna með sér
og hiluta af veggjum.
Fjárhúsdn á Lækjarbakka eru í
fjallsrótinmi, og fjallið víða snar-
bratt fyrir ofan þau. Hefur oft
áður verið þarna snjófloð, en þau
hafa alltaf stöðvazt alllangt fyrir
ofan fjárhúsin. í þetta sinm var
snjóflóðið aftur á móti miklu
kröftugra en nokkru sinni fyrr.
Flutti það m. a. ney úr einni hlöð
unnd a. m. k. 500 metra niður eft-
ir, svo og þök húsanna og ýmis
brot úr veggjum. Munu um 300
hestar af heyi hafa farið þarna á
Framhald á bls. 14
Dr. Gunnar Thoroddsen verð-
ur við áskorun um að bjóða
sig fram í i brsetak osningum
AK-Rvík, föstudag. — Tím-
anum barst í dag eftirfarandi
yfirlvsing frá Hr Gunnarf Tlior
oddsen, sendiherra í Kaup-
mannahötn:
„Á þriðja þusund kjósendur
hafa sent mér skriflega áskor-
un um að verða í framboði
við kosningu forseta íslands á
komandi sumri.
t Þessar áskoranir eru frá
fólki úr öllum héruðum, stétt-
um og stjórnmálaflokkum.
Að t'engnum þessum áskor-
unum hefi ég akveðið að verða
í framboði til forsetafjörs."
Dr. Gunnar Thóroddsem er
fæddur 29. des. 1910 í Reykja-
vík, sonur Sigurðar Thorodd-
sen verkfræðings og konu hans
Maríu Kristínu fæddri Claes-
sen. Hann varð stúdent í M.R.
1929 og tók lögfræðipróf við
Háskóla íslands 1934 Stund-
aði síðan framhaldsnám í refsi
rétti í Danmörku. Þýzkalandi
og Englandi. Settur prófessor í
lögum við Háskola íslands
1942 og gegndi því embætti til
1950. Kjörinn borgarstjóri í
Reykjavik 1947 og lét af því
starfi 1960 L,and.skjörinn al-
þingismaður og þingmaður
Snæfelliaga 1934—37 og 1942
—49 og síðan þingmaður
Reykjavíkur unz hann varð
sendiherra i Kaupmannahöfn.
Fjármálaráðherra frá 1959 til
1964. Hefur gegnt fjölmörgum
trúnaðarstörfum i sambaudi
við þingmennsku sína, borgar-
stjórastarf og stjórnmála-
starf ' Sjálfstæðirflokknum.
Bæjarfulltrúi ^ Reykjavík 1988
—62. Formaður Sambands
ungra Sjálfstæðirmanna 1940
—42. Formaður Norræna fé
lagsins á íslandi 1954—62
Helztu rit: Fiölmæli. doktors-
ritgerð um æruna og vernd
hennar varin , febr L968. The
Constitution of tceland. Ox-
ford 1946 Margar ntgerðir .um
stjórnmál og lögfræðileg efni
í blöðum og tímaritum.
Dr Gunnar Thoroddsen er
kvæntur Völu Ásgeirsdóttur.
Ásgeirssonar, forseta íslands.
DR. GUNNAR THORODDSEN