Tíminn - 23.03.1968, Side 7
rw. 7 T »n r ry ,» y, y
LAUGARDAGUR 23. marz 1968.
* - • >- » » ■ • •*> /; >y v;
VETTVANGUR
,v, ■ ,y ■!,■>, •
TÍMINN
'P/K' l) '
'jrT'ijmjpik
___________7
PALL LYÐSSON:
Heyrt og séð á þingi
Norðurlanciaráðs í Ósló
Dagana 17. til 24. febrúar
dvaldist undirritaður í Osló, og
fylgdist þar með störfum Norð
urlandaráðs sem óheyrnarfull-
tnúi Sambands ungra Framsóknar
manna. Sá siður mun fyrir nokkru
upp tekinn, að gefa fulltrúum frá
æskulýffssam tökum stj órnmála-
flokkanna kost á því að fylgjast
með störfum ráðsins, og notuðu
æstouilýðssamtök állra fiokkanna
sér þessa aðstöðu nú. Ferðafélagar
rnínir voru þeir Jón E. Ragnars
son lögfræðingur frá Sam'bandi
ungra Sjíálíflstæðiismanna, Karl
Steinar Guðnason kennari í Kefla
vík frá Sambandi ungra jafnaðar
manna og Ólafur Einarsson stud.
mag. frá Æskulýðsfylkingunni
Nutum við í öllu ágætrar fyrir
greiðslu skrifstofustjóra Alþingis,
Friðjóms Sigurðssonar, sem mér
finnst skyit að þakka hér.
Norð u.rlandaráðsm en n héðan
fóru utan þann 15. febrúar, en
við þessir æsku'lýðsfull Irúar kom
um til Noregs þann 16. Hér skulu
ekki raikin á neinn hátt störf 16.
þings Norðurlandaráðls. Ályktanir
þess um stofnun e'ldfjallarannsókn
arstöðvar á íslandi eru þegar
kunnar. Þá var einnig tekið með
miklum skilningi á vandkvæðum
íslendinga við sérmenntun náms-
manna sinna, og ákveðið að greiða
þar enn um sinn götu okkar. Von-
brigði vekja aftur á móti tök
Norðúrlandaráðs á umsó'kn Fær-
eyinga um aðild að ráðinu, og
viðhorf þjóðanna til Loftleiða-
málsins er erfitt að skilja hér
heima. Því furðulegra er að ræða
við Skandinava um þessa úlfa-
kreppu, og kynnast þeirri skoðun
þeirra, að þegar hafi verið geng
ið allt of langt til sátta. Eru þeir
á sinn hátt jafn undrandi yfir því,
að Loftleiðir líta ekki enn við
þeim kostaboðum sem þeir bera
fram.
Við setningu þingsins laugardag
inn 16. var efnt til borðbalds á
Hótel Bristol, þar sem flestir þing
mennirnir bjuggu, og að kvöldi
sama dags bauð Oslóbor.g til mik
illar móttökuathafnar í Ráðhús-
inu. Ég lét mig vanta bæði þessi
skipti; hafði í leiðinni komið við
í Staifangri og dvalið þar yfir nótt.
Það var ekki fyrr en á sunnudags
morgun, sem mér gafst fyrst færi
á að fylgjast með störfum þings
ins. Þá voru fundastörf komin í
fullan gang, og íslendingar búnir
að koma sér upp hálfgerðri ný-
lendu í miatsal Stórþingsins
norska. Sá salur kom við sögu
strax á mánudag, er það fréttist
út um öll Norðurlönd, að bjórkjall
arinn þar hefði tæmzt. Kenndu
fréttamenn Dönum um, og mun
persónugervingur danskra öl-
drykkjumanna Per Hækkerup.
fyrr utanríikisráðherra h'afa ráðið
þar nokkru um.
Þingfulltrúunum var öllum boð
ið í norskf þióðleikbúsið á •nm'
dagskvöldið. Þar var sýnt leikrit
Ibsens, Fruen fra havet, eitt af
hinurn litt þekktari leikritum
hans,_ og reyndist þetta ágæt sýn
ing. Á mánudagsmorgun var öllum
æsku'lýðsfulltrúunum stefnt sam
an til umræðufundar eða „semin
ars“ í ýmsum norrænum vanda-
málum. Stóð seminar þetta yfir
fyrrihluta dags á mánudag og
mónudaginn töluðu þeir Emil
Vindsetmo rílkisritari um ,,Norð
urlönd og Efnahagsfoandatagið"
og Rolf Roem Nielsen forstjóri
um „Norðurlönd og Fríverzlunar
bandalagið (EFTA)“ Þriðijudags
morguninn var aðeeins eitt erindi
flutt. Thor Störe forstjóri tók
fyrir umræðuefnið: Har vi et
nordiisik alternativ? Fjallaði liann
um sameiginleg markaðsvandamál
allra Norðurlanda, og ræddi þann
möguleika, að þessi lönd hefðu
sameiginlega möguleika á að velja
Páll Lýðsson
sér markaðslönd. M. a. kom fram
í erindi Störe, að allnokkuð hef-
urverið um samruna sænskra,
norskra og danskra fyrirtækja í
sömu grein til/ þess að styrkja
markaðsaðstöðu þeirra í fjarlæg
ari löndum. Eftir erindin urðu
hinar fjörugustu umræður, og
virtist mér, að Norðmenn gleyptu
ekki við Efnahagsbandalaginu
hljóðalaust, a.m.k. á það sér ekki
eindregna málsvara hjá Vinstri
flokknum, og að maður tali nú
ekki um SF flokk Finns Gustav
sens.
Um unga miðflokkamenn á
Norðurlöndum.
Tvo æskulýðsfulltrúa frá öðrum
löndum hafði ég hitt áður, Jobn
Dale frá Sen'terungdommens lands
forbund — Æskulýðssambandi
norskra miðflokksins, og Halle
Jörn Hansen, sem var fulltrúi
Noregs unge venstre. Komu þeir
báðir út til íslands, er síðasta
landsþing S. U. F. var háð í
Reykjavík. Báðir munu þeir menn
gagnmenntaðir, Dale hefur ný-
lokið prófi í hagfræði, en Ilansen
er ráðunautur við norsíku utan-
ríkismá'lastofnunina.
Ég verð að játa, að dönsku full
trúunum kynntist ég lítið, en
þeim mun betur þeim sænsku.
Fyrstan skal ég nefna Rune
Johanson frá Stokkhólmi. Hann
var þó ekki hægt að telja til
æskulýðsfulltrúanna, þótt ungur
sé: hann er framkvæmdastjóri
Norræna félagsins í Svíþjóð, og
þess vegna staddur í Osló. Rune
Johanson hefur verið framarlega
í Centerns Ungdomsforbund í
Svíþjóð, Æskulýðssambandi
sæmska miðfk>kk<sins. Fulltrúi
Centerns uingdomsforb. var hins
vegar Ifans Ingvar Jonsson, ný-
kjörinn varaformaðiur sambands-
ins. Hann er nú bankamaður í
Ástrop, efnilegur og viðfelildinn
maður, sem ber þá persónu, að,ég
sé hann fyrir mér i leiðtogahópi
þess flokks, er fram líða stundir.
Einnig náði ég sambandi við
fulltrúa Sænska þjóðarflokksins,
Karl Joihan Westholm, sem er
stúdent í Uppsölum. Sá flokkur
telur sig „liberal“ eða frjálslynd
an, og myndi vera sam'loka við
norska vinstri flokkinn. Þeir eru
'í harðri andstöðu um sumt við
Miðflokkanna, keppa um líkt fylgi
en þó mijm liberölu floikkarnir
heldiur halla sér að kjósendum í
bæjum en dreifbýli. Finnsk flokka
skipun er líklega líkari þeirri ís-
lenzku. Þar taldi ég okkur Fram
sóknarmönnum bæði Jukka
Juurela blaðamann frá Centerpar
tiets ungdomsiforbund og Par
Stenback frá Svensk ungdom,
.æskulýðssambandi sænska flokks
ins þar, sem er miðflokkur. Sten
báck nemur hagfræði, og var
greinilega mjög fær í utanríkis
máluim og markaðsmálum. Telur
samband hans um 5 þús. félaga,
en Æsku'lýðssamband finnska mið
flokksins telur um 60 þúsund fé-
laga, og mun vera eitt stærsta
æskulýðissamband stjórnmála-
flokka á Norðurlöndum.
Munur'nn á miðflokkunum og
v'nstri flokkunuin.
Mámudagskvöldið 19. febrúar
bauð íslenzka sendiráðið í Osló
til kvöldverðar í búst'að sendi-
herra úti í Bygdöy. Þar voru
nonskir stjórnmálamenn, m. a.
Per Borten forsætisráðherra, sem
sagði fáein vel valin orð við borð
haldið. Hann taldi sig liafa sann-
frétt, að nú vildi ísl. ríikisstjórn
in sPara. Hann vonaði þó að 'hún
stingi ekki „sparekniven“ niður
í þetta glæsilega sendiráð í Osló:
Það kynnu Norðmenn alls ekki
að meta. Viðstaddir fslendingar
vonuðu einnig að þetta væri ekki
með síðus'tu móttökum íslenzks
sendiíherra í Noregi, enda eru þau
sendiherraihjónin Ástríður og
Hans G. Andersen ágætir fulltrúar
þjóðar sinnar úti í Noregi og
stóðu að móttöku þessari með
mikilli prýði.
Þriðjudagskvöldið var ár'lað til
þess, að norsku stjórnmálaflokk
arnir næðu betra sambandi við
sína menn í hinum löndunum.
Nobkur vandi var o'kkur Fram-
sóknarmönnum, hvort við skyldum
heldur þiggja boð Vinstri flokks
ins eða Miðflokksinis. Þáði ég
boð hins síðarnefnda, og í ljós
kom, að Ólafur Jóhannesson hafði
eirinig veðjað á dreifbýlismenn, en
látið Vinstri flokkinn eiga sig það
sinnið. Kvöldverðarboð Miðflokks
ins var haldið í húsakynnum
kaupmannasamtaka Oslóborgar
við Karls Jóhanns-igötu. Þar töl
uðu undir borðum Trygve Bent
erud, formaður Sambands norskra
mjiólkurframleiðenda John Aust
heim sem nú er formaður norska
miðflokksins og Sukselainen sem
fyrir skömmu var forsætisráðherra
Finna. Mælti hann einkum til
ungu m'annanna þeirra sem yzt
sátu og fórst það vel. Hann þótt
ist sjá þar sæti vel skipuð en þó
væri fyrir mestu að þeir ættu
eftir að færast innar eftir, og
það væri aðalatriðið fyrir þessa
flokka að skipa strax vel í neðstu
sætin. Þá færi allt, vel í framtíð-
inni.
Ég reyndi að afla mér upplýs-
inga um stöðu norsku miðflokk-
anna, og einkum þeirra, sem styðj
ast við bændur og aðra dreifbýlis
menn Noregs. Norges Venstre og
Miðflokkurinn munu um sumt
áþekkir, meginhluti fylgis þeirra I
Per Olof Sundman — aðeins 10 ára
skáldferill færði honum verðlaunin.
mundi rata yfir til Framsóknar-
flokksins hér heima. Þeir byggja
báðir á fólki utan af landsfoyggð
inni. Þó er Miðflokkurinn siterkari
meðal bænda. Vinstri flokkurinn
hefur verið talinn klofinn á viss-
an hátt. Þannig eru vinstri austan
fjalls róttæikir, og þar er fremst
ur í flokki, Helge Seip, hagfræði
prófessor í Osló. Vinstri vestan
fjatlis eru íhaldssamari, sannir full
trúar bindindis, nýnorsku og
heimatrúboðs, og þann arm styður
Bent Röiseland, leiðtogi flokksins-
Vinstri eru róttækir í utanrík
ismálum og mjög tortryggnir gagn
vart hverskyns bandalögum, hern
aðar- og markaðskyns. Þar er
Miðflokkurinn meira hægfara, en
hins vegar geysi róttækur í dreif
býlismálum. Getur hann þar
helzt unnið með SF flokki Finns
Gustafsens, en þann flokk á ég
of erfitt með að skilgreeina. Vísa
þar helzt til orða norsks kunningja
míns, sem sagði, að SF væri bor
inn upp af hálfgerðum útskúfunar
lýð úr VerkamannaflOkknum, há-
skólaprófessorum og „hippíum."
Skáld, sem iðkar pólitíska
menningarbaráttu.
Það er þegar alkunnugt af
fréttum að sænskur rithöfundur,
Per Olof Sundman hlaut nú bók
m en n taverðlau n Nor ður land aráðs
Framhald á bls. 12.
Frá kvöldboSi MiSfloklcsins norska. Lengst til vinstri er forsætisráSherrafrúin, Magnhild Borten, fiórSa er
Kertu Saalasti frá Finnlandl, fyrr lcennslumálaráSherra, þá kemur Rune Johanson, Jukka Juurela greinarhöf-
undur og John Dale.
I