Tíminn - 11.04.1968, Qupperneq 3
FIMMTUOAGUR II. aprfl »68.
TÍMINN
19
Hinn 12. apríl næst komandi,
iöstudaginn langa, á Valdimar Kr.
GuSmundsson, prentari og um-
bro'tsmaður við Tímann, sjötU'gs-
af.mæli, Hainn er Aíustfirðingur að
ætt, fæddur að Hmitbjörgum í
Jökulsárhlíð 12. apríl 1898. For-
eldrar hans voru Stefanía Benja-
mínsdóttir og Guðmundur Ólafs-
son, síðar veitingamaður á Seyð-
isfirði.
Valdimair hóf prentnám 6. júní
1011 í Prentsmiðju Austra á
Seyðisfirði. Að prentnámi loknu
fluttist hann til Reykjavíkur og
hefur starfað þar að pr.eintverki
síðain. Fyrst í stað vann hann í
Félagsprentsmiðjunmi, en árið
11922 hóf hann vinnu í prentsmiðj-
unni Acta. Þar starfaði hanin í
14 ár, en fylgdi öðru starfsliði
þeirrar pren.tsmiðju, er fyrirtæk-
ið var selt nýstofnuðu prentsmiðju-
fyrirtæki, Eddupren.tsmiðju. Þar
hefur hann starfað allt fram á
þennan dag og nær eingöngu við
umlbrot á dagblaðiinu Tímanum.
Það er þvií orðin.n langur starfs-
dagur hans við þetta blað.
Valdimar er kvæntur Vilborgu
Þórðardóttur prests frá Söndum
í Dýrafirði, systur Sigurðar Þórð-
arsonar, tónskálds og söngstjóra.
Eiga þau hjón tvo uppkomna syni,
Sverri, prentara og prentsmiðju-
eiganda, og Þórð, þjóðréttarfræð-
ing' , ^
Samstarf okkar Valdimars hef-
ur nú staðið í nálega 20 ár. Ég
minnist þessara ára m.eð gleði
og þatoklæti í huga. Það er svo
margt, sem þar kemur til. Til
einskis manms er betra að leita
en Valdámars og hann er allra
manna fljótastur að rétta hjálpar-
hönd, þegar með þarf. Það er
gott áð vinna með slfkum mönn-
um og vita |>á í návist simni.
TÍMINiN færir í dag þessum
trausta og samvizkuisama stacfs-
manni sínum, sem svo lengi hef-
ur starfað við blaðið, þakkir sín-
ar fyrir vel unnin störf og sendir
honum og fjölskyldu hans beztu
ármaðaróskir við þessi támamót
í ævi hans.
Eiinnig færa prentarar og aðrir
starfsmenn honum þakkir fyrir
samfylgdina og vona, að enn megi
þeir njóta hennar um ókomin ár.
Valdimar mun verða staddur á
afmælisdagmn sinn í félagsheimili
prentara, EDverfisgötu 21, milli
kl. 2—6.
öðinn Rögnvaldsson.
Ég vil nota taskifærið og segja
nokkur orð við þessa gömlu hetju,
nú, þegar hún fyilir sjöunda tug-
inn. Valdimar hefur unnið manna
lengst og bezit við Tímann. Hann
er eins konar afi okkar allra hérna
á blaðinu. Menn koma og fara,
starfa í nokfcur ár kannski, og
alltaf er Valdimar þarna í pren.t-
smiðjunni, ef maður lítur inn
eftir fjarvistir. Þannig menin setja
staðfestuna í fyrirtækin og gera
þau að hluta úr lífi sínu.
MiMl gamanmál eru oft á lofti,
þegar Valdimar er í essinu sínu
í prentsmiðjiuinni, og stundum
fljúga hnútur um bekki, alveg
eins og í veizlunni á Glæsivöll-
um forðum. Allt fýkur það át i
vimdinn jafnóðum. eða það stimpl
ast út á stimpilklukkunni Stund
um eru þetta alvarlegir hluitic,
eins og þegar afmælisbarnið tek-
ur kannski upp á bvi að spyrja
manin, hvort maður kunnd Gunn-
arshóíma. Og þegar mann rekur
i vörðurnar út af svona
prófspurningu, þylur sá gamli
ljóðið. hnykkir á orðum. eins os
hann vilji nú reka betta nógu
rækilega ofan í mann, og allan
tímann má maður standa við niið
hans og skammast sín. Eins “r
um marga fleiri hluti. Valdimar
kamn fleira en Ijóð. Hann er harí-
ur og úrræðagóður í prentsmiðiu
sker út í við og hefur ákaflega
gaman að gððum bókum. Stund-
um gefst tími til að tala um þetta
SJOTUGUR Á MORGUN:
VALDIMAR GUÐMUNDSSON
allt, ljóðin, útsikurðinn og skáld-
sögumar, og þá rennur hýr svip-
iur á andlitið og augun, sem hafa
lengi horft á blýið, og hafa mögl-
unarlaust orðið að sjá á eftir
margri bölvaðri vitleysunni út til
almenmings. En bannig er trú-
mennskan. Hún tekur vægt á
brekumum og kinkar kolli framan
í kostiina.
Það er gott að vita af honum
Valdimar á sínum stað, og þó er
alltaf bezt að vita, að hann kann
j Gunnarshólma utarn að, og ótal
i önnur Ijóð. Með því kennir hann
j manni, að það er ekki nóg að
kunna handverkið til hlítar. Mað
urinn er ekki allur þar. Hann er
lífca í andamum, og það gerir
stritið léttara.
Þakka þér fyrir ýmsa snúninga
og handtök, gamli minn. og megi
fólk þitt njóta samvista við big
lemgi enn.
IGÞ.
Fundum okkar Valdimars Guð-
mundssonar bar fyrst sáman fyrir
35 árum. Ég var þá að byrja
feril minn sem blaðamaður, ung-
ur og óreyndur. Valdimar var
orðinn reyndur og ráðsettur prent
ari. Störfum okkar var þannig
háttað. að við höfðum strax mikið
saman að sælda. Svo hefur verið
jafnan síðan. Þegar ég lít yfir
farinn veg, skipa ég Valdimar Guð-
mundssyni hiklaust i fremstu röð
þeirra manna. sem ég hefi kynnzt
um dagana Þá hefi ég það ekki
fyrst. * huga, að hai.n hefur verið
frábær starfsmaður í grein sinni.
fljótvirkur og mikilvirkur og allra
manna iðjusamastur. Hitt er mér
enn minnisstæðara hve góður fé-
lagi hann hefur verið alla tíð.
tryggur og hollráður hlýr og
innilegur. Það hefur síður en svo
skyggt á þetta, þótt hann hafi
verið óragur við að segja mór og
öðrum til syndanna, þegar honum
hafa þótt verkin ganga of sei.nt,
Um Valdimar verður það aldrei
sagt, að hann hafi krafizt meira
af öðrum en af sjálfum sér. Þess
vegna var svo gott að þola áminn-
ingar hans. Jafnan hefur líka slík-
um árekstrum okkar Valdimars
lyktað þannig, að við höfum orðið
meiri vinir eftir en áður.
Ég sagði áðan, að ég hefði verið
að byrja starf mitt ungur og ó-
reyndur, þegar við Valdimar hitt-
umst fyrst, en hann var orðinn
reyndur og gnóinn í starfi sínu.
Þetta kom n:€'r fljótt að góðu
haldi. Það var þá oft verk mitt
að semja fyrirsagnir, en verk
Valdimars að handsetja þær. í
fyrstu fékk ég oft áminningar
hjá Valdimar fyrir viðvaningsleg
vinnubrögð. Ég fann á því, að það
myndi góður kostur að leita ráða
Valdimars, þegar mér gekk erfið-
lega við fyrirsagnirnar. Þetta
reyndist líka þannig. Ég fékk ,'afn
an góð ráð hjá Valdimar, því að
hann er orðhagur í bezta lagi.
Þetta tryggði jafnframt góða sa.m-
vinnu við prentarann. Ég er í
mikilli þakkarskuld við Valdimar
fyrir það að hafa getað farið þann
ig í smiðju til hans í 35 ár Þær
úrlausnir, sem ég hef fengið þar,
eru óteljandi, bæði varðandi fyrir-
sagnir og annað efni. Ég vil nota
þetta tækifæri tiJ að færa Valdi-
mar sérstakt þakklæti mitt fyrir
þessa ómetanlegu aðstoð hans.
ValdiÁiar hefur verið óvenju-
legur afkastamaður um ævina.
Hann hefur alltaf haft langan
vinnudag í prentsmiðjunni en jafn
hliða því hefur hann rækt mörg
sförf önnur Hann er frábær út-
skurðarmaður og liggja oftir hann
mörg góð verk á því sviði. Þó
hefur Valdimar ekki vanrækt
heimili sitt, heldur jafnan verið
boðinn og búinn til að þjóna því.
konu, börnum. tengdadóttur og
barnabörnum. Mig hefur oft undr
að hve miklu Valdimar hefur get-
að afkastað. Oft hlýtur svefntími
hans að hafa verið lítill. Hann
hefur i senn verið gæddur ein-
stöku starfsfjöri og hæfni til að
skipuleggja störf sín. Hann hefur
líka átt góðan hauk i hörni, þar
sem hin ágæta kona hans hefur
verið
Og nú er Valdimar að verða
sjötugur. Það sér ekki á vinr.u-
brögðum hans. En kirkjubókunum
verður að trúa. Ég þakka Valdi-
mar skuggalaust og skemmtileet
samstarf i 35 ár. þakka honum
drenglyndi hans. tryggð hans og
góðgirni. fullviss þess. að vinfengi
okkar mun aldrei þverra.
Þ. Þ.
DOMUR
ATHUGIÐ
SAUMA SNÍÐ, ÞRÆÐI —
og máta kjóla. — Upp-
lýsíngar : síma 81967.
5 herbergja
íbúð á 2. haofl við Hvassaleiti,
er til sölu. fbúðin er um
117 ferm. Tvöfalt gler er
í gluggum, teppi á gólfum
og harðviðarinnréttingar. —
Sameiginlegt vélaþvottahús í
kjallara. Bílskúr fylgir.
2ja herbergja
kjallaraíbúð við Rauðalæk, er
til sölu fbúðin er um 65 fer-
metrar Tvöfalt gler i glugg
um. Teppj á gólfum tnn-
gangur er sér hitalögn einn
ig sér fhitaveita).
Málflutningsskrifstofa
VAGN E. JÓNSSON
GUNNAR M. GUÐMUNDSS.
Símar 21410 og 14400
Utan skrifstofutíma 32147.
Aðalfundur
Aðalfundur H.F. Eimskipafélags íslands verður
haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykja-
vík, föstudaginn 24. maí 1968 kl. 13.30.
Dagskrá samkvæipt 13. grein samþykkta
félagsins.
Tillögur til breytinga á samþvkktum félagsins
samkvæmt niðurlagi ákvæða 15. greinar
samþykktanna (ef tillögur koma fram).
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu
félagsins. Reykjavík 21.—22 maí.
Reykjavík, 8. apríl 1968.
S T J Ó R N I N