Tíminn - 19.04.1968, Blaðsíða 3
I
FÖSTUDAGUR 19. aprfl 1968
TÍMINN
(Tímamynd; GE).
Karlakórinn Þrestir í HafnarfirSi ásamf söngstióranum,
Bókmenntakynning leik-
félags Kópavogs
N.k. miánudag 22. april kl.
21,00 mun Leikifél’ag KópaTOgs
gangast fyrir bókmenntakynn-
ingu í Félagsheimili Kópavogs.
Að þessu sinni verður bók-
mienntakynningin helguð Magn
úsi heitnum Ásgeirssyni. skáldi.
Þarf ekki að efa, að aðdáendur
Magnúsar Ásgeirssonar muni
fagna þessari kynningu á verk
uim hans. Kynnir verður Ragn
ar Jónsson, Jóhann Hjálmars
son miun tala um skáldið, Krist
inn Hallsson, óperusöngvari
syngur, Ijóðalestur annast Bald
vim Hal'ldórs'son, leikari og
leikarar úr Leikfélagi Kópa-
vogs,
Magnús heitinn Ásgeirsson
er áttunda sfcáldið, sem Leik
félag Kóipavogs kynnir. Hin
eru Matthías Joohumsson, Jó
hann Sigurjón^son, Einar Bene
diktsson, Jónas Hallgrímisson,
Halldór Kiljan Laxnes og
Davíð Stefánsson.
Svo sem á öllum fyrri bók
mienntakynningum Leikifélags
Kópavogs, er aðgangur ókeypis
og öllum heimiil.
Kvikmyndasýning
Germaníu
Einn þekktasti leikari Þýzka
lands síðustu áratugina, Gustaf
Grúndgens andaðist fyrir fá-
um áruim, og var hann þá leik
hússtjóri í Hamlborg, og hafði
borið hróður þess leifchúss víða
um löndÁneð leik sínum og
leikstjórn, Um hann hefur ver
ið gerð kvikmynd, með sýnis-
hornum af helztu hlutverkum
hans. Verður hún sýnd á kvik
myridaisýningu félagsins Germ
anía á morgun, laugardag. Þar
verða einnig sýndar myndir frá
Hamtoorg.
Ennfremur verða sýndar
fr^tamiyndir frá því í janúar
s. 1., m. a. frá ferð Kiesingers
kanzlara til Indlands og Pak
istan. Sýningin er í Nýja bíói
og hefst kl. 2 -e. h. Öllum er
heimill aðgangur, börnum þó
einungis í fylgd með fullorðn-
usn.
Þau koma fram á skemmtuninni.
Karlakór Selfoss heldur
söngskemmtun
Karlakór Selfoss heldur söng
skemmwn í Selfossbíói á
sunnudaginn kl. 5. ‘Hanri syng
ur bæði íslenzk og erlend lög,
og m. a. frumflytur hann tvö
ný lög eftir Pálmar Þ. Eyjólfs
son á Stokksheyri. Söngstjóri
kórsins er Einar Sigurðsson, og
undirleikari Heimir Guðmunds
son, en einsöng syngur einn
af kórfélögunum, Hjalti Þórð
arson. Karlakórinn hefur nú
starfað í fjögur ár. Raddþjálf
un kórsins hefur Einar Sturlu
son séð um, bæði í fyrra og sl.
vetur.
Fóstruskemmtun í
Austurbæjarbíói
SJ-Reykjavík, miðvikudag.
Um helgina efna barnfóstr
ur og börn af barnaheimilun-
um í Reykjavík til skemimtana,
sem einkum eru ætiaðar
yngsta aldursfilokknum. Þegar
blaðamenn litu inn á æfingu
hjá unga fóikinu í Austurbæjar
bíói í dag var þar fjölanenni
mikið og glatt á hjalla. Þar
voru saman komin á milli 50
og 60 börn á aldrinum 3 til
5 ára, sem öll leika, dansa. og
syngja eða leika aðrar listir á
skemmtununum ásamt fóstrum
og nemendum úr Fóstruskól-
anum.
Sikemmtiatriði verða margvís
leg. M. a- fluttir söngleikir,
leikrit, dangað, sungið, sagðar
sögur, farið með þulur og
kvæði. Þá koma krummahjón í
heimsófcn, en eins og rrienn al
mennt vita nýtur sú dýrategund
sívaxandi vinsælda eftir til-
komu sj'ónvarpskrumma.
Á laugardag verður skemmt
unin kl. 3 og síðan á sunnudag
kl. 1,15, loks verður skemnjtun
in endurtekin á sumardaginn
fyrsta kl. 3. Aðgöngumiðar
verða seldir á barnaheimilun
um föstudag og laugardag og
síðan við innganginn.
Allur góði af skemmtunum
um helgina rennur til Fóstrufé
lags íslands, en skemmtunin á
sumardaginn fyrsta verður ti’l
styrktar Sumargjöf.
Frönsk bóka-
sýning í
Bogasalnum
SJ-Reyikjavíik, fimmtudag.
Á morgun kl. 4 verður opnuð
sýning á frönskum bókum í
Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Fransika sendiráðið stendur fyr
ir sýningunni og mun franski
sendiiherrann, Jean Strauss tala
við opnunina. Menntamálaráð
herra og forseti Íslands verða
einnig viðstaddir.
Blaðamönum gafst í dag tæki
færi til að sfcoða sýnimguna,
sem þá var verið að setja upp.
Þetta er fremur lítil sýning eða
nofckur hundruð bækur. Leit-
ast hefur verið við að gefa
sem víðtækasta mynd af bóka
gerð í Frakklandi. Mikið er af
ódýrum en smekklegum útgóf
um og einnig fallega gerðar,
Framhald a bls 14.
Franski sendiherrann á íslandi
og franski sendikennarinn við
Háskóla íslands á bókasýning-
unni í Bogasalnum. Tímam.: GE
MIKLAR FRAMKVÆMDIR A
AKURFYRl VEGNA H-DAGS
FB-iReykjavák, fimmtudag.
Uindirbúningur að upptöku H-
umferðar á Akureyri er nú í full-
um gangi, og gengur vel, að sögn
bæjarstjórans þar, Bjarna Einars-
sonar. Vinnuflokkur bæjarins vinn
ur að uppsetningu skilta, og þar
að auki er verið að leggja nýja
götu, sem á að auðvelda mjög alla
umferð imn í bæinn, og beina
henni um leið framhjá miðbæjar-
kjarnanum. Þessari gatnagerð á
að vera lokið á H-dag.
Þegar fcomið er inn til Akur-
eyrar að norðan hefur verið ekið
eftir Gilerárgötu og siðan beygt
inn í Geislagötu hjá skrifistofu-
byggingu bæjarins. Nú verður
þes'sari leið loikað, og í staðkm
ver'ður ekið éftir Glerárg'ötuinni
beint niður að sjö, og niður að
höfnimni og út á stórt bílastæði,
sem er hjá BiSO. Þai- verður smá
U'ppfyllinig, sem bætt hefur verið
við Torfun'e'Sibryggjuna, og ekið
verður eftir, en þaðan inn á
Skipagötu og eftir hemmi. Þar mun
verða að rífa eitt hús, Verkamanna
skýlið, svö að hægt sé að aka
beint út úr Skipagötu og inm á
bíliaistæði, sem er við POB, en
af því verður efcið inn á uppfyll-
ingu og af henni á Kosningaveg-
inn svokal'l’aða, sem er hluti af
Hafmarstræti. Með þessari gatna
breytingu er umferðinmi b-eint frá
miðbæjarkj arnanum sjáifum.
Auk þessa verður nokkrum göt-
um breytt í einstefnuakstursgötur
Framhald á bls. 14.
Samsöngvar Þrastaí Hafnarfirði
Karlakórinn Þrestir í Haínarfirði
efnir til samsöngs í Bæjarbíói í
Hafnarfirði dagana 23., 24., 26, og
27. apríl n. k. Söngstjóri kórsins er
Herbert Hriberschek Ágústsson, en
hann hefur . stjórnað kórnum und
anfarin þrjú ár.
í k'órnum starfa nú 38 söng-
menn og befur mikill áhugi verið
ríkjamdi innan kórsins í vetur. Við
raddæfingar hafa verið söngstjór
anuim tiil aðstoðar þeir Rútur Hanm
éssoh, hlj óðfæraleikari, og Sigurð
ur Hallur Stefánsson. Undirleikari
á. samsöngvunum verður Sikúli
Halldórsson, tónskáld. Ennfremur
munu félagar úr Sinfóníuhljóm-
sveit íslands aðstoða.
Á söngSkrá kórsins eru verk-
efni eftir innlenda og erlenda höf
unda, þar á meðal lagasyrpa úr
amierískum söngileíkjum, sem Jan
Moravek hefur tekið saiman og
útsett sérs'taiklega fyrir kórinn.
Einnig er þar syrpa ísLnzkra þjóð
laga í útsetningu söngstjórans auk
margra annarra vinsæila laga.
Kórinn hefur alltaf átt fjölda
styrifctarfólaga, sem hafa með
nokkru fjárframlagi tryggt af-
komu fcórsins, en þegið á móti tvo
Framhald á bis. 14.
Bylting í Sierra
Leone
NTB-Monrovía, fimmtudag.
Herinn og lögreglan hrifs-
uðu völdin í Sierra Leone á
miðvikudagskvöld, og formað-
ur og varaformaður þjóðarráðs
ims hafa verið hnepptir í varð
hald. Það voru ungir liðsforingj
ar í herbúðum í útjarði Freé
town, sem réðust gegn yfir-
mönnurn sínum og náðu völd
unum. Ófremdarástand kvað
hafa skapast í svipinn, en ill-
gerlegt er að fá fregnir úr
landinu, því að símasambandið
við London hefur verið rofið
síðan á miðvikudagsfcvöld. Þó
er vitað, að ungu liðsforingiarn
ir hafa komið á „And-spilling
arráði" sem, eins og nafnið
gefur til kynna á að uppræta
spillingaröflin.
Formaður þjóðarráðsins var
Framhald á bls. 14.