Tíminn - 19.04.1968, Blaðsíða 8
8
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 19. aprO 1968
I HEIMSFRETTUN
I leit að
morðingja
í gær, fimmtudag, hafði
bandaríska alríkislögreglan
sent úx handtökuslkipun á
mann að nafni Eric Starvo
Galt, sem síðustu dagana hefur
vakið furðu margra, enda verið
eins konar huldumaður. Full-
yrti FBI, að Galt hafi, ásamt
bróður sínum, gert samsæri
um að myrða Dr. Martin Luth
er King, sem lézt 4. apríl s. 1.
af völdum skotsiárs á hálsi.
Sendi FBI einnig út mynd af
Starvo Galt, taldi hann vopnað
an og hættuilegan, og bað því
fólik að fara að öill-u með gát.
Hvort lögreglan er í þann
veginn að handtaka morðingja
Kings eða ek'ki skal elkkert um
sagt, né heldur hvort aðeins
tveir bræður standi að þeim
verícnaði. Um það eru upplýs
ingar of litlar, þegar þetta er
ritað. Hins vegar verður reynt
hér á eftir að greina frá þróun
málsins frá því King var myrt
ur 4. apríl s. 1. — þ. e. rann-
sókn miorðsins í þann rúma
hálfa mánuð, sem síðan er lið
inn.
Samsæri
Bandarísk lögregluyfirvöld,
með Ramsey Glark, dómsmála-
ráðherra í broddi fylkingar.
fullyrtu svo til strax eftir morð
ið á Dr. Martin Luther King,
fimmtudaginn 4. apríl. að allt
benti til þess að um einn glæpa
mann væri að ræða; þótt Ijóst
væri. að morðið hefði verið
mjög vel skipulagt, þá væri
ebkert sem benti til þess að
fleiri en einn maður hefði kom
ið þar nálægt.
Þótt þetta hafi þar til í gær
verið hin opinbera afstaða
lögreglunnar, sem að öðru
leyti hefur verið mjög spar
söm á upplýsingar um
miálið síðustu dagana, þá
þótti fljótt einna líklegast. að
einbver sarntök stæðu að baiki
morðinu, og að morðinginn
hafi jafnVel verið atvinnumað-
ur —þ. e. leigumorðingi. Einn
ig þykir mega ráða af líkum.
að hann hafi haft aðstoðar-
mann eða aðstoðarmenn í
Memphis, þar sem King var
myrtur, sem gerðu honum
kleift að komast undan,
Þótt lögreglan hafi gefið lít
ið upp um rannsókn málsins,
hafa blaðamenn reynt að grafa
upp allt möguilegt í sambandi
við morðið og leitina að morð
fngjanum, en í dag er rúmur
hálfur mánuður síðan morðið
var framið.
Undankoman
Það, sem einna furðulegast
þykir í sambandi við morðið —
af mörgu furðulegu — er und-
an'koma morðingjans, en hún
þykir benda til þess að hann
hafi haft aðstoðarmenn.
Skotið, sem haefði Dr, King
var hleypt af um kl. 18.01 á
fimmtudaginn 4. apríl sam-
kvæmt staðartíma. Lögreglan
fullyrti strax, að skotið hefði
verið úr baðherbergi á bakhlið
gistiheimiilis við næstu götu
samliggjandi Lorraine Motel,
þar sem Dr. King bjó.
Tæpri mínútu eftir morðið
sást síðan maður, sem talinn
er vera morðinginn, koma
T. h. mynd af hluta þeirrar hliðar gistiheimilisins, sem snýr að Lorr aine Motel. Gluggi morðingjans er sá þriðji frá vinstr. Á stærri
myndinni sjást svalirnar, þar sem King stóð. Myndin er tekin meðaðdráttarlinsu út um baðherbergisgluggan í gistiheimilinu.
hlaupandi út úr gistiheimilinu.
Hann hljóp til vinstrj eftir
gangstéttinni, en stanzaði þó í
smáskoti rétt hjá dyrunum til
að losa sig við riffil og tösku
sína- Fór maðurinn síðan inn
í hvítan Mustang-bíl, sem lagt
var við gangstéttina, og ók í
burtu.
Þetta gerðist um einni mín
útu eftir morðið. Nú virðist
aftur á móti, sem annar hvítur
Mustang hafi verið staðsettur
við þessa götu — til hægri við
dyrnar —og hafi honum verið
efkið af stað um 15 mínútum
eftir morðið.
Þar sem lögreglan var fjöl
menn í kringum Lorraine Motel
fókk hún skjótt tilkynningu
um hvíta Mustanginn, og sendi
hún þá út tilkynningu til allra
lögreglubifreiða að leita að
þessum bíl, jafnframt því sem
vegatálmanir skyldu settar upp.
En kl. 18.35 kom tilkynning
á lögreglubylgjunni um miik
inn eltingarleik um götur
Memphis í norðurátt. Var þetta
sögð tilkynning frá „lögreglu
bíl 160“. Sköimmu síðar var
tilkynnt, að b'lár Pontiac tæki
einnig þátt í eltingarleiknum.
Voru stöðugar sendingar á lög
reglubylgjunni fram til kl.
18.47 um eltingarleikinn, en þá
var skýrt frá því að einhver í
Mnstanginum væri að skjóta á
Pontiacinn.
Þannig endaði útsendingin
frá „bíl 160“. Lögreglumaður-
inn, sem var á vakt í bíl
160 á þessum tíma, hefur neit
að að segja eiitt eða neitt um
málið. Aftur á móti hafði blað
eitt í Memphis, ,.Tbft Commerc'
ial Appeal“, það eftir honum
noikkrum dögum eftir morðið,
að hann hefði ekki séð neinn
hvítan Mustang, og því engan
slí'kan bil elt.
Eftix því, sem blaðamenn
hafa helzt getað fundið út, mun
lögreglumaðurinn, R. W. Brad
shaw, sennilega einungis hafa
komið áfram skilaboðum, sem
heyrðust í útvarpi í bifreið há
skólanema nokkurs — en í
Memphis geta flestir eða allir
hlustað á lögreglubylgjuna.
Senditæki lögreglubíla —
og annarra bíla, sem hafa slík
tæki, — eru stuttdræg, og þvi
herma fréttir að það hafi vak
ið athygli háskólanemans, að
'þótt bílarnir, sem í eltingar-
leiknum áttu að vera, væru
komnir út úr borginni, þá var
sendingin á bylgjunni alltaf
jafn sterk. Virðist því ljóst, að
sendandinn hafi alilan tímann
verið í miðborginni, og tilgang
ur hans verið að villa um fyrir
lögreglunni. Það tókst líka í
a. m. k. 15 mínútur. Bifreiðar.
sem sendar höfðu verið til ann
arra borgarhluta, voru sendar
til norðurenda borgarinnar til
þess að taka þátt í „eltingar- .
leiknum".
Allt bendir nú til þess, að
á meðan hafi morðinginn ekið
út úr borginni á öðrum stað og
sennilega komizt til Atlanta í
Georgíu, heimaborg dr. Kings,
sem er um 400 mílur frá Mem-
phis. Þar var nefnilega tekinn
fimmtudaginn 11. apríl hvítur
Mustang, sem lögreglan mun
telja sennilegt að morðinginn
hafi notað. En hann var skilinn
eftir í Atlanta um 13 klst eftir
morðið. En við fund bifreið-
arinnar komst lögreglan á slóð
dularfulls manns, sem lítið er
vitað um, en sem gæti verið
morðinginn.
Eric Starvo Galt
Það kom fljótlega í ljós, að
eigandi Mustangsins nefndist
Eric Starvo Galt. Gaf lögregl
an út tilkynningu fimmtudag-
inn 11. apríl — á skírdag —
þess efnis að hún vildi fá að
tala við Galt, sem væri um
175 pund að þyngd, bláeygður
og brúnhærðúr, fæddur 20.
júlí 1931, þ. e. 36 ára að
aldri. Er talið, að lögreglan
hafi fengið þessar upplýsingar
úr ökusikírteini Galts. ,
En fljótlega kom í Ijós, að
Galt þessi var hinn dularfyllsti,
og sennilegt talið að það væri
ekki hans raunverulega nafn.
Galt þessi stakk fyrst upp
kollinum, svo vitað sé, í Birm
ingham í Alabama, þegar
hann labbaði ,inn í gistiiheim-
ilið „The Economy Grill and
Roorns" 6. ágúst 1967. Þar bjó
hann til 7. október s. 1 Síðan
hefur enginn séð hann svo vit
að sé til.
Nokkuð er vitað um gerðir
Galts í Birmingham. T. d., að
30. ágúst 1967 keypti hann
hvítan Mustang og greiddi
hann út í hönd. Fékk bifreiðin
einkennisstafina 1-38993, en
þeir ''voru á Mustanginum, er
fannst í Atlanta. Er þvi öruggt,
að um sama bíl er að ræða.
Einnig er vitað, að Galt tók
ökupróf 6. september 1967 í
Alabama. 1. marz s. 1. óskaði
hann eftir að fá annað eintak
af ökuskírteininu, og sagði
skyldu senda það til „The Econ
omy Grill and Rooms“, þótt
hann hefði ekki dvalið þar í
marga mánuði.
Galt lét skrá sig sem sjó-
mann, atvinnulausan, er sam
tök sjómanna hafa engar upp-
lýsingar um mann með þessu
nafni. Þá sagði hann einnig
Peter Oherpes, forstjóra gisti
heimilisins, og fleirum frá því
hvar hann hefði unnið áður, og
fleira persónuilegt, en athugan-
ir lögreglunnar og blaðamanna
haaf leitt í ljós, að um rangar
upplýsingar var að ræða.
Var talið sennilegast, að
Galt væri ekki til nema sem
dulnefni.
Seint á miðvikudagskvöld gaf
bandaríska alríkislögreglan aft
ur á móti út handtökuskipun á
Eric Starvo Galt, og lætur þann
ig að því liggja að það sé hið
rétta nafn hans, en auk þess
hafi hann notað önnur nöfn,
bæði John Willard eins og á
gistiheimilinu í Memphis og
nafnið Harvey Lowmeyer.
Kúlan ónýt
Kúlan, sem varð Dr. King
að bana, er svo illa farip, að
lögreglan hefur lítið gagn af
henni við rannsókn málsins.
Það er t. d. ekki hægt að
sanna, hvort henni var skotið
úr Remington riffli þeim, er
fannst fyrir utan gisti-
heimilið í Memphis.
Nóg var aftur á móti af
fingraförum og lófaförum
bæði í herbergi nr. 5, þar sem
morðinginn kom sér væntan-
lega fyrir undir nafninu
„John Willard", og í baðher-
berginu. þar sem morðinginn
mun hafa staðið þegar hann
hleypti skotinu af. Aftur á
móti fer svo margt fólk una
staðinn, að erfitt er að segja
hvorf einhver þessara fingra-
fara eru eftir morðingjann.
Lögreglan vinnur mjög að
ýmsum tæknilegum atlhugun-
um. M. a. hefur hún unnið að
samanburði á jaxðveginum í
kringum morðstaðinn og gisti
heimilið og þeim jarðvegi, er
fannst í Mustanginum í Atl-
anta.
Jafnframt vinnur lögreglan
mjög að leitinni að Galt. Hef-
ur leitin dreifzt um mörg rílki
Bandaríkjanna, og náði jafnvel
til Mexicó um tíma.
Aftur á móti hefur strax koim
ið gagnrýni fram á vinnubrögð
um lögreglunnar i þessu máli,
m. a- frá einum þingmanni.
Maðurinn með
grímuna
Það er enn óvitað, hver
maðurinn með grímuna, sem
a. m. k. tveir menn töldu sig
sjá hlaupa strax eftir morðið
á milli Lorraine Motel og gisti
heimilisins, þaðan sem skotið
er talið hafa komið frá, raun
verulega er. Annar þeirra
sem mann þennan sá, var bíl-
stjóri Dr. Kings.
Þá er mörgum öðrum spurn-
ingum ósvarað í sambandi við
þetta morð. Sú stærsta er ein-
faldlega, hvers vegna lögreglan
gat ekki komið í veg fyrir
morðið. Vegna hins hatursfulla
andrúmslofts í borginni, voru
40—45 Memphis-lögreglumenn
allt í kring um King þegar
morðið var framið, og eins mik
iM fjöldi alríkislögreglumanna
FBI.
Önnur spurning er, hvernig
morðinginn vissi að Dr. King
(Ivaldi í herbergi 306 í Loraine
Motel. King hafði aðeins verið
í þessu h-erberg í einn dag, þeg
ar morðinginn kom sér fyrir I
gistiheimilinu andspænis og
leitaði þar að bezta staðnum
til að myrða King. Ef King
hefði verið í einhverju
herbergjanna nær aðaldyrum
mótelsins, þá hefði morðinginn
ekki getað skotið hann út um
baðherbergisgluggann.
King var í Memphis einnig
viku fyrir morðið. En þá
dvaldi hann á öðru móteli, svo
Framhald á bls. 15.